Morgunblaðið - 13.03.2018, Síða 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2018
SMÁRALIND
www.skornirthinir.is
Kíktu á verðið
Mjúkir
leðurskór
Tilboðsverð
4.798
Verð áður 11.995
Stærðir 36-41
Tilkynnt var í liðinni viku að hinn ní-
ræði indverski arkitekt Balkrishna
Doshi hlyti Pritzker-verðlaunin í ár
en það eru virtustu verðlaun sem
arkitekt getur hlotið fyrir ferilinn og
eru oft kölluð „Nóbelsverðlaun arki-
tektúrsins“. Doshi, sem hefur haft
mikil áhrif á þróun byggingarlistar í
heimalandinu, segist ætla að nota
verðlaunaféð í
baráttu sem hann
hefur leitt og
miðar að því að
fátækir landar
hans geti komið
sér þaki yfir höf-
uðið en gríðar-
legur húsnæð-
isskortur er á
Indlandi.
Snemma á
starfsferlinum
sem spannar nú sjö áratugi starfaði
Balkrishna Doshi náið með stjörnu-
arkitektunum Le Corbusier og Lou-
is Kahn er þeir teiknuðu þekktar
byggingar sem risu á Indlandi, og
þar á meðal nokkrar í heimaborg
Doshi, Ahmedabad í Gujarat-héraði.
Nálgun beggja við form og efnivið,
ekki síst steinsteypu, hafði mikil
áhrif á Doshi. Hann er ekki bara
hönnuður bygginga heldur einnig
borgarskipulags og hann leggur
áherslu á að við hönnun bygginga
eigi að stefna að því að skapa sam-
félag, að rými eigi að skapa innri ró
og að vel skipulagðar borgir stuðli
að heilbrigðari samfélagi.
Hugmyndafræði Doshi varðandi
samfélag og byggingar sem alþýðan
hefur efni á birtist til að mynda í svo-
kölluðu Aranya-hverfi þar sem um
80 þúsund manns búa nú í mis-
stórum íbúðum, allt frá stúdíó-
íbúðum upp í stór einbýlishús, með
sameiginlegum útivistarsvæðum og
görðum fyrir fjölskyldurnar.
Í úrskurði nefndar Pritzker-
verðlaunanna er sú heildarhugsun
sem Doshi vinnur með í skipulagi
bygginga og hverfa sögð ein helsta
ástæðan fyrir því að hann var valinn;
hvernig arkitektinn setur velferð
íbúa og vellíðan í fyrsta sætið.
Heilbrigt samfélag í góðu skipulagi
Ljósmyndir/VSF
Steypuverk Höfuðstöðvar Institute of Indology í Ahmedabad er ein fyrstu
bygginganna sem Doshi hannaði eftir að hafa unnið með Le Corbushier.
Vinnustofan Sangath er vinnustofan sem Doshi hannaði fyrir sjálfan sig og
fyrirtæki sitt í Ahmedabad en þar vinna nú um 60 starfsmenn.
Neðanjarðargallerí Doshi teiknaði Amdavad Ni Gufa sem sýningarrými
fyrir „óvænt stefnumót“ gesta við listaverk eftir Maqbool Fida Husain.
Viðráðanlegt Hlyti Aranya-hverfisins sem Doshi hannaði fyrir um 80.000
íbúa. Þar leitar hann leiða við að skapa ódýrt og gott húsnæði fyrir fjöldann.
Balkrishna
Doshi
Indverski arkitektinn Balkrishna Doshi hlýtur Pritzker-verðlaunin Vann náið með Le Corbusier
Hann vill hanna ódýrt og húsnæði fyrir fjöldann Setur velferð íbúa og vellíðan í fyrsta sætið
Dregið var í lestrarátaki Ævars vís-
indamanns í gær í aðalsafni Borgar-
bókasafns og fá þeir fimm grunn-
skólanemendur sem dregnir voru út
þann heiður að vera persónur í
næstu bók Ævars Þórs Benedikts-
sonar, sem nefnist Ofurhetjuvíddin
og væntanleg er í maí. Líkt og í
fyrra var það forseti Íslands, Guðni
Th. Jóhannesson, sem sá um að
draga nöfnin og þau heppnu eru
Einar Karl Kristinsson í Öldutúns-
skóla, Freyja Sigrún Jóhannesdóttir
í Smáraskóla, Guðjón Máni Brjáns-
son í Álftanesskóla, Karen Líf Sigur-
bjargardóttir í Höfðaskóla og Stefán
Arnar í Hlíðaskóla.
Lestrarátak Ævars vísindamanns
í ár er það fjórða sem haldið er á
jafnmörgum árum. Í ár voru lesnar
53 þúsund bækur, en samtals hafa
yfir 230 þúsund bækur verið lesnar
frá því átakinu var hrundið af stað.
Eins og í fyrra náði átakið einnig til
íslenskra krakka sem búa erlendis,
meðal annars í Brussel, Danmörku,
Svíþjóð, Hollandi, Sviss, Lúxem-
borg, Noregi, Belgíu, Þýskalandi og
Frakklandi. Í fyrsta skiptið voru 8.-
10. bekkur með, en hingað til hefur
átakið bara verið fyrir 1-7. bekk.
Nemendur máttu lesa á hvaða
tungumáli sem var og hljóðbækur og
upplestur annarra taldist með.
53 þúsund bækur lesn-
ar í átaki Ævars í ár
Morgunblaðið/Hari
Lestrarhestar Forseti Ísland dró út nöfn fimm þátttakenda í Lestrarátaki
Ævars vísindamanns sem verða persónur í næstu bók hans.