Morgunblaðið - 16.04.2018, Page 25

Morgunblaðið - 16.04.2018, Page 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. APRÍL 2018 eldu á milli fimm girnilegra tegunda f Snack Pot frá Knorr. Réttirnir eru ægilegir, ljúffengir og fljótlegir. ynntu þér úrvaIið á KNORR.IS V a þ Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Í dag fer best á því að þú reynir að vinna sem mest í einrúmi. Leggðu þig fram um að sinna smáatriðunum um leið og þú reynir að afkasta sem mestu. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú finnur fyrir ófullnægju og gætir brugðist við með því að forðast samneyti við aðra. Ef þér finnst hluti lífs þíns hafa haldið þér föngnum muntu losna úr þeirri prísund. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Vandamál heima fyrir gætu haft truflandi áhrif á þig í dag. Samskipti manna eru tvístefna og er hver með sínu sniði. Dag- urinn er góður til þess að fá aðra á sitt band. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú mætir nýjungum á vinnustað og átt mikið undir því að þær gangi snurðulaust fyrir sig. Vanmettu ekki þá lífsfyllingu sem það veitir að hjálpa öðrum. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Vinir sem gengur vel geta verið ansi hvetjandi, en þú verður samt að komast áfram á þínum eigin forsendum. Dagurinn færir þér dýpri skilning á sjálfum þér. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Gættu þess að leyndarmál þín liggi ekki á borðum þeirra sem kunna ekki með þau að fara. Hvaðeina sem þér tekst að ljúka í dag mun veita þér ánægju sem varir lengi. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú vilt skipuleggja alla hluti sem er í góðu lagi ef þú reynir um leið að vera sveigj- anlegur þegar það á við. Þú skalt ígrunda vel ráðleggingar þeirra sem standa þér næst. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú hefur mikla frelsisþörf í dag og neitar að láta aðra ráða því hvernig þú lifir þínu lífi. Farðu þér hægt í erfiðum málum því flas er ekki til fagnaðar. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Það er alltaf best að horfast í augu við raunveruleikann og haga orðum og gerðum í samræmi við hann. Gáfurnar skína af þér og það fer ekki framhjá neinum í dag. 22. des. - 19. janúar Steingeit Til þess að koma þeim verkefnum áleiðis sem þú berð fyrir brjósti verðurðu að leita þér aðstoðar. Gættu þess að gera alls ekkert að óathuguðu máli á peningasviðinu. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það getur verið erfitt að hafa aug- að stöðugt á framtíðinni en mundu að störf þín í dag leggja grunninn að morgundeginum. Láttu ekki samstarfsmann ergja þig. 19. feb. - 20. mars Fiskar Gættu tungu þinnar því aðrir kunna að vera mjög auðsærðir. Gættu því vel að því hvað þú segir og reyndu að haga gerðum þín- um þannig að þær verði þér til góðs. Ég mætti karlinum á Laugaveg-inum í dumbungnum á fimmtu- daginn þar sem hann rölti upp Skóla- vörðustíginn og raulaði fyrir munni sér. Það var á einu kveldi, að Lobba kom með loðna skó úr Lundúnaveldi, úr Lundúnaveldi. Ég vék mér að honum og spurði al- mættra tíðinda, hvað hann segði um borgarstjórann og hver þessi Lobba væri. Þá teygði hann höfuðið á ská aftur á bak til vinstri og sönglaði: Ansar Lobba í Lundúnaveldi: „Hvort loforðin sín hann héldi? Engan sé ég þess stað. Já, svona’ er nú það. Og Dagur er kominn að kveldi.“ Síðan rauk hann af stað upp Skóla- vörðustíginn og sönglaði: Það er annríki mikið á önninni þótt enginn sé fiskur á pönnunni – en mín kerling er frísk og á kaffi ekki nísk og ég held það sé heitt á könnunni! Ingólfur Ómar yrkir um „hinstu förina“: Er ég legg í langa ferð laus úr jarðlífs þófi, Drottni mínum dyggur verð og drekk þá bara í hófi. Friðrik Steingrímsson bætti við: Þegar lífs míns tæmist trog til þess hlakka’ í anda, með Sankti-Pétri’ að sitja og súpa góðan landa. Ármann Þorgrímsson segir „ekkert að marka skýrslu frá ein- hverjum útlendingi“: Ísland það er alltaf best aldrei hér neitt svínarí undrar mig það einna mest að enginn skuli trúa því. Karl Sigtryggson á Húsavík orti: Þegar síðsta fjöðrin fer og fjóshaugurinn hrynur svo ekki er hægt að hreykja sér þá hugsa ég til þín, vinur. Grímur á Jökulsá í Fjörðum orti: Ekki þekki ég þennan hól; þetta er hríðin meiri. Þarna fauk í þetta skjól; þau eru töpuð fleiri. Víst er það rétt sem Reir frá Drangsnesi segir í stökunni þessari: Hvað varðar mig um heimsins prjál ef heilsan góða fer? Ég er bara einföld sál, einn með sjálfum mér. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af Lobbu, borgar- stjóranum og landa „OF HÁTT?“ „ERTU KOMIN AFTUR, KAREN?!“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að setja toppinn bara niður á „slæmu hárdögunum“ hennar. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÉG HEFÐI ALDREI ÁTT AÐ TALA VIÐ HERMANN ÓVINARINS FYRIR ORRUSTUNA Í DAG! HVÍ? VAR HANN ÓGNANDI? NEI, VERRA! VIÐ URÐUM VINIR! Hugmyndir um að stytta vinnutímahverrar viku hafa að undanförnu fengið meira vægi en áður var. Af umræðunni að dæma er sennilegt að einhver skref verði tekin í þá átt á næstu árum, þó að fulltrúar atvinnu- rekenda séu tregir í taumi enn sem komið er. Skiljanlega. Líklega er vel framkvæmanlegt til dæmis í færi- bandafabrikkum að vinna skemur án þess að afköstin falli niður. Munum samt að aðstæður á vinnustöðum í dag eru miklu betri en áður; margir hafa til dæmis sveigjanlegan vinnu- tíma, möguleika á fjarvinnslu, svig- rúm til þess að skreppa frá til að sinna tilfallandi prívatmálum og svo framvegis. Í því ljósi hefur Víkverji stundum spurt sig hvort 40 stunda vinnuvika sé þá ekki bara hófleg og þar gott viðmið þar sem launafólk og vinnuveitendur mætast á miðri leið. x x x En eru vinnufúsir Íslendingar al-mennt á því að hægja ferðina og vinna skemmri vinnudag? Duga dag- vinnulaun og er ekki bara mjög lík- legt að ef vinnudagurinn verður kannski 6-7 tímar verði margt að sitja á hakanum eða liggi óbætt hjá garði? Og þegar fólk er búið að vinna klukkan þrjú síðdegis er enn mikið eftir af deginum og tilvalið að stökkva í aukavinnu sem víða býðst. Rétt er líka að hafa í huga að með snjallsímavæðingunni eru skilin milli frítíma og starfs oft óljós og þýðir að sumir eru alltaf í vinnunni, svo sem Víkverji sem situr heima á sunnu- dagsmorgni og skrifar pistilinn sinn. Stytting vinnutímans hefur margar hliðar eins og sjá má. x x x Stundum er sagt að iðja sé auðnumóðir og lífsfylling margra felst í vinnunni og því að sjá eitthvað liggja eftir sig. Sjálfsmynd margra byggist beinlínis á því. Víkverja verður í þessu efni hugsað til góðs vinar sem lést á besta aldri: manns sem var í verktakastarfsemi og vann tíu til tólf tíma á dag. Hann sagði í viðtali, sem presturinn vitnaði til í útfararræðu, að einu gilti hve lengi væri stritað og hart lagt að sér, að dagurinn dygði aldrei. Alltaf biði margt ógert til morgundagsins sem hann hlakkaði alltaf til. vikverji@mbl.is Víkverji Ég hef augu mín til fjallanna, hvaðan kemur mér hjálp? Hjálp mín kemur frá Drottni, skapara himins og jarðar. (Sálm: 121.1-2)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.