Morgunblaðið - 27.03.2018, Blaðsíða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2018
Ísíðustu viku var kvikmyndinVíti í Vestmannaeyjum frum-sýnd. Hin eiginlega hátíðar-frumsýning var um kvöld en
undirrituð laumaði sér á sýningu
sem var fyrr um daginn og var sér-
staklega ætluð vinum og bekkjar-
félögum barnanna sem leika í mynd-
inni. Þetta var mikil bíóupplifun og
vitaskuld kjöraðstæður til að horfa á
slíka mynd, umkringd 200 fjörugum
krökkum.
Gunnar Helgason, höfundur
bókarinnar sem myndin byggist á,
steig á svið á undan myndinni og
fagnaðarlætin létu ekki á sér standa,
Gunnar er svo sannarlega stór-
stjarna meðal barnanna. Hann
brýndi fyrir áhorfendum að á þessari
sýningu ætti enginn að vera stilltur
og prúður líkt og vaninn er í bíó og
hvatti alla til að klappa og fagna þeg-
ar við átti og sömuleiðis að púa þegar
eitthvað fór miður. Áhorfendur tóku
þessi tilmæli til sín og það var mikið
klappað, hrópað, púað og „húh!“-að.
Víti í Vestmannaeyjum hefst á því
að fótboltaliðið Fálkar er á leið til
Eyja á pollamót. Aðalhetjan, Jón
Jónsson, vaknar upp af dularfullum
draumi um borð í Herjólfi. Hann er
ringlaður eftir drauminn, sem er
ekkert til að bæta sjóveikina sem
hann þjáist af. Brátt koma Fálkar þó
í eyjuna, magi Jóns róast og það er
mikil eftirvænting í loftinu. Fyrsti
leikurinn sem Fálkar spila er á móti
heimamönnum í ÍBV. Rétt áður en
leikurinn hefst lendir Jón upp á kant
við ÍBV-leikmanninn Ívar, sem er
algjör fantur. ÍBV-liðar reynast
Fálkum harðir andstæðingar en
þeir gera sitt besta. Það fer þó ekki
betur en svo að á ögurstundu slas-
ast Skúli, lykilmaður í liði Fálka.
Skúli reynist vera brákaður og get-
ur ekki spilað með á mótinu, sem er
reiðarslag fyrir liðið þar sem Skúli
er ekki einungis þeirra besti maður,
heldur líka móralskur leiðtogi og
stuðbolti. Þjálfari Fálka stappar þó
í þá stálinu og strákarnir halda
áfram með Skúla á hliðarlínunni.
Eftir því sem á líður kynnast
Fálkar hinum krökkunum á mótinu.
Ein þeirra er Rósa, eitilharður leik-
maður Fylkis, og hún slæst oft í
hópinn með Jóni og félögum. Einnig
komumst við í frekari kynni við
fantinn Ívar og kemur á daginn að
fólskulegt háttalag hans á sér að
hluta til skýringar í erfiðum að-
stæðum heima fyrir. Faðir Ívars,
sem er jafnframt þjálfari ÍBV, er
ekki allur þar sem hann er séður.
Eftir því sem ógnin af föður Ívars
fer stigmagnandi þurfa krakkarnir
að taka á honum stóra sínum til að
sigra þennan andstæðing.
Sagan er skemmtileg og stígandin
er góð. Fótboltasenurnar spegla
þemun sem birtast í heildarmynd-
inni, það gengur á ýmsu á vellinum
jafnt og í lífinu sjálfu. Krakkarnir
verða að „tækla“ stór mál á borð við
missi, þunglyndi og ofbeldi og læra
að þegar upp er staðið eru vinátta og
samstaða mikilvægari en sigrar og
markatölur.
Víti í Vestmannaeyjum er litrík,
kvikmyndatakan er flott og mikið
um falleg könnunarskot í landslagi
Vestmannaeyja. Tölvutæknibrellur
eru ríkulega notaðar sem skilar sér í
nokkrum þrælflottum atriðum en
öðrum miður góðum. Eðli málsins
samkvæmt er mikið af fótboltaatrið-
um og þau eru vel úr garði gerð, þar
sem dramatískum hægmyndum er
blandað við örar og æsilegar klipp-
ingar. Það má velta því fyrir sér
hvort þeim sem hafa lítið vit á fót-
bolta kunni að leiðast þessar senur.
Fæstum ætti þó að leiðast þar sem
það er brugðið á ýmis ráð til að gera
ariðin spennandi og aðgengileg fyrir
alla, þ. á m. að láta Gunna Helga
vera þul eða „íþróttfréttamann“ sem
lætur gamminn geisa í orkumiklum
og oft sprenghlægilegum leiklýsing-
um.
Ungi leikhópurinn stendur sig vel
miðað við aldur og fyrri störf.
Róbert er skemmtilegur í hlutverki
hins orðheppna sprelligosa Skúla og
Lúkas nær að gera hinum við-
kvæma og réttsýna Jóni góð skil.
Ísey og Viktor eru líka stórfín í sín-
um hlutverkum. Fullorðnu leik-
ararnir skila líka sínu, sérstaklega
er Sigurður Sigurjónsson eftir-
minnilegur.
Gunnar Helgason hefur látið þess
getið að hann hafi skrifað bókina til
að bregðast við minnkandi læsi
ungra stráka. Strákar eru því vitan-
lega í forgrunni og það hefði auðvit-
að ekki verið ónýtt að sjá fleiri stelp-
ur en þarna eru nú samt fjölbreyttar
og skemmtilegar kvenpersónur og
myndin er síður en svo bara stráka-
mynd.
Það er verðugt verkefni að búa til
sögur fyrir íslenska stráka sem end-
urspegla þeirra veruleika en það
sem er jafnvel enn mikilvægara eru
skilaboðin sem sagan sendir til
þessa hóps. Skilaboðin felast í því að
sýna fram á hversu skaðleg eitruð
karlmennska (e. toxic masculinity)
getur verið, jafnt innan vallar sem
utan. Hópíþróttastarfsemi fyrir börn
á Íslandi hefur stundum verið gagn-
rýnd fyrir óhóflega kappsemi og
harðneskju og það er því fótbolta-
krökkum mikilvægt að gera sér
grein fyrir að ofurkarlmennska og
tilfinningakuldi getur eitrað út frá
sér. Það er allt í lagi að gráta þegar
manni líður illa og það er allt í lagi að
leita sér hjálpar þegar maður þarf á
henni að halda, hvort sem maður er
barn eða fullorðinn.
Víti í Vestmanneyjum er há-
dramatískt og fjörugt ævintýri, sem
inniheldur góða blöndu af tárum,
brosum og takkaskóm, og ég tel að
jafnt börn sem fullorðnir geti haft
gaman af.
Stóru málin tækluð
Samstaða Krakkarnir verða að „tækla“ stór mál á borð við missi, þunglyndi og ofbeldi og læra að þegar upp er staðið eru vinátta og samstaða mikilvægari
en sigrar og markatölur. Hér sjást tveir af aðalleikurum Vítis í Vestmannaeyjum, Ísey Heiðarsdóttir og Lúkas Emil Johansen.
Sambíóin
Víti í Vestmannaeyjum bbbbn
Leikstjórn: Bragi Þór Hinriksson. Hand-
rit: Gunnar Helgason, Jóhann Ævar
Grímsson og Ottó Geir Borg. Kvik-
myndataka: Ágúst Jakobsson. Klipping:
Guðjón Hilmar Halldórsson. Aðal-
hlutverk: Lúkas Emil Johansen, Róbert
Luu, Viktor Benóný Benediktsson, Ísey
Heiðarsdóttir, Jóhann Jóhannsson, Sig-
urður Sigurjónsson, Ilmur Kristjáns-
dóttir. 95 mín. Ísland, 2018.
BRYNJA
HJÁLMSDÓTTIR
KVIKMYNDIR
Víti í Vestmannaeyjum Ný Ný
Pacific Rim: Uprising Ný Ný
Tomb Raider (2018) 1 2
Andið eðlilega 4 3
Black Panther 2 6
Lói – Þú flýgur aldrei einn 3 8
Red Sparrow 10 4
Game Night 5 5
Fullir vasar 9 5
The Shape of Water 8 6
Bíólistinn 23.-25. mars 2018
Nr.
Var
síðast
Vikur
á listaKvikmynd
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Íslenska fjölskyldumyndin Víti í
Vestmannaeyjum var frumsýnd á
föstudaginn og var aðsókn að henni
yfir helgina einkar góð og miða-
sölutekjur rúmar 12 milljónir
króna. 9.029 miðar voru seldir á
myndina um helgina en í heildina,
frá upphafi sýninga, hafa rúmlega
10.000 manns séð kvikmyndina.
Næsttekjuhæsta kvikmynd helg-
arinnar var Pacific Rim Uprising
sem um 2.000 manns sáu og sú
þriðja tekjuhæsta var Tomb Raider
með um 1.900 gesti.
Bíóaðsókn helgarinnar
Íslendingar fjölmenna á
Víti í Vestmannaeyjum
Fótbolti Úr Víti í Vestmannaeyjum.
ICQC 2018-20
Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is
PLUSMINUS | OPTIC