Morgunblaðið - 14.04.2018, Side 28

Morgunblaðið - 14.04.2018, Side 28
28 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2018 Almannaheillafélög í landinu með tugþús- undir félagsmanna kalla eftir lagalegri umgjörð um félaga- form sitt. Nauðsyn- legt er að samþykkja slík lög sem fyrst. Þegar við, almenn- ingur, fyrirtæki og yfirvöld, styðjum fé- lagasamtök til góðra verka viljum við geta treyst þeim. Við viljum að fólkið eða málefnið sem félagasamtökin starfa fyrir njóti faglegrar hjálpar, að félaga- samtökin taki vandaðar ákvarðanir, fari vel með fjármagn og komi í veg fyrir hagsmunaárekstra. Við viljum ekki að fjármálaóreiða eða eigin- hagsmunapot í félagasamtökunum skaði málstaðinn sem við styðjum. Því miður er alltaf hætta á að það gerist í félagasamtökum eins og annars staðar þar sem peningar og hagsmunir eru í húfi. Í frumvarpi til laga um almanna- heillafélög sem ekki náðist að ljúka fyrir þingslit haustið 2016 og nú liggur aftur á borði ferðamála-, ný- sköpunar- og iðnaðarráðherra eru skýrar tillögur um lágmarkskröfur til slíkra félaga um lýðræðisleg vinnubrögð og faglega meðferð fjár. Almannaheill eru landssamtök félagasamtaka og sjálfseignarstofn- ana sem vinna að málefnum til al- mannaheilla. Aðildarfélögin eru mörg af stærstu almannaheilla- samtökum landsins, með tugþús- undir félaga. Þessi félög hafa allt frá árinu 2008 kallað eftir því að starfsumhverfi almannaheilla- samtaka verði styrkt og þau fái ívilnanir í samræmi við þann ávinn- ing sem þau skapa samfélaginu og yfirvöldum. Almannaheillafélögin styðja umrætt lagafrumvarp og þykir eðlilegt að gera þær lág- markskröfur um fagmennsku og lýðræðisleg vinnubrögð sem þar er kveðið á um. Það skaðar nefnilega öll almannaheillafélög þegar óvönd- uð vinnubrögð eða óreiða koma upp í einum samtökum. Fagleg félög hafa ekkert að fela og vilja geta sýnt fram á það svart á hvítu. Ráðherra taldi í svari sínu við fyrirspurn á Alþingi um frumvarpið þann 9. apríl að frum- varpið gæti verið „íþyngjandi“ og „haml- andi“ fyrir almanna- heillafélög og því gæti hún ekki lagt það fram. En um hvað snýst þetta frumvarp? Í stuttu máli er gert ráð fyrir að félög sem starfa í almannaþágu og þiggja styrki og al- mannafé geti skráð sig hjá fyrirtækjaskrá sem félög til almannaheilla. Mjög mikilvægt atriði í frumvarp- inu er að slík skráning yrði val- kvæð, þannig að lítil félög sem ekki höndla með fjármuni eða eru undir- félög í regnhlífasamtökum þurfa ekki að skrá sig og þá eiga þessi lög ekki við um þau. Í frumvarpinu eru tvö efnisleg atriði. Í fyrsta lagi eru sett fram nokkuð ítarleg viðmið um lýðræðislega stjórnarhætti, t.d. um að félag þurfi að hafa sam- þykktir og stjórn en líka um hvern- ig tryggja megi lýðræðislegar kosn- ingar og ákvarðanir stjórnar. Í öðru lagi er í frumvarpinu gerð krafa um að ef valið er að skrá sig sem félag til almannaheilla þá þurfi félagið að halda bókhald og skila inn ársreikningi. Þetta eru nú allar hömlurnar. Hindranirnar eru sára- litlar og engar fyrir lítil félög því þau ráða sjálf hvort þau teljist formleg félög til almannaheilla. Óþarfi er að óttast að skilyrði, sem almannaheillasamtökin sjálf telja almenna skynsemi og muni auka fagmennsku og trúverðug- leika greinarinnar gagnvart al- menningi og yfirvöldum, og sem þar að auki eru valkvæð, muni koma til með að hindra og íþyngja starfi þessara sömu félaga. Fagmennska til almannaheilla Eftir Ketil Berg Magnússon Ketill B. Magnússon » Almannaheilla- félögin styðja um- rætt lagafrumvarp og þykir eðlilegt að gera þær lágmarkskröfur um fagmennsku og lýðræð- isleg vinnubrögð sem þar er kveðið á um. Höfundur er formaður Almanna- heilla, samtaka þriðja geirans. Ég var á heimleið 11. apríl sl. eftir þriggja daga dvöl á Akureyri. Ég var staddur á Keflavíkurflugvelli, ánægður eftir frábæra fundi í Norðurlanda- ráði og góðar samræð- ur við starfssystkini mín frá öllum þjóðþing- um Norðurlanda. Á flugvellinum virtist ekki vera mikið að gera. Engu að síður var löng röð ungra og hressra Íslendinga við ör- yggisleitina. Biðin var löng því aðeins eitt hlið var opið og töskur og yf- irhafnir runnu gegnum skanna á einu færibandi. Ég hafði nýlega verið í aðgerð vegna slæmsku í hægra hné og feng- ið málmstykki lagt þar inn. Ég var spenntur að sjá hvort skanninn myndi bregðast við þessu, en þegar ég fór frá Kaupmannahöfn hafði það ekki gerst. Fyrir framan mig var drengur sem ég held að hafi verið um fjórtán ára gamall. Hann varð mjög tauga- óstyrkur þegar rauður lampi lýsti við eftirlitið. Ég hafði tekið eftir því að eftirlitsmaðurinn, sem var karl- maður, líklega á fimmtugsaldri og sá eini af því kyni sem starfaði við ör- yggishliðið kl. 09:45 um morgun, var óþægilega afskiptasamur og tók sér góðan tíma til að rannsaka fórnar- lömbin, bæði með því að fara höndum um allan líkama þeirra og með hand- skanna. Eftirlitsmaðurinn bað unga mann- inn að taka sér stöðu á upphækkun til að auðvelda leitina og bað mig um leið um að ganga í gengum skannann. Skanninn sendi frá sér hljóð og þá var ljóst að meira var að gera fyrir eftirlits- manninn, sem mér virt- ist fyrirfram vera nokk- uð afundinn. Ég reyndi að útskýra að ég væri með gervihné úr málmi, en það virtist bara gera hann enn ónotalegri í framkomu. Hann skip- aði mér að fara til hliðar og taka af mér skóna. Drengurinn áðurnefndi virtist afar leiður yfir þeirri meðferð sem hann hafði fengið. Og nú var komið að mér að stíga upp á pallinn. Ég sýndi eftirlitsmanninum vega- bréfið mitt og sagði frá því að ég væri danskur þingmaður, ekki til að losna við eftirlitið heldur í von um eitthvað vægari og liprari meðferð. Þetta virt- ist ofbjóða eftirlitsmanninum og nú varð hann reiður. Hann leit á mig eins og grunaðan glæpamann og hóf mjög nákvæma rannsókn á fatnaði mínum og líkama. Þar sem leitin var óþægileg sagði ég aftur að það væri hnéð sem væri vandamálið. Ég hef aldrei áður upplifað jafn óþægilega manneskju. Hann fór um buxna- strenginn og leitaði í buxunum inn- anverðum. Allt var skoðað. Já, allt! Ég varð mjög leiður yfir þessari hegðun starfsmannsins og sagði að mér fyndist hann ekki sýna nægan samstarfsvilja og ganga of langt. Hann steig þá eitt skref til baka og spurði mig hvort ég hefði eitthvað meira að segja? Hvort ég vildi vera áfram á Íslandi, því að ef ég héldi áfram að þvæla þá færi ég hreinlega ekki með því flugi sem ég ætlaði. Ég varð mjög miður mín, upplifði þetta sem hótun glæpamanns, en baðst samt afsökunar. Hann hélt þá áfram sinni rannsókn með hand- skannanum og kom eftir langan tíma að hnénu. Þar lét tækið frá sér hátt hljóð. Ég varð mjög skelkaður og hugs- aði með mér að hingað til Íslands kæmi ég aldrei aftur því hér hefði verið gengið alltof langt. Eftirlits- menn á flugvöllum hafa það verkefni að finna sprengjur, hnífa og hryðju- verkamenn. Það var augljóst að ekki var hægt að setja mig í þann bás og ég hafði strax látið vita af því hver ég væri og af hverju skanninn hefði gef- ið frá sér hljóð. Það verður að gera þá kröfu til starfsmanna að þeir tali og umgangist ferðamenn og flug- farþega af virðingu og æsi sig ekki upp. Og ég segi þetta sem 69 ára gamall fulltrúi í varnarmálanefnd danska þjóðþingsins. Ég held að einmitt það að ég sagði hver ég væri hafi vakið reiði eftirlits- mannsins; hann varð bókstaflega valdasjúkur. Hann ætlaði að sýna mér að jafnvel þó að sjálfur danski krónprinsinn hefði verið á ferð þá væri það hann sem réði hér, að ég ætti bara að bugta mig og hlýða. Fætur mínir skulfu enn þegar ég gekk að brottfararhliðinu og ég upp- götvaði að ég hafði gleymt að kaupa íslenskan lakkrís. Kollegi minn, sem sá að ég átti erfitt um gang, ákvað að hjálpa mér. Hún hljóp til baka en kom aftur tómhent 10 mínútum síð- ar. Hugsaðu þér, sagði hún, ég bað um poka af lakkrís en fékk ekki af- greiðslu þar sem ég gat ekki sýnt brottfararspjald. Ég veit vel að sýna verður brottfararspjald við kaup á áfengi og tóbaki, en að það þurfi að gera við kaup á sælgæti furðar mig. Er það ekki of langt gengið? Á tímabilinu 2011 til 2017 hefur fjöldi erlendra ferðamanna á Íslandi rúmlega þrefaldast. Ég samgleðst Íslendingum yfir þeim árangri. En ferðamenn eiga skilið gott viðmót og skikkanlega meðferð. Óþægileg og ónauðsynleg lífs- reynsla við brottför frá Íslandi Jan Erik Messmann » Það verður að gera þá kröfu til starfs- manna að þeir tali og umgangist ferðamenn og flugfarþega af virð- ingu og æsi sig ekki upp. Jan-Erik Messmann Höfundur er fulltrúi á þjóðþingi Dan- merkur og í Norðurlandaráði. Furðuleg staða er í vinnudeilu ljósmæðra við ríkið. Þess er kraf- ist að ljósmæður leggi á sig tveggja ára launalaust nám eftir hjúkrunarfræðinám og taki svo á sig launa- lækkun. Þá hafa þær heldur ekki fengið greidd laun fyrir vinnu sem þær voru neyddar til að inna af hendi í verkfallsaðgerðum fyrir fá- einum árum. Hvað er svona flókið við þessa deilu? Mánuðum saman hefur þessi lífsnauðsynlega stétt staðið í störukeppni við samninga- nefnd ríkisins án árangurs. Ég skil ekki af hverju komið er fram við fólk á þennan hátt og ekki aðeins stétt- ina, heldur einnig skjólstæðinga hennar. Afleiðingarnar eru þær að fjöldi ljósmæðra hefur þegar sagt upp störfum, aðrar íhuga uppsögn og ekki fást nýliðar í starfið. Með framkomu sinni hefur samninganefndin í nafni ríkisins hagað sér þannig að lítið er eftir af þolinmæði hjá ljós- mæðrum. Þær virðast þó vera seinþreyttar til vandræða. Að mínum dómi ættu ljósmæður nú að hætta öllum við- ræðum við samninga- nefndina og krefjast þess að ráðherrar fjár- mála og heilbrigðismála semji við þær milliliða- laust. Þeir ágætu ráðherrar mættu líka skilja að svona á ekki að koma fram við starfsfólk sitt. Óskiljanlegt ranglæti Eftir Tryggva P. Friðriksson Tryggvi P. Friðriksson »Ég skil ekki af hverju komið er fram við fólk á þennan hátt. Höfundur er listmunasali. Tryggvi P. Friðriksson Fasteignir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.