Morgunblaðið - 27.03.2018, Síða 7
Elon Musk
framlengir
dvölina á Mars
NÝSKÖPUN OG UPPBYGGING
„Svarið við spurningu Bowies er
„já“, lífið er hér“. Þannig hljóðaði
tíst frá frumkvöðlinum Elon Musk,
þar sem hann tilkynnir að hann
stýri veldi sínu enn um sinn frá
alþjóðlegu rannsóknarstöðinni á
Mars. Þangað flaug Musk á eigin
geimskutlu fyrir rúmum mánuði og
unir að því er virðist hag sínum vel
í stórum hópi vísindamanna úr
öllum greinum, sem kortleggja
leyndardóma rauðu plánetunnar.
VERNDUN JARÐAR Ef fram fer sem
horfir næst algert kolefnishlutleysi
Íslands innan fimm ára, fyrir árslok
2035. Stóraukin notkun rafbíla og
almenningssamgangna, átak í skóg-
rækt og landgræðslu um allt land og
endurheimt votlendis eru stærstu
áhrifavaldarnir, fyrir utan viða-
mestu breytinguna sem varð þegar
tókst að raf- og metanvæða allan
fiskiskipaflotann að fullu fyrir
þremur árum. Ísland bætist þar með
í smáan en ört vaxandi flokk kolefnis-
hlutlausra ríkja. Þegar er búið að til-
kynna að dagurinn þegar fullkomnu
kolefnishlutleysi verður náð verði
gerður að almennum árlegum
frídegi. Loftslagsmál eru alþjóðlegt
viðfangsefni og einnig þar hefur
náðst mikilvægur árangur á undan-
förnum misserum. Þannig staðfesti
loftslagsráð Sameinuðu þjóðanna á
blaðamannafundi í Genf í dag að
þriðja árið í röð hefur hægt á hlýnun
jarðar. Jafnvel betri fréttir eru þær
að það ferli gengur hraðar með
hverju árinu og hraðar en spár
sögðu fyrir um. Það er samt alls ekki
tímabært að lýsa yfir fullnaðarsigri
yfir loftslagsvánni, en árangurinn á
Íslandi og víða um heim sýnir að
stríðið er alls ekki tapað og sam-
takamáttur og hugkvæmni hefur
alla burði til að bjarga okkur öllum
og gera jörðina lífvænlega lengi enn.
Hægir á hlýnun jarðar
Þróunarsamvinna: Gleðilegur samdráttur
FLYTJUM GÓÐAR
FRÉTTIR ÁRIÐ 2030
Hlutabréf
vopnafram-
leiðenda falla
enn í verði
FRIÐUR OG RÉTTLÆTI Vopnafram-
leiðslufyrirtækin berjast fyrir lífi
sínu eftir að verulega hefur dregið
úr hernaðarútgjöldum á heims-
vísu – Freydís Ósk Hjálmarsdóttir
utanríkisráðherra segir engar ófriðar-
blikur á lofti.
„Þessi fyrirtæki þurfa að horfast í
augu við breytta heimsmynd,“ segir
ráðherra, en árið í ár er enn eitt
samdráttarárið, framhald þróunar
sem staðið hefur samfellt frá 2020.
Allir stærstu framleiðendurnir hafa
lokað stórum verksmiðjum á þessu
ári og flestir leita þeir leiða til að
þróa starfsemi sína í nýjar áttir á
sviði friðsamlegrar hátækni eða
verkfæraframleiðslu.
Brotthvarf
liðin tíð
MENNTUN FYRIR ALLA Brottfall úr
framhaldsskólum var innan við 1%
í fyrra. Iðnnám aldrei verið vinsælla.
„Það er ekkert eitt sem skýrir þessa
breytingu,“ segir Linda Rut Emils-
dóttir, prófessor hjá Menntavísinda-
sviði sem rannsakað hefur þróun
brottfalls og annarra þátta í mennta-
málum landsmanna undanfarin ár.
„Skipulagsbreytingar í skólum,
breytt námsframboð, bætt sálfræði-
þjónusta og hugarfarsbreyting hjá
unga fólkinu, allt þetta hefur haft
áhrif.“
Mælingar sýna að vellíðan fram-
haldsskólanema hefur breyst mjög
til batnaðar. Mun minni kvíði mælist
nú í skólunum, sem hefur jákvæð
áhrif og bætir námsárangur. Þá er
ónefnd ein byltingin, sprenging í eft-
irspurn eftir iðnnámi. „Það kann í
raun enginn skýringu á þessu,“ segir
prófessorinn, en telur að jákvæð
umræða innan grunnskólans og
stórefld starfskynning hafi haft sitt
að segja. „Skólarnir voru tæpast
undir það búnir þegar eftirspurnin
jókst skyndilega fyrir tíu árum.“
Nú er komið jafnvægi milli náms-
framboðs og eftirspurnar og einnig
í þessum greinum heyrir brottfall
nánast sögunni til.
Útlit er fyrir að hefðbundinni
þróunarsamvinnu verði hætt
á allra næstu árum. Ótrúlegar
framfarir í fátækustu ríkjum
heims á einum áratug.
ALÞJÓÐLEG SAMVINNA Þjóðir heims,
sem hafa um áratuga skeið varið
milljörðum króna til þróunarsam-
vinnu, sjá nú fram á að þeir fjár-
munir fari á næstu árum að mestu
leyti í uppbyggingarsjóði sem
stofnaðir hafa verið í Afríku, Asíu
og Suður-Ameríku að fyrirmynd
uppbyggingarsjóðs EES sem starf-
ræktur var 1994–2025 og fjár-
magnaði ýmsar umbætur og upp-
byggingu í Evrópuríkjum sem
lakar stóðu í efnahagslegu tilliti.
„Framfarir í þróunarríkjunum hafa
verið það ótrúlegar á síðustu árum
að líkur eru á því að skrifstofa þró-
unarsamvinnu í ráðuneytinu verði
lögð niður og Ísland styðji á næstu
árum fyrst og fremst Uppbyggingar-
sjóð Afríku,“ segir Stefán Orri Kjart-
ansson, fjölmiðlafulltrúi ráðuneyt-
isins. „Uppbyggingarsjóðir kalla á
minni umsýslu hér heima en í fyrr-
verandi samstarfslöndum er sóst
eftir starfskröftum okkar og ég veit
af fjórum starfsmönnum sem hafa
ráðið sig til starfa í Malaví og
Úganda og einn bíður eftir endanlegu
svari frá Namibíu,“ bætir hann við.
Hvert fór launabilið?
JAFNRÉTTI KYNJANNA „Það er
alveg sama hvaða starfsgreinar við
skoðum og hvaða mælikvarða við
notum – launajafnrétti hefur verið
náð,“ segir Salka Sól Eyfeld, félags-
málaráðherra. Áfangaskýrsla ráðu-
neytisins um launajafnrétti var
kynnt í Hörpu í morgun, að við-
stöddu fjölmenni; fulltrúum verka-
lýðsfélaga, atvinnurekenda, bar-
áttusamtaka, fjölmiðlafólks og
stjórnmálamanna, auk áhugafólks
um þetta mikla og erfiða við-
fangsefni undanfarinna áratuga.
„Reyndar er „áfangaskýrsla“ eigin-
lega rangnefni,“ bætir Salka við og
brosir út að eyrum. „Markmiðinu
er náð. Nú er bara að halda því. Það
er enginn að fara að sofna á
verðinum.“ Skýrslan hefur þegar
ratað í erlenda fjölmiðla. Víða
hefur náðst góður árangur á þessu
sviði en Ísland er í sérflokki hvað
launajafnrétti kynjanna varðar.
„Þetta er sigur okkar allra,“ segir
félagsmálaráðherra, þegar hún er
spurð hverjum helst beri að þakka
þennan árangur. „Þetta er líka
áminning um það hverju hægt er að
ná fram ef reiði og þrjósku er beint
í jákvæðan farveg og allir leggjast á
eitt. Það er helsti lærdómurinn sem
hægt er að draga af þessu. En í dag
er aðalmálið að gleðjast!“
Framfylgjum Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun og flytjum góðar
fréttir árið 2030. Kynntu þér Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna á www.heimsmarkmidin.is.
Ef fram fer sem
horfir næst algert
kolefnishlutleysi Íslands
innan fimm ára, fyrir
árslok 2035.
Salka Sól Eyfeld,
félagsmálaráðherra
1990
100
0
200
300
400
500
600
700
800
900
1000
2005 2005 20152010 203020252020
MORGUNBLAÐIÐ 27. MARS 2030 HEIMSMARKMIÐ SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA
Salka Sól félagsmálaráðherra kynnir skýrslu ráðuneytisins um launajafnrétti
Parísarsamkomulagið farið að skila árangri. Ísland á góðri leið með að verða kolefnishlutlaust.
Hér að ofan má sjá nokkrar góðar fréttir úr framtíðinni
sem geta ræst ef við framfylgjum Heimsmarkmiðum
Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Þetta eru
víðtækustu markmið sem ríki heims hafa komið sér
saman um og stefnt er að því að tryggja velmegun
og mannréttindi um allan heim fyrir árið 2030.
Ísland er þar á meðal.
GÓÐAR FRÉTTIR
Auglýsing 7