Morgunblaðið - 09.04.2018, Side 6

Morgunblaðið - 09.04.2018, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. APRÍL 2018 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Ég fagna mjög #metoo bylting- unni sem aldeilis hefur svipt hul- unni af kynjakerfinu. Krafturinn og orkan frá grasrótinni er mik- ilvæg og sýnir okkur að opinbera kerfið og grasrótin þurfa að vinna saman. Á Íslandi er rík hefð fyrir samstarfi ríkis, sveitarfélaga og frjálsra félagasamtaka í jafnrétt- ismálum sem hefur með öðru komið okkur á þann stað sem við erum á. Jafnréttismál varða sam- félagið allt,“ segir Katrín Björg Ríkarðsdóttir, sem nýlega tók við sem framkvæmdastjóri Jafnrétt- isstofu. Aukið hlutverk með nýjum lögum Jafnréttisstofa og starfsfólk hennar hefur margvísleg verk- efni með höndum, lögum sam- kvæmt. Katrín segir að fyrstu mánuðir sínir í starfi hafi farið í að kynnast fólkinu og starfsemi stofnunarinnar sem er á Ak- ureyri. Stilla þurfi saman strengi fyrir verkefnin framundan. „Nú er hafinn undirbúningur fyrir endurskoðun á jafnrétt- islögum auk þess sem félags- og jafnréttismálaráðherra hefur lagt fyrir Alþingi tvö frumvörp um bann við allri mismunun, það er jafna meðferð á vinnumarkaði og um jafna meðferð fólks óháð kyn- þætti og þjóðernisuppruna. Verði þau frumvörp að lögum fær Jafn- réttisstofa aukið hlutverk,“ segir Katrín Björg. Nú í byrjun ársins tók gildi sú breyting á jafnréttislögum að fyr- irtækjum og stofnunum er nú skylt að sýna fram á að þau greiði jöfn laun fyrir sömu og jafn- verðmæt störf. Þetta ákvæði á sérstaklega við á þeim stöðum þar sem vinna 25 manns eða fleiri og þegar jafnlaunamálin eru komin í lag er gefin út vottun og end- anlega staðfesting af Jafnrétt- isstofu. Auk þess heldur Jafnrétt- isstofa skrá yfir fyrirtæki sem hlotið hafa vottun en samtök vinnumarkaðarins sinna eftirliti með þessu. „Fyrirtæki eiga að fara í vottun í þrepum eftir stærð. Í lok þessa árs eru það stærstu fyr- irtækin sem skulu hafa öðlast vottun, þau þar sem vinna 250 manns eða fleiri. Jafnréttisstofa fylgist vel með framkvæmdinni í þeim tilgangi að þetta metn- aðarfulla verkefni nái fram að ganga samkvæmt áætlun. Það er því miður erfitt að segja til um hver launamunur kynjanna er, en ef taka má mark á nýjustu úttekt- um t.d. frá Hagstofunni bendir ýmislegt til þess að víða sé pottur brotinn. Rannsókn sem birt var í mars sýndi þó að launamunur kynjanna minnkaði 2008-2016. Óskýrður launamunur mældist 4,8% en skýrður launamunur 7,4%.“ Karlar oftar bæjarstjórar Eftir kosningarnar 2016 var hlutur karla og kvenna á Alþingi orðinn nokkuð jafn, það er 30 konur á móti 33 körlum. Í bak- seglin sló svo eftir kosningar síð- asta haust og nú eru konur sem sitja á þingi 24 en karlarnir 39. Þetta segir Katrín sýna og segja að ekki megi sofna á verðinum. „Nú þegar líður að sveitar- stjórnarkosningum er því mikil- vægt að stjórnmálaöfl gæti að jöfnu hlutfalli kynja á listum. Það hlýtur að vera markmið hverrar sveitarstjórnar að búa íbúum sín- um sem bestar aðstæður og tryggja góða þjónustu. Til þess að svo geti orðið þarf umræða og ákvarðanataka að vera á víðum grunni og þar sem ólíkum sjón- armiðum er mætt. Því er m.a. mikilvægt að sveitarstjórnir séu í jöfnum hlutföllum skipaðar kon- um og körlum,“ segir Katrín og heldur áfram: „Í kosningunum 2014 jafnaðist kynjahlutfall sveit- arstjórnarfólks töluvert og hefur aldrei verið jafnara. Konur urðu 44% kjörinna fulltrúa og karlar 56%. Það sem vakti athygli var að karlar voru þó mun oftar oddvitar framboða. Sú staðreynd hefur bein áhrif á kynjahlutfall í bæjar- og byggðaráðum. Þegar síðan kom að ráðningum á bæjar- og sveitarstjórum var hlutfall kvenna 26% á móti 74% hjá körl- um, en sú var staðan árið 2015.“ Mikilvægt að kynjahlutfall á framboðslistum og í sveitarstjórnum sé jafnt Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Jafnrétti Krafturinn og orkan frá grasrótinni er mikilvæg, segir Katrín Björg Ríkarðsdóttir hjá Jafnréttisstofu. Varðar samfélagið allt  Katrín Björg Ríkarðsdóttir er fædd 1967. Er með M.Ed-gráðu í menntunarfræðum með sér- hæfingu í kynjajafnrétti svo og kennsluréttindi frá Háskól- anum á Akureyri og BA-gráðu í sagnfræði með bókmennta- fræði sem aukagrein frá HÍ.  Var sérfræðingur hjá Jafn- réttisstofu 2000-2003, jafn- réttisráðgjafi Akureyrarbæjar 2003-2006, framkvæmda- stjóri samfélags- og mannrétt- indadeildar Akureyrarbæjar 2006-2014 og aðstoðarmaður bæjarstjóra á Akureyri frá 2014 fram í desember í fyrra að hún tók við starfi fram- kvæmdastjóra Jafnréttisstofu. Hver er hún? Um 40% íslenskra háskólanema skil- greina sig með fötlun, langvarandi heilsufarsvandamál eða annars kon- ar hömlun, samanborið við 25% ann- ars staðar á Norðurlöndunum. Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar samevrópskrar könnunar á högum háskólanema. Könnunin, sem er á vegum Eurostudent, tekur til 320.000 háskólanema í 28 Evrópu- löndum en þetta er í fyrsta sinn sem Ísland er með. Háskólanemar á Íslandi verja samkvæmt könnuninni svipuðum tíma og annars staðar í fyrirlestra, dæmatíma, próf og annað skipulagt nám, um 16 klukkustundum á viku. Tíminn sem fer í nám utan kennslu er hins vegar umtalsvert meiri en meðaltal annarra landa, auk þess sem íslenskir háskólanemar vinna meira en evrópskir félagar þeirra. Þannig vinnur meðalháskólaneminn hér 15 klukkustundir á viku, sem er um 38% starfshlutfall. Samanlagt verja háskólanemar á Íslandi því meiri tíma í nám og laun- aða vinnu en í nokkru öðru þátttöku- landi, um 50 klukkustundum á viku. Þó kemur fram að þeir telji fjárhags- stöðu sína erfiða. Íslenskir nemar eldri Almenn ánægja er meðal ís- lenskra nema með gæði námsins. Um 71% segist ánægt með kennslu og 67% námsaðstöðu, sem er ívið hærra en meðaltal könnunarlanda. Þrátt fyrir ánægjuna eru Íslending- ar í öðru sæti yfir þau lönd þar sem flestir hyggja á framhaldsnám er- lendis. Það gera rúm 40% grunn- nema, flestir horfa til Norðurlanda. Meðalaldur íslenskra háskóla- nema er umtalsvert hærri en í öðrum ríkjum eða um 29,7 ár samanborið við 27,8 ár annars staðar á Norður- löndunum og 25 ár í hinum Eurostu- dent-löndunum. Spilar þar inn í að nám fram að háskóla er lengra á Ís- landi en í öðrum Evrópuríkjum. Menntaskólagöngu hefur jafnan lok- ið við tvítugsaldur á Íslandi en 19 ára aldur í Skandinavíu og 18 víða ann- ars staðar. Á næsta ári mun þó fyrsti árgangur nítján ára stúdenta hefja nám við háskóla landsins eftir að menntaskólanám var stytt úr fjórum árum í þrjú. Þá eru háskólanemar á Íslandi einnig gjarnari á að gera hlé á námi milli framhaldsskóla og há- skóla en í samanburðarlöndum, auk þess sem þeir gera oftar hlé á há- skólanáminu. alexander@mbl.is Háskólanemar vinna mikið Morgunblaðið/Ómar Háskóli Um 71% íslenskra nema- segist ánægt með kennslu.  Almenn ánægja með námið en margir stefna út í framhaldsnám Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Meirihluti landsmanna horfir enn á dagskrá íslenskra sjónvarpsstöðva með línulegum hætti en áhorf á ís- lenskar stöðvar minnkar með hverju árinu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Gallup sem gerð var fyrir Póst- og fjarskiptastofnun. Hliðrað áhorf, sem er áhorf eftir upphaflegan útsendingartíma, jókst lítillega árið 2017 innan sólarhrings frá útsendingu en hliðrað áhorf vik- una eftir útsendingardag stendur nánast í stað. Alls voru 85,3% heildar- áhorfs á íslenskar stöðvar í fyrra í línulegri dagskrá en 14,7% voru hliðr- að áhorf. Þar af voru 10,6% hliðrað áhorf innan upphafslegs útsending- ardags. Árið áður voru 86,7% áhorfs á íslenskar stöðvar í línulegri dagskrá. Árið 2012 voru það hins vegar 95,6%. Þessar tölur eiga við aldurshóp- inn 12-80 ára. Þegar aðeins er horft til aldurshópsins 12-49 ára kemur í ljós að aðeins 82,9% áhorfsins eru í línulegri dagskrá. 12,3% áhorfsins voru hliðrað áhorf innan fyrsta sólar- hringsins en 5,4% áhorfsins vikuna eftir útsendingardag. Þessi skýrsla nær hvorki til inn- lendra né erlendra efnisveitna á borð við Netflix, Sjónvarp Símans Premi- um, Stöð 2 Maraþon eða Vodafone Play. Þær njóta sem kunnugt er mik- illa vinsælda og skýra án efa það að áhorf á íslensku stöðvarnar hefur minnkað síðustu ár. Það sést í um- ræddri Gallup-könnun því með- aláhorf í aldurshópnum 12-80 ára var 134 mínútur á dag árið 2012. Árið 2015 var það komið niður í 110 mín- útur á dag. Í fyrra var meðaláhorfið komið í 102 mínútur á dag. Þessi þróun er hraðari í yngri aldurshópnum, 12-49 ára. Árið 2012 var meðaláhorfið 121 mínúta dag hvern. Árið 2015 var meðaláhorfið 90 mínútur dag hvern og í fyrra var það komið niður í 75 mínútur. Þegar horft er til stærstu sjón- varpsstöðvanna kemur í ljós að árið 2012 var meðaláhorf á RÚV dag hvern 76 mínútur. Það var komið nið- ur í 59 mínútur í fyrra. Stöð 2 hefur hrunið úr 39 mínútum á dag 2012 nið- ur í 23 í fyrra. Sjónvarp Símans er hins vegar á sama róli; meðaláhorfið var 12 mínútur á dag árið 2012 og það sama í fyrra. Ef skoðað er hlutfall línulegs og hliðraðs áhorfs hjá íslensku stöðv- unum kemur upp úr dúrnum að RÚV og Sjónvarp Símans eru á svipuðu róli. 86,2% áhorfs á RÚV eru í línu- legri dagskrá en 86,1% hjá Sjónvarpi Símans. Aðeins minna línulegt áhorf er á Stöð 2, alls 81,7% í fyrra. Sífellt minna áhorf á íslenskar stöðvar  Meirihluti horfir enn á íslenskar stöðvar með línulegum hætti Morgunblaðið/ÞÖK Sjónvarpsgláp Línuleg dagskrá íslensku stöðvanna er enn vinsæl.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.