Morgunblaðið - 14.04.2018, Page 29
UMRÆÐAN 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2018
Mikið hefur verið
kvartað undan því að
höfuðborgarsvæðið hafi
ekki eignast miðbæ.
Orsakirnar eru m.a. að
svæðið skiptist í mörg
sveitarfélög, sem reynt
hafa að byggja upp sína
„miðbæi“.
Reykjavík er svo
óheppin að hinn gamli
miðbær er mjög vest-
anrlega á nesinu, þannig að hann
gat einungis vaxið sem lína inn eftir
Laugavegi, og síðan Suðurlands-
braut. Eftir að Hlemmi er náð minn-
ir byggðin lítið á miðbæjarsvæði, er
sundurslitin og lítt ánægjuleg.
Vegna þess að nýju hverfin í
Reykjavík byggðust langt frá mið-
bænum, varð að byggja þar mið-
kjarna; Glæsibæ og Mjódd. Í þess-
um tilfellum tókst svo illa til að
„mið“kjarnarnir voru staðsettir í út-
jaðri hverfanna.
Þjónusta hefur aukist í seinni tíð.
Vegna þess hafa miðbæir víða
styrkst. Í Reykjavík hefur þetta
ekki verið nýtt til að skapa einn
stóran, öflugan miðbæ. Í stað þess
er þessari starfsemi dreift út um
alla borg. Líklega hefði besta svæð-
ið fyrir nýjan miðbæ verið við
Elliðavog og á Ártúnshöfða, en við
vogana er núna búið að skipuleggja
íbúðarbyggð.
Dreifing byggðar
á sér gamla rót
Stór náttúrusvæði dreifa byggð-
inni og skilja að byggðareiningar.
Dæmi: Úlfarsfell skilur Mosfellsbæ
frá Reykjavík, og Garðahraun skilur
Garðabæ og Hafnarfjörð að.
Einhverjir snillingar fundu það út
fyrir þremur árum að ekki mætti
taka hraunasvæði undir vegi og
byggð. Samt hefur Hafnarfjörður
nær allur verið byggður á hraunum,
og er fyrir bragðið svo sérstakur að
hann mætti setja á heimsminjaskrá.
Önnur orsök skipulagsvandamál-
anna í dag, er erlend skipulags-
stefna; „sóning“. Hún varð til í skít-
ugum iðnborgum og íbúarnir voru á
kafi í menguninni. Ráðið við vand-
anum var að skipta borgum í „són-
ur“, annars vegar fyrir iðnað og svo
– fjarri þeim – íbúðarsónur. Þessi
stefna var tekin upp hérna, og urðu
þá til hin leiðinlegu svefnhverfi.
Meðal vondra áhrifa af svona skipu-
lagi er svo líka að atvinnustaðir voru
fáir, og þarf því að leggja dýrar
stofnbrautir til atvinnusvæðanna,
sem eru aðallega í vesturhluta
Reykjavíkur.
Hin rétta aðferð í skipulagi – til
að lagfæra þennan vanda – er að
auka fjölda atvinnutækifæra og
þjónustu í svefnhverfunum. Við það
minnkar umferðin á stofnbraut-
unum. Einmitt þetta hefur verið
gert í hinum gömlu „svefnhverfum
Reykjavíkur“, Kópavogi, Garðabæ
og Hafnarfirði. Niðurstaðan er sú að
umferð, t.d. á Hafnar-
fjarðarvegi, hefur
furðu lítið aukist, þrátt
fyrir mjög aukinn
íbúafjölda. Um leið
hefur flest þjónusta
færst nær íbúunum.
Í Reykjavík hefur
hinsvegar umbótum á
úthverfunum verið lít-
ið sinnt. Þau eru enn,
að mestu, sömu leiðin-
legu svefnhverfin.
Reykjavík býr af
ýmsum ástæðum yfir
miklum fjölda stofnana, sem fluttar
hafa verið til, innan borgarinnar í
seinni tíð, … en hvert? Ekki í aust-
ur, sem komið hefði á meira jafn-
vægi atvinnusvæða og íbúða í borg-
armyndinni. Nei! Stórar stofnanir
hafa verið fluttar til vesturs, þannig
að nú verða enn fleiri að fara eftir
Miklubrautinni til vinnu … og það á
enn eftir að versna.
Dæmi um stofnanir sem er verið
að flytja til vesturs, eru Kennara-
háskólinn frá Stakkahlíð til háskóla-
svæðisins. Háskólinn í Reykjavík
var fluttur frá Kringlu vestur fyrir
Öskjuhlíðina og Tækniskólinn
gamli, sem var á Ártúnshöfða, hefur
líka verið fluttur þangað. Loks
stendur til að flytja Fossvogsspítala
á Landspítalasvæðið. Samtals tengj-
ast þessum stofnunum um 30 þús-
und störf, sem leiða til mikils um-
ferðarálags. Önnur ástæða mikils
umferðarálags er bygging mikils
fjölda hótela í vesturhluta Reykja-
víkur.
Ef pólitíkusar og skipulagsmenn
hefðu stöðvað uppbyggingu atvinnu-
staða í vesturhluta Reykjavíkur – og
beint uppbyggingunni til austurs –
væru umferðarvandamálin á Miklu-
braut og Hringbraut lítil.
Ofálag á stofnbrautum
– Hvað á að gera?
Nú vaknar spurningin: Hvað eig-
um við að gera? Settar hafa verið
fram ýmsar tillögur, svo sem göng
undir Öskjuhlíð og Kópavogsháls,
sem mundu kosta miljarðatugi.
Mönnum líst heldur illa á það. Núna
er svo komin fram ný tilaga um 70
miljarða borgarlínu, sem þó er lík-
legt er að fólk vilji ekki nota í þeim
mæli sem reksturinn krefst, nema
með þvingunaraðgerðum.
Undirritaður telur að leggja eigi
ofangreind áform á hilluna og hefja í
staðinn, mikinn flutning stofnana og
atvinnutækifæra til austursvæð-
anna. Kannski er réttast að búa til
nýjan stjórnsýslu- og menningar-
miðbæ í Elliðaárdal. Þar er mjög
fagurt og stórt svæði, sem liggur
meðfram Rafstöðinni, og á milli
reiðvallarins og Breiðholts III.
Reykjavík gæti byrjað á þessum
nýja miðbæ með að reisa þarna
Ráðhús úthverfanna. Hún gæti líka
t.d. flutt Listasafnið úr Hafnarhús-
inu, sem er illa aðgengilegt vegna
umferðarhnúta og skorts á bílastæð-
um.
Ríkið gæti hjálpað til við að
byggja Dalbæ með að byggja yfir
einhver ráðuneyti og stofnanir á
svæðinu. Þarna mætti líka koma
fyrir þjónustu og íbúðabyggð, þann-
ig að þessi nýi miðbær fylltist lífi.
Við verðum að horfast í augu við
það að við erum búin að missa af
hinum gamla, fallega miðbæ, bæði
vegna þess hve hann er langt í burtu
frá fólkinu og umferðarlega aflok-
aður, og eins vegna ljóts módern-
isma, túrisma og ofþéttingar.
Hvað um línubyggð
meðfram borgarlínu?
Lítum nú nánar á skipulagsafleið-
ingar borgarlínunnar. Hluti af til-
lögunum um hana felst í því að með-
fram línunum komi 400 m þétt-
býlisbelti á hvora hönd. Á þessi belti
á að koma nær öll byggðaaukning til
ársins 2040 og mundu þá búa þar
álíka fólksfjöldi og í Kópavogi og
Garðabæ.
Þessi hugmynd um þétt byggðar-
svæði upp við borgarlínurnar, hefur
þann tilgang að stutt sé í hinn nýja
strætó, en með því að láta fólk búa
upp við línurnar, aukast líkurnar á
að fólk vilji nota hann.
Það er alþekkt að skipulagsmenn
teikna allskonar þjónustu á upp-
drætti sína, þjónustu sem oft kemur
alls ekki, eins og var t.d. í Bryggju-
hverfinu við Grafarvog. Sama núna:
Skipuleggjendur borgarlínu gera
ráð fyrir mikilli þjónustustarfsemi á
hinum þéttu „þróunarsvæðum“…
sem er alger veruleikafirring. Sagt
er jafnvel að þarna meðfram þess-
um 57 km borgarlínum eigi að
myndast „þorpsstemning“!
Skoðum nú hvernig þetta gæti lit-
ið út við Hafnarfjarðarveg: Borgar-
línan og biðstöðvar hennar væru í
miðjunni. Að biðstöðvunum lægju
göngustígar, þvert á umferðaræð-
arnar, sem tefði umferðina. Húsin
stæðu nokkuð þétt upp að Hafnar-
fjarðarveginum, og ef gluggi væri
opnaður bærist ryk og hávaði inn.
Fljótlega kæmi því að því að íbú-
arnir krefðust þess að dregið yrði úr
umferðinni og umferðarhraðanum.
Væri Hafnarfjarðarvegur því fljót-
lega úr sögunni sem ásættanleg um-
ferðartenging á milli Hafnarfjarðar,
Garðabæjar og Reykjavíkur.
Svona línubyggð byði vissulega
upp á nálægð við borgarlínuna en
mundi, að áliti undirritaðs, verða
dauð, ljót og leiðinleg. Þessi byggð
mundi að auki stinga í stúf við
byggðarmynstur sveitarfélaganna.
Stjórnmálamenn ættu frekar að
gefa fólki kost á að búa þar sem fal-
legt er, t.d. við strendur, í austur-
enda Viðeyjar og við vötnin ofan við
byggðina. Við eigum að láta annað
móta byggðina en það eitt að stutt
sé í borgarlínustrætó … sem kemur
svo kannski aldrei.
Eftir Trausta
Valsson »Leggja á ofangreind
áform á hilluna og
hefja í staðinn mikinn
flutning stofnana og at-
vinnutækifæra til aust-
ursvæðanna. Kannski er
réttast að búa til nýjan
stjórnsýslu- og menning-
armiðbæ í Elliðaárdal.
Trausti Valsson
Höfundur er prófessor emerítus í
skipulagi við HÍ.
Morgunblaðið/Eggert
Skuggamyndun Með þéttingu byggðar í Reykjavík er að koma í ljós að hin þétta byggð hindrar
aðgengi sólarljóss, skapar skugga og lokar fyrir útsýni. Myndin er frá Lindargötu í Skugga-
hverfinu í Reykjavík. Heitið Skuggahverfi er nú aftur að verða að réttnefni.
ja.is
Hentugt íbúðasvæði Stórt óbyggt svæðið í Elliðaárdal, norðan Rafstöðvarinnar. Í vinstra horn-
inu er Toppstöðin. Opinberar byggingar tækju sig vel út í hallanum. Nálægðin við útivistar-
svæðið í dalnum er stórkostleg.
Borgarlína: leiðinleg línubyggð
Þéttbýlisbelti 400 metra þéttbýlisbelti á að koma til beggja handa við borg-
arlínurnar. Á þeim á nær öll framtíðarbyggð á höfuðborgarsvæðinu til 2040
að rísa, alls um 40 til 50 þúsund manna byggð, til að sjá borgarlínunni fyrir
nægilegum fjölda farþega. Sumstaðar er þéttleikinn þegar nógu mikill, en
sumstaðar munu byggingaraðilar vilja kaupa upp gamlar eignir og reisa þá
þéttu byggð sem borgarlínuskipulagið mun gefa leyfi fyrir.
Fyrirsögn
Meginmál
Heimild:
Hlemmur
Harpa
BSÍ
Kringlan
Borgarlínan – greining á bestu legu
Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, mars 2015
Íris Hall lögg.fasteignasali
Sími 695 4500
netfang: irishall@islenskafast.is
Ármúla 4-6 Reykjavík.
Eign í algjörum sérflokki við sjávarsíðuna.
190 m2. Hvert rými í íbúð vel skipulagt og
rúmgott með vönduðum innréttingum og
gólfefnum. Lofthæð 2.70 m, gluggar stórir,
útsýni til sjávar, staðsetning einstök.
Stórar stofur með einstöku sjávarútsýni.
Eldhús í opnu rými, sérsmíðaðar
innréttingar, tvö stór böð, stórar svalir,
þakgarður. Eingöngu tvær íbúðir á
hæðinni.
Eigninni fylgir stæði í lokuðum
bílakjallara.
Viðhald byggingar og lóðar er á höndum
húsvarðar.
Öryggismyndavélar og kerfi eru í húsinu
sem eykur enn frekar gæði búsetunnar.
Verð: 145.000.000,-
Vatnsstígur, Reykjavík – Penthouse íbúð