Morgunblaðið - 27.03.2018, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 27.03.2018, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2018 Bamix töfrasproti Verð 29.900 kr. laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is Dóra Björt Guðjónsdóttir alþjóða- fræðingur skipar efsta sætið á lista Pírata fyrir borgarstjórnarkosningar. Þetta er niðurstaðan í prófkjöri Pí- rata í Reykjavík, Hafnarfirði og Kópavogi sem lauk í gær og tilkynnt var um úrslitin síðdegis. Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, um- hverfis- og skipulagsfræðingur, verð- ur í 2. sæti í Reykjavík, Alexandra Briem þjónustufulltrúi í því 3. og 4. sætið skipar Rannveig Ernudóttir, tómstunda- og félagsmálafræðingur. Í Kópavogi er Sigurbjörg Erla Eg- ilsdóttir sálfræðingur efst á lista Pí- rata, Hákon Helgi Leifsson, þjón- ustu- og sölufulltrúi, í 2 sæti, í því 3. er Ásmundur Almar Guðjónsson hug- búnaðarsérfræðingur og Ragnheiður Rut Reynisdóttir, leiðbeinandi á leik- skóla, í 4. sæti. Hjá Pírötum í Hafnarfirði lenti El- ín Ýr Arnar Hafdísardóttir þroska- þjálfi í efsta sætinu, Kári Valur Sig- urðsson pípulagningamaður í 2., 3. sætið skipar Hildur Björg Vilhjálms- dóttir, nýbökuð móðir, og Hallur Guð- mundsson, samskipta- og miðlunar- fræðingur, verður í 4. sæti. „Áherslumál okkar verður aukið gegnsæi í allri ákvarðantöku; að gefa almenningi tækifæri til að hafa áhrif. Við viljum meira samráð um mál meðan þau eru á vinnslustigi,“ segir Dóra Björt Guðjónsdóttir. Hún vill ekki kveða uppúr með hverjum Pírat- ar vilji starfa í meirihluta í borginni komist flokkurinn í þá aðstöðu. Pírat- ar eigi aðild að núverandi meirihluta og það samstarf hafi um margt verið gott. Rími áherslumál annarra stjórn- málaflokka hins vegar við stefnu Pí- rata sé allt opið. Þar nefnir Dóra Björt húsnæðismálin, sem þurfi inn- spýtingu með fjölgun lóða og að byggt sé samkvæmt þörf markaðar. sbs@mbl.is Dóra Björt í efsta sæti í Reykjavík  Píratar á höfuðborgarsvæðinu klárir Morgunblaðið/Eggert Píratar Dóra Björt Guðjónsdóttir kynnir listann og stefnumálin. Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Vegna þeirra fjölmörgu innbrota sem framin hafa verið á höfuðborg- arsvæðinu að undanförnu hafa tals- verðar umræður sprottið upp á spjallsvæðum á samfélagsmiðlum sem hugsuð eru fyrir fólk sem búsett er í ákveðnum hverfum eða sveit- arfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Eru íbúar farnir að tilkynna þar um það sem þeir telja vera óviðeigandi mannaferðir við og í íbúðahverfum. Einn þessara hópa er fyrir íbúa á Seltjarnarnesi, en brotist var inn í einbýlishús þar um nýliðna helgi. „[Þ]að voru tveir menn að labba hérna norðanmegin við sjóinn að taka myndir af húsum, frekar flótta- legir,“ segir í einni færslunni. „Löbbuðu ekki hlið við hlið, heldur labbaði annar á undan og þóttist vera í símanum og hinn á eftir. Þetta voru ekki menn að dást að húsun- um.“ Í kjölfarið skapaðist nokkur um- ræða og var fólk m.a. hvatt til að fylgjast vel með í kringum sig, en einn íbúanna sagðist hafa tekið eftir svörtum bíl og eru þeir sem í honum voru sagðir hafa tekið myndir af húsum. Þá sagðist sá sem hóf inn- leggið hafa sent myndir af áður- nefndum göngumönnum til lögregl- unnar. „Verið að skoða okkur öll“ Íbúar á Álftanesi eru einnig nokk- uð varir um sig, en þar hafa þjófar verið sérstaklega iðnir við að stela gaskútum. Þá hafa íbúar einnig orð- ið varir við það sem þeir telja vera grunsamlega bíla og að verið sé að taka myndir af bæði húsum og bif- reiðum á svæðinu. „Það er verið að skoða okkur öll alla daga af aðilum sem vilja reyna að komast inn í okkar hús án okkar vitundar til að ræna verðmætum,“ segir í einni færslu hópsins. Er í kjölfarið hvatt til þess að fólk fylgist með ferðum ökutækja og reiðhjóla „sem eru að stoppa og skoða – takið myndir. Takið niður bílnúmer, lýs- ingu á fólki. Hringið í lögreglu og nágranna ef þið sjáið eitthvað, eða heyrið sem ekki er venjulegt.“ Skúli Jónsson er aðstoðaryfirlög- regluþjónn hjá lögreglunni á höfuð- borgarsvæðinu. Hann segir lögregl- una í nánu samstarfi við íbúa. „Við þiggjum auðvitað allar ábend- ingar, en oft er þetta spurning um að þekkja sitt hverfi og fólkið sem þar býr,“ segir hann og bætir við að til- kynningar um grunsamlegar manna- ferðir hafi heldur færst í aukana að undanförnu og hafa þær í sumum til- fellum leitt til þess að mál upplýsist. Skúli segir lögreglu notast við merktar jafnt sem ómerktar bifreiðar við eftirlit. Eru jafnvel dæmi um að athuglir íbúar hafi tilkynnt um ferðir ómerktra lögreglubíla við eftirlit. „Það hefur alveg komið fyrir og þá erum við fljótir að afgreiða slíkar til- kynningar,“ segir Skúli og hlær við. Þá segir hann lögreglu verða með gott eftirlit um komandi páska. „Við munum vera eins virk og kostur er, það er engin spurning.“ Íbúar fylgjast grannt með sínu hverfi  Tíð innbrot á höfuðborgarsvæðinu eru mjög á milli tannanna á fólki í netheimum  Íbúar tilkynna lögreglu um ferðir fólks og ökutækja  Dæmi um að ómerktir lögreglubílar í eftirliti séu tilkynntir Morgunblaðið/Júlíus Borgin Tíð innbrot hafa verið á höfuðborgarsvæðinu það sem af er ári. Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Hafnfirðingar, bæði bæjarstjórn og íbúar bæjarins, eru orðnir afar óþol- inmóðir eftir að hafnar verði fram- kvæmdir við tvöföldun Reykjanes- brautar frá Kaldárselsvegi að mis- lægum gatnamótum við Krísuvíkur- veg. Í síðustu viku sendi bæjarstjórn Hafnarfjarðar þingmönnum og sam- gönguráðherra ályktun þar sem skorað er á þingmenn og samgöngu- ráðherra að sjá til þess að fram- kvæmdir hefjist þegar á þessu ári og þeim verði lokið á árinu 2019. Í ályktuninni skorar bæjar- stjórnin á þingmenn, samgöngu- ráðherra, umhverfis- og samgöngu- nefnd Alþingis og vegamálastjóra að tryggja að fjármagn fáist á sam- gönguáætlun sem nú er unnið að, þannig að tryggt verði að fram- kvæmdum við að ljúka tvöföldun Reykjanesbrautar innan Hafnar- fjarðar ljúki á næstu fjórum árum. Einar Bárðarson, samskiptastjóri Hafnarfjarðarbæjar, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að 47.300 bílar færu um Reykjanesbraut á sól- arhring á þeim hluta Reykjanes- brautar sem Hafnfirðingar vildu að yrði tvöfaldaður. Mikil mengun fylgir umferðinni „Það liggur í augum uppi að mengunin sem fylgir slíkri umferð er mjög mikil, ekki síst þar sem veg- urinn er bara ein akrein í hvora átt og þar af leiðandi eru bílarnir lengur að fara um svæðið,“ sagði Einar. Haraldur L. Haraldsson, bæjar- stjóri Hafnarfjarðar, var í gær spurður hvort bæjaryfirvöld mættu tómlæti af hálfu þingmanna og sam- gönguráðherra við málaleitan sinni: „Nei, ég get kannski ekki alveg sagt það. Við fengum það í gegn að mis- lægu gatnamótin við Krísuvíkurveg fóru í framkvæmd í fyrra og þeim var lokið í fyrra og fyrir það erum við náttúrlega þakklát,“ sagði Har- aldur. „Það er rétt, við erum langþreytt á umferðarþunganum á Reykjanes- braut þar sem hún liggur í gegnum bæinn og ekki síður á slysahættunni og höfum þess vegna beitt okkur af krafti í þeirri von að við fáum úr- lausn okkar mála,“ sagði Haraldur. Eru í samtali við ráðuneytið „Við erum í þessari lotu að berjast fyrir tvöföldun Reykjanesbrautar frá Kaldárselsvegi að mislægum gatnamótum við Krísuvíkurveg. Við erum í samtali við ráðuneytið og Vegagerðina um þessi mál, þannig að ég ætla ekki að segja að við mæt- um tómlæti. En framkvæmdin er ekki komin af stað og við erum að berjast fyrir því núna að ákveðið fjármagn verði eyrnamerkt fram- kvæmdinni,“ sagði Haraldur. Haraldur sagði að fjöldi pósta hefði verið sendur á þingmenn kjör- dæmisins og þeim boðið á opna íbúa- fundi og samtalsfundi með bæjar- stjórninni. Á sama tíma hefði verið fundað með yfirmönnum Vegagerð- arinnar sem væru tilbúnir í fram- kvæmdir en vantaði fé til verkefn- anna. Morgunblaðið/Hari Reykjanesbraut Hafnfirðingar vilja að tryggt verði að framkvæmdum við tvöföldun Reykjanesbrautar innan Hafnarfjarðar verði lokið á næstu fjórum árum og þrýsta því á þingmenn, samgönguráðherra og Vegagerðina. Hafnfirðingar þrýsta á þingmenn um tvöföldun  47.300 bílar fara um Reykjanesbraut á sólarhring

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.