Morgunblaðið - 27.03.2018, Síða 33

Morgunblaðið - 27.03.2018, Síða 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2018 Ísíðustu viku var kvikmyndinVíti í Vestmannaeyjum frum-sýnd. Hin eiginlega hátíðar-frumsýning var um kvöld en undirrituð laumaði sér á sýningu sem var fyrr um daginn og var sér- staklega ætluð vinum og bekkjar- félögum barnanna sem leika í mynd- inni. Þetta var mikil bíóupplifun og vitaskuld kjöraðstæður til að horfa á slíka mynd, umkringd 200 fjörugum krökkum. Gunnar Helgason, höfundur bókarinnar sem myndin byggist á, steig á svið á undan myndinni og fagnaðarlætin létu ekki á sér standa, Gunnar er svo sannarlega stór- stjarna meðal barnanna. Hann brýndi fyrir áhorfendum að á þessari sýningu ætti enginn að vera stilltur og prúður líkt og vaninn er í bíó og hvatti alla til að klappa og fagna þeg- ar við átti og sömuleiðis að púa þegar eitthvað fór miður. Áhorfendur tóku þessi tilmæli til sín og það var mikið klappað, hrópað, púað og „húh!“-að. Víti í Vestmannaeyjum hefst á því að fótboltaliðið Fálkar er á leið til Eyja á pollamót. Aðalhetjan, Jón Jónsson, vaknar upp af dularfullum draumi um borð í Herjólfi. Hann er ringlaður eftir drauminn, sem er ekkert til að bæta sjóveikina sem hann þjáist af. Brátt koma Fálkar þó í eyjuna, magi Jóns róast og það er mikil eftirvænting í loftinu. Fyrsti leikurinn sem Fálkar spila er á móti heimamönnum í ÍBV. Rétt áður en leikurinn hefst lendir Jón upp á kant við ÍBV-leikmanninn Ívar, sem er algjör fantur. ÍBV-liðar reynast Fálkum harðir andstæðingar en þeir gera sitt besta. Það fer þó ekki betur en svo að á ögurstundu slas- ast Skúli, lykilmaður í liði Fálka. Skúli reynist vera brákaður og get- ur ekki spilað með á mótinu, sem er reiðarslag fyrir liðið þar sem Skúli er ekki einungis þeirra besti maður, heldur líka móralskur leiðtogi og stuðbolti. Þjálfari Fálka stappar þó í þá stálinu og strákarnir halda áfram með Skúla á hliðarlínunni. Eftir því sem á líður kynnast Fálkar hinum krökkunum á mótinu. Ein þeirra er Rósa, eitilharður leik- maður Fylkis, og hún slæst oft í hópinn með Jóni og félögum. Einnig komumst við í frekari kynni við fantinn Ívar og kemur á daginn að fólskulegt háttalag hans á sér að hluta til skýringar í erfiðum að- stæðum heima fyrir. Faðir Ívars, sem er jafnframt þjálfari ÍBV, er ekki allur þar sem hann er séður. Eftir því sem ógnin af föður Ívars fer stigmagnandi þurfa krakkarnir að taka á honum stóra sínum til að sigra þennan andstæðing. Sagan er skemmtileg og stígandin er góð. Fótboltasenurnar spegla þemun sem birtast í heildarmynd- inni, það gengur á ýmsu á vellinum jafnt og í lífinu sjálfu. Krakkarnir verða að „tækla“ stór mál á borð við missi, þunglyndi og ofbeldi og læra að þegar upp er staðið eru vinátta og samstaða mikilvægari en sigrar og markatölur. Víti í Vestmannaeyjum er litrík, kvikmyndatakan er flott og mikið um falleg könnunarskot í landslagi Vestmannaeyja. Tölvutæknibrellur eru ríkulega notaðar sem skilar sér í nokkrum þrælflottum atriðum en öðrum miður góðum. Eðli málsins samkvæmt er mikið af fótboltaatrið- um og þau eru vel úr garði gerð, þar sem dramatískum hægmyndum er blandað við örar og æsilegar klipp- ingar. Það má velta því fyrir sér hvort þeim sem hafa lítið vit á fót- bolta kunni að leiðast þessar senur. Fæstum ætti þó að leiðast þar sem það er brugðið á ýmis ráð til að gera ariðin spennandi og aðgengileg fyrir alla, þ. á m. að láta Gunna Helga vera þul eða „íþróttfréttamann“ sem lætur gamminn geisa í orkumiklum og oft sprenghlægilegum leiklýsing- um. Ungi leikhópurinn stendur sig vel miðað við aldur og fyrri störf. Róbert er skemmtilegur í hlutverki hins orðheppna sprelligosa Skúla og Lúkas nær að gera hinum við- kvæma og réttsýna Jóni góð skil. Ísey og Viktor eru líka stórfín í sín- um hlutverkum. Fullorðnu leik- ararnir skila líka sínu, sérstaklega er Sigurður Sigurjónsson eftir- minnilegur. Gunnar Helgason hefur látið þess getið að hann hafi skrifað bókina til að bregðast við minnkandi læsi ungra stráka. Strákar eru því vitan- lega í forgrunni og það hefði auðvit- að ekki verið ónýtt að sjá fleiri stelp- ur en þarna eru nú samt fjölbreyttar og skemmtilegar kvenpersónur og myndin er síður en svo bara stráka- mynd. Það er verðugt verkefni að búa til sögur fyrir íslenska stráka sem end- urspegla þeirra veruleika en það sem er jafnvel enn mikilvægara eru skilaboðin sem sagan sendir til þessa hóps. Skilaboðin felast í því að sýna fram á hversu skaðleg eitruð karlmennska (e. toxic masculinity) getur verið, jafnt innan vallar sem utan. Hópíþróttastarfsemi fyrir börn á Íslandi hefur stundum verið gagn- rýnd fyrir óhóflega kappsemi og harðneskju og það er því fótbolta- krökkum mikilvægt að gera sér grein fyrir að ofurkarlmennska og tilfinningakuldi getur eitrað út frá sér. Það er allt í lagi að gráta þegar manni líður illa og það er allt í lagi að leita sér hjálpar þegar maður þarf á henni að halda, hvort sem maður er barn eða fullorðinn. Víti í Vestmanneyjum er há- dramatískt og fjörugt ævintýri, sem inniheldur góða blöndu af tárum, brosum og takkaskóm, og ég tel að jafnt börn sem fullorðnir geti haft gaman af. Stóru málin tækluð Samstaða Krakkarnir verða að „tækla“ stór mál á borð við missi, þunglyndi og ofbeldi og læra að þegar upp er staðið eru vinátta og samstaða mikilvægari en sigrar og markatölur. Hér sjást tveir af aðalleikurum Vítis í Vestmannaeyjum, Ísey Heiðarsdóttir og Lúkas Emil Johansen. Sambíóin Víti í Vestmannaeyjum bbbbn Leikstjórn: Bragi Þór Hinriksson. Hand- rit: Gunnar Helgason, Jóhann Ævar Grímsson og Ottó Geir Borg. Kvik- myndataka: Ágúst Jakobsson. Klipping: Guðjón Hilmar Halldórsson. Aðal- hlutverk: Lúkas Emil Johansen, Róbert Luu, Viktor Benóný Benediktsson, Ísey Heiðarsdóttir, Jóhann Jóhannsson, Sig- urður Sigurjónsson, Ilmur Kristjáns- dóttir. 95 mín. Ísland, 2018. BRYNJA HJÁLMSDÓTTIR KVIKMYNDIR Víti í Vestmannaeyjum Ný Ný Pacific Rim: Uprising Ný Ný Tomb Raider (2018) 1 2 Andið eðlilega 4 3 Black Panther 2 6 Lói – Þú flýgur aldrei einn 3 8 Red Sparrow 10 4 Game Night 5 5 Fullir vasar 9 5 The Shape of Water 8 6 Bíólistinn 23.-25. mars 2018 Nr. Var síðast Vikur á listaKvikmynd 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Íslenska fjölskyldumyndin Víti í Vestmannaeyjum var frumsýnd á föstudaginn og var aðsókn að henni yfir helgina einkar góð og miða- sölutekjur rúmar 12 milljónir króna. 9.029 miðar voru seldir á myndina um helgina en í heildina, frá upphafi sýninga, hafa rúmlega 10.000 manns séð kvikmyndina. Næsttekjuhæsta kvikmynd helg- arinnar var Pacific Rim Uprising sem um 2.000 manns sáu og sú þriðja tekjuhæsta var Tomb Raider með um 1.900 gesti. Bíóaðsókn helgarinnar Íslendingar fjölmenna á Víti í Vestmannaeyjum Fótbolti Úr Víti í Vestmannaeyjum. ICQC 2018-20 Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is PLUSMINUS | OPTIC

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.