Morgunblaðið - 12.04.2018, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 12.04.2018, Blaðsíða 47
UMRÆÐAN 47 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2018 Síðustu mánuði hef- ur #metoo byltingin svo sannarlega umbylt heiminum. Hver geir- inn, hver hópurinn og hvert landið á fætur öðru hefur stigið fram í krafti kvenna og opinberað hversu al- geng kynferðisleg áreitni og valdbeiting er. Þess vegna sitjum við núna hjá FKA og víðar, í verkefnahópum þar sem frekari aðgerðir eru ræddar. Allt snýst þetta um að kveða hegðun fárra en frekra karla í kútinn. Við ætlum að breyta þessu, þótt margt sé ógert enn og mörg mál enn óleyst og falin. Ég nefni sem dæmi margar konur í viðskiptalífinu sem eru enn fastar í fangelsi þagnar- innar. Það skýrist einfaldlega af því karllæga umhverfi sem við störfum í þar sem 92% forstjóra 400 stærstu fyrirtækjanna eru karl- menn. Þeir eru þá yfirmenn eða mikilvægir viðskiptavinir og birgj- ar. Hagsmunir eru í húfi, svo sem ótti við starfsmissi eða frekari tækifæri til starfsframa. Svo ekki sé talað um mikilvæg viðskipta- sambönd eða samninga. Til að skýra út þessa þögn, styðjumst við því við þessar tölur sem liggja fyrir og sýna hversu karllægt umhverfi viðskiptalífsins er. En ekki allir eru svo heppnir, að geta gripið í slík hjálpargögn. Þannig eru margir karlmenn fastir í þögn líka og það vegna byltingarinnar #karl- mennskan. Þar eru karlmenn að stíga fram og vilja uppræta fáránlega staðalímynd karl- mennskunnar. Þetta er staðal- ímynd sem er í senn óeðlileg og óæskileg. Samt er hún svo sterk að nú hafa heilar kyn- slóðir karlmanna trú- að því að það sé veik- leikamerki fyrir karlmenn að gráta. Hver man til dæmis ekki eftir eftirfarandi texta úr laginu ,,Geta pabbar ekki grátið?“ með Helga Björnssyni og SSSól: Allir að dást að því hvað þú sért stór og sterkur kinka kolli og klappað hraustlega á bak ef þú svo dettur og meiðir þig máttu ekki gráta það er sko merki um dugleysi og aumingjaskap. Þarna er einmitt sungið um stað- alímyndina sem #karlmennskan er að benda á. Hún felur meðal annars í sér að karlmönnum eigi almennt ekki að líða illa. Þetta nær þá til eðlilegra tilfinninga sem allir fara í gegnum einhvern tímann: Að líða illa, að gráta, að vera kvíðin, að finna til óöryggis o.s.frv. Einhverra hluta vegna, byrjar samfélagið snemma að segja drengjum að þeir eigi að vera sterk- ari en svo að svona líðan komi upp eða sé sýnileg. Fyrir vikið segja þeir síður frá og fyrir vikið sjáum við á tölum að sjálfsvíg karlmanna eru margfalt fleiri en hjá konum. Árið 2016, voru sjálfsvíg á Íslandi 40 talsins. Af þessum 40 sjálfs- vígum, tóku 36 karlmenn sitt eigið líf. Við erum því að tala um lífsins al- vöru þegar við ræðum um #karl- mennskan. Það skrýtna er að þegar að við ræðum saman erum við flest sammála um að staðalímyndin um karlmennskuna er fáránleg. Ég nefni nokkur dæmi: Það er veikleikamerki fyrir karlmann að gráta eða líða illa, samt á hann að vera hæfur til að ræða tilfinningar þegar kemur að ástvinum og fjöl- skyldu (þetta er mótsögn). Karlmað- urinn á að standa sig vel í vinnu og starfsframa, helst að teljast betri fyrirvinna en konan (þetta er úrelt). Karlmennskan býður ekki upp á það val að karlmaður geti ákveðið að vera heimavinnandi, nema í mesta lagi í fæðingarorlofi (þetta er órétt- látt). Karlmaður á að þiggja við- skiptatengd boð í laxveiði með karl- mönnum (þetta er hallærislegt). Karlmaður á að hafa meiri áhuga á fótbolta en jóga (hvað kemur fótbolti eða jóga kyni við?). Það væri auðvelt að halda upptalningu áfram, bara til að sýna hversu fáránleiki staðal- ímyndunar um karlmennskuna er. Ég vil þó frekar nýta tímann og hvetja konur til að styðja við #karl- mennskan. Hrósum þeim karl- mönnum, sem þora að stíga fram og hvetjum fleiri karlmenn til að ræða hvað þeim finnst eða hvernig þeim líður. Auðveldum þeim að segja: „Ég vil ekki lengur þessa staðalímynd. Mig langar að vera bara ég sjálfur.“ Mesta hindrunin þarna er nefnilega ekki atvinnulífið eða viðskiptalífið, eins og ég var að benda á í upphafi greinar um konur sem enn búa í þögn þrátt fyrir #metoo byltinguna. Í tilfelli karlmanna, er stærsta hindrunin í nærumhverfinu. Þetta eru vinir og vandamenn, sem leyfa karlmönnum ekki að hverfa frá stað- alímyndinni. Ég bið því alla sem þetta lesa, að líta í sinn eigin barm og velta því fyrir sér hvort við séum sjálf að viðhalda staðalímyndinni með kvöðum á unga drengi eða karl- menn í okkar umhverfi. Þar skiptir miklu máli hvernig við orðum hlut- ina. Segjum ekki lengur „hættu þessu væli“ við unga drengi, heldur veltum fyrir okkur hvaða afleiðingar þessi skilaboð geta haft. Við erum öll ábyrg því staðalímyndin varð til af mannanna völdum. Ég hvet karl- menn til frekari dáða með #karl- mennskan og vel sem lokaorð texta lagsins Vertu þú sjálfur með Helga Björnssyni og SSSól: Vertu þú sjálfur, gerðu það sem þú vilt. Vertu þú sjálfur, eins og þú ert. Láttu það flakka, dansaðu í vindinum. Faðmaðu heiminn, elskaðu. Farðu alla leið Va-bam-a-lú-ma-ba-ba-bei Farðu alla leið. Allt til enda, alla leið. #karlmennskan. Allt til enda, alla leið. #karlmennskan: Vertu þú sjálfur Eftir Rakel Sveinsdóttur » Þegar að við ræðum saman erum við flest sammála um að staðal- ímyndin um karl- mennskuna er fáránleg. Rakel Sveinsdóttir Höfundur er formaður Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA). rakel@spyr.is Móttaka að- sendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsend- ar greinar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgun- blaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðs- ins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í samskiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höf- unda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendi- kerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkom- andi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólarhringinn. Nánari upplýsingar veitir starfs- fólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18. Allt um sjávarútveg Hlauparar: Arnar Pétursson og Hulda Guðný Kjartansdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.