Morgunblaðið - 14.04.2018, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 14.04.2018, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2018 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Félagið Rauðsvík hefur samið um rekstur hótels í nýjum íbúðaturni á Skúlagötu 26. Sturla Geirsson, framkvæmda- stjóri Rauðsvíkur, segir trúnað ríkja um rekstraraðila hótelsins. Greint verði frá því á síðari stigum. Skúlagata 26 er á horni Vitastígs í Reykjavík. Byggingin hefur verið girt af og er niðurrif hafið. Á grunni henn- ar rís 16 hæða bygging, auk rishæðar. Hún verður um 10 þúsund fermetrar ofanjarðar og 3 þús. ferm. neðan- jarðar, alls 13 þús. fermetrar. Sturla segir verklok áformuð á öðrum fjórðungi árið 2020. „Áætlanir gera ráð fyrir 195 her- bergjum í meginhluta byggingar- innar. Um 28 íbúðir verða í suður- hluta byggingarinnar en sá hluti mun trappast niður að Bjarnaborg.“ Yfir 30 þúsund fermetrar Alls er Rauðsvík með um 33 þús. fermetra á ýmsum byggingarstigum. Þar af eru samtals um 9.200 fermetr- ar á Hverfisgötu 85-93. Íbúðir verða á efri hæðum en þjónusta á jarðhæð. Uppsteypa á þeim húsum er langt komin og er áformað að taka þau í notkun vorið 2019. Við hlið fyrirhugaðs hótelturns á Skúlagötu undirbúa rekstraraðilar Kex hostels fjölgun herbergja. S28 ehf., eigandi Skúlagötu 28, hefur látið vinna deiliskipulagsbreytingu vegna lóðarinnar í samvinnu við um- hverfis- og skipulagssvið borgar- innar. Deiliskipulagsbreytingin er nú í umsóknarferli hjá embættinu. Magn- ús Jensson arkitekt vinnur deiliskipu- lagsbreytinguna fyrir S28. Skipulagið barn síns tíma Hann segir gildandi deiliskipulag fyrir Barónsreit hafa verið barn síns tíma hvað varðar Skúlagötu 28 og Kex hostel. Nú hafi deiliskipulagið verið lagað að gistirekstri og þjón- ustu. Í grófum dráttum geri gildandi deiliskipulag ráð fyrir tveimur inn- dregnum hæðum ofan á bygginguna (þeirri sjöttu töluvert minni), viðbót- arbyggingarreit syðst á lóðinni á 4 hæðum ofanjarðar, auk stækkunar jarðhæðar undir port og neðanjarð- arhæð þar undir. Í deiliskipulags- breytingunni hafi fermetrum verið miðlað milli hæða og byggingarreitur syðst á lóðinni lækkaður í eina hæð. Þá stækkar 6. hæðin án þess að fer- metrum ofanjarðar fjölgi. Kaupa sig frá bílastæðum Magnús segir breytinguna tryggja að útivistarsvæði í Kexporti haldi há- marksgæðum. Hann rifjar upp að neðanjarðarrými séu skilgreind sem bílastæði og stoðrými í gildandi deili- skipulagi. „Við erum að breyta þessu í almenn rými fyrir þjónustu við mið- borgina. Við kaupum okkur frá bíla- stæðum með greiðslu í bílastæðasjóð. Þannig komumst við hjá því að hafa bílastæðin. Þó er stefnt að því að hafa eitt bílastæði á lóðinni fyrir fatlaða,“ segir Magnús. 1 10 45 3 6 7 8 9 2 Dæmi um hótelverkefni í miðborginni sem eru samþykkt eða eru hafin Samkvæmt fundargerðum umhverfis- og skipulagsráðs 6. september 2017 til 21. mars 2018* Staðsetning hótels Umsækjandi Fjöldi herbergja Fjöldi gesta 1 Skúlagata 26 Rauðsvík 195 390 2 Vegamótastígur 7-9 Reir 39 78 3 Laugavegur 55 L55 52 104 4 Skipholt 1 Skipholt ehf. 78 156 5 Snorrabraut 54 Reir 60-70 120-140 6 Hverfisgata 78 RR hótel ehf. 10 38 7 Austurvöllur (Iceland Parliament Hótel) Lindarvatn 145 290 8 Austurbakki (Marriott hótel) Cambridge Plaza Hotel Comp ehf. 250 500 9 Lækjargata 12 Íslandshótel 103 206 10 Laugavegur 95-99 CenterHotels 102 204 Samtals (minnst) 1.034 2.086*Fjöldi herbergja kann að taka breytingum. Miðað er við tvo gesti á herbergi nema annað sé tekið fram. Rauðsvík semur um leigu á nýjum hótelturni  Hefur uppbyggingu 195 herbergja hótels á Skúlagötu Teikning/T.ark arkitektar Frumdrög Svona sáu arkitektar fyrir sér íbúðaturninn á Skúlagötu 26. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Íbúðum sem eru í byggingu á Norður- landi fjölgar mikið milli ára. Þannig bendir talning Samtaka iðnaðarins til að í mars hafi ver- ið 87% fleiri íbúðir í smíðum á Akur- eyri en í febrúar í fyrra. Þá hafði fjöldi íbúða í smíð- um á Húsavík þre- faldast milli ára. Samanlagt taldist SI til að rúmlega 440 íbúðir væru í byggingu á Norð- urlandi. Sigurður Hannesson, fram- kvæmdastjóri SI, segir umsvifin hafa aukist mikið á Norðurlandi. Ferðaþjónustan hefur áhrif „Það er greinilegt að vöxtur, bæði í iðnaði og ferðaþjónstu, skilar sér í uppbyggingu íbúðarhúsnæðis á svæð- inu. Uppbyggingin er hlutfallslega mest á Húsavík. Þar er um að ræða samspil atvinnuuppbyggingar á Bakka og vaxtar ferðaþjónustunnar. Við sjáum mikla uppbyggingu á fleiri stöðum á Norðurlandi sem tengja má við þessa undirliggjandi þætti,“ segir Sigurður. Dæmi um uppbyggingu í ferða- þjónustu á Norðurlandi er að Íslands- hótel eru að breyta gamla Sjallanum í hótel. Verður þar eitt stærsta hótel landshlutans. Spurður hvernig bygg- ingargeirinn sé undir það búinn að mæta aukinni eftirspurn bendir Sig- urður á að um 16 þúsund manns hafi starfað í greininni árið 2008. Til sam- anburðar hafi starfsmennirnir verið um 12 þúsund í fyrra. Telur hann því útlit fyrir frekari fjölgun starfa í greininni á næstu árum. Efna til fundar á Akureyri Sigurður rifjar upp að byggingar- geirinn búi við mun meiri sveiflur en aðrar atvinnugreinar. „Byggingargeirinn er sveigjanleg- ur. Hann ætti því að vera vel í stakk búinn til að mæta auknum umsvifum á næstu árum,“ segir hann. Í tilefni af degi byggingariðnaðar- ins á Norðurlandi efna Samtök iðn- aðarins til fundar í Hofi á Akureyri í dag. Fundurinn stendur yfir frá kl. 10.30-12.00 og er með yfirskriftinni Norðurland í brennidepli. Íbúðir í byggingu á Norðurlandi 400 300 200 100 0 Akureyri Húsavík Eyjafjörður og nærsveitir Sauðárkrókur Dalvík Siglufjörður Heimild: Samtök iðnaðarins 363 29 22 14 9 7 168 195 Akureyri 2017 og 2018 Norðurland mars 2018 Húsavík 2017 og 2018 400 300 200 100 0 30 20 10 0 Febrúar 2017 Mars 2018 Febrúar 2017 Mars 2018 363 194 10 29 168 195 113 81 26 3 4 6 Að fokheldu Fokhelt og lengra komið Stóraukin umsvif á Norðurlandi Sigurður Hannesson Akureyri Umsvifin eru að aukast.  Íbúðum í smíðum fjölgar milli ára Morgunblaðið/Sigurður Bogi Mest seldu ofnar á Norðurlöndum áreiðanlegur hitagjafi 10 ára ábyrgð Draghálsi 14 - 16 · Sími 4 12 12 00 · www.isleifur.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.