Morgunblaðið - 09.04.2018, Síða 16

Morgunblaðið - 09.04.2018, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. APRÍL 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Rúmum mán-uði eftir aðkosið var til ítalska þingsins liggur enn ekkert fyrir um það hvernig næsta ríkisstjórn landsins verður skipuð. Það sem meðal annars flækir málið er að bandalag mið-hægriflokkanna varð hlut- skarpasta fylkingin á þinginu, án þess þó að ná hreinum meirihluta, á sama tíma og pópúlistaflokkurinn Fimm- stjörnuhreyfingin náði þeim athyglisverða áfanga að verða stærsti flokkurinn á þingi, en hefur ekki heldur meirihluta. Bæði hægriflokkarnir og Fimmstjörnuhreyfingin þurfa því samstarf við aðra til að mynda meirihluta. Þá hafa flokkarnir ekki enn getað sæst á það hvor ætti að verða forsætisráðherra, Luigi Di Maio, leiðtogi Fimm- stjörnuhreyfingarinnar, eða Matteo Salvini, leiðtogi (Norð- ur)Bandalagsins, en sá flokkur varð óvænt stærsti flokkurinn í hægriflokkabandalaginu og stökk þar fram úr flokki Silv- ios Berlusconi, Forza Italia. Di Maio freistaði þess í síð- ustu viku að telja Salvini á að brjóta upp bandalag hægri- flokkanna og taka þess í stað upp meirihlutasamstarf við Fimmstjörnuhreyfinguna án Berlusconis. „Ég viðurkenni ekki þetta bandalag,“ sagði Di Maio. „Þeir buðu fram með þrjú mismunandi forsætisráð- herraefni og þrjár mismunandi stefnur.“ Salvini vill hins vegar ekki rjúfa tryggð við flokkabanda- lagið. Hann telur farsælast að hægri flokkarnir starfi saman í nýrri ríkisstjórn, jafnvel þó að erfitt kunni að reynast að koma þeirri stjórn á. Þar spilar kannski ekki síst inn í sú stað- reynd, að ef Salvini og Banda- lag hans myndu yfirgefa hina hægri flokkanna væri krafa hans um forsætisráðherrastól- inn að engu orðin. Báðar fylkingar gætu hugs- anlega leitað á náðir hins vinstrisinnaða Demókrata- flokks, annað hvort til þess að styðja við minnihlutastjórn eða til þess að taka þátt í meirihluta, en leiðtogi hans, Maurizio Martina, hefur sagt allt slíkt af og frá. Flokkurinn beið enda afhroð í kosning- unum og virðist samstaða um það innan forystu flokksins að hann eigi að leita sér endur- nýjaðs umboðs í stjórnarand- stöðu. Í Þýskalandi hurfu Sósí- aldemókratar raunar nýlega frá slíkri afstöðu eftir langa stjórnarkreppu, en ekkert út- lit er sem stendur fyrir slíka afstöðubreytingu á Ítalíu. Ítalir eru svo sem ekki óvanir því að stjórnmálin séu í kalda koli. Engu að síður virðist sem að stjórnarkreppan nú gæti orðið venju fremur erfið. Það kæmi því ekki á óvart ef kjósa þyrfti aftur til þess að höggva á hnútinn. Engin trygging er hins vegar fyrir því að sú lausn myndi breyta nokkru til betri vegar því að vandinn á Ítalíu er djúp- stæður og ekki augljóst hvern- ig brúa má þá gjá sem ríkir innanlands, ekki síst á milli suður- og norðurhluta lands- ins. Í norðurhlutanum unnu Bandalagið og bandalagsflokk- arnir á hægri vængnum nærri helming atkvæða á sumum svæðum og fengu yfirburða- stöðu í norðurhluta landsins í heild sinni. Í suðurhlutanum hlaut Fimmstjörnuhreyfingin enn sterkari stöðu, allt upp í 55% atkvæða, og er þar óskor- aður sigurvegari. Munurinn skýrist einkum af ólíkri stöðu landshlutanna. Í suðurhluta landsins er at- vinnuleysi um 20%, þrefalt meira en í norðurhluta lands- ins. Þetta endurspeglast svo í tölum um landsframleiðslu, sem er á svæðinu í nágrenni Mílanó fjórðungi yfir meðaltali Evrópusambandsins, en 41% undir meðaltalinu á Sikiley. Kjósendur beggja eru sagðir hafa kosið með veskinu. Bandalagið lofaði lágum flöt- um skatti, en Fimmstjörnu- hreyfingin lofaði almennri grunnframfærslu, borgara- launum, fyrir alla. Að und- anförnu hafa leiðtogar beggja flokka reynt að finna snerti- fleti þessara hugmynda, en það er hægara sagt en gert. Efasemdir um Evrópusam- bandið og aukinn samruna þess gætu hins vegar verið snertiflötur enda hefur Ítalía farið illa út úr evrutilrauninni sem hefur orðið til þess að landið er skuldum hlaðið, sem gerir enn erfiðara en ella að finna pólitíska lausn. Þá hefur stefna, eða stefnuleysi, Evr- ópusambandsins í flótta- mannamálum gert það að verkum að þungur straumur flóttamanna yfir Miðjarðar- hafið hefur valdið Ítalíu meiri erfiðleikum en flestum öðrum ríkjum álfunnar. En þó að óvíst sé hvernig stjórnarkreppan verður leyst, er víst að hún er enn eitt dæm- ið um verulega pólitíska erf- iðleika í ríkjum Evrópusam- bandsins, sem í það minnsta að hluta til eiga rætur að rekja til aðildar þessara ríkja að sam- bandinu. Enn bólar ekki á ríkisstjórn í einu af lykilríkjum Evrópu- sambandsins} Allt í hnút á Ítalíu B ókmenntir eru samofnar íslenskri sögu og menningu. Í samanburði við aðrar þjóðir Norður-Evrópu reis íslensk bókagerð hátt á mið- öldum og afreksverk þeirra tíma eru enn ríkur þáttur í sjálfsvitund Íslendinga. Lestur bóka er snar þáttur í mótun mál- þroska barna og þær gegna lykilhlutverki í menntakerfinu. Ein af þeim áskorunum sem við stöndum frammi fyrir sem þjóð er að svo virðist sem almennu læsi fari hrakandi. Sem mennta- og menningarmálaráðherra hef ég lagt ríka áherslu á að snúa vörn í sókn í þeim efnum en mikil vinna hefur þegar átt sér stað til þess að bregðast við þessari þróun. Einn af þeim þáttum sem horfa þarf til eru rekstrarskilyrði bókaútgefenda, enda óum- deilt að íslensk bókaútgáfa leggur mikið af mörkum til menningar og læsis í landinu. Bókaútgefendur eru fjölbreyttur hópur og á ári hverju gefa um 500 mismunandi útgefendur út bækur hér á landi. Flestir gefa aðeins út eina bók, eða 70% þeirra, um 20% útgefenda gefa út 2-5 bækur árlega, en um 50 útgefendur gefa fleiri en 5 bækur út árlega. Langflest bókaforlögin eru því smá í sniðum og hafa ekki haft tækifæri til að byggja upp sterka eiginfjár- stöðu. Að auki hefur bóksala dregist verulega saman undanfarin ár. Þegar slíkar aðstæður eru komnar upp á viðkvæmum vettvangi íslenskrar tungu ber stjórnvöldum að nýta stjórnvaldstæki sín, eins og skattkerfið, og bregðast við. Það ætlar ríkisstjórnin að gera með því að afnema virðisaukaskatt á bækur frá og með ársbyrjun 2019, líkt og fram kemur í ríkisfjármálaáætlun 2019-2023. Með þeirri aðgerð fylgjum við í fótspor Noregs, Fær- eyja, Bretlands, Írlands og Úkraínu sem hafa afnumið virðisaukaskatt á bókum til að efla læsi og styðja við menningu sína og tungu. Í þessari aðgerð felast tækifæri fyrir ís- lenska bókaútgefendur til að sækja fram að nýju og taka vaxandi þátt í að auka áhuga á lestri þannig að Ísland verði áfram bókaþjóð í fremstu röð, þá ekki síst með aukinni út- gáfu vandaðra barna- og unglingabóka sem höfða til upprennandi lestrarhesta framtíðarinnar. Læsi og lesskilningur eru lykilþættir þegar kemur að öflugum og skapandi mannauði sem drífur áfram sam- keppnisfærni þjóða til framtíðar. Þar ætlum við Íslend- ingar að skipa okkur á fremsta bekk og vera í farar- broddi þegar kemur að miklum lífsgæðum og blómlegri menningu. Afnám virðisaukaskatts á bækur er mikil- vægur áfangi á þeirri leið. liljaalf@gmail.com Lilja Dögg Alfreðsdóttir Pistill Virðisaukaskattur á bækur verður afnuminn 2019 Höfundur er mennta- og menningarmálaráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Staða Sjúkrasjóðs kennaraverður án vafa meðalstærstu mála á fjögurradaga þingi Kenn- arasambands Íslands, sem hefst á morgun. Í tillögu að kjarastefnu KÍ sem lögð verður fyrir þingið er m.a lögð til hækkun framlaga í Sjúkra- sjóð þannig að öll stöðugildi skili 1% af heildarlaunum hið minnsta til sjóðsins frá vinnuveitendum. Fram kom í fréttum í Morg- unblaðinu í nóvember sl. að grípa þurfti til þess ráðs að skerða frá 1. desember þann tíma sem fé- lagsmenn aðildarfélaga KÍ eiga rétt á greiddum sjúkradagpeningum um 25%, vegna aukinna langtímaveik- inda meðal kennara. Fella þurfti niður styrki vegna kostnaðarsamra læknisaðgerða, sjúkraþjálfunar og sálfræðiþjónustu. Á hver sjóðfélagi nú að há- marki rétt á sjúkradagpeningum í 270 daga í stað 360 daga áður. Að óbreyttu var útlit fyrir að sjóðurinn myndi tæmast eftir ár. Í gögnum sem lögð verða fyrir þingið og ársskýrslu KÍ eru marg- víslegar upplýsingar um þessa al- varlegu þróun. Í tillögu að sam- þykkt um stefnumótun sjúkrasjóðsins til ársins 2022 sem lögð verður fyrir þingið segir að aukin langtímaveikindi kennara, sem koma fram í aukinni ásókn í sjúkradagpeninga, bendi til þess að vinnuumhverfi kennara þarfnist verulegra úrbóta. ,,Á þessu þarf að taka bæði með endurskoðun á kjarasamningum og öðrum þeim þáttum sem móta kennarastarfið. Þingið skorar á stjórnvöld og aðra rekstraraðila skóla að ganga til samvinnu við KÍ um nauðsynlegar breytingar.“ Lagt er til að þingið skori á að- ildarfélög KÍ að gera þá kröfu í komandi samningaviðræðum að framlag til sjúkrasjóðs verði hækk- að úr 0,75% í 1%. Í ársskýrslu KÍ fyrir síðasta ár sem lögð verður fram á þinginu seg- ir Þórður Á. Hjaltested, fráfarandi formaður KÍ, að bæta þurfi veru- lega bæði kjör og vinnuaðstæður fé- lagsmanna. ,,Sláandi tölur frá VIRK um kulnun í starfi og andleg veik- indi segja einnig sína sögu, sem og mikil aukning á umsóknum um sjúkradagpeninga í sjúkrasjóð KÍ. Þetta þarf að lagfæra og það strax,“ segir hann. Útgjöld úr sjóðnum jukust um 100 milljónir á milli ára Í ársskýrslunni koma fram nýj- ustu tölur um stöðu sjúkrasjóðsins. Heildarútgjöld úr honum voru rúm- ar 611 milljónir í fyrra, tæpum 100 milljónum meira en árið 2016. Styrkveitingar á árinu 2017 voru rúmum 129 milljónum hærri en tekjur ársins. „Þegar bornar eru saman styrkveitingar áranna 2015, 2016 og 2017 sést að útgjöld vegna sjúkradagpeninga hafa hækkað mest á milli ára og útgjöld vegna tannlæknakostnaðar hafa meira en tvöfaldast. Einnig hafa styrkir vegna gleraugna og laseraðgerða hækkað nokkuð. Í öðrum styrk- flokkum eru útgjöld nær óbreytt frá fyrra ári eða hafa lækkað,“ segir þar. Ýmis mál sem varða vinnuað- stæður kennara og meira álag á starfsmenn skólanna verða áberandi á þinginu. „Fleiri kennarar glíma við kvíða, andlegt álag og vefjagigt en nokkur annar háskólamenntaður hópur. Mælanleg aukning hefur orð- ið á veikindafjarvistum leik- og grunnskólakennara, í Reykjavík var aukningin 37% frá 2012 til 2016,“ segir í tillögu að ályktun um streitu og kulnun í starfi Ræða aukið álag og hækkun í sjúkrasjóð Morgunblaðið/Hari Menntun Fjölmörg málefni eru á dagskrá á þingi Kennarasambands Íslands Búist er við um 250 þing- fulltrúum á 7. þing Kenn- arasambands Íslands sem hefst á morgun og stendur fram á föstudag. Formannaskipti munu fara fram á þinginu. Þórður Á. Hjaltested lætur af störfum sem formaður Kí og Ragnar Þór Pétursson, sem sigraði í for- mannskjörinu í nóvember sl., tekur við formennsku KÍ. Í tillögu að kjarastefnu kenn- arasambandsins til ársins 2022 er megináhersla lögð á að laun og önnur starfskjör kennara og náms- og starfsráðgjafa stand- ist ávallt samanburð við kjör annarra sérfræðinga á vinnu- markaði. Laun og önnur starfs- kjör stjórnenda skóla skuli ávallt standast samanburð við kjör annarra stjórnenda á vinnumarkaði. Bent er á að 2016 voru regluleg laun full- vinnandi sérfræðinga á almenn- um vinnumarkaði að meðaltali 798 þús. kr. á mánuði og heild- arlaunin 854 þús. Nýr formað- ur tekur við FJÖGURRA DAGA ÞING

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.