Morgunblaðið - 16.04.2018, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 16.04.2018, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. APRÍL 2018 Nýlöguð humarsúpa Opið virka daga 10.00 - 18.15 | laugardaga 11.00 - 15.00 Gnoðarvogi 44 | 104 Reykjavík | sími: 588 8686 Glæný lúða Gómsætir og girnilegir réttir í fiskborði fyrir þig til að taka með heim Ný línuýsa Klaustur- bleikja Næstkomandi miðvikudag, 18. apríl, boðar Fé- lag kvenna í at- vinnulífinu (FKA) til stofn- fundar FKA Vesturland. Fundurinn hefst kl. 20 og fer fram á Narfeyrarstofu í Stykkishólmi Í tilkynningu frá FKA segir að FKA Vesturland verði fjórða lands- byggðardeild félagsins en fyrir eru starfræktar deildir á Suðurlandi, Norðurlandi og Vestfjörðum. Félagskonur eru í dag um 1.100 talsins og koma úr öllum greinum íslensks atvinnulífs. Rakel Sveinsdóttir, formaður FKA, segir það mikið fagnaðarefni að félagið sé núna að hefja starf- semi á Vesturlandi þar sem hún á sínar heimaslóðir. „Þar hafa konur löngum verið mjög öflugar í fram- varðasveit atvinnu- og viðskiptalífs ólíkra atvinnugreina. Ég nefni sem dæmi sjávarútveg, verslun og þjón- ustu, landbúnað og ferðaþjónustu. Eitt einkenna Vesturlands er ein- mitt að þar er atvinnulífið ekki að- eins blómlegt, heldur í eðli sínu einnig mjög fjölbreytt.“ ai@mbl.is FKA setur á laggirnar deild á Vesturlandi Rakel Sveinsdóttir módelið virki líka á öðrum mörk- uðum.“ Í fyrstu verður stefnan sett á Danmörku og Svíþjóð og segir Þor- björg að þar séu stjórnvöld langt komin í að byggja upp umgjörð fyrir fjar-heilbrigðisþjónustu. „Við sjáum líka ákveðna kosti við það að geta með þessu undirstrikað að Kara er norrænt fyrirtæki, enda Norður- löndin þekkt fyrir vandaða heil- brigðisþjónustu og jafnt aðgengi. Þannig orðspor myndi vera okkur gott veganesti þegar sótt er inn á aðra markaði í Evrópu.“ Fjárfestar vilja sjá árangur erlendis Fréttir úr íslenska sprotaheimin- um gætu gefið tilefni til að halda að hægur vandi væri fyrir fyrirtæki eins og Köru Connect að sækja sér fjármagn, ýmist innanlands eða ut- an. Þorbjörg segir fjármögnunina þó ekki hafa gengið þrautalaust fyr- ir sig, og að aðkoma Crowberry hafi skipt sköpum. „Við eyddum tölu- verðu púðri í að tala við erlenda sjóði sem voru spenntir fyrir hug- myndinni en vildu fyrst sjá okkur ná árangri á öðrum stöðum en Íslandi. Ísland hefur verið okkar pruf- umarkaður en erlendir fjárfestar virðast vilja sjá meira,“ útskýrir Þorbjörg. „Þá lítur íslenski fjárfest- ingaheimurinn út fyrir að vera stærri en hann er. Sjóðirnir eru ekki svo margir og ekki alltaf fé á lausu. Þar sem erlendu sjóðirnir vilja sjá fyrirtæki eins og okkar komið á er- lendan markað áður en þeir koma að borðinu þá eru íslensku sjóðirnir gríðarlega mikilvægir, og hjálpa okkur að taka skrefið út í heim.“ Kara Connect fær 180 milljóna innspýtingu  Segir erlenda fjárfesta vilja sjá meira en árangur á Íslandi og að stuðningur innlendra sjóða geti því skipt sköpum Morgunblaðið/Eggert Stórhuga Að sögn Þorbjargar Helgu Vigfúsdóttur verður fjármagnið notað til frekari þróunar og til að markaðssetja Köru í Evrópu. Mynd úr safni. VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Nýsköpunarfyrirtækið Kara Con- nect lauk fyrir skemmstu 180 millj- óna króna fjármögnunarlotu sem leidd var af Crowberry Capital. Kara var stofnuð árið 2015 og hefur þróað n.k. stafræna skrifstofu fyrir sérfræðinga sem gerir þeim fært að veita ýmiss konar þjónustu yfir net- ið, s.s. sálfræðiráðgjöf og meðferð við tal- og námskvillum. Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir er framkvæmdastjóri og meðstofnandi Köru og segir hún fyrirtækið hafa vaxið hratt á undanförnum misser- um. „Nú þegar hafa um 1.100 skjól- stæðingar fengið hjálp í gegnum Köru Connect og mikill áhugi á meðal íslenskra sérfræðinga að nýta þennan vettvang,“ segir hún. „Síð- ustu árin höfum við unnið að því að efla kerfið og smíða heildstæða lausn sem þjónar öllum þörfum sér- fræðingsins og er um leið markaðs- torg þar sem skjólstæðingar geta fundið sér þá þjónustu sem þá vantar.“ Hyggja á útrás til Danmerkur og Svíþjóðar Kara hefur m.a. hlotið styrk frá Tækniþróunarsjóði að upphæð 45 milljónir króna, og 10 milljóna króna markaðsstyrk. Þorbjörg segir að það hafi reynst nauðsynlegt að fá meiri innspýtingu í reksturinn bæði til að standa straum af þróunar- kostnaði og ekki síður til að ráðast í markaðssetningu erlendis. „Við höf- um náð góðum árangri á Íslandi en þurfum næst að geta sýnt fram á að Martin Sorrell hefur látið af störf- um sem forstjóri WPP, stærstu auglýsingastofu heims. Sorrell er í hópi áhrifamestu einstaklinga aug- lýsingaheimsins og snjall við- skiptamaður en á rösklega þremur áratugum umbreytti hann WPP úr tveggja manna fyrirtæki í alþjóð- legt stórveldi og eitt stærsta fyr- irtæki Bretlands, með um 200.000 starfsmenn í 112 löndum. Að sögn FT tengist brotthvarf Sorrell ásökunum í hans garð um ósæmilega hegðun og óeðlilega notkun peninga auglýsingastof- unnar. WPP hefur ekki tjáð sig nánar um ásakanirnar að því und- anskildu að hafa á sunnudag upp- lýst að rannsókn stjórnar fyrir- tækisins hafi leitt í ljós að ásakanirnar varði „óverulegar fjárhæðir“. Sorrell hefur alfarið neitað ásök- ununum en í tilkynningu sem hann sendi starfsmönnum WPP sagði hann það fyrirtækinu fyrir bestu að hann stígi til hliðar, þar eð ásakanirnar hafi sett of mikinn óþarfa þrýsting á reksturinn. Tveir framkvæmdastjórar WPP, Mark Read og Andrew Scott, munu fylla í skarðið til bráða- birgða og deila með sér forstjóra- skyldunum. Kaupaukaréttindi Sor- rell, sem er 73 ára gamall og hlaut riddaratign árið 2000, munu hald- ast þau sömu og ef hann hefði hætt störfum á eðlilegan hátt. Brotthvarf Sorrells bætist við önnur vandamál sem hrjáð hafa WPP. Hlutabréfaverð WPP náði hámarki í mars 2017 en hefur lækkað um 38% síðan þá, en á sama tíma hefur FTSA vísitalan veikst um 1,6%. Það sem af er þessu ári nemur lækkun WPP 11%. Bendir FT á að voldug sérfræði- ráðgjafarfyrirtæki á borð við Deloitte og Accenture hafi verið að fikra sig inn á svið sem áður heyrðu undir auglýsingastofur og að Google og Facebook opni aug- lýsendum beina leið að fjölda fólks. Mest muni þó um að aðgerða- sinnaðir fjárfestar hafa valdið því að margir af stærstu neytenda- vöruframleiðendum heims hafa dregið mikið úr útgjöldum til markaðsmála og þar með saxað verulega á tekjur WPP. ai@mbl.is Sorrell hættur störfum hjá WPP  Sætir ásökunum um ósæmilega hegðun AFP Grunur Sorrell hafnar alfarið þeim sökum sem á hann eru bornar. Brotthvarf » Á liðlega þremur áratugum gerði Sorrell WPP að stórveldi. » Aðhaldsaðgerðir hjá stórum auglýsendum hafa bitnað á stofunni að undanförnu. » Ekki hefur verið upplýst í hverju ásakanirnar á hendur Sorrell felast. ● Þó svo að Mark Zuckerberg, stjórn- andi Facebook og fimmti ríkasti maður heims samkvæmt lista Forbes, þiggi ekki nema einn bandaríkjadal í laun á ári, þá þarf samfélagsmiðillinn að greiða mjög háan reikning vegna þeirra starfstengdu fríðinda sem hann nýtur. Facebook hefur upplýst að kostn- aður vegna starfa Zuckerbergs hækk- aði um 60% á síðasta ári, og fór úr 5,8 milljónum dala árið 2016 upp í 8,9 milljónir árið 2017. Kemur þetta fram í tilkynningu sem send var mörkuðum. Stærsti kostnaðarliðurinn var örygg- isgæslan í kringum milljarðamæringinn unga en í fyrra kostaði 7,32 milljónir dala að hafa á honum gætur. Þá kost- aði 1,52 milljónir dala að fljúga Zuckerberg á milli staða með einka- flugvélum. Engum öðrum stjórnanda fyrirtækis á bandaríska hlutabréfa- markaðinum tókst að eyða svo miklu í flugsamgöngur á síðasta ári, en skýr- ingin kann að vera að Zuckerberg not- aði árið til að ferðast vítt og breitt um Bandaríkin og kynnast fólkinu sem þar býr. Að sögn Bloomberg fengu forstjórar fyrirtækjanna í S&P 500 vísitölunni að jafnaði 187.000 dala virði af starfs- tengdum fríðindum á síðasta ári. ai@mbl.is Dýrt fyrir Facebook að gæta öryggis Zuckerbergs

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.