Morgunblaðið - 16.04.2018, Page 9

Morgunblaðið - 16.04.2018, Page 9
9 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. APRÍL 2018 Á stofnfundi J- lista, nýs bæj- armálaafls í Sandgerði og Garði, í liðinni viku var fram- boðslisti fyrir komandi sveit- arstjórnarkosn- ingar sam- þykktur samhljóða. Ólafur Þór Ólafsson, forseti bæjarstjórnar í Sandgerði, leiðir listann og er Laufey Erlends- dóttir, fv. forseti bæjarstjórnar í Garði, í öðru sæti. Í þriðja og fjórða sæti eru þau Fríða Stefánsdóttir, bæjarfulltrúi í Sandgerði, og Vitor Hugo Eugenio, kennari í Gerða- skóla. Ólafur Þór segir tilhlökkunarefni að fá að starfa að uppbyggingu líf- legs samfélags í nýju sveitarfélagi með öflugum hópi. Ólafur Þór efstur á nýjum J-lista í Sandgerði og Garði Ólafur Þór Ólafsson Rósa Guðbjarts- dóttir, formaður bæjarráðs Hafn- arfjarðar, leiðir lista Sjálfstæðis- flokksins í bæjar- félaginu fyrir komandi sveit- arstjórnarkosn- ingar. Full- trúaráð Sjálfstæðis- flokksins í Hafnarfirði samþykkti listann og er Kristinn Andersen, verkfræðingur og bæjarfulltrúi, í öðru sæti og Ólafur Ingi Tómasson bæjarfulltrúi í því þriðja. Helga Ingólfsdóttir bæjarfulltrúi er í fjórða sæti og Kristín Thoroddsen, varabæjarfulltrúi og flugfreyja, í fimmta sæti. „Það hefur náðst frábær árangur á kjörtímabilinu og það er mikil- vægt að halda áfram á sömu braut traustrar fjármálastjórnunar og uppbyggingar í bæjarfélaginu. Við viljum halda því góða starfi áfram til heilla fyrir Hafnfirðinga alla,“ segir Rósa í fréttatilkynningu. Rósa áfram oddviti í Hafnarfirði Rósa Guðbjartsdóttir Jón Björn Há- konarson, forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar, leiðir framboðs- lista Framsóknar og óháðra í Fjarðabyggð í komandi sveit- arstjórnarkosn- ingum. Fram- boðslistinn var samþykktur einróma á félagsfundi nýverið. Pálína Margeirsdóttir, bæjarfulltrúi og ritari hjá Heil- brigðisstofnun Austurlands, og Hulda Sigrún Guðmundsdóttir, bæjarfulltrúi og ritari, eru í öðru og þriðja sæti. Jón leiðir lista Fram- sóknar og óháðra Jón Björn Hákonarson SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR 2018 „Við Píratar erum aðhaldsafl gegn spillingu og sérhagsmunagæslu alls staðar og ætlum að halda áfram að vera það.“ Þetta sagði Dóra Björt Guðjónsdóttir, oddviti Pírata í Reykjavík, á blaðamannafundi Pírata í gær um framtíðarsýn þeirra á sveitarstjórnarstiginu. Á fundinum voru allir oddvitar Pírata í sveitarstjórnarkosning- unum saman komnir, auk Halldórs Auðar Svanssonar, núverandi borgarfulltrúa, og kynntu þau helstu niðurstöður uppgjörsskýrslu Pírata fyrir síðasta kjörtímabil. Dóra Björt þakkaði Halldóri kær- lega fyrir hans vinnu og sagði skýrsluna góðan grunn til að byggja á. Hún sagði Pírata ætla að halda áfram að iðka traust og ábyrg vinnu- brögð og sýna að þau væru hreyfing hins pólitíska stöðugleika. Aðspurð sagði hún stærstu áskorunina í borg- inni vera tregðu í kerfinu. „Kerfið vinnur sína vinnu ekki á forsendum notenda og einstaklinga heldur á eigin forsendum, það er eitthvað sem við viljum breyta með notenda- hönnun að leiðarljósi.“ Elín Ýr Hafdísardóttir, sem leiðir Pírata í Hafnarfirði, sagði stöðuna vera þannig í bæjarstjórn að meiri- hlutinn væri sprunginn. „Það er ver- ið að halda bæjarráðinu saman með þeim hætti sem er brot á lögum og reglum og þetta er eitthvað sem Pír- atar myndu ekki vilja taka þátt í. Við viljum breyta pólitíkinni þannig að svona starfshættir eigi sér ekki stað, hvorki í landsmálum né sveitar- stjórnarmálum.“ Þórólfur Júlían Dagsson, oddviti Pírata í Reykjanesbæ, sagði stærstu áskorun bæjarins vera fjárhag og íbúafjölgun. „Við höfum fundið það í gegnum þau íbúasamtök sem við höfum starfað með að það er mikið ákall á meira íbúalýðræði í bænum og við ætlum að svara því kalli. Það eru mörg krefjandi verkefni í Reykjanesbæ.“ Píratar kynntu framtíðarsýn í sveitarstjórnarmálum Ljósmynd/Píratar Kosningar Oddvitar Pírata boðuðu til fundar í höfuðstöðvum sínum í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.