Morgunblaðið - 14.04.2018, Síða 47
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2018
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Listamaðurinn Alfredo Esparza Torreón með tvær ljósmynda sinna í bakgrunni í galleríinu Ramskram.
FRÉTTASKÝRING
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Ég hefði gjarnan vilja halda störfum
mínum áfram, en þetta er vilji aka-
demíunnar og þess vegna kýs ég
einnig að yfirgefa stól minn,“ sagði
Sara Danius að loknum þriggja
klukkustunda löngum átakafundi
Sænsku akademíunnar (SA) í Börs-
huset í Stokkhólmi á fimmtudags-
kvöld þar sem Danius hætti um-
svifalaust sem ritari. Samtímis
dregur Katarina Frostenson sig út úr
SA. Sara Stridsberg, sem sjálf hefur
íhugað að hætta í SA, staðfestir við
Dagens Nyheter að um málamiðlun
var að ræða. „Samkomulagið fólst í
því að Frostenson hætti störfum fyrir
akademíuna, án þess að segja sig
formlega úr henni, ef Danius hætti
sem ritari,“ segir Stridsberg.
Hefur kóngur vald til að breyta?
Með brotthvarfi Danius og Frost-
enson eru alls sjö af 18 sætum SA
auð. Sökum þess að meðlimir eru
skipaðir ævilangt af Svíakonungi
samkvæmt kosningu SA sjálfrar
verður ekki hægt að fullmanna SA
um ókomin ár nema Karl XVI. Gústaf
breyti stofnsáttmálanum með kon-
unglegri tilskipun, en að mati lög-
mannsins Peters Fröberg Idling er
alls ekki sjálfgefið að kóngur hafi
slíkt vald, enda sé enga slíka heimild
að finna hvorki í sænsku stjórnar-
skránni né öðrum lögum landsins.
Samkvæmt núgildandi reglum SA
þarf 12 atkvæði sitjandi meðlima til
að taka allar meiriháttar ákvarðanir,
svo sem að kjósa inn nýtt fólk.
Eins og fjallað hefur verið ítarlega
um í Morgunblaðinu síðustu vikuna
má rekja það ófremdarástand sem nú
ríkir innan SA, sem ár hvert veitir
Nóbelsverðlaunin, til ásakana þess
efnis að Jean-Claude Arnault, eigin-
maður Frostenson, hafi í nokkra ára-
tugi áreitt fjölda kvenna kynferðis-
lega, ítrekað lekið nafni komandi
Nóbelsverðlaunahafa og átt óeðlileg
fjárhagsleg tengsl við SA, sem styrkti
m.a. bókmenntaklúbbinn Forum sem
Arnault og Frostenson hafa rekið. Í
úttekt sem lögfræðistofan Hammar-
skiöld & Co vann fyrir SA var mælt
með því að Arnault yrði kærður til
lögreglunnar, en ekki reyndist meiri-
hluti fyrir því innan SA. Í framhald-
inu krafðist hluti SA þess að Frosten-
son yrði vikið úr SA, en þegar
atkvæðagreiðslan féll henni í vil
ákváðu þrír meðlimir SA að hætta
störfum 6. apríl. Um miðja síðustu
viku fundaði stuðningsarmur Frost-
enson um hvort Danius nyti enn
trausts þeirra sem ritari SA, en að
sögn sænskra fjölmiðla var Danius
meðal þeirra sem vildu að Frostenson
hætti hjá SA.
Tveimur konum var fórnað
Enn er óljóst hver tekur við sem
nýr ritari SA, en Anders Olsson hefur
yfirtekið starfsskyldur Danius. Í við-
tali við P1 Morgon hjá Sænska út-
varpinu í gærmorgun sagði Olsson að
reynt yrði að telja Danius og þá aðra
meðlimi sem hætt hafa á síðustu dög-
um á að snúa aftur til starfa, en að
Frostenson ætti ekki afturkvæmt
fyrr en eftir einhver ár. Sagði hann
hugmyndina að málamiðluninni hafa
kviknað í samtali sínu við Svíakonung
síðasta þriðjudag. Því mótmælir
Johan Tegel, upplýsingafulltrúi hirð-
arinnar, og segir kóng engan þátt
hafa átt í niðurstöðunni.
Sænska skáldkonan Katarina
Wennstam gagnrýnir harðlega þá
meðferð sem Danius hefur fengið inn-
an SA, en Horace Engdahl, fyrrver-
andi ritari SA, lét í vikunni hafa eftir
sér að Danius væri versti ritari og
talsmaður SA frá stofnun hennar
1786. Í færslu á Instagram-síðu sinni
bendir Wennstam á að þrír karlmenn
innan SA, sem gegnt hafi starfi ritara
á síðustu áratugum, hafi allir haft
upplýsingar um óviðurkvæmilegt
framferði Arnault en valið að hunsa
það og þess í stað hampað honum
með medalíum og fjárstuðningi. Þess
má geta að Anna-Karin Bylund hefur
upplýst að hún sendi Sture Allén, þá-
verandi ritara SA, bréf fyrir um 20
árum þar sem hún lýsti því ofbeldi
sem Arnault beitti hana. Þegar Dan-
ius (sem fyrst kvenna gegndi stöðu
ritara) reynir að hreinsa „skítinn er
hún sjálf neydd til að hætta,“ skrifar
Wennstam og bendir á að erfitt sé að
útskýra fyrir umheiminum þá kven-
fyrirlitningu sem birtist í framferði
framangreindra karla, en margir
hafa haft áhyggjur af því að deilan
varpi rýrð á eitt virtasta og elsta
vörumerki Svíþjóðar.
„Tveimur konum var fórnað, einni
fyrir aðra. Þetta er smánarblettur
fyrir akademíuna sem ekki er hægt
að þvo burt,“ segir Per Wästberg,
sem situr í SA, við SvD. Ebba Witt-
Brattström, bókmenntaprófessor,
segir mikla eftirsjá að Danius sem
hafi verið boðberi nýrra tíma og
breytinga. „Akademían missir með
þessu af sögulegu tækifæri. Þetta er
upphafið að endalokunum,“ segir
Witt-Brattström í Morgonstudion.
Í sjónvarpsþættinum Opinion Live
á SVT sagði Engdahl að fimmtudags-
fundinum loknum að Svíakonungur
hefði veitt mikilvægan stuðning.
„Hann lagði áherslu á að krísan yrði
leyst fljótt og það hvatti okkur til
þess að finna þessa lausn mála,“ sagði
Engdahl sem treystir því að kóngur
leysi nú stöðuna sem upp sé komin.
Í yfirlýsingu sem Sara Danius
sendi frá sér síðdegis í gær sagði hún
að SA ætti að beita afli sínu til að
vinna gegn kvenfyrirlitningu. „Ekki
eru allar hefðir þess virði að varð-
veita,“ skrifaði Danius jafnframt.
Kynslóðir takast á
Sænska akademían orðin óvirk eftir síðustu vendingar
Sara Danius og Katarina Frostenson stíga til hliðar
AFP
Gagnrýnin Sara Danius var orðvör við fjölmiðla að átakafundinum loknum.
Þögul Katarina Frostenson kýs að
tjá sig ekki um brotthvarf sitt.
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Rocky Horror (Stóra sviðið)
Lau 14/4 kl. 20:00 8. s Fös 4/5 kl. 20:00 28. s Mið 23/5 kl. 20:00 aukas.
Sun 15/4 kl. 20:00 9. s Lau 5/5 kl. 20:00 29. s Fim 24/5 kl. 20:00 aukas.
Mið 18/4 kl. 20:00 aukas. Sun 6/5 kl. 20:00 30. s Fös 25/5 kl. 20:00 38. s
Fim 19/4 kl. 20:00 10. s Þri 8/5 kl. 20:00 31. s Lau 26/5 kl. 20:00 39. s
Fös 20/4 kl. 20:00 11. s Mið 9/5 kl. 20:00 32. s Sun 27/5 kl. 20:00 40. s
Lau 21/4 kl. 20:00 aukas. Fös 11/5 kl. 20:00 33. s Mið 30/5 kl. 20:00 aukas.
Sun 22/4 kl. 20:00 12. s Lau 12/5 kl. 16:00 34. s Fim 31/5 kl. 20:00 41. s
Fim 26/4 kl. 20:00 13. s Þri 15/5 kl. 20:00 aukas. Fös 1/6 kl. 20:00 46. s
Lau 28/4 kl. 20:00 25. s Fim 17/5 kl. 20:00 35. s Lau 2/6 kl. 20:00 47. s
Mið 2/5 kl. 20:00 26. s Fös 18/5 kl. 20:00 36. s Sun 3/6 kl. 20:00 48. s
Fim 3/5 kl. 20:00 27. s Lau 19/5 kl. 20:00 37. s Mið 6/6 kl. 20:00 49. s
Besta partý sem þú munt nokkurn tímann upplifa.
Elly (Stóra sviðið)
Fös 31/8 kl. 20:00 139. s Sun 9/9 kl. 20:00 142. s Sun 16/9 kl. 20:00 145. s
Lau 1/9 kl. 20:00 140. s Mið 12/9 kl. 20:00 143. s Lau 22/9 kl. 20:00 146. s
Fös 7/9 kl. 20:00 141. s Fim 13/9 kl. 20:00 144. s Sun 23/9 kl. 20:00 147. s
Sýningar haustið 2018 komnar í sölu.
Sýningin sem klikkar (Nýja sviðið)
Lau 14/4 kl. 20:00 12. s Fös 20/4 kl. 20:00 16. s Fös 27/4 kl. 20:00 21. s
Sun 15/4 kl. 20:00 13. s Lau 21/4 kl. 20:00 18. s Lau 28/4 kl. 20:00 22. s
Mið 18/4 kl. 20:00 14. s Sun 22/4 kl. 20:00 19. s Sun 29/4 kl. 20:00 23. s
Fim 19/4 kl. 20:00 15. s Fim 26/4 kl. 20:00 20. s
Það er alveg öruggt að þetta fer úrskeiðis!
Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið)
Lau 14/4 kl. 20:30 2. s Mið 25/4 kl. 20:30 7. s Fös 4/5 kl. 20:30 12. s
Sun 15/4 kl. 20:30 3. s Fim 26/4 kl. 20:30 8. s Lau 5/5 kl. 20:30 13. s
Mið 18/4 kl. 20:30 aukas. Fös 27/4 kl. 20:30 aukas. Sun 6/5 kl. 20:30 14. s
Fim 19/4 kl. 20:30 4. s Lau 28/4 kl. 20:30 9. s Mið 9/5 kl. 20:30 15. s
Fös 20/4 kl. 20:30 5. s Sun 29/4 kl. 20:30 10. s Fim 10/5 kl. 20:30 aukas.
Lau 21/4 kl. 20:30 aukas. Mið 2/5 kl. 20:30 11. s Fös 11/5 kl. 20:30 16. s
Sun 22/4 kl. 20:30 6. s Fim 3/5 kl. 20:30 aukas.
Komumst við vímulaus af í geggjuðum heimi?
Slá í gegn (Stóra sviðið)
Lau 14/4 kl. 19:30 16.sýn Sun 29/4 kl. 20:00 25.sýn Lau 2/6 kl. 19:30 31.sýn
Sun 15/4 kl. 19:30 Auka Lau 5/5 kl. 19:30 27.sýn Sun 3/6 kl. 19:30 32.sýn
Fös 20/4 kl. 19:30 17.sýn Sun 6/5 kl. 16:00 28.sýn Lau 9/6 kl. 19:30 33.sýn
Lau 21/4 kl. 16:00 18.sýn Sun 13/5 kl. 19:30 29.sýn
Sun 22/4 kl. 19:30 19.sýn Sun 27/5 kl. 19:30 30.sýn
Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
Svartalogn (Stóra sviðið)
Fim 26/4 kl. 19:30 aðalæ Lau 28/4 kl. 19:30 2.sýn Fös 4/5 kl. 19:30 4.sýn
Fös 27/4 kl. 19:30 Frum Fim 3/5 kl. 19:30 3.sýn Fös 11/5 kl. 19:30 5.sýn
Heillandi verk um óvæntu möguleikana í lífinu
Stríð (Stóra sviðið)
Mið 16/5 kl. 19:30 Frums Fim 17/5 kl. 19:30 2.sýn Fös 18/5 kl. 19:30 3.sýn
Ragnar og Kjartan hafa tvívegis skapað í sameiningu sviðsverk fyrir Volksbühne-l
Faðirinn (Kassinn)
Fös 20/4 kl. 19:30 46.sýn Lau 21/4 kl. 19:30 47.sýn
Áhrifamikið nýtt verðlaunaverk.
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 18/4 kl. 20:00 Mið 25/4 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Oddur og Siggi (Á flakki um landið)
Mán 16/4 kl. 11:00 Selfoss Þri 24/4 kl. 11:00
Hveragerði
Þri 17/4 kl. 11:00 Selfoss Þri 15/5 kl. 11:00
Vestm.eyjar
Skemmtileg, sorgleg og hjartnæm sýning
Pörupiltar (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 26/4 kl. 10:00 Fös 27/4 kl. 11:30 Mið 2/5 kl. 10:00
Fim 26/4 kl. 11:30 Mán 30/4 kl. 10:00 Mið 2/5 kl. 11:30
Fös 27/4 kl. 10:00 Mán 30/4 kl. 11:30
Hlátur og skemmtun í bland við eldfimt efni
Barnamenningarhátið (Þjóðleikhúsið)
Fös 20/4 kl. 10:00 Ég get Lau 21/4 kl. 13:00 Pétur og
úlfurinn
Sun 22/4 kl. 13:00 Oddur og
Siggi
Fös 20/4 kl. 11:00 Ég get Lau 21/4 kl. 13:00 Ég get Sun 22/4 kl. 15:00 Oddur og
Siggi
Lau 21/4 kl. 10:00 Pétur og
úlfurinn
Lau 21/4 kl. 15:00 Ég get
Barnamenningarhátíð 2018
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
ÞARFTU
AÐ LÁTA
GERA VIÐ?
Matur