Morgunblaðið - 09.04.2018, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 09.04.2018, Qupperneq 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. APRÍL 2018 Peter Englund ákvað fyrir helgi að hætta störfum fyrir Sænsku aka- demíuna, sem ár hvert veitir Nób- elsverðlaun í bók- menntum. Þetta kemur fram í bréfi sem hann sendi Afton- bladet. Englund, sem starfaði sem ritari akademíunnar 2009-2015 þeg- ar Sara Danius tók við, fetar þar í fótspor Klas Östergren og Kjells Espmark sem undir lok síðustu viku höfðu tilkynnt starfslok sín eftir ára- tugalangt starf, en menn eru skip- aðir ævilangt hjá akademíunni. Í bréfi Englund kemur fram að ástæða þess að hann velur að hætta sé hvernig tekið hafi verið á málum í framhaldi af því þegar 18 konur undir lok síðasta árs sökuðu þekktan karlmann í sænska bókmenntaheim- inum, sem giftur er einum þeirra sem sitja í akademíunni, um kyn- ferðislega áreitni. Áttu sum brot- anna að hafa átt sér stað í íbúð í eigu akademíunnar. Sara Danius for- dæmdi framferði mannsins og í framhaldinu var ákveðið að slíta öll tengsl við hann. Englund bendir á að aðgerðir Danius í málinu hafi mætt vaxandi gagnrýni innan akademí- unnar. „Gagnrýni sem mér finnst bæði óréttmæt og ósanngjörn. […] Ákvarðanir hafa verið teknar sem ég hvorki trúi á né get varið og þess vegna hef ég ákveðið að segja skilið við akademíuna,“ skrifar Englund. Samkvæmt heimildum Aftonbladet tóku þremenningarnir ákvörðun sína í framhaldi af atkvæðagreiðslu um framtíð Katarine Frostenson í akademíunni vegna tengsla hennar við ofbeldismanninn. Þeir vildu láta reka hana, en atkvæðagreiðslan féll henni í vil. Í yfirlýsingu frá Espmark útskýrir hann brotthvarf sitt með þeim orðum að heilindum akademí- unnar, sem sé lífæðin í starfi hennar, sé stefnt í voða þegar „leiðandi radd- ir innan akademíunnar setji vinskap og önnur óviðkomandi sjónarmið of- ar en heilindin“. Katarine Frostenson Upplausn hjá Sænsku akademíunni Rafstilling ehf Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14 Hröð og góð þjónusta um allt land Áratuga reynsla Startar bíllinn ekki? Við hjá Rafstillingu leysum málið ICQC 2018-20 » Ný sönglög ogþjóðlagaútsetn- ingar Jónasar Ingimundarsonar voru flutt í bland við klassíska dúetta á Tíbrár-tónleikum í Salnum í gær. Flytj- endur voru söngkon- urnar Hallveig Rún- arsdóttir og Sigríður Ósk Kristjánsdóttir og píanóleikarinn Hrönn Þráinsdóttir. Jónas var tónlistar- ráðunautur Kópa- vogsbæjar frá opn- un Salarins 1999 og einn af upphafs- mönnum þess að Salurinn yrði byggð- ur. Tónlist eftir Jónas Ingimundarson flutt í Salnum Ánægð Dagrún Kristjánsdóttir, Björgvin Þórðarson og Rannveig Pálsdóttir. Tónlistarkappar Jónas Ingimundarson og Bjarni Thor söngvari. Góðir gestir Edda Guðmundsdóttir, Inga Lára Guðmundsdóttir, Ágústa Hauksdóttir og Sigríður Ása Ólafsdóttir mættu á tónleikana í Salnum. Morgunblaðið/Hari Flytjendurnir Hallveig Rúnarsdóttir og Sigríður Ósk Kristjánsdóttir sungu við undirleik Hrannar Þráinsdóttur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.