Morgunblaðið - 16.04.2018, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 16.04.2018, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. APRÍL 2018 Lífrænar mjólkurvörur • Engin aukaefni • Meira af Omega-3 fitusýrum • Meira er af CLA fitusýrum sem byggja upp vöðva og bein • Ekkert undanrennuduft • Án manngerðra transfitusýra www.biobu.is Hindberjajógúrt Fimm góðar ástæður til að velja lífræna jógúrt Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Það er mikilvægt að koma til móts við sjúkraliða í næstu kjara- samningum og gera breytingar á starfsumhverfi. Sjúkraliðar eru sú stétt heilbrigðisstarfsfólks sem er í hvað mestu návígi og bestum tengslum við sjúklinga og þekkja einkenni veikinda og sjúkdóma. Starfið er þó oft vanmetið, þarf að vera sýnilegra og því vil ég breyta,“ segir Sandra Bryndísar- dóttir Franks, nýr formaður Sjúkraliðafélags Íslands. Fleiri stráka í stéttina „Vinnutími þarf að vera fjöl- skylduvænni og hóflegri, þannig að hefðbundin vinnuvika verði 36 stundir í stað 40 eins og nú er og að 80% vaktavinna teljist fullt starf eins og hún er í raun og veru. Sjúkraliðar sinna störfum sem fylgir mikið líkamlegt og andlegt erfiði og það segir sína sögu að þeir eru tíundi hver skjólstæðingur Virk – starfs- endurhæfingarsjóðs. Kjarasamn- ingar okkar eru lausnir í mars á næsta ári og ég er mjög vongóð um að þar náum við mikilvægum hagsmunamálum okkar í gegn, svo sem að vinnutíminn geti orðið betri eins og ég lýsti áðan. Þá viljum við halda okkar hlut í launum en í dag eru algeng grunnlaun sjúkraliða um 380 þús- und krónur og gjarnan um 80% af launum hjúkrunarfræðinga sem er ein af þeim fagstéttum sem við vinnum náið með,“ segir Sandra. Þegar best lætur er sjúkra- liðanám í boði við 13 framhalds- skóla á landinu, þó að framboðið ráðist af áhuga og eftirspurn á hverjum tíma. „Við þurfum fleira fólk í stéttina og auðvitað fleiri stráka. Stéttin er líka að eldast, meðalaldur félagsmanna er 47 ár. Fyrirkomulag náms er í góðum farvegi en við þurfum ef til vill að auka möguleika okkar fólks á að geta sérhæft sig, til dæmis við að sinna öldruðum eða fólki með geðraskanir. Svo eru auðvitað margir sem vilja úr sjúkraliða- starfinu og fara í frekara nám til dæmis í hjúkrun og þar þarf að vera greið leið á milli, þar sem horft væri meðal annars til þeirr- ar starfsreynslu sem sjúkraliðar hafa,“ segir Sandra sem tekur formlega við formannsembættinu hinn 15. maí næstkomandi. „Nei, að fara í þetta forystu- starf var alls ekki markmið mitt. Hins vegar varð hvatning vinnu- félaga minna, sem töldu mig hafa margt fram að færa í kjarabar- áttu sinni, til að hreyfa við mér svo ég tók slaginn. Ég er þakklát fyrir þann góða stuðning sem ég fékk, það er gott veganesti að hafa fengið 71% greiddra at- kvæða. “ Sjúkraliðar gefast upp vegna álags Sandra kveðst munu byrja nýtt starf á að setja sig vel inn í þau verkefni sem nú þegar eru í deiglunni á vettvangi sjúkraliða. Framhald og áherslumál sín ráð- ist af því. „Það er ljóst að grípa þarf til ráðstafana sakir þess að sjúkra- liðar gefast oft upp vegna álags eða eru frá vinnu um lengri tíma. Slit í baki og mjöðmum er al- gengur vinnusjúkdómur okkar. Þennan vanda þurfum við að greina betur og leggja svo fram gögn í næstu samningagerð. Það er hagur viðsemjenda okkar að skapa betri aðstæður í starfi í stað þess að missa fólk úr vinnu vegna veikinda sem mætti af- stýra,“ segir Sandra. „Við fjölskyldan höfum sumardvöl á Húsavík. Maðurinn minn, Árni Björn Kristbjörnsson, gerir út trillu og hefur verið á strandveiðum á sumrin. Mig lang- ar auðvitað að taka nokkrar vakt- ir á sjúkrahúsinu og halda þannig snertingu við líf og líðan sjúk- linga og vera í starfi sem ég ann. En líklega þarf ég að gefa félag- inu minn tíma og setja mig vel inn í þetta nýja starf.“ Nýr formaður sjúkraliða vill styttri og fjölskylduvænni vinnutíma Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sjúkraliði Starfið er þó oft vanmetið og þarf að vera sýnilegra, segir Sandra Bryndísardóttir Franks. Við erum í návígi og tengslum við sjúklinga  Sandra Bryndísardóttir Franks fæddist 1966. Hún er sjúkraliði og stjórnmálafræð- ingur með framhaldsmenntun í stjórnsýslufræðum frá HÍ og meistarapróf í lögfræði frá HR. Um árabil var Sandra sérfræð- ingur og verkefnastjóri hjá Ríkisendurskoðun  Frá 2014 hefur Sandra unnið á veturna hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins en hjá Heilbrigðisstofnun Norður- lands á Húsavík á sumrin. Hver er hún? Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Áslaug Valsdóttir, formaður Ljós- mæðrafélag Íslands, segir hljóðið í ljósmæðrum vera þungt en hún von- ar jafnframt að fundur með samn- inganefnd ríkisins í dag skili ein- hverjum árangri. „Vonandi kemur eitthvað fram sem við getum þá unnið með. Það er náttúrlega mjög þungt hljóð í ljós- mæðrum í heildina, þær eru orðnar þreyttar, búnar að missa þolinmæð- ina og vilja náttúrlega fá úrlausn mála. Þetta endar allt á endanum með samningi og ég vona að það komi eitthvað sem við getum unnið með,“ segir Áslaug. Spurð segist hún ekki hafa neinar sérstakar vænting- ar til fundarins sem samkvæmt dag- skrá ríkissáttasemjara er einungis klukkutími. „Við komum bara með opnum hug og vonum að það komi eitthvað sem við getum unnið með. Rúmar tvær vikur eru síðan ljós- mæður og samninganefnd ríkisins funduðu síðast og Áslaug segir að fé- lagið hafi nýtt tímann vel. „Við höf- um verið að velta fyrir okkur hvaða leiðir væri hægt að fara og hvernig væri hægt að lenda þessu. Það verð- ur fróðlegt að vita hvað samninga- nefnd ríkisins hefur fram að leggja og hvort við getum einhvern veginn fundið flöt á þessu.“ Elísabet S. Ólafsdóttir, skrifstofu- stjóri hjá embætti ríkissáttasemjara, segir að ekkert hafi breyst frá fyrri fundi. „Það hefur ekkert gerst á milli funda, það var fundur fyrir tæpum hálfum mánuði og ekkert að frétta síðan þá, ekki svo við vitum. Ef það hefði verið eitthvað á síðasta fundi hefði verið haldið áfram þennan tíma milli funda.“ Nóg er um að vera hjá samninganefnd ríkisins um þessar mundir. Viðræður eru í gangi við ljósmæður, Starfsmannafélag Sin- fóníuhljómsveitarinnar, flugvirkja, Landhelgisgæsluna og framhalds- skólakennara, svo dæmi séu tekin. Þungt hljóð er í ljósmæðrum  Samninganefnd ríkisins og Ljósmæðrafélag Íslands ræða saman á fundi í dag Áslaug Valsdóttir Elísabet S. Ólafsdóttir Birgir Þórar- insson, þingmað- ur Miðflokksins í Suðurkjördæmi, hefur boðið sig fram í embætti varaformanns flokksins, en landsþing Mið- flokksins verður haldið í Hörpu um næstu helgi. Birgir sendi tilkynningu í gær þar sem hann greindi frá framboði sínu. Segist hann þar hafa fengið hvatningu víða til að bjóða sig fram til embættis varaformanns flokks- ins. Þá segist hann vilja efla enn frekar samstarfið við grasrót flokksins. Vill verða varafor- maður Miðflokksins Birgir Þórarinsson Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Lögreglan á Blönduósi var iðin við að stöðva ökumenn fyrir umferðar- lagabrot í síðasta mánuði. „Það er búið að vera alveg hrikalega mikið að gera og yfir 900 kærur í mars- mánuði. Það eru um 30 á dag,“ segir Vilhjálmur Stefánsson, lögreglu- maður á Blönduósi. Spurður hvort eitthvert sérstakt átak standi yfir hjá lögreglunni segir hann svo ekki vera. „Við erum náttúrlega með sér- staka umferðardeild sem er að sinna báðum sýslunum í umdæminu. Svo eru lögreglumenn bara mjög dug- legir við hraðamælingar.“ Lögreglan á Blönduósi hefur hins vegar ekki bara verið iðin við hraða- mælingar heldur hefur hún verið að sekta fyrir önnur umferðarlagabrot en hraðakstur í meiri mæli. „Allt svoleiðis, stöðubrot, ekki með belti eða í síma. Það er farið að taka harkalegar á öllu þessu,“ segir Vil- hjálmur. Sektir hækka í næsta mánuði Ný reglugerð um sektir tekur gildi 1. maí. Vilhjálmur segir að auk- ið umferðareftirlit sé ótengt nýju reglugerðinni. Þegar blaðamaður hafði samband við lögreglustöðina í gær hafði lögreglan verið með bíl í Blönduhlíð í Skagafirði og annan bíl á vestursvæðinu frá morgni og fram eftir degi. Spurður hvort þetta séu mestmegnis ferðamenn segir Vil- hjálmur að hópurinn sé afar bland- aður. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur einnig verið sýnileg við hraða- mælingar síðustu daga og segir Óm- ar Smári Ármannsson, aðstoðar- yfirlögregluþjónn á umferðardeild, það vera árstíðabundið. „Reynsla okkar er sú að þegar færðin batnar á vorin eykst hraðinn og þá þurfum við að spyrna við fótum og minna fólk á að fara varlega,“ segir Ómar. Hann segir að þess vegna sé nauð- synlegt að vera sýnilegir við mæl- ingar þegar það fari að vora. Yfir 900 kærur á Blönduósi í mars  Umferðareftirlit eykst með vorinu Morgunblaðið/Júlíus Sekt Lögreglan fylgist vel með á vegum landsins um þessar mundir. Umferðareftirlit » Reynslan sýnir að hraði eykst þegar færð batnar. » Umferðareftirlit lögregl- unnar eykst þá einnig. » Yfir 900 kærur frá lögregl- unni á Blönduósi í mars.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.