Morgunblaðið - 27.03.2018, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 27.03.2018, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2018 Marín Guðrún Hrafns-dóttir, sjálfstættstarfandi blaðamað- ur, á 50 ára afmæli í dag. Hún situr í stjórn Fræðagarðs Bandalags háskólamanna (BHM) og einbeitir sér þessa dagana að því að kynna sér kjaramálin enda nýkomin í stjórnina. „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á stétta- og kjaramálum og nú síðustu árin þeim miklu breytingum sem eru að verða á vinnumarkaði. Enn er vinnu- markaðurinn fremur hefð- bundinn hér á landi en t.d. eru nú fleiri í Bretlandi sem eru sjálfstætt starfandi en sem til- heyra opinbera geiranum. Ég hef líka áhuga á að berjast fyrir því að háskólamenntun sé metin að verðleikum á Ís- landi og Fræðagarður er eitt af stóru félögunum innan BHM. Í Fræðagarði er fólk sem vinnur bæði í opinbera og einkageir- anum og er með margvíslega menntun og bakgrunn, mest þó hug- vísindafólk.“ Sjálf er Marín með BA-próf í íslensku og diplómagráðu í fjölmiðla- fræði og tvær meistaragráður. Sú fyrri er í enskum bókmenntum frá Háskólanum í Leeds árið 1994 og síðari gráðunni lauk Marín í fyrrasumar í hagnýtri menningarmiðlun frá Háskóla Íslands. Áður en hún hóf það nám var hún menningar- og ferðamálafulltrúi Hafnarfjarðarbæjar. „Ég hef mikinn áhuga á sagnfræði og bók- menntum og í náminu fékk ég tækifæri til að tvinna þetta tvennt saman. Ég setti upp sýningu á verkum og ævi langömmu minnar, Guðrúnar frá Lundi, en ég hef mikið unnið með bækur hennar í gegnum tíðina og held m.a. úti facebooksíðunni Guðrún frá Lundi. Sýningin hefur verið frábærlega vel sótt og flakkar nú um landið en var fyrst sett upp í fyrrasumar á Sauðárkróki. Hún er núna á Akra- nesi og er á leiðinni til Akureyrar, Reykjanesbæjar og Egilsstaða.“ Marín er sjálf úr sveit, frá Skeggsstöðum í Svartárdal þar sem foreldrar hennar og systir búa. „Ég reyni að fara þangað eins oft og ég get og vonast til að geta brunað norður strax eftir Parísarferð.“ Marín fór í flug í morgun til Parísar og ætlar að fagna þar afmæl- inu með systrum sínum og börnum, en ein systirin, bóndinn á Breiðavaði, komst ekki vegna anna. Eiginmaður Marínar er Steingrímur Ólafsson iðnrekstrarfræð- ingur, sem er á vakt í Noregi um páskana, og börn þeirra eru Guðrún 25 ára, Ingólfur 23 ára og Hrafnhildur 17 ára. Menningarmiðlarinn Marín við bóka- kápur skáldsagna Guðrúnar frá Lundi. Systraferð til Parísar Marín Guðrún Hrafnsdóttir er fimmtug í dag Þ orberg Ólafsson fæddist 27. mars 1948 í Mjölnis- holti 6 í Reykjavík. „Ég er alinn upp undir Eyjafjöllum þaðan sem föðurætt mín er. Þar eyði ég frítím- anum einkum í sumarhúsinu. Þar grænkar líka fyrst, og sumarið er lengst. Þar er rokið best, og fýkur mest.“ Uppeldisforeldrar Þorbergs til 14 ára aldurs voru hjónin Mar- grét Jónsdóttir húsmóðir og Sig- urður Guðjónsson bóndi á Sauð- húsvelli undir Eyjafjöllum. Þorberg gekk síðan í Skógaskóla og varð gagnfræðingur þaðan 1965. „Ég vildi verða barþjónn, en pabbi taldi heppilegra að hafa mig hinum megin við barborðið. Sjálf- sagt hefur hann grunað genin um græsku, en ég varð nú hvorki bind- indis- né ofdrykkjumaður. En ég varð barber! Ég hef aðeins unnið við tvær göt- ur í Reykjavík, Pósthússtrætið og Laugaveginn. Herradeild P & Ó, og Rakarastofunni í Eimskipafélags- húsinu, þar sem ég stundaði nám fyrir ævistarfið.“ Þorberg keypti helmingshlut í Rakarastofu Austurbæjar árið 1972, sem þá var í Hekluhúsinu við Laugaveg. „Við fluttum fyrirtækið í gamla sjónvarpshúsið, og síðar að Laugavegi 178, þar sem við eig- Þorberg Ólafsson hárskerameistari – 70 ára Fjölskyldan Þorberg og Margrét Jóna ásamt börnum, tengdabörnum og barnabörnum. Rakarastarfið er eink- um félagslegs eðlis Hjónin Þorberg og Margrét Jóna við St. Tropez í Frakklandi. Reykjavík Ísalind Freyja Jóhannes- dóttir fæddist 27. mars 2017 kl. 5.31 á Landspítalanum og á því eins árs afmæli í dag. Hún vó 3.090 g og var 49 cm löng. Foreldrar hennar eru Aisuluu Shatmanova og Jóhannes Guðmundsson. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Aukin lífsgæði án verkja og eym Nutrilenk vörurnar fást í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana. „Ég er búin að æfa mikið síðustu ár; hlaupa, stöðvarþjálfun, tabata ofl. og varð alltaf þreytt og aum í liðum og beinum eftir æfingar. Mér var bent á að prufa Nutrilenk Gold og byrjaði ég á að taka 6 töflur á dag í nokkrar vikur. Ég fann ótrúlega fljótt mun til hins betra svo ég ákvað að prufa að taka líka 1 töflu af Nutrilenk Active því ég var enn með verki og eymsl í höndum. Active virkar eins og smurning fyrir liðina en ég fann mikinn mun á mér og eru verkirnir nú horfnir. Í dag tek ég 4 Gold og 1 Active og ekki má gleyma Nutrilenk gelinu sem ég nota á axlir og hné en það kælir og dregur úr bólgum. Ég get því hiklaust mælt með öllum Nutrilenk vörunum, án þeirra gæti ekki hreyft mig eins mikið og ég geri í dag, verkjalaus.“ Erna Geirlaug Árnadóttir, 42 ára innanhúsarkitekt NUTRILENK ACTIVE sla

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.