Morgunblaðið - 12.04.2018, Qupperneq 65

Morgunblaðið - 12.04.2018, Qupperneq 65
MINNINGAR 65 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2018 ✝ SigurbjörgSímonardóttir fæddist í Borgar- firði 30. október 1941. Hún lést á krabbameinsdeild Landspítalans 29. mars 2018. Foreldrar Sigur- bjargar voru hjón- in Símon Teitsson úr Borgarfirði, f. 22.3. 1904, d. 13.4 1987, og Unnur Bergsveins- dóttir úr Flatey, f. 24.7. 1913, d. 7.8. 1992. Systkini Sigurbjargar eru Örn Ragnar, f. 1934, Teitur, f. 1937, Sigrún, f. 1939 og Berg- sveinn, f. 1945. Sigurbjörg giftist 7. ágúst 2002, 3) María S. Sigurðardóttir Collaud, f. 16.2. 1974, gift Oli- vier Collaud, börn þeirra eru: a) Karmen Andrea, f. 2005, b) Kar- ólína Katla, f. 2006. Sigurbjörg og Sigurður hófu búskap í Árbæ en fluttu til Hafnarfjarðar 1972 og hafa átt þar heimili síðan, að Miðvangi 16. Sigurbjörg fæddist á Grímar- stöðum í Borgarfirði en ólst upp í Borgarnesi þar sem hún lauk hefðbundinni skólagöngu. Hún flutti vorið 1959 til Reykjavíkur og stundaði nám við Húsmæðra- skólann. Vann síðan ýmis versl- unarstörf og á Morgunblaðinu. Sigurbjörg hóf störf hjá Apó- teki Norðurbæjar 1980 og starf- aði þar til 2000 þegar hún færði sig yfir til Lyfju þar sem hún vann til 2011. Útför Sigurbjargar fer fram frá Víðistaðakirkju í dag, 12. apríl 2018, og hefst athöfnin kl. 15. 1965 Sigurði Ósk- arssyni, f. 10. nóv- ember 1941. For- eldrar hans voru Óskar Sigurðsson, f. 27.7. 1907, d. 20.3. 2003 og María Friðfinnsdóttir, f. 18.7. 1900, d. 23.5. 1973. Börn Sigur- bjargar og Sig- urðar eru: 1) Unn- ur, f. 30.1. 1966, börn hennar eru: a) Sigurbjörg Nanna, f. 2000, b) Hanna María, f. 2004. 2) Óskar, f. 23.8. 1970, kvæntur Rakel Pálsdóttur, börn þeirra eru: a) Stefanía Ósk, f. 1990, b) Sigurður, f. 1994, c) Saga, f. Það er þyngra en tárum taki að skrifa minningargrein um þig, elsku mamma okkar. Þú varst fyrirmynd okkar, stoð og stytta, veittir okkur ást og bjóst okkur heimili þar sem við fundum fyrir öryggi og hlýju. Þú kenndir okkur að umgangast bæði fólk og umhverfi okkar af virðingu og umhyggju og sagðir okkur að það fengjum við marg- falt til baka. Þú varst góð við alla í kringum þig, vildir öllum hjálpa og bros þitt var smitandi og ein- lægt. Þú vildir að við nýttum hæfileika okkar og að við gerðum ávallt okkar besta í því sem við tókum okkur fyrir hendur. Fjölskyldan var þín mesta gleði og hana vildir þú hafa nærri, ekki síst barnabörnin, og því sem þú gafst þeim búa þau að alla ævi. Minningarnar eru óteljandi, samvera fjölskyldunnar hvar sem við vorum, gleðistundir, hlátur og skemmtilegheit. Þér fannst gam- an að gera þér glaðan dag en lagðir áherslu á að allt væri best í hófi og að best væri að flýta sér hægt í þeim efnum. Að njóta sam- an voru orð sem við oft heyrðum og eftir því munum við lifa. Bros þitt og lífsgleði mun fylgja okkur áfram í lífinu. Við þökkum fallegu mömmu okkar fyrir allt. Guð geymi þig, elsku mamma. Unnur, Óskar og María. Það er mikil gæfa að eiga sam- ferð með góðu fólki í lífinu. Sibba tengdamóðir mín er ein af þeim manneskjum sem ég hef verið svo lánsöm að eiga að í hartnær þrjá- tíu ár. Í lífsgleði hennar, já- kvæðni, góðmennsku og réttsýni fann ég sterka fyrirmynd. Hún var einstaklega hlý, kom jafnt fram við alla og hafði óbil- andi trú á því góða í heiminum. Hún fyllti líf fjölskyldunnar birtu með kærleika sínum, ást og gleði. Ég er Sibbu ævarandi þakklát fyrir allt sem hún gaf mér og börnum okkar Óskars og kveð hana með hlýju og djúpum sökn- uði. Rakel Pálsdóttir. Elsku besta amma okkar. Það er óraunverulegt að hugsa til þess að þú sért farin. Eitt það fyrsta sem ég hugsa um þegar eitthvað kemur upp í lífinu, stórir sem og smáir atburðir, er að tala við þig. Við vorum ólýsanlega heppin að eiga þig að sem ömmu og vinkonu. Það sem upp úr stendur þegar við tölum um þig og rifjum upp skemmtilegar minningar er gleði, þú varst alltaf svo ótrúlega glöð. Þú kenndir okkur að lifa lífinu með bros á vör og kærleik í hjarta. Þú kenndir okkur líka að bera virðingu fyrir lífinu í kringum okkur og sýna þolinmæði því þú hafðir alltaf ótakmarkaða þolin- mæði gagnvart okkur. Það er ótrúlega erfitt að koma því í orð hversu sárt við munum sakna þín og hversu innilega okkur þykir vænt um þig og allt sem þú gafst okkur. Við verðum þér að eilífu þakklát og munum minnast þín með kærleika og gleði. Takk fyrir að hlusta alltaf á það sem við höfðum að segja. Takk fyrir að syngja með okkur endalaust. Takk fyrir að segja okkur söguna af Karíusi og Baktusi í hvert ein- asta skipti sem við burstuðum tennurnar hjá þér. Takk fyrir að gefa okkur svona margar minn- ingar til að gleðjast og brosa yfir. Takk fyrir að elska okkur. Elsku amma, þú verður alltaf með okkur. Fram í heiðanna ró fann ég bólstað og bjó, þar sem birkið og fjalldrapinn grær. Þar er vistin mér góð, aldrei heyrðist þar hnjóð, þar er himininn víður og tær. (Friðrik A. Friðriksson) Stefanía, Sigurður og Saga. Elsku amma mín. Ég get ekki talið hvað ég á margar minningar með okkur tveimur saman eitthvað að stúss- ast og það er ólýsanlega erfitt að þurfa að kveðja þig núna því ég veit að þú varst ekki tilbúin að fara núna og þú ætlaðir að koma í ferminguna mína. En ég ætla bara að segja hvað ég er þakklát fyrir að hafa fengið að eiga þig sem frábæra, skemmtilega og fríska ömmu og ég var svo sann- arlega ekki tilbúin að kveðja þig strax. Ég elska þig meira en allt i heiminum og ég veit að þú verður alltaf með mér í hjartanu og í öll- um minningunum okkar í Hafn- arfirði, bústaðnum og alls staðar þar sem við vorum. Takk, elsku amma, fyrir hvað þú varst alltaf góð við alla og gaman alltaf þegar ég kom til ykkar afa í pössun. Ó, elsku amma, ég elska þig alltaf. Ást, þín, Hanna María. Elsku amma mín. Þú sem varst fyrirmyndin mín. Ég er svo stolt að bera sama nafn og þú, amma. Þú varst svo sterk, flott og góðhjörtuð kona sem vild- ir öllum vel. Ég mun aldrei gleyma minningunum okkar sem við eigum saman, þær eru svo ótal margar og eru þær allar skemmtilegar. Allar bústaðaferð- irnar okkar, útlandaferðir og seinast en ekki síst þegar ég kom að gista hjá þér og afa. Mér fannst fátt skemmtilegra en að punta þig og gera þig fína. Þú varst einstaklega sterkur per- sónuleiki og skein hann alltaf í gegn, sama hvað þú varst að gera. Það þykir öllum vænt um þig, elsku amma, og það mun alltaf einhver hugsa til þín á hverjum degi. Það var aldrei leiðinleg stund þegar þú varst nær og þú komst mér alltaf í gott skap og lést mig alltaf hlæja ef mér leið illa. Mér líður stundum eins og ég hafi verið fædd sérstaklega til að verða eins og þú og það er því sannkallaður heiður að bera nafn- ið þitt. Þú varst einstakur karakt- er og er ólýsanlega sárt að missa þig. Ég veit að þú munt alltaf passa upp á mig og þú verður allt- af hjá mér. Hvíldu í friði, elsku amma mín, ég elska þig alltaf. Þín, Sigurbjörg (Sibba) litla. Að heilsast og kveðjast það er lífsins saga. Við vinkonurnar áttum yndis- legan vin, hann Didda, Sigurður heitir hann fullu nafni. Lífið var rétt að byrja, við öll ung og áköf, og við harðtrúlofaðar. Aðal- áhyggjuefnið hjá okkur var: hvernig verður stúlkan sem Diddi vinur velur sér? Og tíminn leið. Einn góðan veðurdag mætir hann með þessa líka glæsistúlku upp á arminn og kynnir fyrir okkur. Hún er úr Borgarnesi, sagði hann og ljómaði – hún heitir Sigur- björg Símonardóttir og er kölluð Sibba. Við þurftum ekki að hafa áhyggjur, við heilsuðum Sibbu sem samstundis féll inn í hópinn okkar og við pörin þrjú hófum okkar lífsgöngu saman sem aldrei bar skugga á. Nú er komið að því að kveðja. Þá er ljúft og dýrmætt að rifja upp allar góðu stundirnar og alla ómetanlegu vináttuna. Í mörg ár hittumst við alltaf á laugardags- kvöldum til skiptis hvert hjá öðru – þá var glatt á hjalla. Við fórum í sumarbústaðaferðir – fyrst í bú- staði foreldra, seinna í okkar eig- in og alltaf gaman. Núna seinni árin höfðum við það þannig að hittast einu sinni í mánuði heima hjá hvert öðru og borða saman. Ekki sveik maturinn hennar Sibbu, sem var áhugamanneskja um góðan mat, einfaldur matur varð að veislumat í hennar hönd- um. Áföngum var fagnað og stað- ið þétt saman ef á þurfti. Og Sibba hans Didda varð vinkonan okkar kæra. Björt og öflug var hún – náttúrubarn sem elskaði að vera í sveitinni sinni, Borgarfirði. Mikil mamma og mikil amma og þau hjónin samstiga. Við munum sakna Sibbu vinkonu okkar en þökkum um leið fyrir vináttuna árin öll og óskum henni góðrar ferðar. Ólafía Sveinsdóttir og Þorbjörg Valdimars- dóttir (Polla og Tobba). Septembermorgunn árið 1959. Ungar stúlkur sáust ganga hik- andi upp breiðar tröppur glæsi- legs húss við Sólvallagötu 12. Þetta var Húsmæðraskóli Reykjavíkur. Sumar roguðust með þungar töskur, pinkla og út- troðna sjópoka. Þær gengu inn í anddyrið, staðnæmdust og litu í forundran á glæsilegar marmara- skreytingarnar á veggjunum, með fossum og landslagi. Breiður stigi með marmarafótstigum leiddi upp á hæðina fyrir ofan. Hvílík flottheit. Við vorum níu stúlkur sem fengum inni á Hávallagötu 17. Þar var okkur skipað í 2-3 manna herbergi. Við komum dótinu okk- ar fyrir, heilsuðumst spenntar og hlógum. Þennan dag á Hávallagötunni var lagður grunnur að áratuga langri vináttu okkar. Við urðum trúnaðarvinkonur og stofnuðum seinna saumaklúbbinn Hávell- urnar sem hefur staðið í tæplega sex áratugi. Húsmæðraskólinn hafði djúp- stæð áhrif á okkur allar. Í skól- anum ríkti virðing, kurteisi, tillits- semi og áhersla á vönduð vinnubrögð. Sigurbjörg eða Sibba, eins og við kölluðum hana alltaf, blómstr- aði í verkefnum skólans í vefnað- inum, saumaskapnum og mat- reiðslunni. Sibba okkar var glaðvær, ein- staklega vönduð og samviskusöm í alla staði. Og oft var rætt um skólann okkar í saumaklúbbnum. Hún tók undir hvað skólinn hefði gert okkur gott og hve ljúft það hefði verið að þar eignuðumst við vinkonur til lífstíðar. Sibba var hamingjusöm kona. Hún eignaðist yndislega fjöl- skyldu. Og það var alltaf tilhlökk- un að koma á heimili hennar og Sigurðar mannsins hennar. Það var því okkur mikil sorg þegar Sibba tjáði okkur seint á síðasta ári að hún væri haldin sjúkdómi sem erfitt væri að lækna. En við eignuðumst von, því í fyrsta saumaklúbbnum okk- ar á þessu ári birtist hún svo glöð og léttstíg að vanda. Hún tjáði okkur að hún væri byrjuð í með- ferð og allt virtist ganga svo vel. Þessi elskulega skólasystir okkar hefur nú verið hrifin frá okkur og eftir sitjum við Hávell- urnar hnípnar. En minningin um elskulega vinkonu mun fylgja okkur alla tíð. Að nýliðnum páskum kveðjum við elsku Sibbu með ljóðinu Páskaliljur eftir Vilborgu Dag- bjartsdóttur: Morguninn eftir komu konurnar til þess að gráta við gröfina. Og sjá: Þær fundu gul blóm sem höfðu sprungið út um nóttina. Vorið var komið þrátt fyrir allt. Það er ekki sjálfgefið að vinátta endist í næstum sex áratugi. Við erum þakklátar fyrir vináttuna og samfylgdina öll þessi ár. Það þökkum við nú að leiðarlokum og vottum elskulegri fjölskyldu hennar innilega samúð. Ása, Dröfn, Ester, Guðrún Sigríður (Gunna Sigga), Jó- hanna, Ólöf og Guðrún Ingi- björg (Inga Gunna). Svo létt og kvik á fæti, svo brosmild og glaðleg, svo kærleiks- rík og falleg að innan sem utan. Þannig var hún Sibba okkar, sem nú hefur kvatt þetta jarðlíf eftir stutt en erfið veikindi, allt of snemma. Hún mætti í fyrsta leikfimitím- ann fyrir 32 árum og hefur verið samferða okkur síðan þá og svo síðar með Fjallafreyjunum þegar þær hófu göngu sína. Á leikfimigólfinu svífandi létt sem fjöður og trítlandi upp fjöllin eins og ekkert væri, þótt hún væri komin hátt á áttæðisaldur. Sibba hugsaði vel um sál og lík- ama, var ákaflega gefandi, hugs- aði vel um fjölskylduna sína og ræktaði garðinn sinn bæði í eig- inlegri og óeiginlegri merkingu. Sumarbústaðurinn hennar og Didda í Borgarfirðinum þar sem hún dvaldi löngum stundum með fjölskyldunni og barnabörnunum var henni mjög dýrmætur og veitti margar ánægjustundir Við eigum góðar minningar frá ótal samverustundum í gegnum árin. Í leikfimisalnum og kaffi- stundinni á eftir, þar sem leyfi- legt var að fá sér einn súkku- laðimola með kaffibollanum, vegna þess að við vildum líka vera til og njóta. Þar var skipst á sög- um af ferðalögum og fjölskyld- unni, en Sibba var dugleg við að heimsækja dóttur sína og barna- börn til Frakklands og naut þess vel. Svo voru það gönguferðirnar með Fjallafreyjunum en hún var ein af stofnendum þeirra árið 1995. Markmið þeirra var útivera og fjallgöngur, en hún var mikill náttúruunnandi og útivistarkona. Minningarnar um samveruna í jólaföndrinu, jólakaffinu, þorra- göngunum, leikfiminni, jógatím- unum, með Fjallafreyjunum og hugleiðslu- og bænahópnum Ljóskjarnanum eru svo dýrmæt- ar þegar að þessum tímamótum kemur. Heimsókn Fjallafreyj- anna til þeirra hjóna í sumarbú- staðinn í Borgarfirðinum fyrir nokkrum árum var líka einkar ánægjuleg en þar var sko tekið vel á móti okkur. Við vottum fjölskyldunni allri okkar dýpstu samúð og kveðjum Sibbu okkar í þeirri fullvissu að hún hafi átt góða „heimkomu“ þar sem hún dvelur nú í ljósinu eilífa. F.h. Fjallafreyja, Sigríður Skúladóttir. Sigurbjörg Símonardóttir „Það verður svo hreint og fínt í hest- húsinu að hægt verður að ganga þar um á spariskónum,“ sagði hugsjónamaðurinn hann afi okkar fyrir langalöngu, því eng- inn var atorkusamari, hugmynda- ríkari og vinnusamari en hann Maggi á Úlfsstöðum. Við vorum fastagestir þar á bæ og þótti ekki leiðinlegt að fá að taka þátt í alls konar verkefnum. Sú vinátta sem okkur var sýnd á Úlfsstöðum gerði að verkum að við bundumst öll sterkum böndum. Svo sterkum að við urðum og erum fjölskylda. Það var okkar heppni, því betri afa og ömmu gátum við ekki feng- ið. Elsku afi. Við vitum að þú ert hvíldinni feginn, en það gerir þessa kveðjustund ekki léttari. Þú áttir langt og bjart líf, fullt af þeim vinalegu brosum sem aðeins þú gast gefið, faðmlögum og glettnislegum augnaráðum. Bros- ið sem við fengum þegar við kysstum þig á kinnina mun alltaf lifa í hjarta okkar. Takk fyrir fé- lagsskapinn, grallaraskapinn og kennsluna. Takk fyrir hestana og lömbin, að leyfa okkur að prófa að keyra húsbílinn og MSU, halda afmælisboð í sumarbústöðunum, Magnús Sigurðsson ✝ Magnús Sig-urðsson fædd- ist 5. nóvember 1928. Hann lést 24. mars 2018. Útförin fór fram 4. apríl 2018. hjálpa til í heyskap, vera með á Einars- stöðum, leyfa okkur að veiða í vatninu, bíltúrana upp í Sauðhaga, sögurnar, lúrana, frímerkin, gjafirnar og allar stundirnar sem við áttum saman – sum- ar hversdagslegar að borða rækjusalat og súkkulaðirúsínur og aðrar frá messunni á jóladegi að horfa á ömmu syngja. Takk fyrir að sýna okkur þá fallegu og sterku ást sem þú barst til hennar Siggu þinnar. Elsku amma, stórt er skarðið sem afi lætur eftir sig og því mið- ur ekki lengur hægt að svipast eftir honum með kíki frá eldhús- glugganum á Úlfsstöðum. En hann mun lifa áfram í minningum okkar og kærleika. Sofið er ástaraugað þitt sem aldrei brást að mætti mínu; mest hef eg dáðst að brosi þínu, andi þinn sást þar allt með sitt. Slokknaði fagurt lista ljós. Snjókólgudaga hríðir harðar til heljar draga blómann jarðar. Fyrst deyr í haga rauðust rós. (Jónas Hallgrímsson) Svandís, Sigurbjörg, Bjarni, Steinar og Guttormur. Minn gamli húsbóndi í 10 sum- ur er genginn, saddur lífdaga. Ég kom fyrst á Úlfsstaði sex ára sum- arið 1967 með móður minni, stjúpa og þremur bræðrum. Ekið var frá Siglufirði austur á hérað á Ford Cortinu. Enginn í belti og reykt í bílnum. Við guttarnir vor- um allir bílveikir. Af hverju veit ég ekki. Minnir að stoppað hafi verið í hálfan mánuð þetta fyrsta sumar mitt á Úlfsstöðum. Svo frá sjö ára aldri var ég sumarlangt á Úlfsstöðum til ársins 1976. Margs er að minnast eftir þessi sumur sem í minningunni eru afskaplega góð veðurlega séð. Man varla eftir að vöknað hafi í heyi öll þessi sum- ur. Ég náði yfirleitt nógu snemma austur á vorin til að koma fénu í afrétt Vallamanna á Slenjudal. Það voru ævintýraferðir á vöru- bílnum Bjössa í Sauðhaga eða annarra gildra bænda í hreppn- um. Sumarverkin á Úlfsstöðum hjá Magnúsi og Sigríði móður- systur minni voru ákaflega fjöl- breytt. Við Hörður Guðjónsson frændi vorum saman fyrstu sumr- in mín á Úlfsstöðum. Að vori var hugað að heyvinnuvélum. Smyrja og dytta að. Magnúsi var það ekki lagið en við Hörður sáum um þau mál. Oft kom þar líka við sögu Baldur í Gúanó þegar hann og Bidda komu austur sem var reyndar mjög oft. Svo þurfti að moka úr fjárhúsunum. Það var gert með svokallaðri hestareku. Þannig var að grindurnar voru teknar af haughúsunum. Settur fleki í dyrnar. Talía í staur frammi á bakka fyrir framan húsin. Dráttartaug í rekuna og talíuna. Gamli-Nallinn, sem ennþá er til, dró hestarekuna út. Magnús stjórnaði rekunni en Höddi Nall- anum. Ég sat í glugganum og sagði Herði til. Þetta var auðvitað skítavinna en ungum strákum finnst gaman að vera skítugir. Síðan tók við heyskapur og þá var mikið að gera. Magnús var kom- inn á lappir fyrir allar aldir að gá til veðurs og slá ef honum þótti út- lit fyrir þurrk. Við vorum ræstir um áttaleytið. Fyrstu árin mín var heyinu blásið í hlöðu. Svo kom bindivél. Magnús var framsýnn og tæknisinnaður bóndi. Hann keypti færibandakerfi í hlöðuna til að létta vinnuna við baggana. Oft var glatt á hjalla í eldhúsinu á Úlfsstöðum. Góða gesti bar að garði. Bændur í sveitinni og reyndar sogaðist einhvern veginn allt fólk að þeim hjónum. Magnús var mikil eftirherma. Stundum hélt maður að marg- menni væri í eldhúsinu en þá var Magnús að herma eftir sveitung- um sínum. 1971 byggðust Einars- staðir upp. Þau hjón tóku að sér umsjón bústaðanna. Stundum bölvaði maður öllu grasinu þar sem varð að slá oft á sumri með einhverjum hobbígræjum. Einnig sáu þau um félagsheimilið Iða- velli. Ég var ekki hár í loftinu þeg- ar ég fékk að fara með þegar dansleikir voru þar. Þá var af- greitt bland úr eldhúsinu og menn með flöskur í belti eða undir borð- um. Slagsmál sá maður í fyrsta skipti þar þótt reynt væri að halda manni frá salnum og sollinum. En ungir drengir eru forvitnir og hlýða ekki alltaf fyrirmælum. Þetta eru nokkur minningabrot úr sveitinni. Elsku Sigga mín, þið Magnús óluð önn fyrir drengnum mér. Þið þurftuð ekkert að gera það en hafið kærar þakkir fyrir. Ég er betri maður fyrir vikið. Minningin um góðan dreng lifir. Valmundur (Valli).
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.