Morgunblaðið - 09.04.2018, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 09.04.2018, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. APRÍL 2018 BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is GE bílar Reykjanesbæ www.gebilar.is 420 0400 Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516 Alvöru atvinnubíll Dacia Dokker Dacia Dokker er einn hagkvæmasti kosturinn sem í boði er fyrir þá sem leita að litlum sendibíl. Dacia Dokker er með 1,5 l, 90 hestafla díslivél sem notar einungis 4,5 l í blönduðum akstri*. Dacia bílarnir hafa komið einskalega vel út hvað varðar áreiðanleika í rekstri. Verð: 2.340.000 kr. m. vsk. Verð án vsk.: 1.887.000 kr. * V ið m ið u n a rt ö lu r fr a m le ið a n d a u m e ld s n e y ti s n o tk u n í b lö n d u ð u m a k s tr i. / B ú n a ð u r b íls á m y n d k a n n a ð ve ra fr á b ru g ð in a u g lý s tu ve rð i E N N E M M / S ÍA / N M 8 6 5 6 8 Alexander Gunnar Kristjánsson alexander@mbl.is Aukinn ferðamannastraumur er far- inn að valda miklum náttúruspjöllum á vinsælum ferðamannastöðum og sér á mörgum þeirra vegna ágangs. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu um þolmörk ferðamennsku sem ráðherra ferðamála birti á vef Alþingis fyrir helgi. Þar segir að nota megi hugtakið þolmörk ferðamennsku með mark- vissari hætti en nú er gert sem stjórntæki til að stuðla að sjálfbærri þróun útivistar- og ferðamannastaða. Eigi hugtakið að hafa það úrskurð- arhlutverk sem því er ætlað er nauð- synlegt að til séu viðmiðunarmörk fyrir hvert ferðamannasvæði svo auðséð sé ef farið er yfir þau. Þá þarf að ákveða fyrir hvern landshluta hvaða svæði eiga að taka á móti fjölda ferðamanna og hvaða svæðum verður haldið utan alfara- leiða. Í framhaldinu þurfi að skilgreina hvort og þá hvaða aðferðir henti til aðgangs- og álagsstýringar og dreif- ingar ferðamanna á hverju svæði fyr- ir sig. Ferðamenn vilja færri ferðamenn Í skýrslunni er vikið að áhyggjum af viðhorfi íbúa til ferðamennsku. Þar segir að ljóst sé að álag af ferða- mennsku á Suðurlandi sé farið að reyna á þolrif íbúa, ekki síður en náttúru svæðisins og innviði. Rúm- lega 40% íbúa Suðurlands þyki til að mynda ferðamannafjöldinn á sumrin of mikill og svipað hlutfall telji lands- hlutann ekki geta tekið á móti fleiri ferðamönnum. Sunnlendingar skera sig þannig úr meðal landsmanna. En það eru ekki aðeins íbúar sem telja ferðamannastrauminn of mik- inn. Þeirri skoðun deila margir ferðamenn. Nýjustu tölur sýna að 30-55% ferðamanna finnst fjöldi ferðamanna á Íslandi of mikill. Þá sýna rannsóknir að ferðamenn á Ís- landi virðist almennt viðkvæmir fyr- ir umferð annarra ferðamanna. Þeim finnist mikilvægt að geta ferðast um án þess að margir aðrir ferðamenn séu á svæðinu. Ætti það ekki að koma á óvart í ljósi þess að helsta að- dráttarafl Íslands sem ferðamanna- lands byggist á hugmyndum um náttúru og kyrrð og ró, í sömu mæl- ingum. Í skýrslunni segir að ekki sé fýsi- legt að líta á fjöldatakmarkanir á ferðamannastöðum sem markmið í sjálfu sér, þó þær geti átt rétt á sér. Þegar stýringarleiðir eru skoðaðar sé æskilegt að horfa fyrst til svokall- aðra „mýkri“ stýringarleiða eins og landvörslu. Nokkrum leiðum til hagrænnar stýringar á ferðamannastöðum er velt upp í skýrslunni, til að mynda hugmynd um sérleyfissamninga vegna nýtingar á landi og náttúru- perlum í ríkiseigu. Nýleg dæmi um slíkt er lagabreyting frá árinu 2016 sem gerir atvinnustarfsemi innan Vatnajökulsþjóðgarðs leyfisskylda. Breytingar á lögum um þjóðgarð- inn á Þingvöllum sem snúa að leyf- isveitingum og samningum um at- vinnutengda starfsemi innan þjóðgarðsins standa til, og gert ráð fyrir að þau ákvæði verði sambæri- leg. Íslandsdvölin stendur undir væntingum Frá árinu 1997 hefur Ferðamála- stofa staðið fyrir reglulegri gagna- söfnun meðal erlendra ferðamanna á Íslandi. Síðasta könnun fór fram árið 2016. Meðal helstu niðurstaðna er að 95% þátttakenda telja Íslandsdvöl- ina hafa staðið undir væntingum og 80% telja mjög eða frekar líklegt að þeir heimsæki Ísland aftur. Þegar þátttakendur voru beðnir að nefna þrjá þætti sem helst má bæta nefndu flestir ástand vega, það að takmarka fjölda ferðamanna og fjölga almenningssalernum. Náttúruperlur við þolmörk  Rúmlega 40% Sunnlendinga telja ferðamannastrauminn of mikinn  Ferðamálaráðherra lagði fram skýrslu um þolmörk ferðamennsku á föstudag  Ekki fýsilegt að líta á fjöldatakmarkanir sem markmið Könnun » 95% ferðamanna telja Ís- landsdvölina hafa staðið undir væntingum. » 80% telja mjög eða frekar líklegt að þeir heimsæki Ísland aftur. » Ástand vega og fjöldi ferða- manna það helsta sem ferða- menn vilja að sé bætt. » Hvatt til aukinnar hagnýt- ingar þolmarkarannsókna. Morgunblaðið/Ómar Gullfoss Svæðið umhverfis fossinn ber þess merki að innviðir anna ekki umferð ferðamanna og skortir á stýringu og vöktun á svæðinu, að því er fram kemur í skýrslunni. Ferðamenn vilja bætt ástand vega og fleiri salerni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.