Morgunblaðið - 12.04.2018, Page 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2018
VIÐTAL
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Hún var að verða 19 ára og svo
sannarlega í blóma lífsins. Átti
marga vini, hafði sérlega gaman af
lífinu, var mjög virk félagslega og
hafði t.d. unnið ýmsar keppnir á
vegum framhaldsskólans síns.
Leiðin lá upp á við. Það var ekkert
sem benti til þess að þetta myndi
henda hana.
Svona lýsir móðir ungrar konu
því hvernig líf dóttur hennar var
fyrir 11 árum þegar hún veiktist af
alvarlegum kvíðasjúkdómi. Síðan
þá hefur líf mæðgnanna ekki verið
samt og móðirin gagnrýnir stöðu
geðheilbrigðismála hér á landi og
segir að bjóða þyrfti upp á fjöl-
breyttari meðferðir en nú er gert.
Móðirin vill ekki láta nafns síns
getið af tillitssemi við dóttur sína,
en veitir viðtalið í samráði við
hana. Hún er geðhjúkrunarfræð-
ingur og hefur áratugalanga
reynslu af störfum í geðheilbrigðis-
kerfinu. „Ég hef unnið með geð-
sjúkum í mörg ár en það var ekki
fyrr en dóttir mín veiktist að ég
áttaði mig til fulls á því hversu
gríðarlega alvarlegir þessir sjúk-
dómar eru.“
Veiktist á ferðalagi erlendis
„Þegar dóttir mín var 19 ára fór
hún í mánaðarlangt ferðalag. Þeg-
ar hún var komin á áfangastað fór
hún að finna fyrir einkennum
kvíða, en hún var mjög flughrædd
og var hrædd um að komast ekki
aftur heim. Hún óttaðist að flug-
vélin myndi hrapa,“ byrjar móðirin
frásögn sína. „Þegar hún kom síð-
an á gististaðinn helltist fyrsta
kvíðakastið yfir hana, hún náði
ekki andanum, henni fannst eins
og hnífi væri stungið í magann og
hringdi hágrátandi í mig.“
Móðirin segir að þarna hafi hug-
urinn tekið völdin, hugsunin um að
komast ekki heim til sín aftur
magnaðist og stúlkan gat hvorki
borðað né sofið. „Ég hafði strax
samband við fólk á staðnum og
óskaði eftir lækni. Það tók nokk-
urn tíma og það virtist vera lítill
skilningur á ástandinu, heldur var
þetta afgreitt sem heimþrá.“
Móðirin var í stanslausu sam-
bandi við dóttur sína þessa fyrstu
daga, en stúlkan var staðráðin í að
harka af sér og halda sig við áætl-
anir sínar um ferðalagið. Kvíðinn
jókst þó dag frá degi og eftir um
tvær vikur fór fjölskyldan út og
sótti hana. Þá var hún komin með
alvarlegar þráhyggju- og sjálfs-
vígshugsanir og ætlaði ekki að
þora að stíga upp í flugvél. Móðirin
segir að ekki hafi verið hægt að
merkja á útliti dóttur sinnar að
neitt amaði að henni. „Ytra borðið
var eins og hjá venjulegri 19 ára
stelpu. En að innan var hún sund-
urtætt og hrædd. Hún réði ekki
við hugsanir sínar, henni leið svo
illa að hún vildi helst fá að deyja
til að fá frið frá hræðslunni og
kvíðanum,“ segir móðirin.
Þegar heim var komið skánaði
líðan stúlkunnar, en kvíðinn hélt
þó áfram að gera vart við sig og
magnaðist upp. Móðirin var sjálf-
stætt starfandi á þessum tíma og
segist hafa verið svo heppin að
efnahagur hennar leyfði að hún gat
verið frá vinnu og sinnt dóttur
Getty Images/iStockphoto
Leiðin lá upp á við Unga konan, sem fjallað er um í greininni, var 19 ára gömul þegar hún veiktist af alvarlegum kvíðasjúkdómi; felmtursröskun eða ofsakvíða og þráhyggjuröskun.
Er þetta sjúkdómur þeirra ríku?
Móðir lýsir þrautagöngu dóttur sinnar í geðheilbrigðiskerfinu Hefur sjálf þurft að bera mikinn
kostnað vegna veikinda dóttur sinnar Það var ekkert sem benti til þess að þetta myndi henda hana
Sundföt
2018
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena
undirfataverslun • Næg bílastæði