Morgunblaðið - 09.04.2018, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 09.04.2018, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. APRÍL 2018 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Við byrjum daginn á opnu vinnustofunni okkar kl 9, leikfimi í KR kl 10:30 þar sem hann Guðjón sjúkraþjálfari sér um leikfimin, rútan sækir fyrir leikfimina á Vesturgötu kl 10:10 og á Afla- granda kl 10:15, útskurður og myndlist kl 13 í hreyfisalnum og félagsvist kl 13 í matsalnum, Jóga kl 18. Hlökkum til að sjá ykkur. Árskógar Smíðastofan er lokuð, ganga um nágrennið kl. 11, handavinna með leiðb. kl. 12:30-16, félagsvist með vinningum kl. 13. Myndlist með Elsu kl. 16-20, opið fyrir innipútt, hádegismatur kl. 11.40-12.45, kaffisala kl. 15-15.45, heitt á könnunni. Allir velkomnir. s: 535-2700. Boðinn Leikfimi fellur niður. Bingó kl. 13.00, myndlist kl. 13.00. Spjallhópur Boðans hittist kl. 15.00 Furugerði 1 Vinnustofa opin frá 12-16, sitjandi leikfimi og öndunaræfingar kl. 11. Klukkan 13 er farið í göngu. Boccia í innri sal kl. 14:00. Garðabæ Jónshúsi/ félags - og íþróttastarf: 512-1501, opið í Jónshúsi og heitt á könnunni alla virka daga frá 09:30-16:00, meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá 14:00-15:30, vatnsleikfimi Sjál. kl. 7:40/8:20/15:15, kvennaleikfimi Sjál. kl. 9:05, stólaleikfimi Sjál. kl. 9:50. Kvennaleikfimi Ásg. kl. 10:40, Zumba í Kirkjuhvoli kl. 16:15, Tiffany námskeið í Kirkjuhvoli kl. 13:00. Gjábakki kl. 9.00 handavinna, kl.9.10 Boccia, kl. 9.30 postulínsmálun, kl. 10.50 Jóga, kl. 13.15 Canasta. Gullsmári Postuslínshópur kl 9.00 Jóga kl 9.30 ganga kl 10.00, handavinna / Brigde kl 13.00 Jóga kl 18.00, félagsvist kl 20.00 Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Opin handavinna kl. 9 – 14, bænastund kl. 9.30 – 10. Jóga kl. 10.10 – 11.10. Hádegismatur kl. 11.30. Prjónaklúbbur kl. 14. Kaffi kl. 14.30 Hvassaleiti 56 - 58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8 - 16, morgunkaffi og spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, leikfimi kl. 9 hjá Carynu, morgunleikfimi kl. 9.45, jóga kl. 10 hjá Carynu, hádegismatur kl. 11.30. Tálgun kl. 13, spilað bridge kl. 13, eftirmiðdagskaffi kl. 14.30, jóga kl. 16 hjá Ragnheiði. Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnar kl. 8.50, við hringborðið kl.8.50, listasmiðjan opin fyrir alla kl.9-12, línudansnámskeið kl.10, ganga kl.10, myndlistanámskeið hjá Margréti Zophoníasdóttir kl.12.30, handavinnuhornið kl.13, félagsvist kl.13.15, síðdegiskaffi kl. 14:30 allir velkomnir óháð aldri nánari upplýsingar í síma 411-2790 Korpúlfar Hugleiðsla og létt yoga með Ingibjörgu kl. 9 í Borgum, ganga kl. 10 frá Grafarvogskirkju, Borgum og inni í Egilshöll. Félagsvist í Borgum kl. 13:00 Tréútskurður á Korpúlfsstöðum kl. 13 og kóræfing Korpusystkina kl. 16:00 í Borgum undir stjórn Kristínar.Miðar á afmælisfagnaðinn 19. apríl í Gullhömrum í fullum gangi mikil skemmtidagskrá og allir hjartanlega velkomnir. Selið, Sléttuvegi 11-13 Selið er opið frá kl. 10-16 og upp úr kl. 10 er boðið upp á kaffi þar sem fólk kemur saman í spjall og kíkir í blöðin. Helgistund kl. 10.10 á sléttum vikum. Hádegisverður er kl. 11.30-12.15 og spiluð er félagsvist kl. 13. Kaffi og meðlæti er selt á vægu verði kl. 14.30-15.30. Allir eru hjartanlega velkomnir í Selið. Nánari upplýsingar hjá Maríu Helenu í síma 568-2586. Seltjarnarnes Gler neðri hæð félagsheimilisins kl. 9. og 13, leir á Skólabraut kl. 9, Billjard í Selinu kl. 10, Jóga salnum Skólabraut kl. 11. Í dag kl. 13.00 ætlum við að koma saman í salnum á Skólabraut og perla armböndin LÍFIÐ ER NÚNA. Með því leggjum við okkar að mörkum og veitum Krafti stuðningsfélagi ungs fólks okkar liðsinni. Fulltrúi frá Krafti leiðbeinir og mætir með allt efni. Fjölmennum. Stangarhylur 4, Zumba kl. 10.30- undir stjórn Tanyu. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Ýmislegt HÆTTUM MEÐ GÖTUSKÓ - AÐEINS EITT VERÐ 7.990,- Laugavegi 178, sími 551 2070. Opið mán. - fös. kl. 10–18, Laugardaga kl. 10 - 14 Bátar      Flatahrauni 25 - Hafnarfirði Sími 564 0400 www.bilaraf.is Mikið úrval í bæði 12V og 24V. Bílaþjónusta GÆÐABÓN Stofnað 1986 • Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Ökukennsla Vönduð, vel búin kennslubifreið Subaru XV 4WD . Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 696 0042, Húsviðhald inkonu sína, til foreldra minna, en Lilja og mamma voru syst- ur. Þetta var aðeins upphafið að lengri kynnum því síðar var ég mætt til Akureyrar sem barnfóstra dætranna, fyrst Jó- hönnu og síðar Ernu. Seinna átti svo Guðmundur sonur þeirra athvarf hjá okkur Ein- ari vetrarlangt, þá læknanemi við HÍ. Gunnar og Lilja hófu búskap sinn á Skipagötu 1 en í því húsi rak Gunnar Sportvöruverslun Brynjólfs Sveinssonar í 41 ár. Það var ævintýri fyrir mig að fá stundum að telja öngla og spúna í poka og jafnvel að opna peningakassann í alvöru búð. Auk þess rak hann skó- búðina MH Lyngdal í Hafn- arstræti um áratuga skeið. Seinna byggðu þau einbýlis- hús á Ásvegi 28. Bíllinn var seldur en Gunnar keypti sér vespu sem hann notaði um tíma eftir vinnu og um helgar til að skjótast upp á Brekku. Gunnar vann mikið sjálfur við bygginguna og er eftirminni- legt hvað nágrannarnir hjálp- uðust að og lögðu hönd á plóg enda var gatan öll í uppbygg- ingu á þessum tíma. Mikill myndarskapur og reglusemi einkenndi heimilið. Frænka bakaði alltaf á fimmtudögum kökur sem „áttu“ að endast út vikuna. Alltaf var síðdegiskaffi um fjögur og tíukaffi á kvöldin. Ekki skrítið að flugvélin frá Reykjavík sem lenti um miðjan dag var ávallt kölluð kaffivélin. Gunnar var liðtækur í eldhús- inu og góður á ryksugunni en þetta var nýlunda fyrir mig á þeim tíma en þykir sjálfsagt í dag sem betur fer. Gunnar var afskaplega fróð- leiksfús og hafði gaman af að miðla af djúpri þekkingu sinni til annarra. Hann átti marga hillumetra af National Geog- raphic sem styttu mér oft stundir en enskukunnátta mín var engin og þá var hann ólat- ur við að útskýra fyrir mér það sem fyrir augu bar og mér þótti áhugavert. Margar ökuferðir voru farn- ar í Vaglaskóg, Dimmuborgir, Ásbyrgi og um þessar fallegu sveitir fyrir norðan. Gunnar var alltaf að uppfræða okkur og virtist þekkja til ábúenda á svo til öllum bæjum. Oft var stoppað og hann tók menn tali og í minningunni var upphafs- kveðjan ávallt sú sama – Sæl nú! Það kom mér því ekki á óvart að þegar hann kominn á níræðisaldur tók hann að sér að vera fararstjóri fyrir ferða- menn þá í vinnu fyrir tengda- son sinn Gunnar sem rekur SBA – Norðurleið á Akureyri. Þarna hefur Gunnar verið í essinu sínu og ferðamenn ekki komið að tómum kofunum og fengið úrvalsleiðsögn. Gunnar vinur minn Árnason fæddist í Ólafsfirði 26. sept. 1924 en hann lést 21. mars, 93 ára að aldri. Hann flutti 16 ára gamall til Akureyrar þar sem hann dvaldi hjá ömmu sinni Dómhildi ásamt móðursystur og móðurbróður. Hann átti því að eigin sögn tvö heimili, hjá foreldrum sínum á Ólafsfirði og hjá ömmu sinni í Aðalstræti 15 á Akureyri. Ég á einnig af- ar ánægjulegar minningar frá Aðalsræti 15 þegar þar bjuggu heiðurshjónin Fanney Guð- mundsdóttir og Friðrik Magn- ússon hrl., frændi Gunnars, en mikill samgangur var milli þeirra fjölskyldna. Það var augljóst að Gunnari þótti afar vænt um fæðingarbæ sinn Ólafsfjörð sem og ömmu sína Dómhildi, en föðurafa sinn, Magnús Kristjánsson alþingis- mann og ráðherra, hafði hann misst í frumbernsku. Nú við leiðarlok er mér efst í huga þakklæti fyrir að hafa fengið að dvelja hjá þessari góðu fjölskyldu nokkur sumur ævi minnar. Börnum hans, Guðmundi, Jóhönnu, Ernu og þeirra afkomendum, sem og Halldóru, sem hann eignaðist fyrir hjónaband, sendum við Einar innilegar samúðarkveðj- ur. Blessuð sé minning Gunn- ars Árnasonar. Birna Hrólfsdóttir. Gunnar Árnason var einn af þessum stálminnugu og fróð- leiksfúsu mönnum. Og ég var svo heppinn að áhugi hans beindist að Akureyri þar sem hann átti djúpar rætur. Sann- leikurinn er nefnilega sá að enginn sagnfræðingur fær staðist án þess að eiga sér hauka í horni. Og Gunnar Árnason lá sannarlega ekki á liði sínu. Hann tók mér ávallt vel þegar ég leitaði til hans sem var oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. Og alltaf gat hann leyst úr vandræðum mín- um með einum eða öðrum hætti, oft vissi hann rétta svar- ið eða þá hvar þess var að leita. Gunnar varð vissulega gamall maður í árum talið en setti aldrei fyrir sálina lás, eins og segir í ljóði Gríms Thomsen. Þess vegna var svo gott að leita til hans. Nú er skarð fyrir skildi. Jón Hjaltason. Kæri vinur Gunnar. Nú hef- ur þú lagst til hvílu og langar mig að kveðja þig með nokkr- um línum. Ég kynntist þér fyrst sem lítill strákur þegar ég kom með pabba í búðina til þín fimm eða sex ára gamall. Eftir nokkrar heimsóknir fann ég út að þú varst vinur minn og tekið var á móti mér akkúrat eins og þeim sem voru stórir (fullorðnir). Þú gafst þér tíma til samræðna eins og ég væri fullorðinn. Þetta gerði það að verkum að maður tók gjarnan túrinn til þín, þótt maður hefði ekki nokkuð að kaupa, bara til að fá spjall. Þetta gerði mikið gott fyrir lítinn áhugasaman veiði- mann. Við hittumst svo ekki í nokkur ár, en þegar ég fékk meiraprófið og byrjaði að keyra rútu, fyrst hjá Norður- leið og síðar SBA, lágu leiðir okkar saman aftur. Við áttum marga góða túra saman í Mývatnsveit og þá þú sem fararstjóri. Aldrei skorti á samræðuefni og oft mjög gam- an. Seinni ár hef ég verið í Nor- egi svo við höfum kannski ekki hist mikið, en oft þegar ég kom til Akureyrar og var í heim- sókn hjá SBA hitti ég þig og þá tókum við upp þráðinn. Mér þótti alltaf vænt um hvað þú varst áhugasamur um hvernig mér og minni fjölskyldu gengi. Áhugi þinn á hvað Gunnar og Erna voru að sýsla var allt- af skemmtilegt umræðuefni og þú varst mjög stoltur af þeim. Erna og Gunnar skiluðu alltaf kveðju frá þér þegar við vorum í símasambandi og það gaf allt- af gott í kroppinn. Gunni minn, takk fyrir allar góðu minningarnar. Guð geymi þig og ég er sannfærður um að við hittumst síðar. Hreiðar Eyfjörð og fjölskylda. ✝ Kristján Jóns-son fæddist 24. mars 1931. Hann lést 27. mars 2018. Foreldrar hans voru Jón Emil Ágústsson og Jó- hanna Halldórs- dóttir. Systkini: Páll, Óli Arelíus, Ragnar, Árni, Al- mar og Sigríður. Kristján útskrif- aðist sem matreiðslumeistari frá Iðnskólanum í Reykjavík. Eiginkona hans var Þuríður Sigurðardóttir, f. 1932, d. 2012. Börn þeirra eru: 1) Hildur, f. 1951. Börn hennar og Árna Ibsen Þor- geirssonar eru Kári, Flóki og Teit- ur, d. 2016. 2) Sig- urjón, f. 1953. Synir hans eru Logi, Óm- ar og Andri. 3) Óm- ar, f. 1960, d. 1982. Barna- barnabörnin eru 11 talsins. Útför Kristjáns fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 9. apríl 2018, kl. 13. Kristján Jónsson, Krilli afi, er kominn hinum megin hulunnar eftir langa og ríkulega ævi. Afi var alltaf að. Alltaf að fást við eitthvað sem veitti honum gleði og hug- arró. Smíðaði sumarbústaði, bjó til frumstæðar skíðalyftur sem fólk naut góðs af og kenndi ófáum Hafnfirðingum á skíði. Við bræður hefðum ekki getað átt betri afa. Hann gaf endalaust af sér til okk- ar. Græjaði allt skíðadót, reddaði öllu. Gaf okkur veiðistangir til að fara með í veiði þar að auki. Ef það var ekki verið uppi í Bláfjöllum á skíðum um helgar vorum við að gista heima hjá ömmu og afa. Í minningunni var alltaf vestri á föstudagskvöldum á RÚV. Yfir- leitt Clint Eastwood á skjáum og allir sáttir og glaðir með sitt. Svo var líka alltaf Cocoa Puffs í morg- unmat heima hjá ömmu og afa, ekki ónýtt það. Afi var bóngóður og alltaf tilbú- inn að hjálpa til við eitt og annað sem fólk var að fást við, hvort sem það voru smíðar eða eitthvað ann- að. Alltaf mætti afi og tók til hend- inni á milli þess sem hann var í veiðitúrum eða á skíðum. Aldrei leiddist honum. Þess vegna var það dálítið erfitt að horfa upp á Elli kerlingu læðast að honum og taka frá honum allt það sem hann kunni svo vel og lifði fyrir. Ég er þakklátur fyrir Krilla afa minn, þakklátur fyrir þann tíma sem við fengum með honum og hvernig þeim tíma var varið. Alltaf verið að gera eitthvað sem skapaði góðar minningar. Afi er í góðum félagsskap núna með ömmu og fleira fólki, vonandi á fjöllum að bruna niður skælbros- andi og sólbrúnn í framan. Flóki. Kristján Jónsson Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.