Morgunblaðið - 14.04.2018, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 14.04.2018, Qupperneq 23
FRÉTTIR 23Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2018 Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Stjórnvöld í Rússlandi vöruðu í gær við því að flugskeytaárás, sem Don- ald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað vegna meintrar efnavopna- árásar sýrlenska hersins, gæti leitt til styrjaldar milli landanna tveggja. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kom saman í gær að beiðni Rússa til að reyna að leysa deilu þeirra við vestræn ríki vegna ásakana um að her einræðisstjórnarinnar í Sýrlandi hefði beitt efnavopnum í árás á íbúa bæjarins Douma á laugardaginn var. „Mestu máli skiptir að forðast van- hugsaðar og hættulegar aðgerðir sem væru hróplegt brot á stofnsátt- mála Sameinuðu þjóðanna og myndu hafa ófyrirsjáanlegar afleiðingar,“ sagði í yfirlýsingu frá Vladimír Pútín Rússlandsforseta í gær eftir að hann ræddi í síma við Emmanuel Macron, forseta Frakklands. Trump hótaði flugskeytaárás á skotmörk í Sýrlandi í tísti á Twitter fyrr í vikunni en í yfirlýsingu frá Hvíta húsinu í gær sagði að ekki hefði verið tekin ákvörðun um hvernig bregðast ætti við efnavopna- árásinni. Forsetinn ræddi málið við forseta bandaríska herráðsins, Jos- eph F. Dunford, og varnarmálaráð- herrann James N. Mattis á fundi í Hvíta húsinu í fyrrakvöld. Mattis beitti sér þá fyrir því að aflað yrði fleiri gagna til að styrkja ásakanirn- ar um að sýrlenski stjórnarherinn hefði beitt efnavopnum í Douma. Skella skuldinni á Breta Macron sagði í sjónvarpsviðtali í fyrradag að hann hefði fengið „sönn- un“ fyrir því að stjórnarher Sýrlands hefði gert efnavopnaárás á Douma og að gripið yrði til aðgerða vegna hennar „þegar þar að kemur“. Hann bætti þó við að mikilvægt væri að koma í veg fyrir að aðgerðirnar leiddu til stríðs við Rússland. Mattis tók í sama streng á fundi með þing- mönnum í Washington og sagði að þótt stöðva þyrfti dráp á saklausu fólki í Sýrlandi þyrfti einnig að taka tillit til hættunnar á því að íhlutunin yrði til þess að stríðið stigmagnaðist. Frönsk freigáta, breskir kafbátar og bandaríski tundurspillirinn Don- ald Cook eru á austanverðu Mið- jarðarhafi. Skipin eru búin stýri- flaugum sem hægt væri að skjóta á skotmörk í Sýrlandi. Her Rússlands sagðist í gær hafa fengið sönnun fyrir því að andstæð- ingar stjórnarinnar í Sýrlandi hefðu sett efnavopnaárás á svið í Douma að fyrirmælum bresku stjórnarinnar. Segja árás geta leitt til styrjaldar  Rússar reyna að afstýra flugskeyta- árás vestrænna ríkja á Sýrland Flugbrautir fyrir flutningavélar 200 km (Skv. upplýsingum frá 30. mars) 50 km TYRKLAND LÍBANON JÓRDANÍA ÍRAK Deir Ezzor Raqa Aleppó Afrin Homs Palmyra Al-Tanf, herstöðDAMASKUS Deraa Tyrkneskar hersveitir Sveitir Kúrda Stjórnarher Sýrlands Uppreisnar- menn og íslamistar Ríki íslams, sam- tök íslamista *Sameinuðu arabísku furstadæminHeimildir: Syrian Observatory for Human Rights, AFP Miðjarðarhaf Svartahaf ÍRAN ÍRAK TYRKLAND SÝRLAND KÝPUR Bandaríkin Rússland Frakkland Hermenn og ráðgjafar (aðeins í Sýrlandi) Helstu herflugvellir Flotastöðvar Herskip Tartus Stöðvar Rússa með loftvarna- búnað og sérsveitir Khmeimim Latakía JÓRDANÍA SAF* KATAR Bretland Herafli Bandaríkjanna, Rússlands og fleiri ríkja í Mið-Austurlöndum 8 Tornado GR4-orrustuþotur, 6 Typhoon-orrustuþotur 1 T-45 tundurspillirReaper-drónar sem Bretar nota til njósna 2 C130-vélar til að flytja hermenn 2 eftirlitsflugvélar Akrotiri-herflugstöðin 6 Rafale-þotur 6 Rafale-orrustuþotur Al Dhafra, herflugvöllur M-de- Marsan S-Dizier H5, herflugstöð FRAKKL . Sprengjuvélar, Tu-22 og Tu-160, með bækistöðvar í Rússlandi Stýriflaugar (geta dregið 4.500 km) Frönsk freigáta sem er búin stýriflaugum 2.954 hermenn í Sýrlandi Nokkrir tugir orrustuþotna KÚVE IT Bandarískur tundurspillir 2.000 hermenn sem berjast gegn Ríki íslams Idlib James Comey, fyrrverandi forstjóri bandarísku alríkislögreglunnar FBI, segir í væntanlegri bók að Donald Trump forseti sé eins og mafíuforingi í Hvíta húsinu, krefjist skilyrðislausrar hollustu, telji alla heimsbyggðina á móti sér og víli ekki fyrir sér að ljúga að þjóðinni. Trump forseti svaraði fyrir sig með tísti á Twitter í gær, sakaði Co- mey um að hafa lekið leynilegum upplýsingum og hvatti til þess að hann yrði sóttur til saka fyrir að ljúga að bandaríska þinginu í eið- svarinni yfir- lýsingu. Lýsingarnar á forsetanum koma fram í bókinni A Higher Loyalty: Truth, Lies & Leadership, sem kemur út á þriðjudaginn kemur. Banda- rísk blöð hafa birt útdrætti úr henni. Trump vék Comey frá sem for- stjóra FBI fyrir tæpu ári og rann- sókn sérstaks saksóknara, Roberts Muellers, beinist nú m.a. að því hvort forsetinn hafi reynt að hindra framgang réttvísinnar með brott- vikningunni. Comey segir að Trump hafi beitt hann þrýstingi fyrir brott- vikninguna, reynt að fá hann til að stöðva rannsókn FBI á máli Mike Flynn, þáverandi þjóðaröryggis- ráðgjafa forsetans. Flynn hefur ját- að sig sekan um að hafa logið að FBI um samskipti sín við sendi- herra Rússlands við yfirheyrslur vegna rannsóknarinnar á tilraunum Rússa til að hafa áhrif á kosninga- baráttuna í Bandaríkjunum árið 2016. Sakaðir um lygar Comey segir í bókinni að fundir sínir með Trump í Hvíta húsinu minni sig á hegðun mafíuforingja þegar hann starfaði sem saksóknari í baráttunni gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Samstarfsmenn Trumps hafi slegið um hann varð- hring þegjandi samþykkis, heitið honum skilyrðislausri hollustu og beygt sig algerlega undir vald hans. Mennirnir í innsta hring leiðtogans telji öll meðul leyfileg í baráttunni við þá sem séu ekki liði með þeim, víli ekki fyrir sér að ljúga um stórt og smátt og setji hollustuna við leið- togann ofar sannleikanum og siða- lögmálum. Forsetinn geti ekki gert greinarmun á réttu og röngu. Stuðningsmenn Trumps hafa svarað þessu með því að setja upp vefsíðu, sem nefnist Lyin’ Comey, þar sem þeir saka bókarhöfundinn um lygar. bogi@mbl.is Segir Trump líkjast mafíuforingja James Comey  Comey skrifar bók um forsetann  Trump hvetur til þess að Comey verði saksóttur fyrir meinsæri Leyniþjónusta rússneska hersins njósnaði um Sergej Skrípal, fyrr- verandi rússneskan njósnara, og dóttur hans, Júlíu, í að minnsta kosti fimm ár áður en reynt var að ráða þau af dögum með rússnesku taugaeitri sem talið er að hafi ver- ið komið fyrir á hurðarhúni á heimili þeirra í Bretlandi. Þetta kemur fram í bréfi þjóðar- öryggisráðgjafa Bretlands, Marks Sedwill, til framkvæmdastjóra Atl- antshafsbandalagsins. Hann segir að bresk yfirvöld hafi fengið upp- lýsingar sem bendi til þess að sér- fræðingar leyniþjónustu rússneska hersins í tölvunjósnum hafi njósnað um Skrípal-feðginin að minnsta kosti frá árinu 2013. Ennfremur hafi komið í ljós að rússneskir her- menn hafi verið þjálfaðir í notkun eiturefna, meðal annars með því að setja taugaeitur á hurðarhúna. Rússar neita ásökunum Breta um að þeir hafi staðið fyrir árás- inni. Rússar njósnuðu um Skrípal-feðginin Bretland Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700 Opið 11-18 virka daga og 11-16 laugardaga. www.alno.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.