Morgunblaðið - 09.04.2018, Qupperneq 32
MÁNUDAGUR 9. APRÍL 99. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Hélt syni sínum í búri í 20 ár
2. Illa svikin af hóteli í Rússlandi
3. Vill fella ríkisstjórnina
4. Man frostaveturinn mikla
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Lúðrasveitin Svanur blæs til tón-
leika í Norðurljósum Hörpu í kvöld kl.
20 og hyggst sanna í eitt skipti fyrir
öll að mánudagar eru ekki til mæðu.
Boðið verður upp á blústónleika með
syngjandi sveiflu í kaupbæti.
Morgunblaðið/Hari
Mánudagsblús
(og sveifla) í kvöld
Söngkonan
Dóra Steinunn
Ármannsdóttir
kemur fram ásamt
Antoníu Hevesi pí-
anóleikara á há-
degistónleikum í
Hafnarborg á
morgun kl. 12.
Flytja þær fimm
aríur úr óperunum Carmen eftir Bizet,
Adriana Lecouvreur eftir Cilèa, Sam-
son og Dalila eftir Saint-Saëns og Il
Trovatore og Don Carlos eftir Verdi.
Sígaunar og hefðar-
konur í Hafnarborg
Auður Gunnarsdóttir sópran og
Anna Guðný Guðmundsdóttir flytja
ljóðaflokkinn Sieben frühe Lieder
eftir Alban Berg, sönglög eftir Kurt
Weill og aríur úr einþáttungnum
Trouble in Tahiti eftir
Leonard Bernstein á
tónleikum í Norræna
húsinu á miðvikudag
kl. 20. Tónleikarnir
eru hluti af tón-
leikaröðinni
Klassík í Vatns-
mýrinni.
Dögun og náttmál
í Vatnsmýrinni
Á þriðjudag Suðaustan 8-15 m/s og dálítil rigning sunnan- og
vestanlands, hvassast við ströndina, en annars hægari og þurrt.
Hlýnar í veðri og hiti 3 til 8 stig síðdegis.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan- og suðaustanátt, 8-15 m/s sunnan-
og vestantil, hvassast við ströndina, en annars hægari. Dálitlar
skúrir eða él syðra, en annars yfirleitt bjartviðri. Hiti víða 0-6 stig.
VEÐUR
Ungt og efnilegt lið Íslands
stóð í heimsmeisturum
Frakka í lokaleik sínum á fjög-
urra þjóða mótinu í hand-
knattleik sem lauk í Noregi í
gær. Ísland tapaði öllum
þremur leikjum sínum á
mótinu en engu að síður
var frammistaðan fín og lof-
ar góðu upp á framhaldið.
„Ég var mjög ánægður með
leiki okkar á mótinu,“ sagði
Guðmundur Guðmundsson
landsliðsþjálfari. »2
Mjög ánægður
með leiki okkar
Irina Sazonova úr Ármanni og Val-
garð Reinhardsson úr Gerplu vörðu
titla sína í fjölþraut á Íslandsmótinu í
áhaldafimleikum sem
fram fór í Laug-
ardalshöllinni um
helgina. Keppnin
var gríðarlega
skemmtileg og
sáust mörg glæsi-
leg tilþrif hjá fim-
leikafólkinu. »5
Irina og Valgarð vörðu
titla sína í fjölþraut
ÍR-ingar gerðu góða ferð á Sauð-
árkrók í gærkvöld en Breiðhyltingar
lögðu Tindastól, 106:97, í öðrum leik
liðanna í undanúrslitum Dominos-
deildar karla í körfuknattleik. ÍR jafn-
aði þar með metin í einvíginu í 1:1 en
vinna þarf þrjá til að komast í úr-
slitarimmuna um titilinn. Í kvöld taka
KR-ingar á móti Haukum en Haukar
unnu fyrsta leikinn. »5
Frábær sigur ÍR-inga
á Sauðárkróki
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Núna snemma vors er sólarljósið
sterkt og tærleikinn í loftinu ein-
stakur, rétt eins og við sáum í dag.
Landið er fallegt úr lofti séð. Í
fluginu eru engir dagar eins og
náttúran breytir sífellt um svip af
þeim öflum sem maður þarf að
læra á og vinna með,“ segir Jóhann
Skírnisson flugstjóri. Hann hefur
verið alls 31 ár í innanlandsfluginu
og verkefnum því tengdum og hef-
ur lengi verið flugstjóri hjá Air
Iceland Connect. Einn daginn í síð-
ustu viku fór hann þrjár ferðir
norður til Akureyrar og Morg-
unblaðið fékk þá að fara með eina
bunu, fram og til baka með Bomb-
ardier Q400.
Sjónflug alla leiðina
Í flugtaki frá Reykjavíkur-
flugvelli kleif Hallgerður langbrók,
en svo heitir vélin, bratt yfir
Vatnsmýri, Kvos og Sund og svo
var stefnan tekin í norðaustur. Yfir
efsta kolli Esjunnar sást inn á há-
lendið og þegar inn yfir brúnir
þess kom blöstu við Hlöðufell, Blá-
fell, Kerlingarfjöll og í blárri móðu
í austrinu djarfaði fyrir Hvanna-
dalshnjúk. Flugleiðin var yfir
Langjökul, þaðan var svo sveigt til
austurs og flogið yfir Blöndulón.
Þar sást niður í fremstu dali
Skagafjarðar sem voru djúpar rist-
ur í landi sem allt var undir snjó.
Þegar hér var komið sögu var
Jóhann farinn að lækka flugið og
fram Eyjafjarðardalinn og svo var
smurt inn á brautina á Akureyr-
arflugvelli. Allt gekk eins og í
sögu. Farþegarnir gengu frá borði;
flugið að sunnan tók aðeins 32 mín-
útur og í kaupbæti við þægindin
fékk fólk þetta líka fína útsýni.
Flugið suður var með líku lagi;
birtan var einstök og sjónflug alla
leiðina.
„Þetta var frábær ferð,“ sagði
Jóhann flugstjóri þegar við lentum
í Reykjavík „Ég nýt hvers einasta
dags í þessu starfi og hef aldrei
viljað annað en innanlandsflugið
eða þessar stuttu leiðir, þótt störf á
öðrum vettvangi hafi vissulega boð-
ist. Mér finnst einfaldlega gaman
að glíma við þessar íslensku að-
stæður í veðri sem eru ögrandi oft
á tíðum. Ég á að baki um það bil
16.000 flugtíma og þar af um helm-
inginn á á Twin Otter, vinnuþjörk-
um sem hafa reynst frábærlega á
Íslandi. Þegar ég vann hjá Flug-
félagi Norðurlands á Akureyri var
félagið með reglulegt flug á 11
áfangastaði og þá fór ég hundruð
ferða á þessum vélum til Græn-
lands og Grímseyjar, svo ég nefni
nú eitthvað. Þau verkefni eru það
sem mér finnst standa upp úr í
starfinu, og geri ég þó ekki lítið úr
því að Q400 eru frábærar flugvélar,
sem er skemmtilegt að fljúga.“
Lífsgæði og flugvöllur
Hvort Reykjavíkurflugvöllur
skuli vera eða víkja er endalaust
deiluefni sem margir hafa sterkar
skoðanir á. Jóhann hefur miklar
meiningar um málið. „Já, ég tel
það einstök lífsgæði fyrir lands-
menn að í miðborg Reykjavíkur sé
flugvöllur þaðan sem megi komast
milli Reykjavíkur og Akureyrar á
rétt um það bil hálftíma þegar best
lætur. Þegar flestar mikilvægustu
stofnanir landsins eru í Reykjavík
þurfa leiðir þangað utan af landi að
vera greiðar. Þetta snýst um jafn-
ræði fólksins, sem allir vilja að
minnsta kosti í orði,“ segir Jóhann
flugstjóri að síðustu.
Landið er fallegt úr lofti séð
Flugtúr norður
til Akureyrar
tekur hálftíma
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Flugfólk Jóhann Skírnisson flugstjóri, Júlía Jónsdóttir og Ingibjörg Matthíasdóttir flugfreyjur og Árni Snær Brynj-
ólfsson flugmaður, sem þarna var í einni af sínum síðustu ferðum fyrir Air Iceland Connect. Flugið er þeirra yndi.
Eyjafjörður Hrafnagilshverfi. Höll Ískaldur er Eiríksjökull.