Morgunblaðið - 13.03.2018, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2018
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
GE bílar
Reykjanesbæ
www.gebilar.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
5
9
1
8
RENAULT KANGOO
DÍSIL, 1,5 L, 90 HESTÖFL.
NÚ Í FYRSTA SINN SJÁLFSKIPTUR
Verð:2.379.000 kr. án vsk.
2.950.000 kr.m. vsk.
Eyðsla 4,3 l/100 km*
RENAULT KANGOO RAFBÍLL
NÝ STÆRRI RAFHLAÐA - 33 KWH
UPPGEFIN DRÆGNI 270 KM**
Verð:3.750.000 kr.
*M
ið
að
vi
ð
up
pg
ef
na
r
tö
lu
r
fra
m
le
ið
an
da
um
el
ds
ne
yt
is
no
tk
un
íb
lö
nd
uð
um
ak
st
ri
/
**
S
am
kv
æ
m
tu
pp
ge
fn
um
tö
lu
m
fra
m
le
ið
an
da
um
dr
æ
gn
iv
ið
be
st
u
m
ög
ul
eg
u
að
st
æ
ðu
r
(N
E
D
C
).
RENAULTKANGOO
TVÆRNÝJUNGAR
Renault atvinnubílar hafa slegið í gegn með hagstæðu verði og ríkulegum búnaði.
Nú bjóðum við tvær spennandi nýjungar á þessum vinsæla sendibíl.
Kangoo með dísilvél og sjálfskiptingu og Kangoo EVmeð stærri rafhlöðu.
www.renault.is
100% RAFMAGN
Alls bárust rúmlega 50 umsóknir
um fjögur störf flugliða um borð í
nýrri Dornier 328 vél, sem Flug-
félagið Ernir hefur fest kaup á og
er væntanleg til landsins upp úr
miðjum apríl. Hörður Guðmunds-
son, forstjóri Ernis, segist frekar
vilja tala um öryggisverði en flug-
freyjur eða flugþjóna í þessu sam-
bandi þar sem engar veitingar
verði til sölu um borð, enda flug-
leiðir yfirleitt stuttar.
Nýja flugvélin tekur 32 farþega
og segir Hörður að samkvæmt
reglugerðum bætist öryggisvörður
eða flugliði við í áhöfn með 20. far-
þeganum. Hann segir að nýja vélin
kosti um þrjár milljónir dollara
eða um 300 milljónir króna. Þegar
búið verði að þjálfa mannskap á
vélina og kaupa
nauðsynlegan
búnað í hana og
á jörðu niðri
verði kostnaður-
inn hátt í 400
milljónir króna.
Nú er Ernir
með í rekstri
fjórar Jet-
stream-
skrúfuþotur og
taka þær 19 farþega. Hörður segir
að í sumar verði þær vélar og Dor-
nier-vélin reknar samhliða. Í haust
verði staðan metin, en hugsanlega
verði staðan þannig eftir tvö ár að
fyrirtækið verði með tvær Dor-
nier-vélar og tvær Jetstream.
aij@mbl.is
Dornier 328 Flugvél sömu gerðar og Flugfélagið Ernir er að kaupa.
50 umsóknir um
4 stöður flugliða
Ernir fær nýja Dornier 328 vél eftir
mánuð Kostnaður um 400 milljónir
Hörður
Guðmundsson
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður
VR, segir verkalýðshreyfinguna
krefjast kerfisbreytinga við gerð
nýrra kjarasamninga. Að öðrum
kosti verði krafist sömu hækkana og
hjá kjararáði. Dugi það ekki verði
verkfallsvopnið dregið fram.
Um þetta séu hann og Vilhjálmur
Birgisson, formaður Verkalýðs-
félags Akraness, og Sólveig Anna
Jónsdóttir, verðandi formaður Efl-
ingar, samstiga. Þau hafi rætt þessi
sjónarmið á fundum undanfarið.
Með kerfisbreytingum vísar
Ragnar Þór í fyrsta lagi til grund-
vallarbreytinga á vaxta- og lána-
kerfinu. Með afnámi verðtryggingar
og banni við jafngreiðslulánum verði
sjálfkrafa stuðlað að vaxtalækkun.
Almenningur muni ekki lengur hafa
efni á vöxtunum og bankar því verða
að lækka þá svo einhver eftirspurn
verði eftir íbúðalánum. Í öðru lagi
þurfi að taka upp þrepaskiptan per-
sónuafslátt og réttlátara skattkerfi.
Í þriðja lagi þurfi að stytta vinnuvik-
una og auka framleiðni.
Gætu skipt gríðarlegu máli
„Þetta eru risastórar kerfisbreyt-
ingar sem þurfa ekki að kosta mikið
fé, sérstaklega ekki fyrir atvinnulíf-
ið, en gætu skipt gríðarlega miklu
máli fyrir fólkið okkar. Annaðhvort
þarf að fara einhverja svona leið, og
fá stjórnvöld og atvinnulífið í lið með
okkur, eða fara þá
einu leið sem okk-
ur verður þá fær
sem er að krefjast
sömu hækkana
og kjararáð og þá
fer allt á hliðina.
Ef menn eru til-
búnir að setjast
niður og ræða
kerfisbreytingar
væri það farsæl-
asta lausnin. Best væri að gera lang-
tímasamning,“ segir Ragnar Þór.
Þarf ekki að kosta neitt
Spurður hvort til séu fjármunir til
að uppfylla kröfur verkalýðsforingja
um grundvallarbreytingar á lána-
kerfinu segir Ragnar Þór að „það
kosti ekkert að lækka vexti“.
„Það þarf heldur ekki endilega að
kosta mikið að breyta skattkerfinu.
Það er ríkisstjórnarinnar að ákveða
hvort hún vill breyta kerfinu og
vinda ofan af þróun undanfarinna
ára. Það er hennar að ákveða hvort
hún vill fara í þessar skattkerfis-
breytingar með 0-lausn eða setja
eitthvað af afgangi af fjárlögum til að
fjármagna innspýtingu í skattkerfið.
Slík innspýting kæmi fyrirtækjum
vel. Innspýting með vaxtalækkun
myndi líka gagnast fyrirtækjum vel
og gera þeim kleift að gera betur við
starfsfólk,“ segir Ragnar Þór. Með
0-lausn vísar hann til aðgerða sem
ekki kosta ríkissjóð fé. Ávinningur
muni vega upp kostnað.
„Með því að hækka persónuafslátt
í þrepum munu lægri tekjuhópar fá
hærri persónuafslátt en þeir hærri
minni. Þeir tekjuhæstu engan en há-
tekjufólk þarf ekki persónuafslátt.
Með því að hækka persónuafslátt
yfir línuna verður ríkið af miklum
skatttekjum. Til að milda það og
gera skattkerfið sanngjarnara má
fara tvær leiðir,“ segir Ragnar Þór.
„Annars vegar með tilfærslu í skatt-
kerfinu með þrepaskiptingu. Hins
vegar má fjármagna slíka aðgerð
með öðrum leiðum eins og auðlinda-
gjaldi, hátekju- og fjármagnstekju-
skatti eða blanda þessu saman.“
Ferðaþjónusta hugsi sinn gang
Haft var eftir Ólafi Torfasyni,
stjórnarformanni Íslandshótela, í
Morgunblaðinu í gær, að launakröf-
ur nýrra verkalýðsforingja væru
óraunhæfar. Vegna aukins launa-
kostnaðar væru sum hótel til dæmis
farin að útvista ræstingu.
Spurður um þetta sjónarmið segir
Ragnar Þór að milliliðir hirði drjúg-
an hluta launa starfsmanna hjá
starfsmannaleigum sem taka að sér
útvistun af þessu tagi. Slík starfsemi
geti haft ýmis einkenni mansals.
Hann segir aðspurður það geta
verið jákvætt að stuðla að frjálsri för
vinnuafls. Hins vegar verði réttindi
vinnufólks að fylgja slíkum kerfis-
breytingum. Nú sæti milliliðir lagi
og selji út starfsfólk sem hefur tak-
mörkuð réttindi. Slíka starfsemi
þurfi að stöðva.
Kerfinu verði breytt
ellegar verði verkföll
VR krefst lægri vaxta Tekið verði á starfsmannaleigum
Ragnar Þór
Ingólfsson