Morgunblaðið - 27.03.2018, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 27.03.2018, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2018 Kvarnir/Brimrás/Pallar ehf | Álfhella 9 | 221 Hafnarfjörður Sími 564 6070 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is www.kvarnir.is 1996 2016 20 ÁRA RUSLAGÁMUR STEYPU SÍLÓ GEYMSLUBOX Galvaniseraðir ruslagámar Til á lager Auðveldar steypuvinnu. Til í ýmsum stærðum Frábær lausn til að halda öllu til haga á byggingarsvæði. Aukahlutir fyrir byggingakrana Kvarna-tengi 70 kr stk m/vsk. SVIÐSLJÓS Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Við stöndum auðvitað frammi fyrir ákveðnum vanda með þennan ald- urshóp, 16-18 ára, því annars vegar ber nemendunum ekki skylda til að vera í skóla en hins vegar ber sam- félaginu skylda til að bjóða upp á nám fyrir þá. Hvað á að gera þegar þeir brjóta af sér?“ segir Guðríður Arnardóttir, formaður Félags fram- haldsskólakennara (FF). Umboðsmaður Alþingis hefur úr- skurðað að brottvikning 16 ára pilts úr framhaldsskóla árið 2015 hafi ver- ið ólögmæt. Mennta- og menningar- málaráðuneytið staðfesti brottvikn- inguna á sínum tíma. Pilturinn varð uppvís að því að bera hníf í skólanum og birti óviðeigandi mynd af skóla- systur sinni á lokaðri facebooksíðu. Í áliti umboðsmanns kemur fram að pilturinn hafi verið ólögráða barn að lögum og brotið hafi verið gegn lög- bundnum rétti hans til skólagöngu í framhaldsskóla. Úrskurður ráðu- neytisins hafi ekki verið í samræmi við lög. Fréttablaðið greindi frá þessu í gær og þar kom fram að ráðuneytið tæki undir ábendingar umboðsmanns. „Við viljum byggja upp samfélag þar sem öllum stendur til boða að fara í nám. Við viljum fara mildum höndum um börn, líka þau sem eru 16-18 ára, og við viljum ekki beita íþyngjandi ákvörðunum á börn að nauðsynjalausu. En við viljum held- ur ekki byggja upp þannig samfélag að börn og fullorðnir komist upp með hvað sem er. Við þurfum að kenna börnum það að orðum og at- höfnum fylgi afleiðingar. Þú getur ekki hagað þér eins og þú vilt,“ segir Guðríður og bendir á að umrætt mál snúi ekki bara að gerandanum. Þarna sé líka um að ræða fórnar- lamb. Hugsa verður um þolendur „Ég er mjög hugsi um stöðu þol- enda, bæði í tengslum við þetta mál og fleiri mál sem ég þekki. Þetta kemur auðvitað inn á umræðu um hefndarklám og fleira. Það er alltaf að verða algengara og algengara að verið sé að dreifa slíku myndefni.“ Í áliti umboðsmanns segir að mælst sé til þess að ráðuneytið geri ráðstafanir til að tryggja að nem- endur, yngri en 18 ára, sem vísað er ótímabundið úr framhaldsskóla, fái skólavist að nýju. „Ein leið væri að líta svo á að sam- félagið hafi skyldu til að veita nem- endum skólavist til 18 ára aldurs, en það þarf ekki að vera í ákveðnum skóla. Þannig að ef nemendur brjóta af sér sé hægt að víkja þeim úr skóla en bjóða þeim skólavist í öðrum skóla. Það er ákveðin refsing og mögulega áfellisdómur fyrir viðkom- andi en við bregðumst ekki barninu sem samfélag. Að auki fjarlægjum við þar með gerandann frá þoland- anum. Þetta er vel hægt ef reglurnar eru skýrar í upphafi og nemendur fá kynningu á þeim,“ segir Guðríður. Ýmsar leiðir eru færar Salvör Nordal, umboðsmaður barna, kvaðst ekki þekkja málavexti í umræddu máli og vildi því lítið tjá sig. „Það má alveg taka undir að það getur ekki verið eina refsingin að vísa nemendum úr skóla ef þeir brjóta af sér. Það eru ýmsar leiðir til að mæta nemendum og reyna að koma í veg fyrir að brot endurtaki sig.“ Brottreknum verði boðin skólavist annars staðar Morgunblaðið/Hari Framhaldsskóli Skýrari reglur þarf innan framhaldsskóla þegar kemur að brotum nemenda, að mati formanns FF.  Formaður Félags framhaldsskólakennara vill skýrari reglur um brot nemenda Guðríður Arnardóttir Salvör Nordal Víti í Vest- mannaeyjum, ný íslensk kvik- mynd sem byggð er á metsölubók Gunnars Helga- sonar, hefur heldur betur slegið í gegn, en yfir 10.000 manns hafa þeg- ar séð myndina, sem frumsýnd var sl. föstudag. Aðstandendur myndarinnar segja aðsóknina um helgina hreint út sagt „magnaða“ og gefur hún „góð fyrirheit um framhaldið“. Víti í Vestmannaeyjum er byggð á fyrstu bókinni í vinsælum barna- bókaflokki eftir Gunnar, en leik- stjóri er Bragi Þór Hinriksson. »33 Yfir 10.000 manns hafa þegar séð Víti í Vestmannaeyjum Gunnar Helgason Fjórir sóttu um embætti prests við Dómkirkjuna í Reykjavík, en starf- ið var auglýst laust til umsóknar eftir að skipun séra Evu Bjarkar Valdimarsdóttur var afturkölluð í október í fyrra. Höfðu komið fram athugasemdir um að ekki hefði verið réttilega staðið að kosningu kjörnefndar prestakallsins, en kjörnefnd hefur m.a. það hlutverk að kjósa prest úr hópi umsækjenda. Þeir sem sóttu um embættið núna eru, í stafrófsröð: Cand. theol. Bryndís Svavarsdóttir, séra Elín- borg Sturludóttir, séra Gunnar Jó- hannesson og mag. theol. Helga Kolbeinsdóttir. Elínborg og Bryn- dís sóttu um embættið í fyrra en sú fyrrnefnda gerði athugasemdir við kosningu kjörnefndar. Elínborg og Bryndís sækja um aftur Morgunblaðið/Eggert Í gær var tekin í notkun í Mývatns- sveit hleðslustöð Orku náttúrunnar fyrir rafbíla og nú er hægt að aka hringveginn sem varðaður er hlöð- um sem fyrirtækið hefur sett upp. Hlaðan er við Fosshótel í Reykja- hlíð og auk hraðhleðslunnar er þar líka hefðbundin hleðsla (AC). Frið- rik Jakobsson, sem starfar við ferðaþjónustu í Mývatnssveit, fékk fyrstu hleðsluna í gær að við- stöddum Þorsteini Gunnarssyni sveitarstjóra og Bjarna Má Júl- íussyni, framkvæmdastjóra ON. „Ég vona svo sannarlega að þessi tímamót hvetji ekki bara okkur landsmenn til að skipta yfir á raf- magn í samgöngum, heldur ekki síður ferðafólk sem hingað kemur,“ segir Bjarni Már í tilkynningu. Mikil fjölgun ferðamanna síðustu ár hefur gert það að verkum að kol- efnisspor samgangna á landi hefur vaxið, þvert á markmið um hið gagnstæða. Talið er að ríflega 20 þúsund bílaleigubílar séu í landinu og kolefnissporið stórt. „Nú fögnum við mikilvægum áfanga. Nýlegar kannanir sýna að Íslendingar eru tilbúnari en flestar aðrar þjóðir til að skipta yfir í raf- bíla,“ segir Bjarni Már. Morgunblaðið/Birkir Fanndal Mývatnssveit Frá opnun hlöðunnar í Reykjahlíð í gær. Hringnum er lokað. Hleðslustöðvarnar allan hringveginn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.