Morgunblaðið - 12.04.2018, Side 49

Morgunblaðið - 12.04.2018, Side 49
UMRÆÐAN 49 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2018 Það á að leggja Geðheilsu – Eftir- fylgd, bakhjarl Hugar- afls niður, núna í haust. Þetta virðist vera bjargföst ákvörð- un heilbrigðisráðherra og Heilsugæslu höf- uðborgarsvæðisins. Ég mótmæli því af öll- um kröftum. Ég mót- mæli, því þetta geð- heilsuúrræði bjargaði lífi sonar míns. Sonur minn sem núna er 36 ára veiktist alvarlega af geðsjúkdómi þegar hann var 19 ára gamall. Þá hófst ganga milli stofnana og leit að úrræðum. Innlagnir á geðdeild- ina við Hringbraut, dvöl á Kleppi, endurhæfing Reykjalundi og kynni af fleiri úrræðum sem dugðu mis- mikið. Ég var alltaf að leita að ein- hverju úrræði sem gæti gagnast syni mínum því ég trúði því að hann ætti möguleika á að ná heilsu og lifa góðu lífi. Í þessari leit minni var ég eitt sinn stödd á einum af mörgum „geð-fundum“ sem ég sótti. Þá heyrði ég fyrst í Auði Ax- elsdóttur, iðjuþjálfa, segja frá geð- heilsugæslunni sem hún veitir forstöðu og félagsskapnum Hugar- afli. Hún var að segja frá hugmyndafræðinni sem Geðheilsa – Eftir- fylgd og Hugarafl vinna eftir, bataferli og valdefling (e. recov- ery and empower- ment). Þetta var nýr tónn – ný nálgun, eitt- hvað sem hljómaði sem músík í eyrum mínum. Eftirfylgd, nokkuð sem ég hafði kallað eftir í allri meðferð sem sonur minn fékk, hafði ekki verið annað en fallegt orð á blaði. Geðheilsa – Eftirfylgd er opið úrræði. Þar skiptir ekki máli hvaða „sjúkdómsgreiningu“ fólk hefur – eða hvort það er yfir höfuð „greint“. Það þarf ekki að panta tíma, hjá Geðheilsu – Eftirfylgd og í Hugarafli er alltaf opið hús. Það má bara koma. Fólki er heldur ekki skammtaður tími til þess að ná sér. Orðið eftirfylgd hefur merkingu og innihald. Láti Hugar- aflsfélagi ekki sjá sig í einhvern tíma eða í sér heyra er haft sam- band við viðkomandi að fyrra bragði og farið í heimsókn sé þess þörf. Og það var hjá Geðheilsu – Eftirfylgd og í Hugarafli sem son- ur minn náði tökum á lífi sínu og tók ábyrgð á geðheilsu sinni. Hægt og rólega í fyrstu en með tímanum hefur hann eflst svo vel að hann hefur öðlast líf, stundar nám í há- skóla og er á lokasprettinum við að ljúka prófi. Hann hefur eignaðist góða konu, heimili og tvo glimrandi stráka. Að leggja niður heilsugæsluna Geðheilsu – Eftirfylgd er óráð. Ég skora á heilbrigðis- og velferðaryf- irvöld að sýna þann kjark og þá framsýni að láta þetta geðheilsu- úrræði lifa áfram og tryggja með fjáveitingum að það dafni. Hug- myndafræðin um bata og valdefl- ingu, sem Geðheilsa – Eftirfylgd og Hugarafl vinna eftir, virkar nefni- lega. Úrræðið sem bjargaði lífi sonar míns Eftir Þóru Gylfadóttur » Það var hjá Geð- heilsu – Eftirfylgd og í Hugarafli sem sonur minn náði tökum á lífi sínu og tók ábyrgð á geðheilsu sinni. Þóra Gylfadóttir Höfundur er upplýsingafræðingur. Árið 2014 sam- þykkti Alþingi þings- ályktun Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, þáverandi alþingis- manns, og fleiri um aðgerðir í þágu lækn- inga við mænuskaða. Ályktunin kvað á um að Ísland skyldi tala máli lækningar á sjúkdómum og sköð- um í taugakerfinu innan alþjóðastofnana. Skömmu síðar samþykkti Norræna ráð- herranefndin tillögu um að setja á fót norræna samskráningu á meðferð og rannsóknum á mænu- skaða sem Siv Friðleifsdóttir, þá- verandi alþingismaður, hafði bor- ið fram og Kristján Þór Júlíusson fylgt vasklega eftir í heilbrigðis- ráðherratíð sinni. Verkefnið er undir stjórn St. Olavs sjúkra- hússins í Þrándheimi og vinna ís- lenskir læknar að framgangi þess með læknum annars staðar á Norðurlöndum. Árið 2015 sendu 26 þúsund Ís- lendingar bréf til þáverandi að- alritara Sameinuðu þjóðanna og óskuðu eftir að aukinn skilningur á því hvernig taugakerfið starfar yrði gerður að þróunarmarkmiði. Það gekk ekki eftir en inn í stefnuyfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna náðist að koma tilvísun um að bæta skyldi meðferðir í sambandi við taugakerfið og hef- ur Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra þrýst á að það gangi eftir. Í utanríkisráðherratíð Lilju Alfreðsdóttur lagði hún fram tillögu hjá Norrænu ráð- herranefndinni um að nefndin tæki upp ofangreinda tilvísun í taugakerfið úr stefnuyfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna og léti greina og samkeyra með gervi- greind norræna gagnabanka á taugavísindasviði. Markmiðið væri að nota gervigreindina til að leita eftir sameiginlegu mynstri í innihaldi bankanna sem mætti samnýta til aukins skilnings og færa heiminn þannig nær lækningu. Vís- bendingar um að til- lagan verði samþykkt lofa góðu og fylgir Sigurður Ingi Jó- hannsson, samstarfs- ráherra Norðurlanda, málinu eftir. Fyrir skömmu fóru fulltrúar frá Mænu- skaðastofnun Íslands til Bandaríkjanna til fundar við hóp mæðra mænuskað- aðra einstaklinga, þingmenn og fulltrúa stórra félaga sem beita sér fyrir framförum í meðferð og lækningu á mænuskaða. Boðið um þátttöku barst vegna þess að ofangreindir aðilar hrifust af þeirri pólitísku leið sem Ísland er að fara í þágu mænuskaðans/ taugakerfisins. Í kjölfarið hefur flaggskip mænuskaðans, Chri- stopher og Dana Reeve- stofnunin, lýst yfir að ótrúlega mikilvæg vinna sé unnin í þessa veru á Íslandi og að stofnunin vildi gjarnan taka þátt í henni. Eins og Mænuskaðastofnun er Reeve-stofnunin þreytt á hve seint gengur að móta lækninga- stefnu fyrir mænuskaða þrátt fyrir að mikið fjármagn sé sett í rannsóknir. Nú er næsta við- fangsefni að skoða hvort íslensk stjórnvöld sjái sér fært að þiggja boð Reeve-stofnunarinnar. Mænuskaðastofnun þakkar öll- um Íslendingum sem komið hafa að málinu kærlega fyrir hjálpina. Upplýsingar til vina taugakerfisins Eftir Auði Guðjónsdóttur Auður Guðjónsdóttir »Nú er næsta viðfangsefni að skoða hvort íslensk stjórnvöld sjái sér fært að þiggja boð Reeve-stofnunarinnar. Höfundur er stjórnarformaður Mænuskaðastofnunar Íslands og hjúkrunarfræðingur. audur@isci.is Atvinna Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is Góð þjónusta byrjar með flottu útliti. Fatnaður fyrir fagfólk Bragð af vináttu • Hágæða gæludýrafóður framleitt í Þýskalandi • Bragðgott og auðmeltanlegt • Án viðbættra litar-, bragð- og rotvarnarefna Útsölustaðir: Byko, Dýraland, Gæludýr.is, 4 loppur, Multitask, Launafl, Vélaval, Landstólpi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.