Morgunblaðið - 27.03.2018, Side 21
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2018
Kæri Heiðar, til
hamingju með dag-
inn, vonandi fékkstu
þér vöfflur og rjóma
í tilefni dagsins.
Vöfflur og rjómi
voru þitt uppáhald, líka saltfiskur
og hákarl. Þú hafðir gaman af því
að borða góðan mat og njóta þess.
Stundum bauð ég þér að koma yfir
til okkar í mat, sérstaklega þegar
ég var með eitthvað sem ég vissi
að þú værir hrifinn af. Oft birtist
þú fyrirvaralítið hjá okkur, en líka
farinn eins snögglega og þú
komst, ég sakna þess.
Þú kunnir að njóta, mér finnst
eins og þú hafir stundum verið að
reyna að hægja á okkur og fá okk-
ur til að njóta staðar og stundar.
Ég mun muna það þegar þú
dróst okkur systur á skíðum á
snjósleðanum þínum, þegar við
vorum í baggaheyskap í sveitinni,
og þú vandaðir vel að raða bögg-
unum á vagninn aftan í Ursus, svo
þurfti að raða í hlöðuna líka, þessu
hafðir þú gaman af. Ég mun muna
þig við að dunda við Ferguson og
Sigþór Heiðar
Ingvason
✝ Sigþór HeiðarIngvason fædd-
ist á Egilsstöðum
26. mars 1966. Út-
för hans fór fram
27. janúar 2018.
snjósleðana, skrúbba
og bóna, ég mun
muna þig við að slá
með bensín-sláttu-
orfinu sem þú varst
búinn að slást við síð-
an ég man eftir mér,
ekki skil ég hvernig
þú gast alltaf fengið
það til að ganga. Ég
man þig á tröppun-
um heima með kú-
rekahatt og hendur í
vösum. Og svo ótal margt fleira
sem ég geymi í hjarta mínu. Ég er
stolt af því hvað þú varst alltaf
duglegur þrátt fyrir þín veikindi,
og ég vona svo innilega að þér líði
vel þar sem þú ert núna.
Hafðu þökk fyrir allt og allt,
Heiðar minn, megi minning þín
varðveitast um ókomin ár.
Þín systir,
Dalbjörk.
Í bljúgri bæn og þökk til þín,
sem þekkir mig og verkin mín.
Ég leita þín, Guð, leiddu mig
og lýstu mér um ævistig.
Ég reika oft á rangri leið,
sú rétta virðist aldrei greið.
…
(Pétur Þórarinsson.)
Já, það er margt sem miður fer
í lífinu og oft er erfitt að rata réttu
brautina. Því miður varst þú einn
af þeim, kæri bróðir. Það hafa
flogið margar hugsanir um huga
minn síðastliðna mánuði og eftir
situr djúp gjá í hjarta mínu sem
mun aldrei falla saman aftur og
verða eins. Vegna þess að lífið hér
eftir verður aldrei eins, þú ert ekki
hér, hringir ekki oftar, læðist ekki
inn úr dyrunum oftar í sveitinni og
hverfur út úr þeim jafn hljóðlega
og þú komst inn. Kemur ekki oftar
í heimsókn til mín og hlammar þér
í sófann og gerir þig heimakom-
inn, við horfum ekki lengur saman
á Hobbitann eða Lord of the
Rings eða borðum ís og ávexti
saman, og ég sakna þessa alls. En
þökk fyrir allar minningarnar sem
ég á með þér, allt frá því ég var lítil
og fram að deginum sem mér var
sagt að þú værir dáinn. Það gat
ekki verið, þessi orð eru þau
hræðilegustu sem ég heyrt. Oft
hef ég þurft að staldra við og
hugsa, „bíddu, er þetta virkilega
að gerast?“ Á síðustu árum höfum
við gert margt saman og ég er
mjög þakklát fyrir þann tíma, eitt
af því er þegar við fórum saman á
Sauðárkrók og þar rifjaðir þú upp
vinnu þína í fiskinum og slátur-
húsinu. Líka þegar við fórum í
fimmtugsafmælisferðina þína í
Jarðböðin í Mývatnssveit og við
fengum okkur vöfflu og rjóma í til-
efni þess.
Upp í hugann kemur byrjunin á
kvikmyndinni „Englar alheims-
ins“. Ég man daginn er ég sá hana
fyrst, vegna þess að ég sá okkur
systkinin fyrir mér í myndinni.
Fjórir hestar, þrír voru dökkir en
einn var skjóttur, og þessi skjótti
missti fótanna og datt í sandinn.
Þú varst skjótti hesturinn. Núna
ert þú ekki bara skjótti hesturinn
heldur ert þú engill í alheiminum.
Þrátt fyrir veikindi þín stóðstu þig
í öllu sem þú tókst þér fyrir hend-
ur og framkvæmdir af alúð og um-
hyggju.
Þú vildir gera vel og það gerðir
þú svo sannarlega. Í ófá skiptin
tókstu að þér að hjálpa litlu systur
við heimilisstörfin og þreifst hátt
og lágt og það lá við að þú færir
með tannbursta í sprungurnar svo
nákvæmur og samviskusamur
varstu til verka. Ég trúi því að í
þínum heimi sértu núna að sinna
bústörfunum á þínum sveitabæ
innan um öll dýrin sem við höfum
átt í sveitinni, þar á meðal er hann
Patti þinn. Ég sé ykkur fyrir mér í
gönguferðum og saman úti á túni
á Ferguson að slá og raka grasið.
Það var það sem þig langaði, eiga
flottan sveitabæ, vera með marga
hesta og ríða út. Þú hefðir verið
flottur kúreki. Í okkar heimi trúi
ég því að þú sért hrafn og fylgir
mér allra minna ferða og passir
upp á mig. Eins trúi ég því að þú
sért allar stjörnurnar á himninum
sem skína svo skært, eins og ég tel
ömmu og afa vera.
Innilega til hamingju með af-
mælið, stóri bró, vonandi naust þú
dagsins í fallegu sveitinni þinni
með Patta þínum.
Þín litla systir,
Ingunn Heiðdís
Yngvadóttir.
✝ Birgir HallurErlendsson
fæddist á Siglufirði
12. febrúar 1928.
Hann andaðist á
Landakoti í
Reykjavík 15. mars
2018.
Foreldrar hans
voru Valgerður
Guðlaug Halls-
dóttir frá Fá-
skrúðsfirði, f. 4.
september 1904, d. 6. febrúar
1982, og Erlendur Þorsteinsson
frá Fáskrúðsfirði, f. 12. júní
1906, d. 10. júlí 1981.
Bróðir Birgis var Bragi Val-
garður Erlendsson, raforku-
verkfræðingur, f. 20. júlí 1930,
d. 24. desember 1996. Hálfsystk-
ini Birgis og Braga, samfeðra,
voru Gunnar Bachmann og
Helga Sigríður Bachmann, þau
eru bæði látin.
Hinn 17. janúar 1952 kvænt-
ist Birgir Sigrúnu Theódórs-
dóttur frá Reykjavík, f. 18. sept-
ember 1932, d. 31. janúar 2015.
Foreldrar hennar voru Sigur-
laug Sigurðardóttir, f. 8. júní
1903 í Súgandarfirði, d. 14. nóv-
ember 1970, og Theódór Krist-
inn Guðmundsson, f. 25. júlí
1905 í Bolungarvík, d. 27. maí
1969.
mikil áhrif á hans starfsvett-
vang, hann fór ungur á sjó, um
15 ára, á ýmsum bátum frá
Siglufirði. Eftir gagnfræðaskóla
fór hann í Skipstjóra- og stýri-
mannaskólann í Reykjavík. Hélt
því áfram á sjó eftir nám og
starfaði mest sitt líf sem stýri-
maður og skipstjóri, m.a. á Jóni
Gunnlaugssyni GK 444, Mar-
gréti SI 4 og síðast á Eldborgu
GK 13. Eftir sjómennsku um
1980 hóf hann störf hjá Sölu-
miðstöð hraðfrystihúsanna og
gerðist fiskeftirlitsmaður á
ýmsum togurum úti á sjó. Fór
hann síðan alfarið í land sem
eftirlitsmaður hjá frystihúsum
víða um land.
Á sjómannadeginum árið
2002 var Birgi veitt viðurkenn-
ing fyrir björgunarafrek, þegar
Hamar GK 32 frá Sandgerði
sökk í Faxaflóa í byrjun júlí
1962 á leið til síldveiða. Afrek
hans við að koma gúmmíbátnum
á flot, þegar bátnum hvolfdi
skyndilega, varð til þess að allir
í áhöfninni björguðust.
Birgir gekk í Oddfellow-regl-
una í maí 1972 og var félagi í
bræðrastúkunni Þorkeli Mána.
Birgir og Sigrún bjuggu fyrst
í Kópavogi, í Melgerði 1 árin
1955-1966 og á Borgarholts-
braut 51 árin 1966-1983, síðan í
Hafnarfirði, á Hjallabraut 86 ár-
in 1983-2008 og að lokum á
Hraunvangi 1 frá 2008.
Útför Birgis fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju í dag, 27.
mars 2018, og hefst athöfnin
klukkan 15.
Birgir og Sigrún
eignuðust fjögur
börn, þau eru 1)
Arndís, f. 3. júní
1951, maki Kristján
Haraldsson, f. 30.
janúar 1949, börn
þeirra eru a) Sig-
rún, f. 1973, hennar
synir eru Lárus
Þór og Atli Freyr.
b) Brynja, f. 1975,
maki Baldur
Jóhannsson, f. 1974, börn þeirra
eru Bjarki, Arndís og Lilja, son-
ur Baldurs er Sindri Már, sam-
býliskona Berglind Una Unn-
steinsdóttir, sonur þeirra er
Kormákur Atlas. c) Birgir, f.
1982, maki Kristín Erla Þór-
isdóttir, f. 1984, börn þeirra eru
Karítas og Dagur Kári. 2) Er-
lendur Þorsteinn, f. 29. júní
1954. 3) Hallur, f. 10. nóvember
1957, maki Kristín Dóra Karls-
dóttir, f. 30. september 1957,
dætur þeirra eru a) Stella, f.
1987, maki Guðjón Örn Helga-
son, f. 1984, sonur þeirra er Sig-
urlogi Karl. b) Tinna, f. 1992,
sambýlismaður Manuel
Schembri, f. 1994. 4) Drengur
andvana fæddur 11. desember
1966.
Birgir var uppalinn á Siglu-
firði á síldarárunum. Það hafði
Elsku pabbi minn, komið er að
kveðjustund og leiðir okkar skilja
að sinni.
Með miklum söknuði hugsa ég
til þín nú en er samt svo óendan-
lega þakklát fyrir samveru okkar í
gegnum lífið.
Í gegnum tíðina man ég þig allt-
af vera að fara á sjóinn eða að vera
að koma af sjónum enda varst þú
sjómaður alla tíð. Þú lærðir til
skipstjórnar- og stýrimannsrétt-
inda og varðst svo sannarlega far-
sæll skipstjóri á hinum ýmsu skip-
um. Þú lentir í miklum
sjávarháska er bátur þinn sökk
mjög skyndilega hér í Faxaflóa
1962 en varðst þeirrar gæfu að-
njótandi að bjarga áhöfn þinni frá
sjóskaða er þú kafaðir eftir björg-
unarbátnum og komst allri áhöfn-
inni um borð en það var ekkert af-
rek eins og þú sagðir, það hefðu
allir gert þetta í þessum sporum.
En í dag, svo mörgum árum
seinna, sé ég hve mikið afrek þetta
var og lýsir þér svo vel, að hugsa
fyrst um aðra og síðan sjálfan þig.
Mörg ferðalögin fórum við sam-
an bæði innan- og utanlands og þá
sérstaklega til Spánar í sælureit-
inn ykkar mömmu þar sem þið
nutuð ykkar best í sólinni og með
okkur börnunum þínum og þá
ekki síst barnabörnunum, en þú
varðst þeim einstaklega góður og
umhyggjusamur afi. Einnig var
alltaf yndislegt að skjótast í Skrúð
í Vaðnesið og eiga þar góðar
stundir, hvort sem það var yfir
nótt eða í skamman tíma.
Þessa góðu minningar ylja mér
nú og mun ég geyma þær í hjarta
mínu.
Þú áttir góða ævi með mömmu
þér við hlið og eins og sönn sjó-
mannskona stóð hún við hlið þér í
blíðu og stríðu. Eftir andlát henn-
ar fyrir þremur árum fannst þér
eins og það vantaði alltaf eitthvað
eins og þú sagðir svo oft.
Þegar einhver fellur frá
fyllist hjartað tómi
en margur síðan mikið á
í minninganna hljómi.
Ef minning geymir ást og yl
hún yfir sorgum gnæfir
því alltaf verða tónar til
sem tíminn ekki svæfir.
(K.H.)
Elsku pabbi, ég þakka þér öll
árin sem við áttum saman, vænt-
umþykju þína og umhyggju fyrir
mér og fjölskyldu minni.
Ég minnist þín veifandi til okk-
ar úr brúnni á skipi þínu skæl-
brosandi, brosi sem alltaf lýsti allt
upp í kringum sig eins og sólin.
Megi englarnir umvefja þig og
Guð þig geyma,
Þín dóttir
Arndís.
Í dag kveðjum við elsku afa
okkar sem var svo hlýr og góður.
Alltaf tók hann á móti okkur
með bros á vör og þótti honum
sérstaklega gaman að fá okkur og
barnabarnabörnin í heimsókn. Við
minnumst hans öll með gleði í
hjarta og erum þakklát fyrir allar
þær góðu stundir sem við áttum
með honum bæði hér heima, þá
sérstaklega í sumarbústaðnum, og
erlendis.
Þó að afi hafi verið orðinn full-
orðinn hafði hann nú mikinn
áhuga á að fylgja nýjustu tækni og
var það ekki ósjaldan sem við
systkinin aðstoðuðum hann við hin
ýmsu tæknimál, svo sem að stilla
símann, tölvuna og fjarstýr-
inguna, og oft var mikið hlegið á
þeim stundum.
En komin eru leiðarlok
og lífsins kerti brunnið
og þín er liðin æviönn
á enda skeiðið runnið.
Í hugann kemur minning mörg,
og myndir horfinna daga,
frá liðnum stundum læðist fram
mörg ljúf og falleg saga.
(Höf. ók.)
Blessuð sé minning afa sem
okkur þótti svo vænt um.
Hvíldu í friði, elsku afi,
Sigrún, Brynja og Birgir.
Birgir Hallur
Erlendsson
HINSTA KVEÐJA
Elsku langafi,
ég horfi í himininn
sé stjörnu skína,
það er stjarnan þín.
Ég hugsa
til þín
man brosið þitt
hlátur
og allt það góða
sem þú gafst.
Og þegar sólin
kemur upp
vaxa blóm
af tárum okkar
kærleiksblóm.
(S.Ó.)
Þín langafabörn,
Lárus Þór, Atli Freyr,
Bjarki, Arndís, Lilja,
Karítas og Dagur Kári.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
HELGA SIGFÚSDÓTTIR
frá Akri,
Hvassaleiti 58, Reykjavík,
varð bráðkvödd á Flórída þriðjudaginn
20. mars. Jarðarför verður auglýst síðar.
Jón Pálmason Marianne Skovsgård Nielsen
Jóhanna Erla Pálmadóttir Gunnar Rúnar Kristjánsson
Nína Margrét Pálmadóttir Ómar Ragnarsson
Niels Pálmi, Henrik, Anna Elísabet
Helga, Pálmi
Ragnar Darri, Helga Sólveig, María Rut
Unnur Björk, Frímann Haukur og fjölskylda
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
BIRGIR KRISTINSSON
símvirki,
Háaleitisbraut 47,
sem lést þriðjudaginn 13. mars, verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn
4. apríl klukkan 16.
Guðrún Margrét Jóhannsdóttir
Matthildur Birgisdóttir
Jóna Hanna Birgisdóttir
Ása Birgisdóttir Páll Heiðar Högnason
barnabörn og aðrir aðstandendur
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
GARÐAR GUÐJÓNSSON,
lést 14. mars á hjúkrunarheimilinu Eiri.
Útförin fer fram frá Guðríðarkirkju
miðvikudaginn 28. mars klukkan 13.
Kristín Jóhannesdóttir
Sævar Garðarsson Jóna Fríða Gísladóttir
Rúnar Garðarsson Þóra Einarsdóttir
Hrefna Garðarsdóttir
Úlfar Garðarsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
UNNUR ANDRÉSDÓTTIR
frá Stóra-Kálfalæk,
andaðist laugardaginn 24. mars í
Brákarhlíð, Borgarnesi.
Útför hennar fer fram frá Borgarneskirkju
laugardaginn 31. mars klukkan 14.
Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vildu minnast hennar
er bent á Krabbameinsfélagið.
Jóhann Óskar Sigurðsson
Lilja Jóhannsdóttir Guðmundur Þorgilsson
Sigurður Jóhannsson Ólöf Anna Guðbrandsdóttir
Andrés Björgvin Jóhannsson Hrafnhildur Sigurðardóttir
Guðrún Jóhannsdóttir
Steinunn Jóhannsdóttir Sigurður Ingvarsson
Jóhann Óskar Jóhannsson Guðrún Þorsteinsdóttir
Helga Jóhannsdóttir Ásbjörn Kjartan Pálsson
ömmu- og langömmubörn
Nú þegar elsku-
legur mágur okkar
og svili, Walter
Ketel, er látinn þá
munum við minn-
ast þessa hjartahlýja og ynd-
islega manns með gleði vegna
þeirra forréttinda að hafa notið
samveru við svo góðan dreng í
45 ár. Walter vildi öllum vel og
var alltaf einstaklega gestris-
inn. Hann var opinn og
skemmtilegur karakter og var
Walter Ketel
✝ Walter Ketelfæddist 11. júlí
1952. Hann lést 24.
febrúar 2018.
Útför Walters
fór fram 12. mars
2018.
það alltaf jafn
gaman að heim-
sækja þau hjónin,
og ekki skemmdu
nú kræsingarnar
fyrir sem boðið var
upp á, því eins og
allir sem þekktu
Walter vita, þá var
hann eflaust einn
besti kokkur sem á
landinu hefur
starfað. Það var
unun að fylgjast með því hve
þétt hann stóð við hlið
barnanna sinna og annarra í
fjölskyldunni. Elsku Kidda og
fjölskylda, megi góður guð
vernda ykkur öll og styrkja.
Sólveig Ólafsdóttir og
Þorgrímur Ólafsson.