Morgunblaðið - 12.04.2018, Side 1

Morgunblaðið - 12.04.2018, Side 1
F I M M T U D A G U R 1 2. A P R Í L 2 0 1 8 Stofnað 1913  85. tölublað  106. árgangur  TRUMP ER ÓFÆR UM AÐ SKILJA AÐRA TÆKNIFYRIR- TÆKI VAXA UM 10-12 % URÐU BÁÐAR ÁSTFANGNAR AF HERMÖNNUM VIÐSKIPTAMOGGI STEINUNN OG FJÓLA 38SVIÐSLJÓS 28 Skörp veðrabrigði sáust þegar horft var af Dyrhólaey og það- an vestur svartan sandinn nú í vikunni. Hvífextar öldur bárust í taktföstum þunga að landi og dökkgrá ský lágu yfir. Úti fyr- ir sást hins vegar í bláan himin sem gæti boðað blíðviðri. Næstu daga eru horfur á að mildir suðlægir vindar berist að landinu. Eitthvað gæti rignt sunnanlands og vestan. Blár himinninn sem gæti boðað blíðviðri næstu daga Morgunblaðið/RAX  „Við vonumst til þess að hlut- deild okkar á flugvellinum muni aukast og þá ekki einungis í veitingaþjónustu. Þá erum við einn- ig að skoða tæki- færi utan flug- vallarins,“ segir Dag Inge Ras- mussen, forstjóri Lagardère Travel Retail, sem m.a. starfrækir ferða- mannaverslanir á 240 flugvöllum í 34 löndum. Fyrirtækið annast veit- ingasölu í Leifsstöð. Velta fyrirtæk- isins nam 4,5 milljörðum evra á síð- asta ári, jafngildi um 550 milljarða króna. »ViðskiptaMogginn Franskur ferðarisi vill aukna hlutdeild Dag Inge Rasmussen Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is „Fæstir sem eru veikir af geðsjúk- dómum búa við sömu aðstæður og dóttir mín hvað varðar fjárhagslegan og félagslegan stuðning. Mér finnst ekki sanngjarnt í samfélagi sem kennir sig við velferð að vellíðan og heilbrigði geðsjúkra skuli velta á því hversu sterkt bakland þeirra er.“ Þetta segir móðir ungrar konu sem veiktist af alvarlegum kvíðasjúk- dómi fyrir ellefu árum og hefur síðan þá þurft á talsverðri meðferð og lyfjagjöf að halda. Móðirin, sem ekki kemur fram undir nafni af tillitssemi við dóttur sína, áætlar að hún hafi greitt tugi milljóna úr eigin vasa fyrir ýmsa geðheilbrigðisþjónustu fyrir dóttur sína, auk þess vinnutaps sem hún hefur orðið fyrir vegna umönnunar hennar. „Eru geðsjúkdómar sjúk- dómar þeirra ríku?“ spyr móðirin, sem segir að auka þyrfti sveigjan- leika í geðheilbrigðisþjónustu. Spurð hvar dóttir hennar væri án þessa stuðnings sem hún fær frá sínum nánustu segir móðirin erfitt að segja til um það. „Hugsanlega á langtímageðdeild. Eða kannski væri hún í hópi þeirra 50 Íslendinga sem á ári hverju ákveða að svipta sig lífi.“ „Kannski væri hún ein þeirra sem svipta sig lífi“  Eru geðsjúkdómar sjúkdómar þeirra ríku? spyr móðir geðsjúkrar konu MEr þetta sjúkdómur … »18-20  „Miðað við hagvaxtarspár, sem liggja til grundvallar fjármála- áætlun ríkisstjórnarinnar, má ætla að 2.600 til 3.000 ný störf geti orðið til á ári tímabilið 2018-2022,“ segir Yngvi Harðarson, hagfræðingur og framkvæmdastjóri Analytica. Störfum hefur fjölgað stöðugt frá 2012 og vísbendingar eru um að nú- verandi hagsveifla muni leiða til lengsta tímabils samfelldrar starfa- fjölgunar á Íslandi frá byrjun ní- unda áratugarins, að sögn Karls Sigurðssonar, sérfræðings hjá Vinnumálastofnun. Hagstofan ætlar að á árunum 2012-2017 hafi 26.200 ný störf orðið til í hagkerfinu og Analytica spáir að tæplega 40.000 störf verði til á árunum 2012-2022. »10 Fjórtán þúsund ný störf til ársins 2022 MJÚKA DEILDIN ÍSLENSK HÖNNUN SJÚKRAÞJÁLFARI AÐSTOÐAR SÆNGUR- FATNAÐUR SÆNGUROG KODDAR HEILSURÚM ALLARSTÆRÐIR FUSSENEGGER Kristín Gísladóttir sjúkraþjálfari aðstoðar við val á rúmdýnum. Í DAG 16-18 Síðumúla 30 - Reykjavík | Sími 533 3500Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.