Morgunblaðið - 12.04.2018, Síða 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2018
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Um nokkurra ára skeið hafa fram-
kvæmdir staðið yfir skammt norður
af Deildartunguhver, vestast í Reyk-
holtsdal. Á svæðið leggja tugir þús-
unda manna leið sína á ári hverju til
að berja þessa einstöku náttúruperlu
augum. Upp úr hvernum vella 180
lítrar af 100° heitu vatni á hverri ein-
ustu sekúndu. Er hann talinn vatns-
mestur allra hvera í Evrópu. Og þótt
gufustrókurinn frá hvernum sé oft og
tíðum tilkomumikill grunar fæsta
sem þangað koma að hann sjái þús-
undum manna fyrir heitu vatni og að
margar glæsilegar sundlaugar byggi
vatnsforða sinn allan á þessari orku-
lind.
En framkvæmdirnar sem um ræð-
ir hafa miðað að því að færa nýtingu
þessarar miklu orku nær uppruna-
staðnum. Upphafsmenn verkefnisins
eru bændurnir í Deildartungu, bræð-
urnir Dagur og Sveinn Andréssynir
og fjölskyldur þeirra, sem ákváðu að
byggja upp náttúrulaugar á jörð sinni
og bjóða gestum að njóta kraftsins og
orkunnar frá hvernum með ein-
stæðum hætti.
Mikil viðbrögð eftir opnun
Eftir langan aðdraganda opnaði
fyrirtækið Krauma dyr sínar og laug-
ar fyrir gestum í nóvember síðast-
liðnum og viðbrögðin hafa ekki látið á
sér standa að sögn Jónasar Friðriks
Hjartarsonar, framkvæmdastjóra
fyrirtækisins.
„Viðtökurnar hafa verið hreint
ótrúlegar og fjöldi gesta hefur reynst
meiri en við gerðum ráð fyrir. Þá
sjáum við einnig á bókunum í sumar
og fram á haust að viðtökurnar eru
mjög góðar.“
Hann segir að það hafi komið sér
skemmtilega á óvart hversu hátt hlut-
fall Íslendinga sé af gestafjöldanum.
„Einhverjir hefðu haldið að stað-
urinn höfðaði fyrst og fremst til er-
lendra gesta en um páskana voru Ís-
lendingar um 80% gestanna. Það er
ekki ósennilegt að það hlutfall verði
talsvert lægra, ekki síst yfir sumar-
tímann en það gefur samt ákveðna
mynd af því að áhuginn hér heima er
til staðar,“ segir Jónas Friðrik. Hann
bendir einnig á að fyrirtækið komi til
móts við heimamenn og bjóði m.a.
upp á árskort fyrir þá sem hugsa sér
að sækja staðinn að staðaldri. Þannig
kostar stök heimsókn í laugarnar
3.800 krónur fyrir 17 ára og eldri en
árskort fyrir einstakling kostar
24.500 krónur. Þá geta fjölskyldur,
þ.e. tveir fullorðnir með allt að fjögur
börn undir 18 ára aldri greitt 55 þús-
und krónur fyrir hópinn og því fylgir
fullur aðgangur í heilt ár.
Komu aftur í sömu ferðinni
Spurður út í hvernig hann skynji
upplifun ferðamanna af náttúrulaug-
unum segir hann að fólk sé mjög
ánægt með útkomuna.
„Fólki finnst mjög merkilegt að
baða sig í vatni frá hvernum sem
hægt er að sjá frá laugunum og að
kalda vatnið sé sótt ofar í héraðið.
Fólki finnst það komast mjög nærri
náttúrunni við þetta.“
Hann rifjar upp sögu af banda-
rískri fjölskyldu sem sótti staðinn
heim fyrir skemmstu og varð hrifin af
laugunum og veitingastaðnum.
„Þau voru á ferð um landið og
höfðu ætlað að verja tveimur dögum
á Vestfjörðum. Þau styttu ferðina
þangað um einn dag til að geta komið
hingað aftur og dvöldu hjá okkur í
marga klukkutíma,“ segir Jónas.
Náttúrulaugarnar hjá Krauma eru
sex talsins. Fimm þeirra eru heitar
en bjóða upp á mismunandi hitastig,
allt frá 38° og upp í 42°. Þá er ein laug
sem er aðeins 5-8° heit. Þegar blaða-
mann bar að garði hafði einn gest-
anna tekið feil á köldu lauginni og
einni hinna heitari. Hann skaust fljótt
upp lauginni og vissi vart hvaðan á sig
stóð veðrið. Jónas kippir sér ekki upp
við uppákomu af því tagi og veit að
það gerir upplifun gestanna eftir-
minnilegri.
„Gestir okkar geta ekki aðeins far-
ið á milli lauganna sex heldur geta
þeir einnig komið sér fyrir í notalegu
hvíldarherbergi sem hefur að geyma
legubekki, ljúfa tónlist og arineld.
Þaðan er einnig gott útsýni sem
mörgum þykir frábært að njóta.“
Á svæðinu eru einnig tvö gufuböð
og útisturtur. Gufuböðin eru knúin
áfram af hveravatni og ilmolíur sem
unnar eru úr íslenskri náttúru auka
enn á upplifun gesta að sögn Jónasar.
Þjónustan styður hver við aðra
Jónas segir að það hafi komið sér
skemmtilega á óvart hversu öflug
ferðaþjónustan í Borgarfirði sé að
verða.
„Hér eru mörg öflug fyrirtæki og
þau styðja í raun hvert við annað.
Þótt samkeppni sé hörð á þessum
markaði þá draga afþreyingin og
gistimöguleikarnir fólk inn á svæðið
og eftir því sem möguleikunum
fjölgar þá vill fólk einnig dvelja leng-
ur á svæðinu. Það njóta allir góðs af
því.“
Fleiri Íslendingar en búist var við
Náttúrulaugar í Reykholtsdal sem sækja vatn í Deildartunguhver laða nú þúsundir gesta til sín
Íslendingar voru 80% gestanna um páskana Veitingastaðurinn byggir á afurðum úr héraðinu
Stöðugur straumur Jónas Friðrik Hjartarson segir viðtökur Krauma hafa farið fram úr sínum væntingum.
Horft frá laugunum Í suðri ber fyrir augu Snældubjörg og Kroppsmúla.
Fjær má svo í góðu skyggni greina hina tignarlegu Skarðsheiði.
Krauma réð til sín yfirmatreiðslu-
meistara að nafni Björn Ágúst
Hansson sem hefur lagt metnað í
spennandi og frumlegan matseð-
il. Veitingastaðurinn rúmar um 70
gesti og um 60 manns á útipalli
þegar viðrar til. Jónas Friðrik seg-
ir að leiðarljós þeirra hafi verið
að notast við hráefni úr héraðinu
og þannig kallist það á við hvera-
vatnið úr Deildartungu og krist-
altært og jökulkalt vatnið frá Oki
sem flæðir í náttúrulaugarnar.
Meðal þess sem gestir geta
gætt sér á er forréttaplatti sem
hefur að geyma afurðir frá geita-
búinu á Háafelli. Það er rósmarín-
reykt og blóðbergsgrafið geita-
kjöt, geitapylsa og fetaostur úr
geitamjólk.
„Við bjóðum einnig upp á salat,
jarðarber og kryddjurtir frá Sól-
byrgi, laufeyjaís frá Brekkukoti og
gulrætur og tómata úr Víðigerði.
Þá er laxinn frá Eðalfiski og ham-
borgararnir úr kjöti frá Mýra-
nauti. Svo fannst mér nauðsyn-
legt að hafa bjórinn Bola á krana
enda er hann bruggaður úr byggi
í Borgarfirði,“ segir Jónas.
Þá notast Krauma við eldivið
úr skógræktinni í Hvammi í
Skorradal í arinn hvíldarherberg-
isins.
Hráefnið sótt heim í hérað
GEITAAFURÐIR FRÁ HÁAFELLI MEÐAL RÉTTA Á MATSEÐLINUM
Geit Afurðirnar frá Háafelli hafa vakið mikla athygli á matseðlinum hjá Krauma.
Laugavegur 61 I Kringlan I Smáralind I sími 552 4910 I www.jonogoskar.is