Morgunblaðið - 12.04.2018, Page 62

Morgunblaðið - 12.04.2018, Page 62
62 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2018 Hraðþrif á meðan þú bíður Hraðþrif opin virka daga frá 8-18, um helgar frá 10-17. Engar tímapantanir. Bæjarlind 2, 201 Kópavogur | SÍMI 577-4700 | bilalindin.is Verð frá 4.300,- (fólksbíll) Bíllinn er þrifinn létt að innan á u.þ.b. 10 mínútum. Við bjóðum uppá glæsilegar borgir allt árið í A-Evrópu. Tilvalið fyrir hópa, fyrirtæki og einstaklinga. Veldu tímann og farðu þegar þú vilt 2, 3, 4 daga eða lengur. Verðlag er hagstætt bæði í mat og drykk. Þá er hægt að gera góð kaup í hinum ýmsu verslunum og mörkuðum. Við bjóðum uppá skoðunarferðir fyrir hópa og fyrirtæki, svo og kvöldverði/veislur í höllum, köstulum eða húsum frá miðöldum. Getum boðið mjög gott verð á flugi, hótelum og rútu, svo og íslenskan fararstjóra ef þess er óskað. www.transatlantic Sími 588 8900 GLÆSILEGAR MIÐALDA BORGIR Í A-EVRÓPU Ein af fallegri borgum Evrópu, hún er þekkt fyrir sínar glæsibyggingar sem margar eru á minjaskrá Unesco, forna menningu og spa/heilsulindir. Búdapest hefur verið kölluð heilsuborg Evrópu en baðmenningu Ungverja má rekja hundruðir ára aftur í tímann. Þar hefur í árhundruði blandast saman ýmis menningar- áhrif sem gerir borgina svo sérstaka. Flogið er tvisvar í viku allt árið. Hansaborgin Gdansk er elsta og fallegasta borg Póllands, saga hennar nær aftur til ársins 997. Þetta er borg með mikla sögu en hún var helsta vígi Hansakaupmanna í Evrópu. Glæsilegur arkitektúr, forn menning og fjölmargar tónlistarhátíðir hafa gert borgina við flóann að vinsælustu ferðamannaborg Póllands. Flogið er tvisvar í viku allt árið. Miðaldaborg frá 12. öld. Gamli og nýji tíminn mætast í borg sem ekki á sinn líka. Gamli bærinn er frá árinu 1201 og er verndaður af Unesco. Þar ber hæst kastalinn í Riga, kirkja Sankti Péturs og Dómkirkjan. Gamli bærinn í Riga er virkilegt augnayndi hvert sem litið er og setur borgina á stall með fallegri borgum Evrópu. Flogið er tvisvar í viku allt árið. RIGA Í LETTLANDI GDANSK Í PÓLLANDI BÚDAPEST NOKKUR DÆMI UM BORGIR SEM VIÐ BJÓÐUM UPPÁ Vikuferðirsumarið 2018frá 125.000 kr.á mann í 2ja manna herb. Logi Bergmann islandvaknar@k100.is Í úrslitum kepptu Ragnar Ey- þórsson, sem hefur helst iðkað list sína undir @raggiey á Twitter og Ólafur Teitur Guðnason, sem hefur mest tjáð sig á Facebook. Úrslitin réðust í bráðabana en hér má sjá meistarataktana í þess- ari óvenjulega keppnisgrein: Af hverju notaði nemandinn reglustikuna? – Hún lá beinast við Á jörðinni leynist haf. Það er bara fyrir þá ríku og þá sem eru hærra settir. – Það er Yfiraðrahafið Hvað borða hnefaleikarar? – Rotvarnarefni Bróðir Richard Gere. Hvað heitir hann? – Annar Gere Hvað kallast kókaínsjálfsali? – Instagram Félagi minn var að færa áfeng- ishirsluna mína og missti hana. – Þá slettist uppá vínskápinn Hvað sögðu pizzurnar sem fest- ust í skafli? – Margar ýta Ég er að lesa sögu um stríðsguð. Hann var 100 ár að klæða sig í brókina. – Sannkölluð skálmöld Hvað var vandamálið með prjónakonuna? – Henni þótti lopinn góður Vinur minn er fíkill. Hann er háður því að láta fólk halda í hönd- ina á sér og draga sig áfram. – Hann er mjög langt leiddur Hvað var vandamálið með slátr- arann? – Hann var alltaf að hringja sig inn vegan Mikið er ég þreyttur á þessum rafboðum sem koma í heilanum á mér. – Þau fara svo í taugarnar á mér Hvað var vandamálið með rak- arann? – Hann var á gráu svæði Mér fannst eitthvað athugavert við krydd í ísskápnum. Það aðskildi hin kryddin og braut á mannrétt- indum þeirra. – Þetta var Norður-kóríander Hvað hét sælgætisverksmiðjan sem gömlu kallarnir stofnuðu? – Afar gott Vitið þið af hverju það er hættu- legt að sötra mjólk beint af spena á stórri kú? – Það er háspena lífshætta Voruð þið búin að heyra um kon- una sem skildi við plötusnúðinn? – Hún fékk lítið fyrir sinn snúð Vitið þið af hverju Terminator tapar aldrei gögnunum sínum? – Alltaf að vista Hvað var vandamálið með stærð- fræðingana? – Þeir voru alltaf að deila Ég ætla að búa til hátísku sjúkrahús. Finnsk hönnun. – Spiittala Svo var það vandamálið hjá Kodak með gölluðum filmurnar sem þeir ætluðu að afturkalla. – Þeir rugluðust og framkölluðu þær Þegar ég sá Harry Potter reyndi ég að nota hnífapör sem töfra- sprota. Það gekk ekki. – Svo fann ég breytingaskeið. Af 24 bröndurum fengu 19 stig. Þið getið reynt að giska á hvaða brandarar það voru eða skoðað myndbrotið frá keppninni á K100.is. Ólafur Teitur skoraði á Baldvin Jónsson sem næsta andstæðing fyrsta Íslandsmeistarans í fimm- aurabröndurum. Við eigum eftir að sjá hvort hann tekur þeirri áskor- un. Íslandsmeistari eftir bráðabana Á þriðjudaginn fór fram fyrsta Íslandsmótið í fimmaurabröndurum í morg- unþættinum Ísland vaknar á K100. Logi, Rikka og Rúnar Freyr fengu til sín tvo keppendur sem börðust um hlátur. Það er skemmst frá því að segja að keppn- in var gríðarlega hörð og keppendur báðir stóðu sig með prýði. Morgunblaðið/Rúnar Freyr Brandarakarlar Það var mikið hlegið þegar fimmaurarnir flugu á K100. Friðrika Hjördís Geirsdóttir rikka@k100.is „Þetta eru ekki heimsóknarþættir,“ segir Berglind Berndsen innanhúss- arkitekt og umsjónarkona þáttaraðar- innar Strúktúr sem hóf nýverið sýn- ingu sína í Sjónvarpi Símans. „Við lögðum upp með að búa til fag- lega þætti um fólkið okkar, hönnuðina okkar, arkitekta okkar og kynnast þeim og verkum þeirra.“ Þættirnir eru átta talsins þar sem rætt er við valda hönnuði, áhorfendur fá að kynnast verkum þeirra og vinnubrögðum; hvaðan þeir sækja innblástur og örv- un, hverjir eru áhrifavaldar og hvað hrífur þá. „Málið er að við eigum svo flott fólk, flotta hönnuði og arkitekta en ég er ekki viss um að margir viti af því, nema kannski við sem erum í geir- anum.“ Láttu heimilið vera Berglind er sjálf mörgum kunn enda þekkt í heimi innanhússhönn- unar hér á landi. Aðspurð hvaða hönn- unarstíl hún heillist helst af segist hún vera sannur mínimalisti. „Ég myndi segja að stíllinn minn væri frekar skandinavískur, tímalaus, áreynslu- laus og hlýlegur. Einfaldleiki og tíma- leysi er hinn fullkomni grunnur fyrir mér.“ Berglind er óhrædd við að breyta og bæta heima hjá sér og fær þá oftar en ekki hugmyndaflugið að ráða för við misjafnar undirtektir heimilisfólks. „Maðurinn minn er með góðan punkt þegar ég segi: „Já, mig langar svolítið til að fara að mála hérna, breyta þessu eða kaupa þetta.“ Þá segir hann bara að í fyrsta lagi sé heimilið orðið eins og lampabúð og í öðru lagi að ég skuli leika mér annars staðar, láta heimilið vera.“ Berglind fann aftur á móti fína lausn við þessum athugasemdum eiginmannsins og fékk málara til að mála svefnherbergi þeirra hjóna með þeim skilyrðum að hann myndi mæta eftir að maðurinn hennar færi í vinnuna og væri farinn áður en hann kæmi heim. „Þetta tókst ekki alveg því maðurinn minn hafði gleymt einhverju heima og sá auðvitað málarann inni í svefnherbergi.“ Þegar Berglind er spurð út í hvort framhald verði á þáttunum segir hún að of snemmt sé að segja til um það enn sem komið er. Alla átta þættina af Strúktúr má finna í Sjónvarpi Símans. Ljósmynd/Axel Sigurðarson Áhrifavaldar Íslands „Þetta eru ekki heimsóknarþættir,“ segir Berglind Berndsen innanhússarkitekt og umsjónarkona þáttaraðarinnar Strúktúr sem hóf nýverið göngu sína í Sjónvarpi Símans.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.