Morgunblaðið - 13.03.2018, Síða 27

Morgunblaðið - 13.03.2018, Síða 27
vinnslufyrirtækisins Ístex frá 2004, og formaður frá 2008, formaður fjár- skiptanefndar í Skjálfandahólfi frá stofnun 1986, en nefndin skipulagði fyrstu sameiginlegu tilraun til útrým- ingar riðuveiki í sauðfé, sat í stjórn Kaupfélags Þingeyinga og Mjólkur- samlags KÞ um skeið, er formaður Veiðifélags Reykjadalsár og Eyvind- arlækjar frá 2009, sat um árabil í mið- stjórn Framsóknarflokksins og var varaformaður Stjórnlagaráðs sem samdi frumvarp til stjórnskipunar- laga árið 2011. „Eftir að ég hætti sem formaður Bændasamtakanna hef ég í auknum mæli sinnt málefnum sparisjóðanna og það hefur verið umtalsverð vinna. Ég ólst upp við almenn bústörf og hef alltaf verið með hugann hjá bænd- um og búskapnum. Það kom því aldrei annað til álita en að vinna að fram- gangi landbúnaðar á Íslandi. Í fríum nýt ég helst samskipta við fjölskylduna og vini. Ég varð einhvern tíma þingeyskur meistari í brids, er ég var um þrítugt, og hef spilað síðan. Við Reykdælir spilum alltaf brids einu sinni í viku á þremur til fimm borðum. Auk þess hef ég gaman af lax- og sil- ungsveiði, ólst upp við silungsveiði í Másvatni og á hlut í Reykjadalsá.“ Ari var sæmdur riddarakrossi fálkaorðunnar 2004 fyrir störf að fé- lagsmálum bænda. Hann hefur ritað fjölda greina í blöð og tímarit um þjóðmál, landbúnaðar- og fjármál. Fjölskylda Ari kvæntist 2.1. 1972 Elínu Magn- úsdóttur, f. 28.6. 1943, hússtjórnar- kennara, frá Birkihlíð í Reykholtsdal. Hún er dóttir Magnúsar Bjarnasonar, bónda í Birkihlíð, og k.h. Brynhildar Stefánsdóttur en þau eru bæði látin. Börn Ara og Elínar eru:1). Elín, f. 19.5. 1973 framkvæmdastjóri en mað- ur hennar er Ingvar Björnsson jarð- ræktarfræðingur, frá Hólabaki í Húnaþingi, en þau reka textílfyrir- tæki og kúabúskap á Hólabaki og eru börn þeirra Aðalheiður, Ari og Elín; 2) Magnús, f. 28.6. 1974, byggingar- verkfræðingur hjá Eflu en kona hans er Elísabet Eik Guðmundsdóttir líf- fræðingur og eru börn þeirra Matth- ias og Karitas, og 3) Teitur, f. 5.4. 1979, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, en kona hans er Þuríður Ósk Smáradóttir leirlistakona og börn þeirra eru Kristjana og Ari. Áður átti Elín Bjarna Viðarsson, f. 11.2. 1961, verkfræðing sem rekur eigin verkfræðistofu. en kona hans er Sólrún Halldórsdóttir viðskiptafræð- ingur og eru dætur þeirra Lilja og El- ín. Systkini Ara eru Björn, f. 1941, fyrrverandi skólameistari Mennta- skólans á Ísafirði; Sigríður, f. 1946, fyrrverandi sérkennari við Öskjuhlíð- arskóla; Erlingur, f. 1946, bóndi á Brún; Helga f. 1947, bóndi á Högna- stöðum í Hrunamannahreppi og fyrr- verandi hússtjórnarkennari á Flúð- um, og Ingvar, f. 1951, læknir á Akureyri. Foreldrar Ara voru Teitur Björns- son frá Brún, f. 14.10. 1915, d. 26.10. 1998, og Elín Aradóttir frá Grýtu- bakka í Höfðahverfi, f. 3.11. 1918, d. 25.10. 2000, búendur í Saltvík við Húsavík 1943-51 og síðan á Brún til æviloka. Úr frændgarði Ara Teitssonar Ari Teitsson Arnbjörg Jóhannesdóttir húsfr. á Gunnarsstöðum Árni Davíðsson b. á Gunnarsstöðum í Þistilfirði, systursonur Jóns, langafa Jónasar Jónssonar búnaðarmálastj. Sigríður Árnadóttir húsfr. á Grýtubakka Elín Aradóttir húsfr. á Brún Hróar Björnsson kennari Sigurður Hróarsson fyrrv. leikhússtj. Borgarleikhússins Bjarni Arason búnaðarráðunautur í Borgarnesi Tryggvi Sigtryggsson b. og ennari á Laugabóli í Reykjadalk Ingi Tryggvason, fyrrv. form. Stéttarsambands bænda Ingvar Teitsson læknir á Akureyri Helga Teitsdóttir b. á Högnastöðum og fyrrv. hússtjórnarkennari Björn Teitsson fyrrv. skólam. MÍ Sigríður Teitsdóttir fyrrv. sérkennari við Öskjuhlíðarskóla Erlingur Teitsson b. á Brún Gunnar Árnason gjaldkeri Búnaðarfélags Íslands Sigríður Jóhannes- óttir húsfr. á Gunnars- stöðum d Steingrímur J. Sigfússon alþm. og fyrrv. ráðherra Jóhannes Árnason b. á Gunnarsstöðum Ingólfur Sigurgeirsson b. og bókbindari í Vallholti í Reykjadal Sigurgeir Tómasson b. í Stafni Ari Bjarnason b. á Grýtubakka Snjólaug Sigfúsdóttir húsfr. á Grýtubakka Bjarni Arason b. á Grýtubakka Þóra igfúsdóttir húsfr. í Rvík argrét Garðarsdóttir húsfr. í RvíkMGarðar Halldórsson arkitekt S Kristján Garðarsson Gíslason stórkaupm. í Rvík Garðar Gíslason hæstaréttardómari Þóra Kristjánsdóttir sagn­ fræðingur og listráðunautur Ingibjörg Sigurðardóttir húsfr. í Stafni, frá Lundarbrekku Tómas Sigurðsson b. í Stafni í Reykjadal Elín Tómasdóttir húsfr. á Brún Björn Sigtryggsson b. á Brún Helga Jónsdóttir húsfr. á Hallbjarnarstöðum, af Mýrarætt Sigtryggur Helgason b. á Hallbjarnarstöðum í Reykjadal, af Skútustaðaætt Teitur Björnsson b. á Brún í Reykjadal í Suður­Þing. ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2018 Reykjavík: Akureyri: Vefsíða og vefverslun Krókhálsi 16 110 Reykjavík Sími 568-1500 Baldursnesi 8 603 Akureyri Sími 568-1555 www.thor.is EIN RA FHLAÐ A, ÓTAL M ÖGULE IKAR! VERKFÆRI ATVINNUMANNSINS Guðbrandur Vigfússon fæddist13.3. 1827. Foreldrar hansvoru Vigfús Gíslason, gull- smiður í Galtardal á Fellsströnd, og k.h., Halldóra Gísladóttir húsfreyja, frá Breiðabólstað á Skógarströnd, sonardóttir Ólafs Gíslasonar biskups í Skálholti. Guðbrandur var ókvæntur og barnlaus. Guðbrandur fór í Bessastaðaskóla 1844 en lauk stúdentsprófi frá Reykjavíkurskóla 1849, stundaði nám í málfræði og íslenskum fræð- um við Hafnarháskóla en tók ekki próf. Hann var styrkþegi Árnasafns 1856-66, sat í stjórn Nýrra félagsrita 1858-64, var í Noregi 1854 og Þýska- landi 1859, og skrifaði frásagnir af þeim ferðum í Ný félagsrit. Guðbrandur flutti til Englands 1864, var fyrst tvö ár í Lundúnum en síðan í Oxford til æviloka. Fyrsta áratuginn á Englandi vann hann að útgáfu Íslensk-enskrar orðabókar sem kennd er við hann og Richard Cleasby, en Konráð Gíslason hafði einnig unnið að undirbúningi henn- ar. Bókin kom út 1869-74, og var í rúma öld helsta hjálpargagn ensku- mælandi manna við nám í íslensku. Guðbrandur fékkst síðan við kennslu og fræðistörf, varð kennari í norrænum fræðum við Háskólann í Oxford og kenndi þar til dauðadags. Guðbrandur vann þrekvirki við fornritaútgáfur, m.a. að útgáfu Orkneyinga sögu og Hákonar sögu, sem kom út í hinu þekkta heim- ildasafni um sögu Bretlandseyja: Rolls series. Með þeim fylgdu Saga Magnúsar Eyjajarls og brot úr Sögu Magnúsar lagabætis, alls fjögur bindi, sem komu út 1887-94. Einnig gaf hann út Sturlunga sögu í tveim- ur bindum, og er í inngangsritgerð hans að þeirri útgáfu mjög gott yfir- lit um íslenskar fornbókmenntir og varðveislusögu þeirra. Guðbrandur varð MA 1871, heið- ursfélagi Vísindafélagsins í München 1873, heiðursdoktor við Uppsalaháskóla 1877, riddari af Dannebrog 1885 og heiðursfélagi í Vísindafélaginu í Kristjaníu 1887. Guðbrandur lést 31.1. 1889. Merkir Íslendingar Guðbrandur Vigfússon 95 ára Sigrún Elíasdóttir 90 ára Valur Júlíusson 85 ára Jóhann Þór Sigurbergsson Vilhelm Ingólfsson 80 ára Gunnar Þórólfsson Haukur Guðjónsson Margrét Dannheim 75 ára Anna Gréta Baldursdóttir Ari Teitsson Gréta Sigfúsdóttir Guðmundur Þorsteinsson Ragnheiður Hulda Karlsdóttir Ragnhildur Gísladóttir Rútur Kjartan Eggertsson 70 ára Baldur Baldvinsson Bragi Rúnar Sveinsson Gísli Ragnarsson Höður Guðlaugsson Inga Rósa Guðjónsdóttir Júlíus Gunnar Óskarsson Laufey J. Kjartansdóttir Margrét G. Karlsdóttir Ragnheiður Guðbjörg Jónsdóttir Sigurður Guðmundsson 60 ára Brynjólfur Grétarsson Elísabet Jóna Sólbergsdóttir Guðmundur Ingvason Gunnar Ágúst Pálsson Hjalti Reynisson Hulda Kobbelt Ingólfur Hjörleifsson Lin Kam Yu Sigríður Einarsdóttir Laxness Sigurlaug Sigurpálsdóttir Sverrir Sigurjón Björnsson Theódóra K. Frímann Þórhildur Þorsteinsdóttir 50 ára Barbara Meyer Iwona Jadwiga Bialkowska Katrín Spitta Gunnarsdóttir Ragnheiður Samúelsdóttir Roman Józef Olkuski Sigrún Kristjánsdóttir Sigrún Lilja Jónsdóttir Sigurbjörg G. Friðriksdóttir Sigurður B. Halldórsson Vigdis Furuseth Þórunn Lára Þórarinsdóttir 40 ára Alfa Rós Pétursdóttir Eva Björk Haraldsdóttir Guðrún H. Jóhannsdóttir Gunnar Sigvaldason Gyða Einarsdóttir Karlotta S. Ásgeirsdóttir Sif S. Ólafsson Sigrún H. Sigurðardóttir Stefán Arnar Gunnarsson 30 ára Baldur Árnason Brynjar Traustason Elisia Di Franco Friðbjörn Naman Davidsen Guðrún S. Gröndal Gunnlaugur D. Garðarsson Halldór F. Guðmundsson Jónas Höskuldsson Jón Haraldur Sölvason Lukasz Chelminiak Marinó Hólm Ingvarsson Milena Jastrzebska Monika Jastrzebska Til hamingju með daginn 30 ára Marinó ólst upp á Akureyri, býr þar og er vaktstjóri hjá Sæplasti á Dalvík. Unnusta: Kolbrún Egedía Sævarsdóttir, f. 1996, verslunarmaður hjá Hag- kaupum á Akureyri. Sonur: Björn Ingvar Marinósson, f. 2016. Foreldrar: Anna Arn- grímsdóttir, f. 1964, mat- artæknir við MA, og Ingvar Marinósson, f. 1957, fyrrv. sjómaður. Marinó Hólm Ingvarsson 30 ára Brynjar býr í Mos- fellsbæ, lauk sveinsprófi í pípulögnum og rekur B Markan pípulagnir, ásamt föður sínum. Maki: Lára Pálmarsdóttir, f. 1989, hárgreiðslukona. Börn: Emma Mjöll, f. 2008, og Tristan Snær, f. 2012. Foreldrar: Böðvar Mark- an, f. 1968, pípulagninga- meistari, og Jóna Kristín Ármannsdóttir, f. 1967, ritari. Brynjar Traustason 40 ára Sigrún ólst upp á Fellsströnd, lauk búfræði- prófi frá Hólum og er bóndi á Lyngbrekku. Maki: Ármann Rúnar Sig- urðsson, f. 1980, bóndi á Lyngbrekku. Börn: Björgvin Rúnar, f. 2007, og Orri Freyr, f. 2012. Stjúpsonur: Daníel Rúnar, f. 2004. Foreldrar: Sigurður Björgvin Hansson, f. 1951, og Bára Sigurðardóttir, f. 1953. Sigrún Hanna Sigurðardóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.