Morgunblaðið - 13.03.2018, Page 11

Morgunblaðið - 13.03.2018, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2018 Hrein jógúrt Ástæða þess að þú átt að velja lífræna jógúrt! Engin aukefni Meira af Omega-3 fitusýrum Meira er af CLA fitusýrum em byggja upp vöðva g bein kkert undanrennuduft n manngerðra ansfitusýra biobu.is - Lífrænar mjólkurvörur • • • s o • E • Á tr Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | sími 551 3366 | www.misty.is PUMA toppur kr. 3.850 PUMA nærbuxur kr. 2.550 Misty Við erum á facebook Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Buxur Kr. 4.990.- Str. 2-9 (38-52) • 5 litir Arnar Þór Ingólfsson athi@mbl.is Útvarp Akureyri sendi frá sér til- kynningu í gær um að útvarpsstöðin hygðist á næstunni hefja frétta- útsendingar. Ekki útsendingar á sínum eigin fréttum þó, heldur fréttum frá fréttastofu RÚV og það án nokkurs samráðs við Ríkis- útvarpið. Axel Axelsson er útvarpsstjóri nyrðra. Hann segir í samtali við Morgunblaðið að aðstandendum stöðvarinnar, sem sendir einungis út í Eyjafirði, þyki sjálfsagt að end- urvarpa fréttum RÚV með þessum hætti. Nauðsynlegt sé að hlustendur þeirra heyri fréttirnar svo þeir séu vel upplýstir og þurfi ekki að vera að skipta um stöðvar til að nálgast fréttir. Einnig muni endurvarpið styrkja dreifikerfi RÚV, sem sé í takt við markmið ríkisfjölmiðilsins. „Þá tel ég að það sé skýrt í lögun- um að við eigum þessa fréttastofu öll saman. Ef Ríkisútvarpið er ekki ánægt með þessa tillögu verða þeir bara að hafa samband.“ Engin heimild til endurvarps Líklegt er að einhver á vegum Ríkisútvarpsins hafi samband innan skamms. Magnús Geir Þórðarson útvarpsstjóri segir í skriflegu svari við fyrirspurn Morgunblaðsins um málið að RÚV hafi ekki haft vitn- eskju um hið fyrirhugaða endurvarp og hafi ekki veitt svæðisstöðinni neina heimild til þess. „Eðli máls samkvæmt er óheimilt að endurvarpa efni RÚV án sér- staks samkomulags um slíkt. Verið er að skoða málið og í framhaldinu verður brugðist við,“ segir útvarps- stjóri. Hyggjast senda út fréttir RÚV  Útvarpsstjóri segir það óheimilt Fyrirbygjandi aðgerðum á konum vegna fjölskyldusögu um krabba- mein í brjóstum og eggjastokkum hefur fjölgað verulega á Landspít- alanum á síðustu árum. Þær voru samtals 38 í fyrra, en 23 árið 2016. Árið 2009 var aðeins ein slík að- gerð framkvæmd. Þetta kemur fram í svari Helgu H. Bjarnadótt- ur á hagdeild Landspítalans við fyrirspurn Morgunblaðsins um efnið. Stundum er aðeins um að ræða brjóstnám eða eggjastokkanám en stundum hvort tveggja í einu. Eins og meðfylgjandi tafla sýnir hófst fjölgun slíkra aðgerða að marki árið 2014. Þá voru fram- kvæmdar 12 aðgerðir á Landspít- alanum, þar af 10 sinnum brjóst- nám. Aðgerðum þar sem eingöngu er um brottnám eggja- stokka að ræða hefur fjölgað úr 4 árið 2015 í 12 í fyrra. Í fyrra voru brjóstnámsaðgerðir 18 og 7 sinn- um var um hvort tveggja að ræða, brottnám brjósta og eggja- stokka. Frá því í fyrrahaust hafa fyrir- byggjandi brjóstnám kvenna með með BRCA-stökkbreytingu í gen- um, sem eykur áhættu á að fá krabbamein, einnig verið fram- kvæmdar á Klíníkinni í Ármúla með stuðningi Sjúkratrygginga. gudmundur@mbl.is Brjóstnám og eggjastokkanám á Landspítala Fjöldi fyrirbyggjandi aðgerða vegna fjölskyldusögu um krabbamein ’09 ’10 ’11 ’12 ’13 ’14 ’15 ’16 ’17 2009 2010 2011 2012 2013 2013 2015 2016 2017 Brjóstnám 3 1 4 2 10 14 16 19 Brjóstnám og eggja- stokka/eggjaleiðaranám 1 1 2 2 2 1 1 7 Eggjastokka/ eggjaleiðaranám 4 3 12 Samtals 1 4 1 6 4 12 22 23 38 Heimild: Landspítali 1 4 1 6 4 12 22 23 38Samtals fjöldi aðgerða 2009-2017 Brjóstnám og eggja- stokkanám 38 í fyrra  Aðgerðum vegna fjölskyldusögu um krabbamein fjölgar Dagur B. Eggertsson borgarstjóri lýsti í gær á málþingi Öryrkja- bandalags Íslands (ÖBÍ), stuðningi við markmið félagsins um nýtt merki fyrir bílastæði hreyfihaml- aðra. „Það eru breyttir tímar og við- horf gagnvart fötluðu fólki er eitt- hvað sem við viljum að breytist. Fatlað fólk í dag er margt hvert mjög öflugt og virkt,“ segir Þuríður Harpa Sigurðardóttir, for- maður ÖBÍ, en merkið er þegar komið upp á bílastæði félagsins. „Gamla merkið sýnir stöðnun og hjálparleysi og er svolítið dapur- legt. Nýja merkið sýnir kraft, sjálf- stæði, áræðni og virkni.“ Nýja aðgengismerkið hefur verið innleitt í nokkrum ríkjum Banda- ríkjanna, svo sem New York og Connecticut, auk borga í Evrópu, Kanada og víðar. Verði merkið inn- leitt hérlendis, verður Ísland fyrsta þjóðríkið til að taka það upp. Nýtt og kraftmikið merki hreyfihamlaðra Bílastæðamerki Kraftur og sjálfstæði. Ef verkefni Landbótasjóðs eru um- reiknuð í flatamál kemur í ljós að þau jukust verulega á árunum 2016 og 2017 samanborið við árin á und- an, en framlög í sjóðinn hækkuðu á liðnu ári. Á árinu 2017 var unnið á 6.998 hekturum sem er það mesta frá því að sjóðurinn tók til starfa. Á síðasta ári dreifðu styrkþegar tæp- lega 1.000 heyrúllum á land sitt og gróðursettu um 32.000 trjáplöntur, að því að segir á heimasíðu Land- græðslunnar. Landbótasjóður Landgræðslunnar var settur á fót árið 2003 og úthlutar árlega styrkjum til bænda og ann- arra umráðahafa lands til verkefna er snúa að stöðvun jarðvegsrofs, endurheimt gróðurs og jarðvegs. Ár- ið 2017 bárust 90 umsóknir í sjóðinn en styrkur var veittur til 87 verk- efna. Á vegum sjóðsins var úthlutað 64,4 m.kr. í formi beinna styrkja auk 9,3 m.kr. í fræi sem var afhent styrkþegum. Heildarstyrkur reynd- ist því vera 74,8 m.kr. Landgræðsl- an, umhverfisráðuneytið og Fram- leiðnisjóður landbúnaðarins lögðu sjóðnum til fjármagn. Á vef Landgræðslunnar segir m.a.: Árlega er auglýst eftir um- sóknum um styrki úr sjóðnum og við ákvörðun um styrkveitingu er eink- um lögð áhersla á eftirfarandi: Stöðvun hraðfara jarðvegsrofs og gróðureyðingar, endurheimt gróðurs og jarðvegs, sjálfbæra landnýtingu og bindingu kolefnis í gróðri og jarð- vegi. aij@mbl.is Met í sögu Landbótasjóðs  Unnið var á tæplega sjö þúsund hekturum á síðasta ári Morgunblaðið/Atli Vigfússon Landbætur Heyrúllur gefast vel til að græða land og hefta sandfok. Atvinna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.