Morgunblaðið - 13.03.2018, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 13.03.2018, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2018 EXPLORE WITHOUT LIMITS ® ARCTIC TRUCKS ÍSLAND EHF. KLETTHÁLSI 3 110 REYKJAVÍK SÍMI: 540 4900 NETFANG: info@arctictrucks.is www.arctictrucks.is DEKKJAÞJÓNUSTA TÍMABÓKANIR Í SÍMA 540 4900 JEPPADEKK fyrir íslenskar aðstæður VÖNDUÐ OG HLJÓÐLÁT DEKK UNDIR FLESTAR GERÐIR JEPPA OG JEPPLINGA. Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Mamma Hólmars Svans-sonar hefur bakað vöffl-ur á sama vöfflujárninu í53 ár. Sonurinn sem er árinu eldri en vöfflujárnið segir það aldrei hafa bakað vandræði eins og svo mörg nýlegri raftæki, sem eru svo við- kvæm að þau leggja upp laupana við minnsta hnjask. „Þau úreldast á skömmum tíma og eru mörg hver ekki viðgerðarhæf vegna þess að framleið- endur hafa vísvitandi smíðað og jafnvel límt þau þannig saman að ógjörningur er að losa skrúfur og annað slíkt. Til- gangurinn er augljós; þeir vilja að við, neytendur, séum sífellt að endurnýja tækin okkar,“ útskýrir Hólmar, fixari og umhverfisvinur, sem ásamt nokkr- um góðum félögum boðar viðgerðar byltingu á Akureyri frá og með morg- undeginum. Áður en hann ljóstrar upp um byltingaráformin víkur hann aftur að vöfflujárni móður sinnar og segir nán- ast óhugsandi að nýleg vöfflujárn nái jafn háum lífaldri og þau gömlu, jafn- vel þótt fólk baki trúlega ekki eins oft vöfflur og það gerði í gamla daga. Nú sé öldin önnur, raftæki og raf- eindatæki eigi sér æ styttri lífdaga og þar hafi framleiðendur alla þræði í hendi sér. Gríðarlegt umhverfisálag „Það er orðinn þekktur frasi að framleiðendur hanni fyrir haugana og Gerðu það sjálf/ur- bylting í uppsiglingu Sá grunur læðist stundum að neytendum að raf- og rafeindatæki séu vísvitandi þannig úr garði gerð af hálfu framleiðenda að þeim verði ekki langra lífdaga auð- ið. Endingartíminn er oft skemmri en eldri tækja og þótt þau séu ekki gefin svarar varla kostnaði að gera við þau. Því er þeim fleygt í stórum stíl með tilheyrandi skaða fyrir umhverfið. Hólmari Svanssyni, fixara og umhverfisvini, blöskraði þessi sóunin og hvernig neytendur eru blekktir og stofnaði hópinn Restart Ísland, sem heldur ókeypis vinnustofur þar sem fólki er kennt að gera sjálft við biluð tæki. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Umhverfisvinur Hólmar Svansson forsprakki Restart Ísland hópsins. Í tilefni af Degi líkamsvirðingar, sem er í dag, þriðjudaginn 13. mars, bjóða Samtök um líkamsvirðingu upp á ókeypis og opið fræðslukvöld um lík- amsmynd og fjölbreyttar fyrirmyndir kl. 20-22 í Café Meskí, Fákafeni 9, Reykjavík. Fjallað verður um hvað líkamsmynd er og hvernig hún mótast og áhrif sam- félagsmiðla og annarra fjölmiðla á þró- un líkamsmyndarinnar. Skoðað verður sérstaklega áhrif fjölbreyttari fyrir- mynda eins og „plus size“ fyrirsætna. Einnig verður rætt um hagnýtar að- ferðir til að bæta líkamsmyndina. Samtök um líkamsvirðingu hafa það að markmiði að stuðla að virðingu fyrir fjölbreytileika holdafars, jákvæðri lík- amsmynd og heilsueflingu óháð holda- fari. Samkvæmt facebook-síðu sam- takanna er markmið þeirra m.a. að vinna gegn útlitsdýrkun og fitu- fordómum í samfélaginu. Vefsíðan Facebook: Samtök um líkamsvirðingu Margbreytileiki Samtök um líkamsvirðingu vilja að börn læri að þykja vænt um líkama sinn og bera virðingu fyrir margbreytileikanum. Líkamsmynd og fyrirmyndir Eldað fyrir einn nefnist námskeið, sem Dóra Svavarsdóttir, matreiðslu- meistari, hefur staðið fyrir. Eitt slíkt hefst kl. 17.30 í dag, þriðjudaginn 13. mars, í Hússtjórnarskólanum í Reykjavík og því eru síðustu forvöð að skrá sig til leiks: dora@culina.is. Að sögn Dóru er áskorun fólgin í því að elda fyrir einn, bæði fyrir byrj- endur og þá sem eru vanir að elda fyrir fleiri, enda sé fátt hægt að kaupa fyrir einn eða tvo. Þar sem framleiðendur miða vörur sínar við stærri fjölskyldur þurfi þeir sem eru einir að vera skapandi og skipuleggja máltíðirnar vel. Með örlítilli skapandi hugsun megi galdra fram dýrindis- máltíð. Endilega . . . . . . eldið fyrir einn Afgangar Lögð áhersla á að nýta af- ganga – það sem til er í ísskápnum. Valgerður H. Bjarnadóttir fé- lagsráðgjafi, fjallar um upprisu kven- lægrar vitundar kl. 20 annað kvöld, miðvikudaginn 14. mars, á Sagna- kaffi vikunnar í Borgarbókasafninu Gerðubergi. Valgerður, sem hefur starfað að málefnum kvenna og með konum í áratugi, segir gestum sögur og tengir við sjálfa sig og allar þær konur sem í dag eru að rísa upp og hafa hátt. Þetta eru spennandi sögur frá örófi alda, um undirheimaferðir og upprisu goðanna. Flestir þekkja söguna af upprisu Krists, sumir líka söguna af Ósírís, en ein elsta goð- sögnin segir frá Inönnu sem fer í heimsókn til gyðju undirheima, Ereshkigal. Þar er hún drepin og hengd á krók. Önnur sögn er af Persefónu, sem er fönguð af Hadesi sem tekur hana með sér nauðuga til undirheima. En þessar konur ná að rísa upp og kallast þessar sögur því sterkt á við sögu kvenna og þá upp- risu sem nú er að eiga sér stað. Gestir fá að spreyta sig undir stjórn Ólafar Sverrisdóttur leikkonu sem hefur staðið fyrir námskeiðum í sagnamennsku og ritlist hjá Borg- arbókasafninu. Sagnakaffi í Borgarbókasafninu Menningarhúsi Gerðubergi Upprisa kvenlægrar vitundar og konur sem rísa upp og hafa hátt Sögur Valgerður segir sögur um undirheimaferðir og upprisu goðanna. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.