Morgunblaðið - 09.04.2018, Page 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. APRÍL 2018
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is
Bakteríuvörn
Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum.
Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri
bakteríu- og sveppavörn.
Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone.
Blettaþolið Sýruþolið
Högg- og
rispuþolið
Kvarts steinn
í eldhúsið
silestone.com
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Talið er að 70 manns hið minnsta
hafi látið lífið og mörg hundruð
séu slösuð eftir meinta efnavopna-
árás sem gerð var á borgina
Douma í Ghouta-héraði í Sýrlandi
á laugardag. Ekki er talið ólíklegt
að tala látinna eigi eftir að hækka.
Talið er að eitruðu gasi í tunnu-
sprengju hafi verið varpað úr
þyrlu og valdið því að þeir sem
fyrir eitrinu urðu köfnuðu eða áttu
við mikla öndunarörðugleika að
stríða. Sýrlenska stjórnarhernum
er ætluð árásin á eigin borgara.
Aldrei séð annað eins
Í frétt frá AFP fréttastofunni er
haft eftir lækni á sjúkrahúsi í
Doma, að nafni Mohammed, að
komið hafi verið með fleiri en 70
manns með öndunarvandamál
„Við höfðum aðeins fjórar súr-
efnisgrímur. Staðan hér er sorg-
leg. Ég hef unnið hér í fjögur ár og
aldrei séð annað eins og það sem
ég sá á aðfaranótt sunnudags.“
Björgunarsamtökin Hvítu hjálm-
arnir (e. Syria Civil Defence, The
White Helmet) og fleiri hópar að-
gerðasinna í Sýrlandi greindu fyrst
frá því að grimmileg efnavopna-
árás hefði verið gerð í Douma.
Borgin er sú síðasta í Ghouta-hér-
aði sem enn er á valdi uppreisnar-
manna.
Í lýsingum Hvítu hjálmanna á
ástandinu í Douma segir að fólk
sem komið var með á sjúkrahús
hafi verið verið gult á hörund, leg-
ið í keng á gólfinu með froðu í
munnvikum. Ungabörn hafi þurft á
súrefnisgrímu að halda. Margir
hafi dáið samstundis, aðallega kon-
ur og börn.
Hvítu hjálmarnr hafa 3000 sýr-
lenska borgara innan sinna vé-
banda. Þeir segjast vera borgarleg
hjálparsamtök án tengsla við upp-
reisnarmenn en sýrlensk stjórn-
völd halda því fram að samtökin
starfi í tengslum við uppreisnar-
menn. BBC-fréttastofan sagði í
gær að fréttir af árásinni hefðu
ekki verið staðfestar af óháðum að-
ilum en Washington Post hefur
það eftir sýrlenskum læknum og
hjálparstarfsfólki að tugir manna
hafi farist. Komið hafi verið með
rúmlega 500 manns á sjúkrahús
með merki andnauðar, klórlykt
hafi verið af andardrætti og froða
komið úr munni þeirra, sem allt
séu einkenni sem bendi til efna-
vopnaárásar.
Sýrlensk stjórnvöld segja ekkert
hæft í fréttum um efnavopnaárás á
almenna borgara í Douma. en
bandaríska utanríkisráðuneytið
sagði í gær að fréttir gæfu til
kynna að mikið mannfall hefði orð-
ið og meðal annars hefðu fjöl-
skyldur með börn sem dvalist hafa
í neyðarskýlum orðið fyrir eitur-
efnaárásum.
Bandarískir ráðamenn segja að
Rússar beri endanlega ábyrgð á
meintri efnavopnaárás í Douma
með stuðningi sínum við sýrlensk
stjórnvöld. Rússneska varnarmála-
ráðuneytið hafnar því algerlega að
efnavopnaárás hafi verið gerð á
Douma.
Reuters-fréttastofan hefur það
eftir Yuri Yevtushenko, yfirmanni
rússnesku hersveitanna í Sýrlandi,
að Rússar séu tilbúnir að senda
inn eigin sérfræðinga í efnavopn-
um til þess að safna gögnum og af-
sanna áskananir um að efnavopn-
um hafi verið beitt um leið og
Douma hefur verið frelsuð úr
höndum upp-reisnarmanna.
Assad skepna að mati
Trumps
Donald Trump Bandaríkjafor-
seti fordæmdi árásina í twitter-
færslu þar sem hann líkti Assad
Sýrlandsforseta við skepnu og
sagði það óviðunandi að fjöldi
manns, þar á meðal konur og
börn, skyldu drepin í efnavopna-
árás í Sýrlandi. Trump segir Íran
og Pútín, forseta Rússlands, bera
ábyrgð með því að bakka upp
„skepnuna“ Assad, forseta Sýr-
lands. Trump klykkir út í færslu
sinni að með því að segja að um
enn einn mannlega harmleikinn
sé að ræða án nokkurrar ástæðu.
Bretar hafa farið fram á að
rannsókn verði gerð án tafar á
meintri efnavopnaárás.
Frans páfi fordæmdi
efnavopnaárásirnar í Sýrlandi og
sagði þær hræðilegar í ávarpi sem
hann flutti á Sankti Péturs-torg-
inu í gær.
António Guterres, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna, sagði að Sameinuðu þjóð-
irnar gætu ekki staðfest fréttir af
efnavopnanotkun í Sýrlandi en
hann hefði áhyggjur af ásökunum
um efnavopnahernað gegn íbúum
Douma.
Í frétt frá BBC segir að sýr-
lensk stjórnvöld hafi áður verið
sökuð um að beita efnavopnum á
eigin borgara.
Einnig hafa Sameinuðu þjóðirn-
ar sakað Sýrlandsher um að hafa
notað banvænt sarín-gas í árásum
á svæði í Austur-Ghouta í apríl
2017.
Sýrlenska ríkisfréttastofan
SANA hefur neitað því að notuð
hafi verið banvæn efnavopn vorið
2017 og sagði ásakanir lagðar
fram til þess að koma í veg fyrir
að Sýrlandsher næði að taka vígi
hryðjuverkamanna í Sýrlandi her-
skildi.
Efnavopnum beitt í Sýrlandi
Sýrlandsher sakaður um efnavopnaárás 70 látnir og talan gæti hækkað Sýrlandsher áður sak-
aður um efnavopnaárás á eigin borgara Trump segir Rússa bera ábyrgð vegna stuðnings við Assad
AFP
Ódæðisverk Sjálfboðaliði aðstoðar barn sem þarfnast súrefnis vegna afleiðinga meintrar loftárásar Sýrlandshers.
Efnavopnaárás
» Guðlaugur Þór Þórðarson
utanríkisráðherra lýsir yfir
miklum áhyggjum vegna frétta
af eituefnaárásinni á íbúa
Douma í Ghouta-héraði í Sýr-
landi á tvittersíðu sinni í gær.
» Talið er að 70 séu látnir og
óttast er að þeim eigi eftir að
fjölga. Guðlaugur vill að stríðs-
aðilar virði alþjóðalög og vill
aðkomu öryggisráðs Samein-
uðu þjóðanna að málinu.
Talið er að ökumaður Volkswagen-
bifreiðar sem keyrði inn í mann-
fjölda í Münster í Þýskalandi á
laugardag hafi átt við geðræn
vandamál að stríða.
Ökumaðurinn svipti sig lífi að
loknu athæfinu en 25 ára kona og
65 ára karlmaður létust í árásinni
auk þess sem 20 slösuðust að því er
fram kemur í fréttum BBC, sem
segir að ökumaðurinn hafi verið 48
ára, góðkunningi lögreglu og hafi
búið stutt frá árásarstaðnum.
Í fyrstu óttuðust yfirvöld í Þýska-
landi að um árás á vegum Ríkis ísl-
ams væri að ræða og hvöttu íbúa til
ÞÝSKALAND
Árás eins manns í Münster í Þýskalandi
þess að halda sig frá árásar-
staðnum. Nú hefur lögregan hins
vegar staðfest að ekki hafi verið um
hryðjuverk að ræða heldur hafi það
verið þýskur karlmaður sem stóð
einn að voðaverkinu.
Norður-Kórea hefur tilkynnt
Bandaríkjamönnum að Kim Jong-
un, leiðtogi Norður-Kóreu, sé tilbú-
inn að ræða um kjarnorku-
afvopnum á Kóreuskaganum til
þess að liðka fyrir fundi milli sín og
Donalds Trump, forseta Bandaríkj-
anna. The Wall Street Journal
skýrði frá þessu í gær og hafði upp-
lýsingarnar frá bandarískum emb-
ættismönnum. Ekki kom fram
hvernig eða með hvaða hætti skila-
boð um vilja Norður-Kóreu til þess
að ræða um kjarnorkuafvopnun
kom fram en embættismenn frá
Bandaríkjunum og Norður-Kóreu
hafa átt í samskiptum.
NORÐUR-KÓREA
Kim Jong-un vill ræða kjarnorkuafvopnun
Kim Jong-un leiðtogi Norður-Kóreu.