Morgunblaðið - 16.04.2018, Qupperneq 12
Ingibjörg Rósa
ingibjorgrosa@gmail.com
Ég var lengi að leita aðstarfsframa. Það var lögðmikil áhersla á menntun íuppeldinu og ég vildi læra
eitthvað sem ég hefði gaman af. Eftir
framhaldsskóla virtust allar leiðir
opnar og ég fór í alls konar nám og
kúrsa á árunum fyrir hrun. Svo próf-
aði ég útskurð á kvöldnámskeiði hjá
Jóni Adólfi og fann mig í því,“ segir
Sigríður Sigurðardóttir tréskurðar-
kona. „Ég endaði svo nokkrum árum
seinna í London í þriggja ára há-
skólanámi í útskurði og er hér enn.“
Sigríður starfar sjálfstætt en
tekur mest að sér verkefni fyrir
Sands & Randall, tréskurðarfyrir-
tæki sem sambýlismaður hennar á
hlut í. Hún bæði hannar og sker út
muni, gyllir tré og sker út letur, svo
fátt eitt sé nefnt en í Bretlandi er
löng hefð fyrir útskurði og mikil
Tréskurður er
gamaldags iðn
Sigríður Sigurðardóttir
tréskurðarkona er á
réttri hillu í lífinu þar
sem hún starfar að mestu
sjálfstætt í London við að
hanna og skera út muni
og gylla tré svo fátt eitt sé
talið. Hún tekur oft þátt í
stórum verkefnum sem
þarfnast margra handa,
enda þurfa hinar gömlu
og fögru byggingar borg-
arinnar reglulegt viðhald
að utan sem innan.
Ljósmyndir/Úr einkasafni
Tuttugu arma ljósakróna Risastór gyllt ljósakróna sem Sigríður vann
ásamt fleirum fyrir galleríið Orleans House í Twickenham.
Tréskurðarkona Sigríður segir að handverkið standi alltaf fyrir sínu.
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. APRÍL 2018
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
Ekki bara jeppar
2013
- 2017
Kerruöxlar
& íhlutir
ALLT TIL
KERRUSMÍÐA
Við tökum reglulega umræðu ámínu heimili um hvort sunnu-dagur eða mánudagur sé
fyrsti dagur vikunnar. Við erum ekki
sammála og verðum það örugglega
aldrei, en í mínum huga er það engin
spurning. Vikan byrjar á mánudegi.
Einu sinni átti ég erfitt með mánu-
dagana. Vaknaði þreyttur og var
lengi að koma mér í gang. Sagði ekk-
ert fyrr en í fyrsta lagi á hádegi. Í
dag eru mánudagar í miklu uppá-
haldi hjá mér. Ég held að það sé mik-
ið til vegna þess að ég upplifi mánu-
daga sem byrjun. Byrjun á einhverju
góðu. Hér skiptir auðvitað máli að
hafa gaman af því sem maður er að
fást við dags daglega og að upplifa að
maður hafi tilgang í lífinu. Ég er ekki
bara að tala um atvinnutengd verk-
efni þótt þau dekki yfirleitt stærstan
hluta vikunnar. Ég hlakka til dæmis
til þess að skipuleggja æfingar vik-
unnar og að skutla guttunum mínum
í skólann – jú, ég geri það víst.
Skutlið tekur í tíma eitt eða tvö góð
lög sem við skiptumst á að velja og
við náum oft líka góðu spjalli á leið-
inni. Lagavalið er fjölbreytt, einn er
á kafi í Eurovision, annar í kóp-
vogsku rappi og bílstjórinn velur
yfirleitt lög sem voru búin til áður en
farþegarnir fæddust.
Ég hlakka til þess að fara í gegn-
um morgunrútínuna mína, læra eitt-
hvað nýtt og að fara í morgungöngu í
skóginum. Ég hlakka líka til vinnu-
tengdu verkefnanna. Langflestra.
Ég er svo heppinn að fá að sinna
verkefnum sem ég hef gaman af og
trúi að skipti máli fyrir þá sem taka
þátt í þeim með mér. Það skiptir
miklu máli og þegar maður er í þann-
ig aðstöðu er virkilega gaman að
vakna á mánudagsmorgnum.
Í dag er mánudagur. Ég hvet þig
til þess að upplifa hann sem byrjun á
einhverju góðu og gefandi. Góðri
viku sem er fram undan. Hún verður
góð ef þú gefur þér tíma í upphafi
hennar til þess að skipuleggja hana
og láta þig hlakka til þess sem fram-
undan er. Róleg mánudagsmorgun-
ganga í íslenska vorinu er svo það
sem gulltryggir góða byrjun á vik-
unni.
Njótum ferðalagsins!
Gaui.
Hugleiðingar um heilsu og hamingju
Morgunblaðið/Kristinn
Vor Mánudagsmorgunganga í íslenska vorinu tryggir góða byrjun á vikunni.
Mánudagar gefa
gull í mund
Njóttu ferðalagsins
Guðjón Svansson
gudjon@njottuferdalagsins.is
Guðjón Svansson er Íslendingur,
ferðalangur, eiginmaður, fjögurra
stráka faðir, rithöfundur, fyrirles-
ari, ráðgjafi, þjálfari, mentor og
nemandi, sem heldur úti bloggsíð-
unni njottuferdalagsins.is
Ein mikilvægast undirstaða þess að
börn blómstri á þeirri lífsbraut sem
þau velja sér er að ná tökum á læsi.
Lestur hefur löngum verið tengdur
við nám grunnskólabarna, en síð-
ustu áratugina hafa flestir farið að
líta á þróun læsis sem samvinnu-
verkefni margra, sem hefjist löngu
áður en börn byrja í skóla. Á fundi í
röðinni Háskólinn og samfélagið –
Best fyrir börnin verður fjallað um
hvernig foreldrar geta á markvissan
hátt skapað ríkulegt mál- og læsis-
umhverfi fyrir börn sín og ýtt undir
áhuga þeirra á lestri. Fundurinn er
kl. 12-13.15 í Hátíðasal Háskóla Ís-
lands á morgun, þriðjudaginn 17.
apríl.
Þær Freyja Birgisdóttir, dósent
við sálfræðideild Háskóla Íslands,
Sigríður Ólafsdóttir, nýdoktor við
Menntavísindasvið Háskóla Íslands,
Dröfn Rafnsdóttir, verkefnastjóri hjá
Miðju máls og læsis hjá Reykja-
víkurborg, og Þóra Sæunn Úlfs-
dóttir, talmeinafræðingur og læsis-
ráðgjafi hjá Miðju máls og læsis,
ræða um árangursríkar leiðir til að
auka lestur barna og ungmenna.
Fundurinn er opinn öllum áhuga-
sömum en streymt verður frá hon-
um á netinu.
Háskólinn og samfélagið – Best fyrir börnin
Hvernig geta foreldrar ýtt undir
áhuga barna sinna á lestri?
Morgunblaðið/Hari
Að lesa og skrifa list er góð Foreldrar eru fyrstu kennararnir og hafa áhrif á
líf barns og nám þótt kennarar og kennsluaðferðir skipti líka miklu máli.