Morgunblaðið - 14.04.2018, Side 13
Morgunblaðið/Hari
Öflugur Þórir Gunnarsson, Listapúki er afkastamikill málari sem hefur gleðina að leiðarljósi hvort heldur er í myndsköpun eða lífinu.
Þórir hefur ekki tölu á þeim
myndum sem hann hefur selt en seg-
ir þær þónokkrar. Hann hefur skipu-
lag á myndunum, raðar þeim í möpp-
ur og merkir af hverjum myndin er.
„Það hefur skapast sú hefð að
þegar fólk kemur að sækja mynd-
irnar þá sé tekin mynd af því þar
sem ég afhendi listaverkið,“ segir
Þórir
Hann segist hafa teiknað
stjórnmálamenn og hitt Óttar
Proppé um daginn. Það hafi verið
gaman.
„Þegar Mosfellsbær var 30 ára
bað Hilmar sem gefur út Mosfelling,
bæjarblaðið okkar, mig að teikna
mynd af Guðna forseta sem kom í
heimsókn til okkar. Ég fékk hug-
myndina að því að mála Elizu kon-
una hans með,“ segir Þórir ánægður
með hugmyndina en myndina af-
henti hann forsetanum við komu
hjónanna í Mosfellsbæ.
„Það má alveg segja það núna af
því að jólin eru búin, en Dagur borg-
arstjóri bað mig að mála mynd af
konunni sinni sem hann gaf henni í
jólagjöf.
Þórir málar með vatnslitum á
Í sýningarskrá frá sýningu sem
haldin var í Álafosskvosinni haustið
2014 skrifar Helga Þórisdóttir, lista-
maður og menntunarfræðingur, um
verk Þóris. Hún segir að Þórir vinni í
anda næfisma. Listaheimurinn hefur
skilgreint þá sem falla undir næf-
isma sem listamenn sem í stað þess
að notast við hefðbundnar list-
fræðilegar aðferðir í listsköpun not-
ast við eigin sannfæringu og tilfinn-
ingar sem oftar en ekki eru sagðar
einkennast af barnslegri einlægni,
óvæntri litasamsetningu og frásagn-
argleði.
Þegar Þórir, sem er Mosfell-
ingur í húð og hár, eins og hann seg-
ir, er ekki að mála hleypur hann,
lyftir og fylgist með handbolta.
„Ég er búinn að hlaupa þrisvar
sinnum í Reykjavíkurmaraþoninu og
æfi hlaup með Aftureldingu. Ég hef
líka mikinn áhuga á handbolta og er í
vatnslitapappír og leggur áherslu á
að nota góð hráefni. Á meðan hann
málar hlustar hann á tónlist.
„Vilhjálmur Vilhjálmsson er
mitt uppáhald en ég hlusta líka á
klassíska músík og fleira. Ég er
alæta á tónlist og mjög músíkalsk-
ur.“
Eins og margir listamenn er
Þórir með umboðsmann.
„Ég kalla Árna Georgsson um-
boðsmann, hann er góður vinur minn
og stuðningsmaður í listinni og hefur
hjálpað mér mikið. Hann er búinn að
gera mig frægan í Mosfellsbæ, “ seg-
ir Þórir hlæjandi og bætir við aðeins
alvarlegri að hann eigi sér þann
draum að verða frægur listamaður
um allt land. Liður í því sé viðtalið í
Morgunblaðinu sem fer um allt land.
Afmælissýning Þóris stendur
yfir frá 13. apríl til 22. apríl á Hvirfli
sem er vinnustofa Þóru Sigurþórs-
dóttur, leirkerasmiðs en hún og
eiginmaður hennar Bjarki hafa stutt
Þóri í listinni.
Málar í anda næfisma
Á fésbókarsíðu Listapúkans
verða settar inn upplýsingar um
opnunartíma sýningarinnar. Sýn-
ingin er yfirlitssýning á verkum Þór-
is frá miðju ári í fyrra og verður
sýnd 21 mynd í ramma auk hugsan-
lega fleiri mynda.
Ljósmynd/Mosfellingur
Gjöf Dagur B. Eggertsson, hæstánægður með mynd af konu sinni sem hann
pantaði hjá Þóri Listapúka. Myndina færði Dagur eiginkonunni í jólagjöf.
„Ég kalla Árna
Georgsson umboðs-
mann. Hann er góður vin-
ur minn og stuðnings-
maður í listinni og hefur
hjálpað mér mikið.“
Morgunblaðið/Hari
stuðningsmannafélagi sem kallar
sig, Rothöggið,“ segir Þórir sem fer
á alla heimaleiki og reynir eins og
hann getur að komast á alla mikil-
væga útileiki. Þórir á eldri bróður,
Þormar Vigni, sem er ljósmyndari
og Þórir segist eiga fullt af vinum og
eina sérlega góða vinkonu sem heitir
Anna Helga.
Vaknar hress og í góðu skapi
„Ég er skemmtilegur og með
skemmtilegan húmor og fæ alla til
þess að hlæja að mér. Mitt lífsmottó
er að vakna alltaf hress og kátur og í
góðu skapi og það tekst alltaf, “ segir
Þórir einlægur.
Hann hefur góð ráð til þeirra
sem vilja vera hamingjusamir.
„Það er að lifa heilbrigðu lífi og
hreyfa sig á hverjum degi því þá
verður lífið skemmtilegt,“ segir Þór-
ir sem þakkar foreldrunum að hann
sé virðingarverður, vel upp alinn
ungur maður í dag. Foreldrar hans
eru Vilborg Þorgeirsdóttir og Gunn-
ar Þórisson.
„Pabbi er kallaður Dúddi eins
og í myndinni með Allt á hreinu,“
segir Þórir og skellihlær.
„Þarna sérðu karakterinn
minn,“ segir Þórir hlæjandi og bætir
við að öllum sé velkomið að panta
myndir hjá honum á fésbókarsíð-
unni, Listapúkinn.
Frægð Þórir málaði hinn eina sanna Bubba Morthens.
erutónleika þar sem kórinn spreytti
sig á perlum úr þekktum óperum og
lög eftir Sigurð Ágústsson frá Birt-
ingaholti. Eiginmaður Editar, Miklós
Dalmay, hefur verið píanóleikari kórs-
ins öll árin sem Edit hefur stjórnað
kórnum og sett sitt mark á hann.
Kórinn hefur nú fengið nýjan stjórn-
anda, Guðmund Óla Gunnarsson,
skólastjóra Tónlistarskólans á Akra-
nesi. Á fyrstu æfingu haustsins kynnti
nýi stjórnandinn fyrir kórnum nýtt æf-
ingaþema, lög úr íslenskum bíómynd-
um í útsetningum hans. Til liðs við
kórinn fengu Hreppamenn söngkon-
una Kristjönu Stefánsdóttur, Vigni Þór
Stefánsson píanóleikara, Jón Rafns-
son bassaleikara og Erik Qvick á
trommur.
Þrennir tónleikar eru framundan,
19. apríl í Guðríðarkirkju í Grafarholti,
20. apríl í Selfosskirkju og 21. apríl í
Félagsheimili Hrunamanna á Flúðum.
Allir tónleikarnir hefjast kl 20.
Glaðbeittir Karlakór Hreppamanna er skipaður hressum körlum söngglöðum.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2018
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Opið virka daga kl. 10–18, laugard. kl. 11–16
Allir velkomnir
Hrafnhildur Inga Sigurðardóttir
Boðskort
Sýningaropnun 14. apríl kl. 14
Gul viðvörun
Sýning í Gallerí Fold 14. – 28. apríl