Morgunblaðið - 09.04.2018, Page 1
Það var fallegt um að litast yfir Öræfajökli um helgina er
Ragnar Axelsson, ljósmyndari Morgunblaðsins, flaug þar
yfir. Sigketillinn, sem fyrst varð vart í haust, sést greini-
lega þótt snjór sé yfir honum. Þrívíddarmynd sem sér-
fræðingar á Jarðvísindastofnun Háskólans hafa gert
benda til að ketillinn hafi á skömmum tíma í nóvember
dýpkað um rúma 20 metra og sprungur aukist. Þær þrí-
víddarmyndir eru gerðar eftir ýmsum upplýsingum, ekki
síst ljósmyndum RAX sem flaug þrjár ferðir yfir Öræfa-
jökul í nóvember og desember ásamt Sölva Axelssyni
bróður sínum, Tómasi Guðbjartssyni lækni og Ómari
Ragnarssyni.
Sigketillinn í Öræfajökli sést greinilega í snjóbreiðunni
Morgunblaðið/RAX
Jökullinn skartar sínu fegursta í góðviðrinu
M Á N U D A G U R 9. A P R Í L 2 0 1 8
Stofnað 1913 82. tölublað 106. árgangur
FERÐAMENN
HELSTU BAK-
HJARLARNIR MEISTARAR Í 20. SINN
HÚN ER BJARG-
VÆTTUR KATTA
OG HUNDA
SKAUTAFÉLAG AKUREYRAR ÍÞRÓTTIR HJÁLPAR GÖTUDÝRUM 12ÍSLENSK TÓNLIST 26
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Ekki hefur verið nóg gert til að verj-
ast peningaþvætti og hryðjuverka-
fjármögnun á Íslandi og íslensk
stjórnvöld hafa takmarkaðan skilning
á hættum sem því fylgja. Þetta kemur
fram í nýrri skýrslu Financial Action
Task Force (FATF), alþjóðlegs
vinnuhóps á sviði varna gegn pen-
ingaþvætti. Fjallað er um efni skýrsl-
unnar á vef stórblaðsins Wall Street
Journal.
Í skýrslunni er rakið að næstum
allan síðasta áratug hafi verið einblínt
á glæpi tengda efnahagshruninu hér.
Fyrir vikið hafi ekki nóg verið gert til
að verjast peningaþvætti og hryðju-
verkafjármögnun á Íslandi. Enn-
fremur segir að á Íslandi sé gott laga-
umhverfi til að rannsaka og
meðhöndla peningaþvætti. Þessum
málaflokki hafi einfaldlega ekki verið
sinnt sem skyldi.
Samhæfa þarf aðgerðir
Íslensk stjórnvöld hafi tekið fyrstu
skref til að öðlast skilning á viðfangs-
efninu en ekki hafi verið ráðist í allar
þær aðgerðir sem þörf er á. „Ísland
verður að samhæfa aðgerðir yfirvalda
og styrkja varnir sínar gegn peninga-
þvætti og fjármögnun hryðjuverka,“
segir í skýrslunni.
Þar segir jafnframt að fyrir utan
þrjá stærstu banka landsins megi
fullyrða að fyrirtæki í fjármálageir-
anum, og raunar fyrirtæki almennt
líka, séu illa upplýst um þær hættur
sem að þeim steðja. Afar fáar tilkynn-
ingar berast um grunsamleg viðskipti
og millifærslur sökum þess hve lítill
gaumur þessum málum sé gefinn.
Ljóst virðist að íslensk stjórnvöld
taki þessar athugasemdir alvarlega
því að í skýrslu FATF segir að þau
hafi þegar hafið vinnu við úrbætur og
er þeim skrefum sem þegar hafa verið
stigin fagnað.
Í febrúar síðastliðnum skipaði Sig-
ríður Á. Andersen dómsmálaráð-
herra nýjan stýrihóp um varnir gegn
peningaþvætti og fjármögnun
hryðjuverka. Hlutverk hans er meðal
annars að tryggja eftirfylgni og úr-
bætur vegna athugasemda FATF.
Efla þarf varnir
gegn peningaþvætti
Ný skýrsla um peningaþvætti og hryðjuverkafjármögnun
Ný skýrsla um Ísland
» Financial Action Task Force
(FATF) er alþjóðlegur vinnu-
hópur á sviði varna gegn pen-
ingaþvætti.
» FATF gerir reglulega úttekt á
lögum, reglum og starfs-
aðferðum í aðildarríkjum og
gerir á grundvelli þeirra kröfur
um úrbætur. Ísland gerðist að-
ildarríki árið 1991.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Peningar Mikilvægt er að vera á
varðbergi gagnvart peningaþvætti.
MStyrkja verður varnir landsins »2
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
mun að öllum líkindum koma saman
í dag í kjölfar meintrar efnavopna-
árásar sýrlenska hersins á íbúa
Douma í Ghoutahéraði í Sýrlandi á
laugardaginn.
Níu lönd af fimmtán í öryggisráði
Sameinuðu þjóðanna hafa óskað eft-
ir fundi um málið og Evrópusam-
bandið hefur kallað eftir tafar-
lausum viðbrögðum frá alþjóða-
samfélaginu.
Talið er að 70 séu látnir og um 500
særðir eftir að tunnusprengjum sem
talið er að hafi innihaldið efnavopn
var varpað úr þyrlu yfir borgina
Douma.
Donald Trump, forseti Bandaríkj-
anna, var harðorður á Twitter og
sagði Rússa bera endanlega ábyrgð
á voðaverkunum með því að styðja
við skepnuna Assad, eins og hann
kallaði Sýrlandsforseta.
Bæði Sýrland og Rússland hafa
neitað því að efnavopnaárás hafi átt
sér stað.
Læknir sem vitnað er til í Douma
segir ástandið slæmt. »15
AFP
Fórnarlömb Börn verða illa úti í stríðsátökum og geta litla björg sér veitt.
Sjötíu látnir og
hundruð slösuð
Óskað eftir fundi í öryggisráðinu