Morgunblaðið - 12.04.2018, Qupperneq 51
Nokkrir línubátar, sem róið hafa frá Rifi og Ólafsvík og undir Látrabjarg til steinbítsveiða, hafa að undanförnu
mokfiskað. Sumir hverjir hafa þá komið með allt að 25 tonn af afla yfir daginn.
Félagarnir á Særifi SH frá Rifi, þeir Grétar Kristjónsson og Arnar Laxdal skipstjóri, landa hér steinbít úr Særifi
en aflinn í þessum túr nam 19 tonnum.
Ánægðir með aflabrögðin
Morgunblaðið/Alfons
51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2018
Kínaklúbbur Unnar
Njálsgötu 33, 101 Reykjavík
sími: 551 2596, farsími: 868 2726
Vefsíða: kinaklubbur.weebly.com
Netfang: kinaklubbur@simnet.is
KÍNAKLÚBBUR UNNAR
Klúbburinn var stofnaður 1992, af Unni Guðjónsdóttur,
með það fyrir augum að breiða út kunnáttu um kínver-
ska menningu. Ásamt fyrirlestrum og sýningum fornra
kínverskra muna, hefur klúbburinn staðið fyrir ferðum til
Kína, fyrir meðlimi klúbbsins.
Árið 2015 var KÍNASAFN UNNAR opnað, á Njálsgötu
33B, en þar eru fundir klúbbsins haldnir. Næsti fundur
verður 12. apríl kl 17.00, skoðaðir verða fagrir munir og
næsta ferð til Kína kynnt: 25. maí - 12. júní.
Nýir félagar eru sérstaklega velkomnir. Félagsgjald er
kr 1000.- á ári. Ekki þarf að tilkynna þátttöku á fundinn,
það er bara að koma í góðan félagsskap, te og kökur
verða á borðum.
Öryggismál sjófarenda
Alþjóðleg ráðstefna
Grand hótel 20. apríl 2018
Ráðstefnan er haldin á vegum Slysavarnaskóla sjómanna, Alþjóðasamtaka sjóbjörgunar-
skóla (IASST) og samgöngu- og sveitastjórnarráðuneytis. Ráðstefnan er haldin 20. apríl frá
kl. 10:00-16:00 á Grand hótel og er öllum ráðlagt að skrá sig tímanlega til þátttöku því
sætafjöldi er takmarkaður. Skráning er á vefsíðunni: www.landsbjorg.is
Dagskrá/erindi:
Húsið opnar og skráning kl. 9:30-10:00
Setning. Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis og
Dmitrijs Semjonovs formaður IASST
Öryggisstjórnun fiskiskipa í Bretlandi. Robert Greenwood S&T Officer
Við erum öll ábyrg. J. Snæfríður Einarsdóttir formaður öryggishóps SFS
Öryggismál smábáta. Axel Helgason formaður LS
Milli skips og bryggju. Gísli Gíslason formaður Hafnasambands Íslands
Verkefni Samgöngustofu í öryggismálum. Gunnar G. Gunnarsson deildarstjóri
Forvarnarstarf hjá tryggingafélagi. Gísli Nils Einarsson forvarnarfulltrúi VÍS
Eldur um borð. Einar Örn Jónsson stýrimaður/slökkviliðsmaður
Þjálfun sjómanna í eldvörnum/gasgámum. Leif Johansson deildarstjóri hjá Meriturva
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar og Vaktstöð siglinga.
Ásgrímur L. Ásgrímsson framkvæmdastjóri aðgerðarsviðs
Tillögur í öryggisátt. Jón A. Ingólfsson rannsóknarstjóri RNSA
Mikilvægi hjartastuðtækja í skipum. Felix Valson læknir
Rannsóknir á sjóveiki. Hannes Petersen læknir
Pallborðsumræður. Ásta Þorleifsdóttir samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti
Fundarstjóri verður Ásbjörn Óttarsson formaður Siglingaráðs.
Jónas Páll Jónasson flytur í dag
erindið „Veiðar á leturhumri -
sögulegt yfirlit aflabragða og
stofnþróunar“, á málstofu Haf-
rannsóknastofnunar.
Að því er fram kemur í tilkynn-
ingu frá stofnuninni verður mál-
stofan haldin í fyrirlestrarsal á 1.
hæð Sjávarútvegshússins að
Skúlagötu 4. Hefst málstofan
klukkan 12.30 og eru allir sagðir
velkomnir, en henni verður jafn-
framt streymt á sérstakri You-
Tube-rás stofnunarinnar.
Í ágripi Jónasar segir að farið
verði yfir sögu veiða á letur-
humri, sem hófust hér við land í
byrjun sjötta áratugarins.
„Hér er tegundin við norður-
mörk útbreiðslu sinnar og hafa
aflabrögð og útbreiðsla veiðanna
sveiflast nokkuð með hlý- og
kuldaskeiðum. Hámarksafli náð-
ist árið 1963 þegar 6000 tonnum
var landað.“
Undanfarin misseri hafi humar-
veiðar við Ísland einkennst af
minnkandi afla á sóknareiningu,
auk þess sem veiðislóðin hafi
stækkað og ný svæði verið num-
in.
„Nýliðunarbrestur hefur verið
viðvarandi síðan 2005 og rann-
sóknir benda til þess að nýliðun í
humarstofninum verði áfram með
lakasta móti.“ sh@mbl.is
Humarveiðar
hafa einkennst af
minnkandi afla
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Vísir hf. hefur gert samning við
matvælatæknifyrirtækið Skagann
3X um kaup á búnaði í skip fyrir-
tækisins, Sighvat GK.
Skipið gengst nú undir umtals-
verðar breytingar í skipasmíða-
stöð í Póllandi. Er það svo vænt-
anlegt til Ísafjarðar um miðjan
júní þar sem Skaginn 3X mun sjá
um uppsetningu á búnaði um borð
í skipinu.
Um er að ræða Rotex skipa-
lausn frá Skaganum 3X og flokk-
unarbúnað frá Marel, og segist
Pétur Pálsson hjá Vísi hf. afar
ánægður með samninginn.
„Við lögðum upp með að búa til
lausn sem tryggir gæði og flokkun
hráefnis út á sjó. Við höfum átt
gott og farsælt samstarf með báð-
um þessum fyrirtækjum og viljum
við halda því áfram,“ segir Pétur.
„Skaginn 3X og Marel eru í
heimsklassa á sínu sviði og það er
afar ánægjuleg lending að upp-
setning fari fram á Ísafirði við
verksmiðjudyr Skagans 3X.“
sh@mbl.is
Undirritun F.v. Óskar Óskarsson frá Marel, Pétur Pálsson frá Vísi, Einar
Kristinsson frá Navís, Kjartan Viðarsson frá Vísi og Ragnar A. Guðmunds-
son frá Skaganum 3X.
Vísir kaupir búnað frá Skaganum 3X