Morgunblaðið - 09.02.2018, Síða 46

Morgunblaðið - 09.02.2018, Síða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2018 Skúli Halldórsson sh@mbl.is „Við erum staddir lengst norður í Barentshafi, við ísröndina,“ segir Gísli Unnsteinsson, skipstjóri á norska skipinu Northeastern, þegar blaðamaður slær á þráðinn til hans. Þar er hann á snjókrabbaveiðum. „Það er að koma sá tími þegar ísinn kemur hérna yfir og það kólnar,“ seg- ir Gísli. Um borð í skipinu eru jafnan á bilinu tuttugu til tuttugu og sex í áhöfn, en það fer eftir árstímanum. Gísli er einn fjögurra Íslendinga um borð og eru þeir sjaldséðir á þessum slóðum. „Það eru engir aðrir Íslendingar í þessum bransa sem ég veit af, en það eru stundum rækjuskip hérna sem Ís- lendingar geta verið á. Þetta er til- tölulega nýr bransi í Noregi, þessar snjókrabbaveiðar, þær hafa bara staðið yfir í nokkur ár núna,“ segir hann og bætir við að hann hafi byrjað haustið 2014, þegar skipið var sett af stað í þetta verkefni. „Þetta er gamalt selveiðiskip sem var endurbyggt fyrir þetta, sextíu metra langt.“ Krabbarnir soðnir og frystir Veiðarnar fara þannig fram að gildr- ur eru settar í sjó og síðar athugað með þær þegar það er talið tímabært. „Við erum með tuttugu þúsund gildrur í sjó á tvö til þrjú hundruð metra dýpi. Það eru tvö hundruð gildrur í hverri stæðu og þær fara aldrei í land. Túrarnir eru svona fimm til sex vikur og allt er þetta unnið um borð,“ segir Gísli. Bendir hann á þætti bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar Discovery, Deadliest Catch, sem not- ið hafa mikilla vinsælda víða um heim, en þar er fylgst með sjómönnum á krabbaveiðum undan ströndum Alaska. „Við erum að veiða sömu krabba, nema hvað við gerum þetta á aðeins annan hátt. Við erum með öðruvísi gildrur og fullvinnslu um borð en þeir hafa þetta ferskt og lifandi. Hér er þetta allt soðið og fryst.“ Spurður um stærð krabbanna segir hann skelina vera á stærð við góða karlmannslúku. „Svo eru svona fimm- tán sentimetra lappir á þessu.“ Sára- lítill meðafli fæst þá í gildrurnar. „Það er lítið sem ekki neitt, það sést ein- staka þorskur en það er mjög sjald- gæft. Þetta er bara þessi krabbi.“ Sökkva línunum vegna íssins Heldur krabbinn sig það norðarlega að við getum ekki spáð í þetta hér á Íslandi? „Það held ég. Í upphafi byrjuðu þessar veiðar í Smugunni, en nú er búið að loka henni þannig að við meg- um ekki vera þar lengur. Núna erum við á svæðinu í kringum Svalbarða og mér skilst að hér geti enginn fengið leyfi nema norsk skip.“ Spurður hvar þeir landi aflanum segir Gísli að oftast sé það gert í Tromsö. „Það er bara ekki nógu góð þjón- usta neins staðar annars staðar, þótt það sé mjög langt að fara – ferðin þangað tekur um tvo og hálfan sólar- hring. Aðalveiðisvæðið er svona beint austur af Svalbarða, við mörkin á Smugunni og Svalbarðasvæðinu.“ Veiðihættirnir eru nokkuð breyti- legir eftir árstíðum, en náttúruöflin í norðurhöfum eru vitanlega illviðráð- anleg. „Nú erum við að búa okkur undir að ísinn komi hér yfir aftur. Þá fjar- lægjum við alla belgi og baujur af lín- unum og sökkvum þeim bara, þannig að við þurfum að slægja þær upp aft- ur til að draga þær.“ Gísli segir að á síðasta ári hafi út- gerðin lent í miklu tjóni út af ísnum. „Þegar ísinn fer yfir slítur hann frá alla belgi og baujur og jafnvel dregur veiðarfærin í burtu, þannig að við finnum þau ekki aftur. Við misstum töluvert af veiðarfærum í fyrra. En við ætlum að vera betur undirbúnir í þetta skiptið.“ Myrkur allan sólarhringinn Á þessum slóðum rekst áhöfnin oft á spangir af hafís. Þar leynast gjarnan selir, sem eru fljótir að stinga sér í hafið um leið og skipið siglir nærri – nú eða hvítabirnir. Einn slíkur varð á vegi Gísla á síðasta ári og vöktu myndir af honum athygli á Facebook. Spurður hvenær áhöfnin megi helst eiga von á að sjá hvítabirni segir Gísli að þeir fylgi auðvitað ísnum. „Í fyrra flæddi ísinn yfir um miðjan febrúar og var alveg langt fram á sumar. En á þessum árstíma, núna í febrúar, þá sér maður náttúrlega ekki neitt. Það er myrkur allan sólar- hringinn meira og minna frá því snemma í nóvember og fram í febr- úar. Það er aðeins farið að minnka núna milli tíu og tólf á morgnana en annars er þetta stöðugt svartnætti.“ Öðruvísi horfi við á sumrin. „Þá er bjart allan sólarhringinn.“ Gott veður meirihluta ársins Áður hefur Gísli lengi stundað sjóinn við strendur Íslands. Blaðamaður spyr hann hvort það séu ekki tölu- verð viðbrigði að fara svona langt norður. „Maður hefur svo sem komið svona norðarlega áður, á rækjuveiðunum, og þetta er náttúrlega miklu norðar en Ísland nokkurn tímann. En auðvit- að er þetta bara sjór eins og venju- lega, úti um allt, nema þegar ísinn er.“ Veðráttuna segir hann þó öðruvísi en hann hafi átt að venjast. „Það er yfirleitt gott veður meiri- hlutann af árinu, en síðan frá nóv- ember til febrúar er eiginlega leið- inlegt veður allan tímann. Frá mars og alveg fram í október erum við hins vegar í nokkuð góðu veðri. Það virð- ast vera skarpari skil hérna en heima, þar sem er alltaf vont veður allt árið um kring,“ segir Gísli og hlær. „Eða svoleiðis.“ Bræla Gísli segir veðrið leiðinlegt yfir vetrarmánuðina. Það batni svo um vorið. Ljósmyndir/Guðfinnur Jón Karlsson Hafís Ísinn fór illa með veiðarfæri áhafnarinnar í fyrra. Nú eru menn betur búnir. Bjarndýr Þessi björn varð á vegi Gísla og áhafnarinnar á Northeastern á síðasta ári. Hann virtist láta sér fátt um finnast. Myrkur Frá október og fram í febrúar eru miðin hulin myrkri frá morgni til kvölds. Krabbarnir Gísli segir skel snjókrabbans vera á stærð við góða karlmannslúku. Ísing Áhöfnin á Northeastern vinnur að því að höggva klaka af skipinu. Snjókrabbaveiðar á slóðum hvítabjarna Í brúnni Gísli Unnsteinsson, skipstjóri Northeastern, hóf veiðarnar 2014. Gísli Unnsteinsson stýrir skipi og áhöfn í Barentshafi. Þar eru þeir þó ekki einir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.