Morgunblaðið - 13.03.2018, Side 36

Morgunblaðið - 13.03.2018, Side 36
ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 72. DAGUR ÁRSINS 2018 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 1. Ronaldo nýtur lífsins á Íslandi 2. Ólétt að fjórða barni og dæmd í … 3. Gylfi alvarlega meiddur í hné? 4. „Ertu ekki taílensk?“ »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Kvartett franska píanóleikarans Leilu Olivesi leikur á Kex hosteli í kvöld kl. 20.30. Með Olivesi koma fram Sigurður Flosason á saxófón, Þorgrímur Jónsson á kontrabassa og Donald Kontomanou á trommur. Oli- vesi býr og starfar í París þar sem hún hefur unnið til ýmissa verðlauna fyrir hljóðfæraleik sinn og tónsmíðar. Kvartett Leilu Olivesi leikur á Kex hosteli  Terry Gunnell, prófessor í þjóð- fræði, fjallar um þjóðtrú Íslend- inga í Listasafni Íslands í dag milli kl. 12.10 og 12.45 í fyrirlestraröðinni Þjóðsögur á þriðjudögum sem fram fer samhliða sýningu á þjóð- sagnamyndum Ásgríms Jónssonar. Fyrirlesturinn fer fram á ensku. Þjóðtrú Íslendinga Á miðvikudag Austan- og norðaustanátt, víða 10-15 m/s. Slydda eða rigning með köflum og hiti 1 til 6 stig. Dálítil snjókoma um tíma norðantil á landinu og vægt frost þar. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan- og norðaustanátt, víða 8-13 m/s, en 15-23 syðst og í Öræfum fram eftir degi. Bjart um landið vestan- og norðanvert, en skýjað og dálítil él suðaustan- og austantil. VEÐUR Ekki lá fyrir þegar Morgun- blaðið fór í prentun hve al- varleg hnémeiðsli Gylfa Þórs Sigurðssonar eru. Gylfi meiddist í leik með Everton í ensku úrvalsdeild- inni í knattspyrnu um helgina og í fréttatilkynn- ingu Everton kom fram að hann myndi gangast undir skoðun hjá sérfræðingi, sem átti að fara fram í gær- kvöld, en niðurstöður lágu ekki fyrir í gær. »1 Enn ríkir óvissa um meiðsli Gylfa „Þegar Levski sýndi því fyrst áhuga að fá mig vorum við mjög efins um hvort þetta væri rétta skrefið. Síðan hringdi forseti félagsins í mig nokkr- um sinnum, hvatti mig til að koma og útskýrði hvernig hlutirnir væru. Ég ákvað að láta slag standa, gera mitt besta og sjá hvert það myndi leiða, og ég sé alls ekki eftir því,“ segir knattspyrnumaðurinn Hólmar Örn Eyjólfsson sem á góðu gengi að fagna með Levski Sofia í Búlgaríu. » 2 Lét slag standa og sé ekki eftir því „Þjálfarinn leggur mikla áherslu á að bakvörðurinn sé leiðtogi í liðinu og ég er því með visst leiðtogahlutverk. Ég hef lært mikið af honum og er virkilega glaður yfir að hafa tekið þá ákvörðun að fara hingað,“ segir Jón Axel Guðmundsson m.a. við Morgun- blaðið í dag en hann leikur í úr- slitakeppni bandaríska háskóla- körfuboltans. »3 Jón Axel í fótspor Franks og Helenu vestanhafs ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Konur í Langholti, Kvenfélag Lang- holtssóknar, standa fyrir tvennum styrktartónleikum í Langholtskirkju klukkan 17 og 20 sunnudaginn 18. mars nk. til þess að safna fyrir end- urnýjun á sætum í kirkjunni. Fram koma kórar og sjálfstæðir tónlistar- menn að auki. Anna Birgis, formaður Kven- félagsins, segir að félagið hafi verið með fjáröflunarátak tvisvar á ári, vorhátíð og basar á haustin, og nú hafi þurft að bregðast við lélegri stöðu sætanna í kirkjunni. „Kirkjan hefur alla tíð verið mikið tónlistar- hús og með það í huga ákváðum við, það er kvenfélagið, sóknarnefndin, prestarnir, listafélagið og organist- inn Magnús Ragnarsson, listrænn stjórnandi tónlistarstarfs í Lang- holtskirkju, að fara í þessa fjár- öflun.“ Tónlist og kórastarf hefur verið miðpunktur safnaðarstarfsins og hljómburður kirkjunnar þykir ein- stakur. Í kórum kirkjunnar eru sam- tals yfir 200 félagar. Kór Langholts- kirkju hefur vakið athygli frá stofnun 1953 eða í 65 ár og kórskóli kirkjunnar hefur verið starfræktur frá 1991. „Það er mikil gróska í tónlistarlíf- inu hérna og kirkjan er mikið notuð fyrir tónleika af mismunandi tagi,“ segir Magnús Ragnarsson. Hann bendir á að góður ómtími sé í kirkj- unni, hún henti sérstaklega vel fyrir allan söng og búi auk þess yfir sér- stökum flygli og glæsilegu orgeli. Sjálfur hafi hann verið með marga tónleika í Langholtskirkju og það sé alltaf skemmtilegt. Gildi þá einu hvort flutt séu klassísk verk eða söngur. Í því sambandi bendir hann á að sl. fimmtudag hafi verið tón- leikar með einsöngvurum sem tengj- ast kórum kirkjunnar. Valinn maður í hverju rúmi Anna bætir við að um milljón manns hafi setið á stólunum á tón- leikum utan hefðbundins kirkju- starfs í Langholtskirkju frá því þeir voru teknir í gagnið fyrir um 35 ár- um og því komi ekki á óvart að það þurfi að endurnýja þá. „Við þurfum að láta yfirdekkja og bólstra 427 stóla,“ segir Anna og bendir á að grindurnar standi enn fyrir sínu. Á tónleikunum kl. 17 stíga á svið Björn Thoroddsen, Bubbi, Góðir grannar, Karlakór Kópavogs, Karla- kór Reykjavíkur, Kvennakórinn Katla, Óperukórinn í Reykjavík, Valgerður Guðnadóttir og Vox Fem- inae. Á seinni tónleikunum skemmta Fílharmonían, Graduale Nobili, Guðný Guðmundsdóttir, Karlakór- inn Fóstbræður, KK, Kór Lang- holtskirkju, Söngfjelagið og Þóra Einarsdóttir. Magnús segir að tónlistarfólkið og söngvararnir þekki vel kirkjuna og allir hafi brugðist vel við ósk um að koma fram á tónleikunum. „Það vita allir hvað kirkjan er mikil perla,“ segir hann. „Hún ber bassahljóminn vel og það er einkennandi fyrir góða tónlistarsali.“ Allt listafólkið gefur vinnu sína eins og aðrir sem að verkefninu koma, að sögn Önnu. Hún segir að mikil eftirvænting ríki vegna tón- leikanna. „Þetta er listahátíð.“ Sungið fyrir bættum sætum  Um milljón manns hefur setið á stólunum á tónleikum utan hefðbundins kirkjustarfs í Langholtskirkju  Listahátíð og styrktartónleikar á sunnudag Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Í Langholtskirkju Anna Birgis og Magnús Ragnarsson undirbúa tónlistarhátíðina um helgina vegna gömlu og lúnu stólanna í baksýn.  Mannfræðifélag Íslands ásamt Félagi þjóðfræðinga á Íslandi og Félagsfræðingafélagi Íslands heldur málþing um siðferðileg álitamál í rannsóknum. Málþingið verður í Háskóla Íslands í Odda, stofu 101, og hefst kl. 16.30. Erindi halda Jónína Einarsdóttir, Rósa Þorsteins- dóttir og Sigurjón Baldur Hafsteins- son. Að- gangur er ókeypis. Siðferðileg álitamál í rannsóknum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.