Morgunblaðið - 14.04.2018, Síða 32
32 MESSURá morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2018
✝ Anna Atladóttirfæddist í
Reykjavík 11. febr-
úar 1959. Hún lést
á Heilbrigðisstofn-
un Suðurlands 7.
apríl 2018.
Foreldrar Önnu
voru Atli Hall-
dórsson, vélstjóri, f.
3. júlí 1924, d. 16.
febrúar 2007, og
Aðalbjörg Ágústs-
dóttir, verslunarkona, f. 3. sept-
ember 1920, d. 7. febrúar 2003.
Systkini Önnu eru Kristinn, f.
17. júlí 1948, Ída, f. 7. október
1951, og Auður, f. 10. maí 1957.
Anna giftist Sveini Sigur-
mundssyni 29. desember 1979.
Þau skildu. Börn þeirra eru: 1)
Soffía, f. 17. apríl 1977, maki
Elmar Viðarsson, f. 20. nóv-
ember 1973, dætur þeirra eru
Erna Huld, f. 2015, og Vigdís
Anna, f. 2017. 2) Knútur, f. 5.
ágúst 1987, maki Signý Eva
Auðunsdóttir, f. 2. maí 1990.
Synir Knúts og
Höllu Maríu Guð-
mundsdóttur eru
Jóel Breki, f. 2011,
og Jökull Gauti, f.
2013. 3) Bjarni, f.
29. nóvember
1990. 4) Sölvi, f.
26. október 1995.
Anna ólst upp í
Garðabæ og lauk
gagnfræðaprófi
árið 1974. Hún
vann ýmis störf um ævina,
meðal annars hjá innflutnings-
deild Sambandsins, á nautaupp-
eldisstöð Búnaðarfélags Íslands
og á skrifstofu Kaupfélags Ár-
nesinga. Lengstan hluta starfs-
ævi sinnar vann Anna banka-
störf, fyrst hjá Samvinnubank-
anum en síðan Landsbanka
Íslands á Selfossi, fyrst sem
gjaldkeri en síðan sem hús-
vörður.
Útför Önnu fer fram frá Sel-
fosskirkju í dag, 14. apríl 2018,
klukkan 11.
Elsku mamma mín.
Þetta er svo ósanngjarnt að þú
farir svona ung. Það er sérstök til-
finning að geta ekki tekið upp sím-
ann og heyrt í þér. Sárt er að hugsa
til þess að geta ekki farið með
barnabörnin til ömmu sinnar í
kaffi.
Það er svo margt sem er erfitt.
Það hefur verið aðdáunarvert að
fylgjast með þér, þú ert svo mikill
jaxl, alltaf hélst þú ótrauð áfram og
fram á síðustu stundu varst þú að
hugsa um verkefni eins og að koma
öllu í stand, kaupa þér annan bíl og
halda öllu snyrtilegu og fínu. Þú
hefur reynst mér svo vel í gegnum
tíðina, þegar ég var að byrja að búa
þá varst þú með nefið ofan í öllum
skúffum og skápum hjá þér að
finna eitthvað til að færa mér, fara í
nytjamarkaði og varst með putt-
ann á púlsinum. Þetta voru hlutir
sem að mig grunaði aldrei að mig
vantaði. Þú passaðir vel upp á þitt,
þegar ég var ungur þá áttir þú allt-
af sælgæti sem nammigrísinn litli
ég var að stelast í, eftir því sem
birgðirnar minnkuðu fannst þú
aðra felustaði, ég þefaði þá samt
alla uppi.
Þegar ég lít til baka er ég á sama
tíma ægilega þakklátur fyrir
stundir okkar síðustu ár, öll símtöl-
in, samverustundirnar og jólin síð-
ustu með okkur Signýju og barna-
börnunum þrjú. Það eru erfiðir og
krefjandi tímar framundan og þú
verður alltaf í hjarta mínu, elsku
mamma mín.
Þinn sonur,
Knútur.
Elsku mamma, þó að við vissum
í hvað stefndi er þetta svo óraun-
verulegt. Greiningin fyrir rúmu ári
var þungt högg og þér var kippt úr
vinnu og tómstundum mjög snögg-
lega. Þú tókst á við veikindi þín af
svo miklum krafti og æðruleysi. Þú
vissir að sjúkdómurinn myndi
sigra en varst samt staðráðin í að
nota tímann sem eftir var vel.
Heilsa þín í veikindunum var ótrú-
leg og náðir þú að njóta tímans með
fjölskyldu og vinum.
Jólagjöfin sem við systkinin gáf-
um þér sló í gegn hjá þér, en það
var utanlandsferð með mér og
Bjarna bróður. Þú fékkst að velja
borgina og valdir Edinborg. Þar
rættist gamall draumur þinn að
heimsækja þá borg. Við skipulögð-
um ferðina með nær engum fyr-
irvara og vorum farin um tveimur
vikum eftir jól. Það var ekki í þín-
um anda að skipuleggja eitthvað
svona með jafn stuttum fyrirvara,
en eftir á að hyggja fannst þér það
mjög skemmtilegt ævintýri. Við
gistum á flottu hóteli miðsvæðis í
borginni og þú naust þín í botn í
búðum með okkur bræðurna í eft-
irdragi. Eina eftirsjá þín af þeirri
ferð var að þú hefðir viljað versla
meira, en það var eitt af því
skemmtilegasta sem þú gerðir.
Það er mér ofarlega í huga
hvernig þú nenntir aldrei að standa
í neinum deilum eða leiðindum. Þú
varst fljót að fyrirgefa og eyddir
ekki tíma þínum í fýlu.
Þegar þú tókst að þér verkefni
laukst þú alltaf við það. Sama
hversu langdregið eða leiðinlegt
verkefnið var, þú hljópst aldrei frá
hálfkláruðu verki. Eftir að þú
laukst við eitt verkefni hafðir þú
annað á prjónunum, hvort sem það
var eitthvert handverk, viðhald í
íbúðinni, að skipuleggja og raða í
skápa eða lesa góða bók.
Það var svo gaman að sjá hvað
þú hafðir komið þér vel fyrir í nýju
íbúðinni þinni. Þú hafðir lokið við
að taka allt í gegn, mála veggi, loft
og glugga, skipta um parket og
setja nýjar innréttingar.
Næst á dagskrá hjá þér var að
endurnýja bílinn þinn. Því miður
vannst þér ekki tími til að ná því.
Samband okkar var á margan
hátt óvenjulegt. Áður en ég varð
unglingur eyddum við miklum tíma
saman og vorum mjög samtaka í
því sem við gerðum. Ég fékk oft
hugmyndir að einhverju sem við
gætum gert, yfirleitt leist þér vel á
þær hugmyndir og við fram-
kvæmdum það saman. Það var þér
erfitt þegar ég óx úr grasi og tengsl
okkar breyttust. Mér þykir svo
vænt um þann tíma undanfarið ár
þar sem bönd okkar styrktust á
nýjan leik og áttum við góðar
stundir saman. Ég finn það alltaf
betur hvað ég líkist þér, við vorum
sammála um svo margt.
Samband þitt við barnabörnin
þín var svo fallegt, þau gáfu þér svo
mikla fyllingu. Hvernig augu þín
ljómuðu, röddin varð silkimjúk og
þú beygðir þig niður til þess að
taka þau upp og knúsa. Fyrir
stuttu síðan sagðir þú við mig:
veistu Sölvi, ég er orðin svo mikil
barnakerling.
Það er sárt að standa á þessum
tímamótum sem ungur maður. Það
eru svo margar stundir í lífi mínu
sem ég á eftir að sakna þess að geta
ekki deilt með þér.
Takk fyrir allt, mamma mín.
Þinn,
Sölvi.
Anna var yngsta barn foreldra
minna og það fyrsta sem fellur frá.
Hún var aðeins 18 ára þegar hún
eignaðist sitt fyrsta barn og eign-
aðist hún fjögur börn með manni
sínum, Sveini Sigurmundssyni.
Henni fórst móðurhlutverkið vel úr
hendi og var alla tíð mjög mynd-
arleg húsmóðir. Anna gerði sér
mjög vel grein fyrir þýðingu þess
að börn hennar lærðu að elda, baka
og taka til. Hún var mjög snyrtileg,
nákvæm og tiltektarsöm. Þessir
eiginleikar hennar komu sér mjög
vel í starfi sem bankastarfsmaður
og húsvörður í Landsbankanum á
Selfossi. Ef Anna skuldaði mér
eitthvað var það borgað til baka
upp á krónu. Anna gerði miklar
kröfur til sjálfrar sín og til annarra
um að ganga frá öllu og fór hún
aldrei frá heimili sínu ef óhreinn
bolli var á borði eða í vaskinum.
Önnu fannst mjög skemmtilegt og
hana klæjaði í fingurna að fá að
taka til í skápunum hjá mér. Því
meira drasl þess betra. Við skipt-
um með okkur verkum, hún sá um
tiltektina, en ég um matseld fyrir
okkur. Við systur náðum sérlega
vel saman um að vera duglegar að
versla og eyða peningum. Við átt-
um töluverð viðskipti við „Ali
frænda í Kína“ og um það var rætt
á kvöldin í síma eða þegar við hitt-
umst hvað við vorum að kaupa. Síð-
astliðin ár eftir að þau Sveinn
skildu vorum við mikið saman, fór-
um í útilegur með tjaldvagn, vorum
í sumarbústöðum og ferðuðumst
saman til útlanda.
Eftir að Anna greindist með
krabbamein í janúar 2017 töluðum
við saman í síma á hverju kvöldi.
Þau samtöl voru góð og mjög verð-
mæt fyrir okkur báðar. Í maí á síð-
asta ári fórum við í mjög góða ferð
til Spánar og skemmtum okkur
konunglega. Við fórum í seinustu
utanlandsferð okkar um miðjan
mars sl., en þá fórum við til Berl-
ínar. Sú ferð var mjög erfið vegna
veikinda Önnu sem höfðu undir það
síðasta áhrif á vitræna getu hennar
og líkamlegt þrek. Anna var samt
mjög bjartsýn og dugleg enda tók
hún ákvörðun strax og henni var
ljóst í hvað stefndi að þannig ætlaði
hún að takast á við veikindin. Anna
systir mín var vel gefin og umfram
allt vel gerð manneskja sem ég var
heppin að eiga.
Ída Atladóttir.
Anna frænka okkar er dáin á
besta aldri og veröldin er fátækari
á eftir.
Einstök kona fallin í valinn. Við
þrjár vorum systkinabörn og vor-
um í nánu samneyti, þegar við ól-
umst upp.
Það gerði fyrst og fremst að
amma okkar Lilja og afi okkar
Ágúst héldu fjölskyldunni vel sam-
an og heimilið þeirra var eins og fé-
lagsheimili, þangað sem við kom-
um í tíma og ótíma og yfirleitt hitti
maður einhvern sem var þar á fleti
fyrir, þar sem skipst var á upplýs-
ingum um líðan og hagi.
Anna varð strax bráðger, mjög
dugleg og föst fyrir. Fljótlega bar
líka á þeirri kímnigáfu, sem ein-
kenndi hana alla tíð. Síðar meir
þroskuðust með Önnu þeir eigin-
leikar sem gerðu hana að frábærri
manneskju í alla staði. Þeim eig-
inleikum kynntumst við nöfnurnar
best þegar við tókum okkur langan
tíma og marga fundi til að undirbúa
ættarmót afkomenda ömmu okkar
og afa. Við hittumst oft, enda alltaf
gaman og umræður fjörugar og
fróðlegar. Einu sinni gleymdum við
okkur við spjall hjá Önnu á Sel-
fossi, veður hafði skipast í lofti og
var við það að verða ófært, við kom-
umst heim til Reykjavíkur við illan
leik, en ferðin var vel þess virði.
Þetta voru dýrmætar stundir og
Anna var óhemju skipulögð, allt
sem hún sagði stóð eins og stafur á
bók, úrræðagóð og hugsaði í lausn-
um. Einstaklega góðhjörtuð, mikill
mannasættir og vildi öllum vel.
Hallaði aldrei réttu máli. Ást Önnu
á landinu og íslenskri náttúru var
mikil, hún var raunar fædd sveita-
kona, var lengi í sveit og hafði yndi
af dýrum og átti hesta og sinnti
þeim af kostgæfni.
Hún fékk eins og flestir sinn
skerf af mótlæti en meðfæddur
dugnaður, umburðarlyndi og seigla
fleyttu henni í gegnum boðaföllin
og alltaf var land fyrir stafni. Hún
reyndist börnunum sínum fjórum
vel og eru þau vel af guði gerð og
Anna Atladóttir
HINSTA KVEÐJA
Ég vil gjarnan lítið ljóð
láta af hendi rakna
Eftir kynni afargóð
ég alltaf mun þín sakna
(Guðrún V. Gísladóttir)
Hvíldu í friði, kæra vin-
kona.
Sóley.
AKUREYRARKIRKJA | Guðsþjón-
usta kl. 11. Prestur Svavar Alfreð
Jónsson. Félagar úr Kór Akureyrar-
kirkju syngja. Organisti Eyþór Ingi
Jónsson. Sunnudagaskóli í Safn-
aðarheimilinu kl. 11. Umsjón Sindri
Geir Óskarsson og Hjalti Jónsson.
AKURINN kristið samfélag |
Samkoma í Núpalind 1, Kópavogi,
kl. 14. Biblíufræðsla, söngur og
bæn.
ÁRBÆJARKIRKJA | Messa kl. 11.
Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir
prédikar og þjónar fyrir altari. Kór
Árbæjarkirkju syngur undir stjórn
Krisztinu Kalló Szklenár. Sunnu-
dagaskóli á sama tíma í safn-
aðarheimilinu í umsjá Önnu Sigríðar
Helgadóttur og Aðalheiðar Þor-
steinsdóttur. Molasopi og spjall eft-
ir messuna.
ÁSKIRKJA | Messa og barnastarf
kl. 11. Benjamín Hrafn Böðvarsson
og Dagur Fannar Magnússon guð-
fræðinemar leiða samverustund
sunnudagskólans. Séra Sigurður
Jónsson sóknarprestur prédikar og
þjónar fyrir altari við messuna. Kór
Áskirkju syngur, organisti Bjartur
Logi Guðnason. Aðalsafnaðarfundur
Ássóknar 2018 verður haldinn í Ási,
efri safnaðarsal kirkjunnar, og hefst
strax að messu lokinni. Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf. Önnur
mál. Kaffiveitingar.
ÁSTJARNARKIRKJA | Laugar-
dagur 14. apríl. Fermingarmessur
kl. 11 og 14. Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11 á sunnudag. Báðir kórar
kirkjunnar syngja undir stjórn Keiths
Reed tónlistarstjóra. Hólmfríður S.
Jónsdóttir annast fræðsluna. Prest-
ur er Kjartan Jónsson. Hressing og
samfélag á eftir.
BESSASTAÐAKIRKJA | Messa kl.
11. Sr. Hans Guðberg þjónar ásamt
Margréti djákna. Álftaneskórinn
syngur undir stjórn Ástvaldar
Traustasonar. Á sama tíma er
sunnudagaskóli í safnaðarheimilinu.
Umsjón hafa Sigrún Ósk og Guð-
mundur Jens. Að athöfnum loknum
verður haldinn aðalfundur sókn-
arinnar í safnaðarheimilinu Brekku-
skógum.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Sunnu-
dagaskóli kl. 11 í umsjá Steinunnar
Þorbergsdóttur og Steinunnar Leifs-
dóttur. Fermingarguðsþjónusta kl.
13.30. Séra Magnús Björn Björns-
son þjónar fyrir altari. Kór Breið-
holtskirkju syngur undir stjórn Arnar
Magnússonar. Ensk bænastund kl.
15.30. Sr. Magnús Björn Björnsson
leiðir stundina.
BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa
kl. 11, Hreiðar Örn, Jónas Þórir og
séra Arnaldur Bárðarson. Guðsþjón-
usta kl. 14. Séra Arnaldur Bárð-
arson þjónar og predikar, félagar úr
kór Bústaðakirkju syngja undir
stjórn Jónasar Þóris kantors. Kaffi í
safnaðarsal eftir messu.
DIGRANESKIRKJA | Messa kl.
11. Prestur Bára Friðriksdóttir.
Ávextir andans og Vinir Digra-
neskirkju leiða söng. Sunnudaga-
skóli í kapellu á neðri hæð. Veit-
ingar í safnaðarsal að messu
lokinni.
Dómkirkja Krists konungs,
Landakoti | Messa á sunnud. kl.
8.30 á pólsku, kl. 10.30 á ís-
lensku, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á
ensku. Virka daga kl. 18, og má.
mi. og fö. kl. 8, lau. kl. 16 á
spænsku og kl. 18 er vigilmessa.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11.
Séra Sveinn Valgeirsson prédikar og
þjónar fyrir altari. Sunnudagaskóli á
kirkjuloftinu í umsjón Ólafs Jóns og
Sigurðar Jóns. Dómkórinn syngur
undir stjórn Kára Þormar dómorg-
anista. Æðruleysismessa kl. 20.
Séra Sveinn, séra Fritz og séra
Díana Ósk þjóna og Kristján Hrann-
ar leikur á flygilinn.
FELLA- og Hólakirkja | Fermingar-
messa og sunnudagaskóli kl. 11.
Sr. Guðmundur Karl Ágústsson og
sr. Jón Ómar Gunnarsson þjóna.
Kór kirkjunnar syngur undir stjórn
Arnhildar Valgarðsdóttur organista.
Matthías Stefánsson leikur á fiðlu
og Reynir Þormar spilar á saxófón.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Ferming-
armessa kl. 14. Hjörtur Magni Jó-
hannsson safnaðarprestur þjónar
fyrir altari. Hljómsveitin Mantra og
Sönghópurinn við Tjörnina leiða
sönginn ásamt Gunnari Gunnarssyni
organista.
GLERÁRKIRKJA | Laugardagur 14.
apríl. Fermingarmessa kl. 13.30. Sr
Gunnlaugur Garðarsson og sr. Stef-
anía G. Steinsdóttir þjóna. Kór
Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn
Valmar Väljaots organista.
Sunnudagur 15. apríl. Fermingar-
messa kl. 13.30. Sr. Gunnlaugur
Garðarsson og Stefanía G. Steins-
dóttir þjóna. Kór Glerárkirkju leiðir
söng undir stjórn Valmars Väljaots
organista.
GRAFARVOGSKIRKJA | Ferming
kl. 10.30. Prestar eru Arna Ýrr Sig-
urðardóttir og Grétar Halldór
Gunnarsson. Vox Populi leiðir söng
og organisti er Hilmar Örn Agn-
arsson. Ferming kl. 13.30. Prestar
eru Arna Ýrr Sigurðardóttir og Sig-
urður Grétar Helgason. Vox Populi
leiðir söng og organisti er Hilmar
Örn Agnarsson. Sunnudagaskóli á
neðri hæð kirkjunnar kl. 11. Umsjón
hafa Þóra Björg Sigurðardóttir og
Hólmfríður Frostadóttir. Undirleikari
er Stefán Birkisson.
GRAFARVOGUR - KIRKJUSELIÐ
Í SPÖNG | Selmessa kl. 13. Séra
Sigurður Grétar Helgason prédikar
og þjónar. Kór Grafarvogskirkju leið-
ir söng og organisti er Hákon Leifs-
son.
GRENSÁSKIRKJA | Messa og
sunnudagaskóli, Daníel Ágúst, Ásta
og Sóley taka á móti börnunum í
messunni sem hefst kl. 11 og svo
fara þau í sitt starf. Í messunni
þjónar sr. Eva Björk Valdimarsdóttir
ásamt messuþjónum. Samskot til
langveikra barna. Organisti er Ásta
Haraldsdóttir og sönghópur frá Do-
mus vox syngur. Kaffi á undan og
eftir messu. Bænastund kl. 10.15.
Æskulýðsmessa kl. 20. Sr. María
Ágústsdóttir þjónar fyrir altari.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti
| Fermingarguðsþjónustur kl. 10 og
12. Prestur Leifur Ragnar Jónsson,
organisti Hrönn Helgadóttir og
kvennakór Guðríðarkirkju syngur.
Meðhjálpari Guðný Aradóttir og
kirkjuvörður Lovísa Guðmundsdóttir.
HAFNARFJARÐARKIRKJA |
Sunnudagaskóli og fermingarmessa
kl. 11. Sunnudagaskóli í safn-
aðarheimilinu, umsjón Erla Björk og
Hjördís Rós.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og
barnastarf kl. 11. Sr. Jón Dalbú
Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir
altari. Hópur messuþjóna aðstoðar.
Félagar úr Mótettukór Hallgríms-
kirkju syngja. Organisti er Björn
Steinar Sólbergsson. Umsjón barna-
starfs Inga Harðardóttir. Bænastund
mánud. kl. 12.10. Fyrirbænaguðs-
þjónusta þriðjud. kl. 10.30. Árdeg-
ismessa miðvikud. kl. 8.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11.
Kór Háteigskirkju leiðir söng. Organ-
isti Steinar Logi Helgason. Prestur
Eiríkur Jóhannsson.
HVERAGERÐISKIRKJA | Ferming-
armessa kl. 10.30.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía
| Samkoma kl. 11. Samkoma á
spænsku Kl. 13. Reuniónes en esp-
añol. Samkoma á ensku kl. 14.
English speaking service.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Barna-
kirkja og almenn samkoma kl. 13.
Kristjana Guðbjartsdóttir prédikar.
Eftir stundina verða vöfflur til sölu
með kaffinu.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Heið-
arskólabörn fermd í hátíðarmessu
kl. 11 og 14 af sr. Erlu Guðmunds-
dóttur og sr. Fritz Má Jörgenssyni.
Kór Keflavíkurkirkju syngur undir
stjórn Arnórs Vilbergssonar org-
anista sem mun ekki aðeins spila á
orgel heldur einnig taka fram úkú-
lele. Messuþjónar verða Guðrún Há-
konardóttir og Stefán Jónsson,
Helga Jakobsdóttir og Linda Gunn-
arsdóttir.
KOTSTRANDARKIRKJA | Ferming-
armessa kl. 13.30.
KÓPAVOGSKIRKJA | Barna- og
fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Upp-
skeruhátíð barnastarfsins. Sigurður
Arnarson sóknarprestur leiðir stund-
ina ásamt barna- og æskulýðs-
leiðtogum. Börn úr þriðja bekk í
skólakór Kársnesskóla syngja undir
stjórn Þóru Marteinsdóttur. Hoppu-
kastalar og grillaðar pylsur eftir
guðsþjónustu. Bænastund þriðjudag
kl. 13.45 í safnaðarheimilinu Borg-
um.
KVENNAKIRKJAN | Guðsþjónusta
í safnaðarheimili Langholtskirkju
klukkan 20. Setið verður við borð,
lesið, sungið og beðið saman og
spjallað yfir kaffi og kökusneiðum.
Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir stýrir
messunni, Anna Sigríður Helgadóttir
syngur einsöng og Aðalheiður Þor-
steinsdóttir stjórnar söngnum.
LANGHOLTSKIRKJA | Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11. Sr. Jóhanna
Gísladóttir leiðir samveruna ásamt
Magnúsi Ragnarssyni organista.
Yngri hópar Krúttakórs Langholts-
kirkju taka lagið fyrir kirkjugesti und-
ir stjórn Söru Grímsdóttur og Auðar
Guðjohnsen. Aðalsteinn Guðmunds-
son kirkjuvörður og messuþjónar
aðstoða við helgihaldið. Kaffi, djús
og ávextir eftir stundina. Starf aldr-
aðra fer fram alla miðvikudaga kl.
12-15.30 þar til í maí.
LAUGARNESKIRKJA | Messa kl.
11. Kór Laugarneskirkju og Elísabet
Þórðardóttir organisti. Sr. Davíð Þór
Jónsson þjónar fyrir altari og préd-
ikar. Sunnudagaskóli í safn-
aðarheimilinu á meðan. Kaffi og
samvera á eftir.
Miðvikudagur 18. apríl. Helgistund
kl. 14 Félagsmiðstöðinni Dalbraut
18-20. með séra Davíð Þór og El-
ísabetu organista.
Fimmtudagur, sumardagurinn fyrsti,
19. apríl. Fermingarmessa kl. 11.
NESKIRKJA | Messa og barnastarf
kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Kór
Neskirkju syngur. Organisti Stein-
grímur Þórhallsson. Prestur Skúli S.
Ólafsson. Umsjón Katrín, Yrja, Heba
og Ari. Samfélag og kaffisopi á
Torginu eftir messu.
SALT kristið samfélag |
Sameiginlegar samkomur Salts og
SÍK kl. 17 alla sunnudaga í Kristni-
boðssalnum Háaleitisbraut 58-60,
3. hæð. Ræðumaður Daníel Stein-
grímsson. Barnastarf. Túlkað á
ensku.
SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Bára og Perla leiða
samveruna. Guðsþjónusta kl. 14.
Sr. Jón Ómar Gunnarsson predikar,
kór Seljakirkju leiðir söng. Organisti
Tómas Guðni Eggertsson.
SELTJARNARNESKIRKJA |
Fræðslumorgunn kl. 10. Vatnsleysu-
strönd og Kálfatjarnarkirkja. Sr.
Bjarni Þór Bjarnason talar. Guðs-
þjónusta og sunnudagaskóli kl. 11.
Una Margrét Jónsdóttir,
dagskrárgerðarmaður á RÚV, fjallar
um sálmaskáldið sr. Stefán Thor-
arensen. Leiðtogar sjá um sunnu-
dagaskólann. Sóknarprestur þjónar
fyrir altari. Friðrik Vignir Stefánsson
er organisti. Félagar úr Kammerkór
kirkjunnar syngja. Kaffiveitingar og
samfélag eftir athöfn.
VÍDALÍNSKIRKJA | Messa og
sunnudagaskóli kl. 11. Guðný Char-
lotta, nemandi í Listaháskólanum,
leikur á píanó. Sr. Friðrik J. Hjartar
þjónar ásamt Jóhanni Baldvinssyni
og félögum úr Kór Vídalínskirkju og
messuþjónum. Kaffi, djús og spjall
að messu lokinni.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði |
Messa kl. 11. Kór Víðistaðasóknar
syngur undir stjórn Kristínar Jóhann-
esdóttur. Prestur Bragi J. Ingibergs-
son. Sunnudagaskóli kl. 11. María
og Bryndís leiða stundina. Aðalsafn-
aðarfundur í safnaðarheimilinu að
guðsþjónustu lokinni. Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Orð dagsins: Ég er
góði hirðirinn.
(Jóh. 10)
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Tálknafjarðarkirkja.
Minningar