Morgunblaðið - 27.03.2018, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 27.03.2018, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Það vekurmikla undr-un hve sjálf- skipaðir verðir mannréttinda, bæði hér á landi og annars staðar láta eins og ekkert sé þegar ríkisvaldið í ESB-löndum á í hlut. Það er ekki vansalaust. En hefur þó þann kost að þá spakvitringa þarf ekki að taka alvarlega þegar þeir tjá sig næst um þau mál sem eru „inn“ í þeirra ver- öld. Þýska leyniþjónustan fékk upplýsingar frá spænsku leyniþjónustunni um að fyrr- verandi leiðtogi katalónsku heimastjórnarinnar væri kom- inn inn fyrir landamæri Þýska- lands og Danmerkur! Þýska leyniþjónustan hand- tók þennan hættulega mann þegar í stað. Ekkert hefur komið fram um að „flóttamað- urinn“ hafi verið vopnaður eða með tilbúnar sprengjur í skotti bílsins sem flutti hann. Þegar þetta er skrifað er ekki ljóst hvort þýskir dóm- stólar munu framselja Puigde- mont, fyrrverandi forseta heimastjórnarinnar í Katalón- íu, til Spánar. Þýsku lögin, sem um það gilda, ættu varla að gera það fært. Því að þær sakir sem bornar eru á katalónsku stjórnmálamennina eiga allar rót í því, að þeir hafi gert til- raun til að efna til þjóðar- atkvæðis um sjálfstæði Kata- lóníu. Yfirvöld í Madrid segja að það atferli geti leitt til 25 ára fangelsisrefsingar þeirra sem tóku þátt. Þar er litið á boðun atkvæðagreiðslu um sjálfstæði sem tilraun til hryðjuverka. Sú tillaga var samþykkt með atkvæðum meirihlutans á katalónska þinginu. Það er því væntanlega eftir að fangelsa æði marga. Enn hefur ekki frést af því að þeir sem tóku þá ákvörðun að senda 800 lögreglumenn óvænt til Katalóníu þar sem þeir börðu almenna vopnlausa borgara sem voru í góðri trú á leið á kjörstað, drógu konur frá kjörstöðum á hárinu og hrintu eldri borgurum niður tröppur, hafi verið fangelsaðir. Hver vill vera hluti af ríkis- valdi sem fer þannig fram gegn almennum borgurum sem eng- ar aðvaranir höfðu fengið um að þannig yrði tekið á móti þeim á kjörstað? Þýsk lög gera að vísu ráð fyrir því að hermdarverka- menn skuli framseldir. En það er ekki þar með sagt að það ríkisvald sem krefst framsals á einstaklingi eigi frjálst mat um það hvað sá er talinn hafa brot- ið af sér. Þýskur dómstóll sem fær málið til með- ferðar hlýtur að leggja sjálfstætt mat á það hvort leggja megi lýð- ræðislega teknar ákvarðanir, hvort sem þær séu réttar eða rangar eða séu innan stjórnskipulegs ramma, að jöfnu við sprengjutilræði og árásir hryðjuverkamanna. Hæstiréttur Spánar heldur áfram að fjalla, sem fyrsta og eina dómstig landsins, um mál „grunaðra stjórnmálamanna“ og úrskurðar þá jafnharðan í varðhald og meinar þeim að ganga lausir á meðan mál þeirra eru ákvörðuð. Því er borið við að líkur standi til þess að þeir muni flýja réttvísina. Þeir sem hingað til hafa verið fangelsaðir hafa allir mætt sjálfviljugir frá Katalóníu fyrir dóminn í Madrid. Það bendir ekki til flóttahugleiðinga. Nú seinast bárust fréttir um að Clara Ponsati, fyrrverandi menntamálaráðherra Katalón- íu, hefði verið birt handtöku- skipun. Hún er nú hagfræði- kennari við St Andrews háskóla í Skotlandi. Það væri undarlegt ef Ponsati yrði framseld til Madrid. Öðru vísi tóku yfirvöld í Lundúnum á óskum Skota um þjóðar- atkvæði um sjálfstæði. For- ráðamenn háskólans hafa for- dæmt stjórnmálalegar fangelsanir á Spáni og kallað hrópleg brot á meginreglum um skoðana- og málfrelsi. Fróðlegt verður að sjá hvort Mannréttindadómstóllinn, sem Ísland er reyndar ekki bundið af, umfram það sem það kýs í hverju tilviki, tekur á alvöru máli eins og þessu. Hvert smælkið af öðru er sent þangað frá Íslandi og stjórnmálamenn og sumir hinna löglærðu virð- ast telja að Mannréttinda- dómstóllinn sé þriðja áfrýj- unarstigið á Íslandi, sem er fráleitt. Nær væri ef þessi dómstóll fjallaði um alvarleg mannréttindabrot landa sem hafa skuldbundið sig til að hlíta úrskurðum hans. Full ástæða virðist til að skoða notkun eða misnotkun rannsóknardómstóla í ýmsum öðrum löndum ESB þar sem rannsókn, ákærur og varðhald og dómsúrskurður á lægra dómstigi eru öll á einni og sömu hendi. Áratugir eru frá því að fallið var frá vísi að slíku kerfi á Íslandi. Það sem horft er upp á núna á Spáni þegar Hæstiréttur er fyrsta dómstig máls og fang- elsaðir menn geta hvergi feng- ið dóm sinn endurskoðaðan er einnig mál sem vert væri að skoða. Samþykkja má að smælkið frá Íslandi megi bíða. Það er skrítið að sjá tilburði þöggunar- afla hér á landi gagnvart mannrétt- indaofsóknum í nágrannalandi} Tökin hert í Katalóníu H agfræðingurinn Arthur Laffer setti á sínum tíma fram kúrfu sem við hann er kennd. Með henni benti hann á að ofur- skattar leiða ekki endilega til ofurtekna hjá ríkissjóði. Eftir því sem skattprósentan er hærri minnkar hvatinn til þess að vinna. Sumir stjórnmálamenn hafa það sem keppikefli að skattar verði sem lægstir meðan aðrir telja að hið opinbera sé hæfara en einstaklingar til þess að fara með fé. Nokkrir stjórnmálaflokkar lögðu til sér- staka útgjaldaaukningu fyrir kosningarnar síðastliðið haust. VG vildu bæta 236 millj- örðum króna við útgjöld ríkisins meðan Sjálf- stæðismenn létu sér nægja viðbót upp á 100 milljarða. Hvorugur flokkurinn hefur sagt hvaða skatta á að hækka til þess að ná þessum útgjaldaauka, en forsætisráðherra sagði í nýlegu viðtali við Morgunblaðið að ýmislegt væri til skoðunar í þeim efnum. Á sama tíma og ríkisstjórnin ástundar skipulegt und- anhald í fjármálum ríkisins lagði þingflokkur Viðreisnar fram tillögu um ábyrga fjármálastefnu í samræmi við varnaðarorð fjármálaráðs og peningastefnunefndar Seðlabankans. Blikur eru á lofti í kjaramálum og ef haldið verður áfram á sömu braut er ljóst að ríkisstjórnin missir tökin á efnahagsmálunum. Aðeins þremur mánuðum eftir að ríkisstjórnin losaði tökin á efnahagsmálunum fer verð- bólga í fyrsta sinn í fjögur ár yfir viðmiðunarmörk. Ekki bætir úr að stefnan er mjög óljós. Meðan for- sætisráðherra segist íhuga skattahækkanir koma for- menn samstarfsflokkanna og segja skatta- lækkanir í bígerð, samhliða því sem bætt verði í útgjöld á ýmsum sviðum. Stefna Viðreisnar er skýr í skattamálum. Skattahækkanir eru óæskilegar þegar hið op- inbera tekur þegar til sín drjúgan hlut af tekjum þjóðarinnar, en í þensluástandi eru ekki aðstæður til þess að draga úr tekjuöflun nema hægt sé að minnka útgjöld á sama tíma. Með markvissri niðurgreiðslu skulda losnar fé sem ella færi í vaxtagreiðslur. Enginn segir að núverandi skattkerfi sé það besta. Auðvelt er að benda á betrumbætur: 1. Persónuafsláttur verði breytilegur eftir launum, þannig að þeir tekjuminnstu hafi hærri persónuafslátt en núna, en þeir tekju- hæstu engan. 2. Almennur virðisaukaskattur verði lækk- aður í 22% með því að fella niður undanþágur til ferða- þjónustu. Þannig færist skattbyrðin af Íslendingum á er- lenda ferðamenn og greinar sitja við sama borð. 3. Erfðafjárskattur verði lækkaður í 5% á fjárhæðir undir 10 milljónum og felldur niður þegar einstaklingar fá minna en 2,5 milljónir króna í arf. 4. Auðlindagjöld verði ekki ákveðin af embættis- eða stjórnmálamönnum heldur ráðist af aðstæðum á markaði. Þau lækka þá þegar afkoman versnar en vaxa þegar vel árar. Þessir skattar eru sanngjarnir og slíka skatta er auð- velt að innheimta. Benedikt Jóhannesson Pistill Er sanngjarnt að borga skatta? Höfundur er stærðfræðingur og stofnandi Viðreisnar STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen húsalóðir til í Reykjavík. Rætt er um að undanfarið hafi söluverð á slíkum lóðum verið í kringum 18-20 milljónir. Þá á eftir að teikna. Það getur kostað 4-8 milljónir. Sam- anlagt gera þetta 22-28 milljónir,“ segir Ingólfur. Um 130 fermetra einbýlishús er á einni parhúsalóðinni og selst það með lóðunum. Ásett verð er 120 milljónir en óskað er eftir tilboðum. Eignaskipti koma til greina. Hægt er að bjóða í lóðirnar án einbýlis- hússins og er ásett verð fyrir átta lóðir með teikningum þá 80 millj- ónir. Húsin eru 185-200 fermetrar með bílskúr. Miðað við að fermetr- inn kosti 300-350 þúsund í bygg- ingu áætlar Ingólfur að húsin kosti ný 60-70 milljónir. Miðað við að lóðin kosti 22-28 milljónir í Reykjavík áætlar hann að samsvarandi hús myndi kosta 90-100 milljónir í borginni. Athygli vekur að í auglýsingu fasteignasöl- unnar er því haldið fram að eft- irspurnin eftir slíkum lóðum í Hveragerði sé jafnvel meiri en á höfuðborgarsvæðinu. Ingólfur seg- ir að loksins hafi skapast grund- völlur fyrir nýbyggingum af þess- um toga í nágrannasveitar- félögunum. Verðið hafi enda hækkað mikið. Því treysti verktak- ar sér til að leggja út í nýbygg- ingar. Þrátt fyrir þessar hækkanir sé verðið mun hagstæðara í nágranna- sveitarfélögum. „Það er hægt að fá nýtt einbýlishús í Hveragerði á svipuðu verði og sérhæð á höfuðborgarsvæðinu. Það eru margir tilbúnir að aka daglega til vinnu á höfuðborgarsvæðið ef þeir geta búið í stærra og jafnvel nýrra og betra húsnæði. Aksturinn tekur ekki mikið meira en hálftíma á góð- um degi,“ segir Ingólfur. Kostnaðurinn svipaður Hann segir nokkurn veginn jafn dýrt að byggja í Hveragerði og á höfuðborgarsvæðinu. Þó sé það þannig að hingað til hafi fólk jafnan byggt ódýrara húsnæði í jaðri höfuðborgarsvæðisins. Það hafi enda verið erfiðara að fá fjárfest- inguna til baka en á höfuðborgar- svæðinu. Ingólfur telur ótvíræðar vísbendingar um að það sé að breytast. Hann segir ágætt framboð á gömlum einbýlishúsum í Hvera- gerði og á Selfossi. Eftirspurnin sé mikil sem komi fram í því að eignir seljist fljótt. „Þegar slíkar eignir eru til sölu í Reykjavík eru þær hins vegar oft á ansi háu verði. Eldri eignir í Reykjavík seljast á hærra verði út af verðmæti stað- setningarinnar. Því nýrri sem eign- ir eru í jaðarsveitarfélögunum þeim mun minna er verðbilið milli þeirra og Reykjavíkur,“ segir Ingólfur. Munurinn á lóðaverði er margfaldur Nýbyggingar í Hveragerði Ingólfur segir ágætt framboð af gömlum einbýlishúsum í Hveragerði og á Selfossi. BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura at mbl.is Lóðaverðið í Hveragerði erjafnvel aðeins um þriðj-ungur af verðinu íReykjavík. „Það er mikill sparnaður fyrir 30-40 mínútna akst- ur,“ segir Ingólfur Gissurarson, fasteignasali hjá Valhöll. Valhöll auglýsir nú til sölu 10 byggingarlóðir á Grímsstaðareit í Hveragerði. Ásett verð er um 120 milljónir á heildarpakkann með eldra ein- býlishúsi sem er á einni par- húsalóðinni, en það er í útleigu. Um er að ræða fjórar einbýlishúsalóðir og þrjár parhúsalóðir. Öll gatnagerðargjöld og allar teikningar eru innifalin og hafa skipulagsyfirvöld samþykkt teikningar að húsunum. Lóðaskortur þrýstir verði upp Ingólfur segir þetta allt að þrefalt lægra en samanlagt lóða- og hönn- unarverð í Reykjavík. Skortur á lóð- um þrýsti upp verðinu. „Það eru engar lausar sérbýlis- Ingólfur Geir Gissurarson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.