Morgunblaðið - 16.04.2018, Side 22

Morgunblaðið - 16.04.2018, Side 22
22 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. APRÍL 2018 Markmið okkar er að spara viðskiptavinum tíma, fyrirhöfn og fjármuni. VANTAR ÞIG STARFSFÓLK Handafl er traust og fagleg starfsmannaveita með margra ára reynslu á markaði þar sem við þjónustum stór og smá fyrirtæki. Við útvegum hæfa starfskrafta í flestar greinar atvinnulífsins Suðurlandsbraut 6, Rvk. | SÍMI 419 9000 info@handafl.is | handafl.is Smám saman lærir maður vinnubrögð á Alþingi sem hafa fastantakt. Þingfundir í þrjár vikur og nefndavinna, kjördæmadagareða slíkt. Enginn dagur er öðrum líkur og andinn í þing- flokknum góður. Og kannski gefa strákarnir, þingmenn flokksins, mér köku með afmæliskaffinu,“ segir Anna Kolbrún Árnadóttir, þing- maður Miðflokksins, sem er 48 ára í dag. Anna Kolbrún er barnfæddur Akureyringur. Er sjúkraliði og leik- skólakennari og með sérmenntuð á háskólastigi í stjórnun og sér- kennslufræðum. „Ég var byrjuð í doktorsnámi en lagði það á hilluna þegar ég veiktist af brjóstakrabbameini árið 2011. Ég hóf dokt- orsnámið svo aftur og var í því fram á haust í fyrra þegar þurfti að auka krabbameinslyfin að nýju. Núna er það gengið yfir sem ég vona að vari sem lengst, því ég held í það að lifa lífinu og njóta hverrar stundar,“ segir Anna Kolbrún sem hefur lengi tekið þátt í stjórn- málum og ýmsu öðru félagsstarfi. „Á Alþingi sit ég í allsherjar- og menntamála- og velferðarnefnd. Þá er ég gjarnan fulltrúi flokksins við ýmsar samkomur, þannig að mér gefast tækifæri víða til að kynna sjónarmið okkar og heyra hvað aðrir hafa fram að færa. Svo er gott að fara heim á Akureyri um helg- ar. Finna þar jarðtenginguna og þar á ég líka mitt líf og fjölskyldu,“ segir Anna Kolbrún sem er í sambúð með Jóni Braga Gunnarssyni og eiga þau samtals fjögur uppkomin börn. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Alþingismaður Jarðtenging heima á Akureyri, segir Anna Kolbrún. Enginn dagur öðr- um líkur á Alþingi Anna Kolbrún Árnadóttir er 48 ára í dag E lísatbet Kristín Jökuls- dóttir fæddist við Rauðarárstíginn í Reykjavík hjá henni Guðrúnu ljósmóður 16.4 1958, ólst upp á Hjarðarhag- anum til tveggja ára aldurs, síðan við Lindarbraut á Seltjarnarnesi til 1968, er foreldrar hennar skildu. Þá flutti hún með móður sinni á Drafn- arstíginn. Elísabet starfaði hjá afa sínum og ömmu við BSÍ í Vatnsmýrinni frá 14 ára aldri og af og til fram að tvítugs- aldri, var þar fyrst sendill en starfaði einnig við verslunar- og veitingastörf á BSÍ. Elísabet hleypti heimdraganum 16 ára, fór í MÍ en var rekin þaðan, fór þá norður á Strandir til að verða skáld og ráðskona að Seljanesi við Ingólfsfjörð. Þar gekk hún nánast daglega inn í Ófeigsfjörð með fjóra hunda og haglabyssu að leita að ís- björnum. Hún var viðloðandi Strand- irnar næstu árin, fór í framhaldsdeild gagnfræðaskóla í Neskaupstað og var þar ráðskona hjá Gvendi Stalín. Elísabet fór á puttanum um þvera og endilanga Evrópu 1981, var háseti á bátnum Gullfaxa frá Sandgerði og síðan blaðamaður við Tímann, var gæslumaður á Kleppi um hríð, versl- unarmaður í Reykjavík, módel, var í byggingavinnu við B-álmu Borgar- spítalans og vann í frystihúsi í Hnífs- dal 1983-84. Elísabet lauk stúdentspófi frá Kvennaskólanum í Reykjavík 1988 stundaði nám í heimspeki í nokkrar vikur, stundaði söngnám hjá Guð- mundu Elíasdóttur 1986-92 og lauk BA-prófi í leiklist sem sviðshöfundur frá LHÍ árið 2008. Elísabet var blaðamaður á Þjóð- viljanum 1988 og hefur síðan helgað sig skáldskap, ritstörfum og útgáfu og verið lausamaður við Morgun- Elísabet K. Jökulsdóttir, skáldkona og dansari – 60 ára Morgunblaðið/Jim Smart Elísabet og synirnir Jökull, Garpur, Kristjón Kormákur og Elísabet á frumsýningu Íslands þúsund tár, árið 2002. Vesturbæjargimsteinn Morgunblaðið/Golli Á heimavelli Elísabet í stofunni heima á Framnesvegi. Matthildur H. Kristjánsdóttir og Guðmundur Kr. Kristjánsson eiga gullbrúðkaup í dag. Þau voru gefin saman í Neskirkju í Reykjavík hinn 16. apríl 1968, af séra Frank M. Halldórssyni. Matthildur og Guðmundur eiga fjögur börn, níu barna- börn og eitt barnabarnabarn. Árnað heilla Gullbrúðkaup Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.