Morgunblaðið - 13.03.2018, Side 13
AFP
Heimsvandamál Verkamenn í Shantou í Kína afferma flutningabíl með raftækjaúrgangi í ágúst 2014. Kína var árum saman helsta móttökuland heimsins
fyrir endurvinnanlegt sorp, en í janúar sl. var bannað að flytja inn ákveðna gerð af sorpi og fengu evrópsk og bandarísk fyrirtæki aðeins hálfs árs svigrúm
til að gera aðrar ráðstafanir til að finna nýja urðunarstaði fyrir sístækkandi ruslahauga.
stundum finnst manni raunar að svo
sé. Okkur er einfaldlega misboðið og
hefur verið lengi,“ segir Hólmar og tal-
ar fyrir sína hönd og annarra sjálf-
boðaliða í viðgerðarbyltingunni, sem
hann hefur forgöngu um og hefst með
Restart vinnustofu í anda Restart
Project vinnustofa í London og víðar í
Evrópu.
„Við bjóðum fólki að koma með
biluð rafmagns- og rafeindatæki og fá
leiðbeiningar sérhæfðra sjálfboðaliða
um hvernig það getur sjálft gert við
tækin. Markmiðið er að lengja líftíma
tækjanna, en ekki síst að sporna gegn
ótímabærri sóun. Raftækjaúrgangur í
heiminum tvöfaldaðist á árunum 2009
til 2014 og hefur stóraukist síðan. End-
urvinnsla flókinna snjalltækja, sem
endast alla jafna ekki meira en tvö ár,
er kostnaðarsöm og umhverfisálagið
gríðarlegt. Til dæmis er talið að 13
tonn af vatni þurfi til að búa til einn
farsíma – það eru býsna margar kló-
settsturtanir.“
Restart Ísland hópurinn verður
með vinnustofur þar sem FabLab hef-
ur aðstöðu í Verkmenntaskólanum á
Akureyri, en þær eru þó hvorki á veg-
um VMA né Háskólans á Akureyri þar
sem Hólmar er framkvæmdastjóri á
háskólaskrifstofunni. „Sjálfur hef ég
lítið vit á öllum þessum tækjum, en hef
gaman af alls konar reddingum og vil
geta bjargað mér með að gera við hlut-
ina. Hins vegar eru sjálfboðaliðarnir,
sem ég hef þegar fengið til liðs við mig
sérfræðingar, hver á sínu sviði; tölv-
unarfræðingur, rafvirki og sjálflærður
snillingur, sem allt leikur í höndunum
á,“ segir Hólmar og nefnir í framhjá-
hlaupi að hópurinn vilji gjarnan fá
fleiri leiðbeinendur, sem búi yfir
tæknilegri hæfni á ýmsum sviðum, til
að leggja góðu málefni lið.
Einkaframtak og góðgerðarstarf
Restart vinnustofan er einka-
framtak og góðgerðarstarf sem hvorki
Hólmar né hinir sjálfboðaliðarnir
hagnast á um eina krónu. Þvert á móti
gefa þeir bæði vinnu sína og tíma. Slíkt
hið sama gerði sá sem hannaði vefsíð-
una, www.restarticeland.org og allt
kynningarefnið. Margir hafa lagt mál-
inu lið. „Við fengum styrk frá Akur-
eyrarbæ og Gámaþjónustunni og von-
andi styrkja okkur fleiri stofnanir og
fyrirtæki þegar fram líða stundir til að
hægt verði að fjölga vinnustofum og
breiða út boðskapinn. Við erum
reiðubúin til að miðla þekkingu okkar
og hjálpa til að koma á laggirnar sam-
bærilegum vinnustofum hvar sem er á
landinu,“ segir Hólmar, sem kynntist
Restart verkefninu á Bretlandi í sum-
ar og setti í samband við forsprakka
þess til að forvitnast um fyrir-
komulagið.
„Vinnustofurnar eru ókeypis og
öllum opnar. Sumt má laga í einni
heimsókn en við gerum allt eins ráð
fyrir að fólk komi í tvö skipti með hvert
tæki. Annars vegar til að fá mat leið-
beinanda og aðstoð við að panta vara-
hluti, oftast á netinu, og hins vegar til
að gera við tækin undir hans leiðsögn.
Neytendur hafa áratugum saman
fleygt biluðum raftækjum, enda borg-
ar sig ekki að láta gera við þau þar sem
tími iðnaðarmanns kostar einfaldlega
of mikið. Öðru máli gegnir ef maður
getur gert við þau sjálfur. Stundum
nægir að ryksuga innan úr tölvunni
eða skipta um kæliviftu til að hressa
hana við og auka líftímann. Þá getur
verið laus snúra sem þarf að lóða fasta.
Í stuttu máli þá hjálpum við fólki að
lífga tækin sín við, skipta um
skjái, takka og tengi ásamt því
að hreinsa til dæmis viftur
og hleðslutengi. Einnig
hjálpum við fólki að uppfæra
harðan disk eða stækka
minni svo fátt eitt sé talið,“
segir Hólmar um viðgerða-
vinnu sem Restart hópurinn
réttir fólki hjálparhönd við.
Margþættur
ávinningur
„Við rennum eiginlega
blint í sjóinn,“ svarar hann þeg-
ar hann er spurður um hvers konar
tæki séu líklegust til að rata inn á
vinnustofurnar ásamt eigendum sín-
um. Giskar samt á að töluvert verði um
snjallsíma, en einnig alls konar minni
heimilistæki eins og hrærivélar, kaffi-
vélar, brauðristar og þvíumlíkt. „Bil-
uðum þvottavélum, ísskápum og öðr-
um stórum tækjum getum við því
miður ekki sinnt, að minnsta kosti ekki
til að byrja með.“
Hólmar ítrekar að ávinningurinn
af að gera sjálfur við raftækin sín sé
margþættur. Fyrir utan að spara pen-
inga og stuðla að náttúruvernd sé bæði
skemmtilegt og lærdómsríkt að taka
þátt í vinnustofum með fólki sem er
ekki sama um umhverfi sitt. Sjálfur
ætlar hann að mæta á með tiltölulega
nýlegt samlokugrill og
tveggja og hálfs árs gamlan
snjallsíma með rafhlöðu sem er að
syngja sitt síðasta. Langt um aldur
fram eins og flest nútíma rafeindatæki.
„Tími 50 ára raftækjanna kemur vafa-
laust aldrei aftur en með því að gera
við og láta framleiðendur vita að okkur
er ekki sama og kaupa frekar ending-
arbetri tæki leggjum við umhverfinu
lið,“ segir Hólmar.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2018
Þegar horft er fram á veginn má sjá að
straumar nýrra tíma liggja í raforkumálum.
Erum við tilbúin að takast á við áskoranir
framtíðarinnar?
Vorfundur Landsnets verður haldinn
á Hilton Nordica, miðvikudaginn 14. mars
kl. 09:00 - takið daginn frá.
Nánar á www.landsnet.is
NÝIR TÍMAR
Á heimasíðu Restart Ísland,
www.restarticeland.org, segir
m.a.:
Rannsóknir sýna að margt af
því sem við erum að henda er bil-
að vegna minniháttar bilunar
sem auðvelt er að gera við en
borgar sig ekki að fara með á
verkstæði til viðgerða.
Vinnustofur Restart Íslands
eru í anda Restart Project vinnu-
stofa í London, þar sem staðið er
fyrir þriggja klukkustunda
löngum vinnustofum þar sem
sjálfboðaliðar með tæknilega
hæfileika hjálpa þátttakendum
við að viðhalda raftækjum, án
nokkurs kostnaðar.
Verkefnið er algjörlega rekið á
góðgerðarformi með styrkjum
frá fyrirtækjum, stofnunum og
einstaklingum sem líta jákvætt
til áhrifa þess.
„Restart verkefni vinnur
bæði að umhverfisvernd
og einnig gegn sívax-
andi tilhneigingu raf-
tækjaframleiðenda
sem gera vörurnar
sínar úreltar og
hvetja viðskiptavini
sína til að endurnýja
vörur sínar í sífellu.“
Tony Roberts,
framkvæmdastjóri
Restart Project UK.
Vinna gegn
sóun
RESTART ÍSLAND
Bilað Samlokugrill
sem á erindi á Re-
start vinnustofuna.
„Fyrir utan að spara
peninga og stuðla að
náttúruvernd er bæði
skemmtilegt og lær-
dómsríkt að taka þátt í
vinnustofum með fólki
sem er ekki sama um
umhverfi sitt.“
Restart Ísland hópurinn verður
með vinnustofu kl. 17 – 20 í kvöld,
miðvikudaginn 14. mars, í FabLab-
aðstöðu Verkmenntaskólans á Ak-
ureyri. Næsta vinnustofa verður
kl. 18 – 21, miðvikudaginn 11. apríl á
sama stað.