Morgunblaðið - 16.04.2018, Side 32
MÁNUDAGUR 16. APRÍL 106. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Krónprinsinn nýtur lífsins á Íslandi
2. Gáfust upp í þriggja vikna átaki
3. Destiny’s child trylltu lýðinn...
4. Berar sig á meðgöngunni
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Tónlistarhátíðin Heima fer fram í
Hafnarfirði á síðasta degi vetrar, 18.
apríl, og markar upphaf Bjartra daga,
bæjarlistahátíðar Hafnfirðinga sem
stendur yfir 18.-22 apríl. Heima verð-
ur nú haldin í fimmta sinn og fara
tónleikar fram í heimahúsum í mið-
bænum að vanda. Í hverju húsi spila
tveir ólíkir listamenn eða hljómsveitir
og Fríkirkjan í Hafnarfirði mun einnig
opna dyr sínar í annað sinn fyrir há-
tíðargestum og einnig verða haldnir
tónleikar í Bæjarbíói. Þrettán tónlist-
armenn eða hljómsveitir koma fram
og það tvisvar í ólíkum húsum og Rás
2 verður á staðnum og mun útvarpa
hluta dagskrárinnar.
Þeir sem koma fram á hátíðinni í ár
eru Valgeir Guðjónsson, Between
Mountains, Úlfur Úlfur, Bríet, Bjart-
mar Guðlaugs ásamt Sváfni Sigurðs-
syni og Pálma Sigurhjartarsyni, JóiPé
og Króli, Ylja, Í svörtum fötum,
Hjálmar, Heimilistónar, Dr. Spock,
Pétur Ben og Kristina Bærendsen en
nokkur nöfn munu bætast á lista er
nær dregur.
Morgunblaðið/Eggert
Tónleikar í heima-
húsum í vetrarlok
Kór Neskirkju fagnar vori með
frumflutningi á nýju kórverki eftir
Steingrím Þórhallsson við ljóð Snorra
Hjartarsonar í Kristskirkju, Landa-
koti, á miðvikudaginn, 18. apríl kl. 20.
Verkið, sem nefnist Harpa kveður
dyra – tólf blik og tónar, er í tólf þátt-
um, ofið úr tólf ljóðum Snorra og höf-
undur þess er jafnframt
stjórnandi kórsins.
Flutningur hvers þáttar
hefst með ljóðalestri
Gunnars Þor-
steinssonar, þýð-
anda og þular.
Harpa kveður dyra –
tólf blik og tónar
Á þriðjudag Austan13-20 m/s en dregur úr vindi þegar líður á
daginn. Víða SA 8-15 um kvöldið. Rigning með köflum í flestum
landshlutum en talsverð rigning SA- og A-lands. Hiti breytist lítið.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Gengur í A 8-15, en 15-23 með S-ströndinni í
kvöld. Rigning á SA-landi og A-fjörðum en þurrt N- og V-lands. Hiti
6 til 13 stig, hlýjast á V-landi.
VEÐUR
ÍBV og FH í
undanúrslitin
ÍBV og FH eru komin áfram í
undanúrslit Íslandsmóts
karla í handbolta eftir sigra í
leikjum sínum í gær. ÍBV
hafði betur gegn ÍR á útivelli,
30:26, í hörðum leik, þar
sem fjögur bein rauð spjöld
litu dagsins ljós. FH vann
Aftureldingu á sama tíma í
Mosfellsbæ, 27:23. Haukar
komust í 1:0 gegn Val með
22:20 útisigri og Selfoss er
1:0 yfir gegn Stjörnunni eftir
33:25 sigur. »4
Íslandsmeistarar síðustu fjögur ár í
körfuknattleik karla, KR-ingar, eiga
möguleika á því að bæta fimmta titl-
inum við. KR og Tindastóll munu eig-
ast við í úrslitarimmunni
um Íslandsmeistara-
titilinn eftir að KR sló
Hauka út í undan-
úrslitum á laugardags-
kvöldið. KR hafði bet-
ur 3:1 en Tindastóll
sló út ÍR á föstudags-
kvöld. »6
KR á möguleika
á þeim fimmta í röð
„Samfélagsmiðlarnir hafa ekki
stoppað hjá mér vegna alls kyns
skilaboða og ummæla. Þetta er mjög
gaman,“ sagði Andri Rúnar Bjarna-
son í samtali við Morgunblaðið í gær,
en hann hefur verið mjög atkvæða-
mikill í fyrstu tveimur leikjum sínum
sem atvinnumaður í knattspyrnu.
Andri samdi í vetur við Helsingborg í
sænsku b-deildinni. »1
Samfélagsmiðlarnir
hafa ekki stoppað
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Tónleikarnir eru vorboði. Lífsgleðin
fylgir þessari skemmtilegu árstíð og
það er gaman að syngja í slíkri
stemningu,“ segir Arinbjörn Vil-
hjálmsson, formaður karlakórsins
Fóstbræðra. Nú eru fram undan ár-
legir vortónleikar kórsins, sem verða
alls fernir og haldnir í Norðurljósasal
Hörpu. Hinir fyrstu verða á morgun,
þriðjudag, síðan á miðvikudag og
fimmtudag og hefjast allir klukkan
20. Lokatónleikarnir verða svo næst-
komandi laugardag, 21. apríl, og
hefjast klukkan 15.
Syngja á sex tungumálum
Efnisskrá vortónleikanna er fjöl-
breytt en til viðbótar við sígild ís-
lensk karlakóralög eru norræn lög
áberandi. Kemur þar til að rætur ís-
lenskrar karlakóramenningar liggja
á Norðurlöndunum og norrænu lögin
verða nú sungin á frummálinu. Alls
verður sungið á sex tungum, auk ís-
lensku, á tónleikunum, það er ensku,
sænsku, latínu, þýsku, norsku og
frönsku. Stjórnandi kórsins er Árni
Harðarson, píanóleikari er Steinunn
Birna Ragnarsdóttir og einsöngvari
Hildigunnur Einarsdóttir.
Hin norræna áhersla helgast einn-
ig af því að Fóstbræður verða í næsta
mánuði meðal fulltrúa Íslendinga við
opnun norrænu menningarmið-
stöðvarinnar The Nordic Heritage
Museum í Ballard, sem er útbær
Seattle-borgar í Washington-ríki í
Bandaríkjunum, þangað sem margt
af helsta fyrirfólki Norðurlanda
mætir. Þetta verður stærsta nor-
ræna menningarsetrið í Norður-
Ameríku og er því mikið lagt undir
við opnunina. Í Seattle býr mikill
fjöldi fólks af norrænum uppruna,
sem gjarnan hafði áður haft viðkomu
í Minnesota og Norður-Dakota, en
innflytjendur þar voru að stórum
hluta frá Norðurlöndum. Kórfélagar
hafa að undanförnu æft stíft fyrir
þennan viðburð í Seattle og svo auð-
vitað tónleikana sem nú standa fyrir
dyrum.
„Langholtskirkja var okkar tón-
listarhús árum saman. Fyrir fjórum
árum færðum við okkur yfir í Hörpu
og vorum svolítinn tíma að venjast
húsinu þannig að hæfði aðstæðum
þar. Núna kemur þetta vel út,“ segir
Arinbjörn, sem gekk í raðir Fóst-
bræðra árið 2002.
Skemmtilegt samfélag
„Kór er skemmtilegt samfélag
fólks sem sameinast í söng þótt það
komi úr ólíkum áttum. Í Fóst-
bræðrum eru læknar, iðnaðarmenn,
kennarar, menn úr viðskiptalífinu og
svo framvegis. Menn hætta líka ekki
svo glatt í kórnum og sumir hafa ver-
ið með okkur áratugi. Við veitum
starfsaldursviðurkenningar að nor-
rænni fyrirmynd og eftir fimm tón-
leika að vori fá menn bronsmerki,
silfrið eftir tíu og gullið eftir fimmtán
og gullhörpu eftir tuttugu tónleika.
Svo eru líka menn sem sprengja öll
viðmið, til dæmis er Agnar Ástráðs-
son að syngja á sínum 45. vortón-
leikum. Þegar þannig menn eiga í
hlut þurfum við að finna upp á ein-
hverju sniðugu til að gefa þeim á
tímamótum.“
Eigum víða vini
Margir hafa sótt vortónleika Fóst-
bræðra svo árum skiptir. Eru það
gjarnan styrktarfélagar sem þá fá
miðana heimsenda af kórfélögum. Er
það einn margra skemmtilegra siða í
starfi Fóstbræðra, sem sungið hafa í
eina öld og tveimur árum betur. Kór-
inn var stofnaður árið 1916 og hefur
starfað síðan. „Þegar kór hefur starf-
að svona lengi og tekist vel upp verða
tengslin við samfélagið sterk. Fóst-
bræður eiga víða vini,“ segir Arin-
björn að endingu.
Norrænir Fóstbræður syngja
Vortónleikar og
kórinn er á 102.
starfsári sínu
Ljósmynd/Fóstbræður
Hörpusöngur Karlakórinn Fóstbræður nýtur vinsælda og í þessari viku heldur hann ferna tónleika í Hörpu.
Morgunblaðið/Valli
Formaður Arinbjörn Vilhjálmsson
hefur sungið með kórnum frá 2002.