Morgunblaðið - 14.04.2018, Síða 47

Morgunblaðið - 14.04.2018, Síða 47
MENNING 47 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2018 Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Listamaðurinn Alfredo Esparza Torreón með tvær ljósmynda sinna í bakgrunni í galleríinu Ramskram. FRÉTTASKÝRING Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Ég hefði gjarnan vilja halda störfum mínum áfram, en þetta er vilji aka- demíunnar og þess vegna kýs ég einnig að yfirgefa stól minn,“ sagði Sara Danius að loknum þriggja klukkustunda löngum átakafundi Sænsku akademíunnar (SA) í Börs- huset í Stokkhólmi á fimmtudags- kvöld þar sem Danius hætti um- svifalaust sem ritari. Samtímis dregur Katarina Frostenson sig út úr SA. Sara Stridsberg, sem sjálf hefur íhugað að hætta í SA, staðfestir við Dagens Nyheter að um málamiðlun var að ræða. „Samkomulagið fólst í því að Frostenson hætti störfum fyrir akademíuna, án þess að segja sig formlega úr henni, ef Danius hætti sem ritari,“ segir Stridsberg. Hefur kóngur vald til að breyta? Með brotthvarfi Danius og Frost- enson eru alls sjö af 18 sætum SA auð. Sökum þess að meðlimir eru skipaðir ævilangt af Svíakonungi samkvæmt kosningu SA sjálfrar verður ekki hægt að fullmanna SA um ókomin ár nema Karl XVI. Gústaf breyti stofnsáttmálanum með kon- unglegri tilskipun, en að mati lög- mannsins Peters Fröberg Idling er alls ekki sjálfgefið að kóngur hafi slíkt vald, enda sé enga slíka heimild að finna hvorki í sænsku stjórnar- skránni né öðrum lögum landsins. Samkvæmt núgildandi reglum SA þarf 12 atkvæði sitjandi meðlima til að taka allar meiriháttar ákvarðanir, svo sem að kjósa inn nýtt fólk. Eins og fjallað hefur verið ítarlega um í Morgunblaðinu síðustu vikuna má rekja það ófremdarástand sem nú ríkir innan SA, sem ár hvert veitir Nóbelsverðlaunin, til ásakana þess efnis að Jean-Claude Arnault, eigin- maður Frostenson, hafi í nokkra ára- tugi áreitt fjölda kvenna kynferðis- lega, ítrekað lekið nafni komandi Nóbelsverðlaunahafa og átt óeðlileg fjárhagsleg tengsl við SA, sem styrkti m.a. bókmenntaklúbbinn Forum sem Arnault og Frostenson hafa rekið. Í úttekt sem lögfræðistofan Hammar- skiöld & Co vann fyrir SA var mælt með því að Arnault yrði kærður til lögreglunnar, en ekki reyndist meiri- hluti fyrir því innan SA. Í framhald- inu krafðist hluti SA þess að Frosten- son yrði vikið úr SA, en þegar atkvæðagreiðslan féll henni í vil ákváðu þrír meðlimir SA að hætta störfum 6. apríl. Um miðja síðustu viku fundaði stuðningsarmur Frost- enson um hvort Danius nyti enn trausts þeirra sem ritari SA, en að sögn sænskra fjölmiðla var Danius meðal þeirra sem vildu að Frostenson hætti hjá SA. Tveimur konum var fórnað Enn er óljóst hver tekur við sem nýr ritari SA, en Anders Olsson hefur yfirtekið starfsskyldur Danius. Í við- tali við P1 Morgon hjá Sænska út- varpinu í gærmorgun sagði Olsson að reynt yrði að telja Danius og þá aðra meðlimi sem hætt hafa á síðustu dög- um á að snúa aftur til starfa, en að Frostenson ætti ekki afturkvæmt fyrr en eftir einhver ár. Sagði hann hugmyndina að málamiðluninni hafa kviknað í samtali sínu við Svíakonung síðasta þriðjudag. Því mótmælir Johan Tegel, upplýsingafulltrúi hirð- arinnar, og segir kóng engan þátt hafa átt í niðurstöðunni. Sænska skáldkonan Katarina Wennstam gagnrýnir harðlega þá meðferð sem Danius hefur fengið inn- an SA, en Horace Engdahl, fyrrver- andi ritari SA, lét í vikunni hafa eftir sér að Danius væri versti ritari og talsmaður SA frá stofnun hennar 1786. Í færslu á Instagram-síðu sinni bendir Wennstam á að þrír karlmenn innan SA, sem gegnt hafi starfi ritara á síðustu áratugum, hafi allir haft upplýsingar um óviðurkvæmilegt framferði Arnault en valið að hunsa það og þess í stað hampað honum með medalíum og fjárstuðningi. Þess má geta að Anna-Karin Bylund hefur upplýst að hún sendi Sture Allén, þá- verandi ritara SA, bréf fyrir um 20 árum þar sem hún lýsti því ofbeldi sem Arnault beitti hana. Þegar Dan- ius (sem fyrst kvenna gegndi stöðu ritara) reynir að hreinsa „skítinn er hún sjálf neydd til að hætta,“ skrifar Wennstam og bendir á að erfitt sé að útskýra fyrir umheiminum þá kven- fyrirlitningu sem birtist í framferði framangreindra karla, en margir hafa haft áhyggjur af því að deilan varpi rýrð á eitt virtasta og elsta vörumerki Svíþjóðar. „Tveimur konum var fórnað, einni fyrir aðra. Þetta er smánarblettur fyrir akademíuna sem ekki er hægt að þvo burt,“ segir Per Wästberg, sem situr í SA, við SvD. Ebba Witt- Brattström, bókmenntaprófessor, segir mikla eftirsjá að Danius sem hafi verið boðberi nýrra tíma og breytinga. „Akademían missir með þessu af sögulegu tækifæri. Þetta er upphafið að endalokunum,“ segir Witt-Brattström í Morgonstudion. Í sjónvarpsþættinum Opinion Live á SVT sagði Engdahl að fimmtudags- fundinum loknum að Svíakonungur hefði veitt mikilvægan stuðning. „Hann lagði áherslu á að krísan yrði leyst fljótt og það hvatti okkur til þess að finna þessa lausn mála,“ sagði Engdahl sem treystir því að kóngur leysi nú stöðuna sem upp sé komin. Í yfirlýsingu sem Sara Danius sendi frá sér síðdegis í gær sagði hún að SA ætti að beita afli sínu til að vinna gegn kvenfyrirlitningu. „Ekki eru allar hefðir þess virði að varð- veita,“ skrifaði Danius jafnframt. Kynslóðir takast á  Sænska akademían orðin óvirk eftir síðustu vendingar  Sara Danius og Katarina Frostenson stíga til hliðar AFP Gagnrýnin Sara Danius var orðvör við fjölmiðla að átakafundinum loknum. Þögul Katarina Frostenson kýs að tjá sig ekki um brotthvarf sitt. Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is Rocky Horror (Stóra sviðið) Lau 14/4 kl. 20:00 8. s Fös 4/5 kl. 20:00 28. s Mið 23/5 kl. 20:00 aukas. Sun 15/4 kl. 20:00 9. s Lau 5/5 kl. 20:00 29. s Fim 24/5 kl. 20:00 aukas. Mið 18/4 kl. 20:00 aukas. Sun 6/5 kl. 20:00 30. s Fös 25/5 kl. 20:00 38. s Fim 19/4 kl. 20:00 10. s Þri 8/5 kl. 20:00 31. s Lau 26/5 kl. 20:00 39. s Fös 20/4 kl. 20:00 11. s Mið 9/5 kl. 20:00 32. s Sun 27/5 kl. 20:00 40. s Lau 21/4 kl. 20:00 aukas. Fös 11/5 kl. 20:00 33. s Mið 30/5 kl. 20:00 aukas. Sun 22/4 kl. 20:00 12. s Lau 12/5 kl. 16:00 34. s Fim 31/5 kl. 20:00 41. s Fim 26/4 kl. 20:00 13. s Þri 15/5 kl. 20:00 aukas. Fös 1/6 kl. 20:00 46. s Lau 28/4 kl. 20:00 25. s Fim 17/5 kl. 20:00 35. s Lau 2/6 kl. 20:00 47. s Mið 2/5 kl. 20:00 26. s Fös 18/5 kl. 20:00 36. s Sun 3/6 kl. 20:00 48. s Fim 3/5 kl. 20:00 27. s Lau 19/5 kl. 20:00 37. s Mið 6/6 kl. 20:00 49. s Besta partý sem þú munt nokkurn tímann upplifa. Elly (Stóra sviðið) Fös 31/8 kl. 20:00 139. s Sun 9/9 kl. 20:00 142. s Sun 16/9 kl. 20:00 145. s Lau 1/9 kl. 20:00 140. s Mið 12/9 kl. 20:00 143. s Lau 22/9 kl. 20:00 146. s Fös 7/9 kl. 20:00 141. s Fim 13/9 kl. 20:00 144. s Sun 23/9 kl. 20:00 147. s Sýningar haustið 2018 komnar í sölu. Sýningin sem klikkar (Nýja sviðið) Lau 14/4 kl. 20:00 12. s Fös 20/4 kl. 20:00 16. s Fös 27/4 kl. 20:00 21. s Sun 15/4 kl. 20:00 13. s Lau 21/4 kl. 20:00 18. s Lau 28/4 kl. 20:00 22. s Mið 18/4 kl. 20:00 14. s Sun 22/4 kl. 20:00 19. s Sun 29/4 kl. 20:00 23. s Fim 19/4 kl. 20:00 15. s Fim 26/4 kl. 20:00 20. s Það er alveg öruggt að þetta fer úrskeiðis! Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið) Lau 14/4 kl. 20:30 2. s Mið 25/4 kl. 20:30 7. s Fös 4/5 kl. 20:30 12. s Sun 15/4 kl. 20:30 3. s Fim 26/4 kl. 20:30 8. s Lau 5/5 kl. 20:30 13. s Mið 18/4 kl. 20:30 aukas. Fös 27/4 kl. 20:30 aukas. Sun 6/5 kl. 20:30 14. s Fim 19/4 kl. 20:30 4. s Lau 28/4 kl. 20:30 9. s Mið 9/5 kl. 20:30 15. s Fös 20/4 kl. 20:30 5. s Sun 29/4 kl. 20:30 10. s Fim 10/5 kl. 20:30 aukas. Lau 21/4 kl. 20:30 aukas. Mið 2/5 kl. 20:30 11. s Fös 11/5 kl. 20:30 16. s Sun 22/4 kl. 20:30 6. s Fim 3/5 kl. 20:30 aukas. Komumst við vímulaus af í geggjuðum heimi? Slá í gegn (Stóra sviðið) Lau 14/4 kl. 19:30 16.sýn Sun 29/4 kl. 20:00 25.sýn Lau 2/6 kl. 19:30 31.sýn Sun 15/4 kl. 19:30 Auka Lau 5/5 kl. 19:30 27.sýn Sun 3/6 kl. 19:30 32.sýn Fös 20/4 kl. 19:30 17.sýn Sun 6/5 kl. 16:00 28.sýn Lau 9/6 kl. 19:30 33.sýn Lau 21/4 kl. 16:00 18.sýn Sun 13/5 kl. 19:30 29.sýn Sun 22/4 kl. 19:30 19.sýn Sun 27/5 kl. 19:30 30.sýn Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna! Svartalogn (Stóra sviðið) Fim 26/4 kl. 19:30 aðalæ Lau 28/4 kl. 19:30 2.sýn Fös 4/5 kl. 19:30 4.sýn Fös 27/4 kl. 19:30 Frum Fim 3/5 kl. 19:30 3.sýn Fös 11/5 kl. 19:30 5.sýn Heillandi verk um óvæntu möguleikana í lífinu Stríð (Stóra sviðið) Mið 16/5 kl. 19:30 Frums Fim 17/5 kl. 19:30 2.sýn Fös 18/5 kl. 19:30 3.sýn Ragnar og Kjartan hafa tvívegis skapað í sameiningu sviðsverk fyrir Volksbühne-l Faðirinn (Kassinn) Fös 20/4 kl. 19:30 46.sýn Lau 21/4 kl. 19:30 47.sýn Áhrifamikið nýtt verðlaunaverk. Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 18/4 kl. 20:00 Mið 25/4 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! Oddur og Siggi (Á flakki um landið) Mán 16/4 kl. 11:00 Selfoss Þri 24/4 kl. 11:00 Hveragerði Þri 17/4 kl. 11:00 Selfoss Þri 15/5 kl. 11:00 Vestm.eyjar Skemmtileg, sorgleg og hjartnæm sýning Pörupiltar (Þjóðleikhúskjallarinn) Fim 26/4 kl. 10:00 Fös 27/4 kl. 11:30 Mið 2/5 kl. 10:00 Fim 26/4 kl. 11:30 Mán 30/4 kl. 10:00 Mið 2/5 kl. 11:30 Fös 27/4 kl. 10:00 Mán 30/4 kl. 11:30 Hlátur og skemmtun í bland við eldfimt efni Barnamenningarhátið (Þjóðleikhúsið) Fös 20/4 kl. 10:00 Ég get Lau 21/4 kl. 13:00 Pétur og úlfurinn Sun 22/4 kl. 13:00 Oddur og Siggi Fös 20/4 kl. 11:00 Ég get Lau 21/4 kl. 13:00 Ég get Sun 22/4 kl. 15:00 Oddur og Siggi Lau 21/4 kl. 10:00 Pétur og úlfurinn Lau 21/4 kl. 15:00 Ég get Barnamenningarhátíð 2018 leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS ÞARFTU AÐ LÁTA GERA VIÐ? Matur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.