Morgunblaðið - 16.04.2018, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 16.04.2018, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. APRÍL 2018 Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi Sími 535 4300 · axis.is Vandaðar íslenskar innréttingar Ólöf Ragnarsdóttir Guðrún Hálfdánardóttir Donald Trump Bandaríkjaforseti segir loftárásir Bandaríkjamanna, Breta og Frakka á Sýrland aðfara- nótt laugardags hafa verið „fullkom- lega framkvæmdar.“ Þá segir Nikki Haley, sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, Trump tilbúinn að beita aftur hervaldi „ef sýrlensk stjórnvöld noti eiturgas aftur.“ Einnig verða í dag kynntar nýjar viðskiptaþvinganir vegna málsins. Loftárásirnar hæfðu skotmörk ná- lægt borgunum Damaskus og Homs sem Bandaríkjamenn og bandamenn segja að hafi haft að geyma efnavopn og tæki og tól til framleiðslu þeirra. Engar fréttir hafa borist af mannfalli í árásunum, sem koma í kjölfar ásak- ana um notkun efnavopna í borginni Douma í austurhluta Ghouta-héraðs í útjaðri höfuðborgar Sýrlands. Stjórnvöld ríkjanna þriggja full- yrða að árásirnar hafi hvorki verið til þess fallnar að steypa Bashar al-Assad Sýrlandsforseta af stóli né hlutast til um átökin í Sýrlandi. Evr- ópusambandið lýsti yfir stuðningi sínum við árásirnar og kallaði eftir því að Íranir og Rússar, aðalbanda- menn Sýrlandsstjórnar, beiti sér gegn frekari notkun efnavopna í Sýr- landi. Varar við frekari árásum Vladimír Pútín Rússlandsforseti varar við því að frekari árásir vestur- veldanna á Sýrland muni valda „upp- lausn“ í alþjóðamálum. Í dag hyggj- ast stjórnvöld í Bandaríkjunum kynna nýjar viðskiptaþvinganir gegn fyrirtækjum sem eiga að hafa komið að efnavopnaframleiðslu Assads, að því er kom fram í máli Nikki Haley í viðtali við CBS. Þá varaði Evrópu- sambandið við að það væri reiðubúið að beita frekari viðskiptaþvingunum gegn Sýrlandi. Í yfirlýsingu frá rúss- neskum stjórnvöldum kom fram að Pútín og Hassan Rouhani, forseti Ír- ans, væru sammála um að loftárásir Bandaríkjamanna, Breta og Frakka drægju úr möguleikanum á pólitískri lausn sem byndi enda á stríðið í Sýr- landi. Stríð sem í síðasta mánuði hóf sitt áttunda ár. Tillögu Rússa um að Sameinuðu þjóðirnar fordæmi árásina var hafn- að af öryggisráðinu á laugardag. Auk Rússlands studdu Kína og Bólivía til- löguna en átta þjóðir greiddu at- kvæði gegn henni og fjórar sátu hjá. Sameinuðu þjóðirnar hafa ekki sent frá sér yfirlýsingu vegna meintrar efnavopnaárásar í Douma. Engin ályktun hefur verið samþykkt vegna málsins en Rússar og Bandaríkja- menn hafa komið í veg fyrir að til- lögur hvorir annarra nái fram að ganga. Rússar hafa nú beitt neitun- arvaldi í öryggisráðinu í tólf skipti til þess að koma í veg fyrir aðgerðir sem tengjast bandamönnum þeirra í Sýrlandi. Fréttastofa Reuters hefur eftir Nikki Haley að bandarískir her- menn muni ekki yfirgefa Sýrland fyrr en takmarki þeirra þar verði náð. Það segir hún þrískipt: Ganga úr skugga um að efnavopn séu ekki notuð á neinn hátt sem ógnað geti hagsmunum Bandaríkjanna, að ráð- ið verði niðurlögum hins svokallaða Ríkis íslam og Bandaríkin verði í góðri stöðu til að fylgjast með fram- ferði Írana. Teymi á vegum OPCW, alþjóð- legrar stofnunar um bann gegn efna- vopnum, kom til Sýrlands á laugar- dag og hóf störf við rannsókn á meintri efnavopnaárás í Douma í gær. Rússnesk stjórnvöld hafa hafn- að efnavopnaárásinni alfarið og sagt hana tilbúning. Einnig hefur Assad neitað allri aðild að meintri árás og sagt fréttir af henni tilbúning. Þá sagði Sýrlandforseti loftárásir Bandaríkjamanna, Breta og Frakka til þess fallnar að sýrlensk stjórnvöld væru nú „enn ákveðnari“ í fram- göngu sinni í stríðinu í Sýrlandi. Hann hefur heitið því að ná til baka öllu því landsvæði sem hann hefur misst og hinn 18. febrúar sl. hófst grimmilegt áhlaup stjórnarhersins og Rússa í austurhluta Ghouta- héraðs. Óttast hvað bíði íbúa Idlib Sýrlendingurinn Khattab al-Mo- hammad sagði, í samtali við blaða- mann mbl.is, loftárásir Bandaríkja- manna, Frakka og Breta vitleysu og þeim ekki ætlað að koma sýrlensku þjóðinni til aðstoðar. Khattab, sem flúði Sýrland árið 2012, býr á Akur- eyri ásamt fjölskyldu sinni en þau komu hingað til lands í janúar 2016 úr flóttamannabúðum í Líbanon. Hann segir heiminn fylgjast að- gerðarlausan með slátrun sýrlensku þjóðarinnar. „Með þessu er verið að segja við Bashar al-Assad, forseta Sýrlands, að hann megi ekki nota efnavopn á íbúa landsins en hann megi beita öðr- um vopnum á þjóð sína, varpa sprengjum og hverju sem er svo lengi sem hann noti ekki efnavopn,“ segir Khattab, en um hálf milljón Sýrlendinga, hið minnsta, hefur ver- ið drepin á þeim árum sem liðin eru frá því að almenningur í Sýrlandi tók að mótmæla harðstjórn landsins þegar arabíska vorið braust út. Khattab sagði því yfirleitt þannig farið, þegar glæpamaður væri hand- samaður, að hann væri ákærður og færður fyrir dómara. Ekki vopnið sem hann beitti við að fremja glæp- inn. „Þeir segja tilganginn með árás- unum að eyða geymslum sem hýsa efnavopn en glæpamaðurinn sjálfur situr sem fastast. Stríðsglæpa- maðurinn gengur laus,“ segir Khat- tab. Hann sagðist óttast hvað biði íbúa Idlib-héraðs og benti á hótanir háttsetts íransks embættismanns í Damaskus í síðustu viku um að næst væri það Idlib-hérað sem ráðist yrði til atlögu í. Það svæði er enn undir stjórn uppreisnarmanna. Línan dregin við efnavopn  Bandaríkjamenn tilbúnir að láta aftur til skarar skríða í Sýrlandi  Rússar vara við frekari árásum sem muni valda „upplausn“ Fregnir af notkun efnavopna í borginni Douma verða rannsakaðar AFP Rústir Sýrlenskur hermaður kannar aðstæður við eitt af skotmörkum Bandaríkjamanna, Breta og Frakka. Homs DAMASKUS Tomahawk stýri aðrar sprengju Storm Shadow Scalp og MdCN Loftárásir á Sýrland Bandaríkin Bretland Frakkland Rússar segja að Rafale og Mirage orrustuþotur Tornado GR-4 SÝRLAND B-1 langdrægar sprengjuþotur 103 skotið 71 þeirra niður Efnavopnafram- leiðsla og -geymslur Rannsóknarstofur Freigátur - r i Hinn 11. apríl sl. varaði Donald Trump Rússa við því að Banda- ríkin myndu skjóta eldflaugum á Sýrland í kjölfar fregna af efnavopnaárás í Douma hinn 7. apríl. Rússar vöruðu við því að slíkar árasir gætu komið af stað stríði á milli Bandríkjanna og Rússlands. Að kvöldi 12. apríl áttu Trump, Emmanuel Macron Frakklandsforseti og Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, símafund þar sem þau ræddu aðgerðir í Sýrlandi. 13. apríl segjast stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa nægar sannanir til að sýna fram á að efnavopnum hafi verið beitt í Sýrlandi af sýrlenskum yfir- völdum. Klukkan 1 aðfaranótt laugardags 14. apríl flutti Trump ávarp úr Hvíta húsinu þar sem hann sagðist hafa fyrirskipað Bandaríkjaher að framkvæma „nákvæmar árásir“ á skotmörk sem tengd- ust efnavopnagetu Sýrlands- forseta og sameiginlegar að- gerðir væru yfirstandandi með hersveitum Frakka og Breta. Aðdragandi árásanna LOFTÁRÁSIRNAR Heilsu Barböru Bush, eiginkonu George H.W. Bush og móður George W. Bush, fyrrverandi Bandaríkja- forseta, fer hrak- andi og hefur hún ákveðið að þiggja ekki frekari læknismeðferð að því er kemur fram í tilkynningu frá skrifstofu forsetans fyrrverandi, eiginmanns hennar. Hér eftir mun hún fremur gangast undir líknandi meðferð við veikindum sínum, en hún er orðin 92 ára gömul. Ekki kemur fram í tilkynningunni hvers eðlis veikindi hennar eru en hún hafi ítrekað þurft að leggjast inn á spít- ala sökum þeirra. Barbara Bush var forsetafrú Bandaríkjanna frá árinu 1989 til 1993 og var hún vinsæl og þekkt fyrir hispursleysi og hnyttni í máli sínu. BANDARÍKIN Heilsu Barböru Bush hrakar ört Barbara Bush

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.