Morgunblaðið - 16.04.2018, Qupperneq 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. APRÍL 2018
» Wadada Leo Smith, frumkvöðull í bandarískridjass- og nútímatónlist og einn af helstu
trompetleikurum samtímans, heimsótti Ísland til
tónleikahalds í liðinni viku og lék í Mengi 13. og 14.
apríl. Undanfarin tvö ár hefur hann skipulagt tón-
listarhátíðina Create Festival í Bandaríkjunum
sem tileinkuð er hans eigin tónsmíðum og flutningi
þeirra og var nú haldin, í fyrsta sinn í Evrópu,
tveggja daga Create hátíð í Mengi. Íslenskir tón-
listarmenn komu fram með Smith, m.a. Skúli
Sverrisson bassaleikari.
Wadada Leo Smith, einn fremsti djass- og spunatrompetleikari samtímans, lék í Mengi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gleði Tónlistin getur snert hjartastrengi, ekki síst í Mengi.
Dulúð Tvíróma söngur liðaðist um salarkynnin.
Innlifun Áheyrendur gleymdu stað og stund.
Rámur Sjaldan eru djasstónleikar
án tenórsaxófóns.
Tækni Að baki list-
sköpuninni er stafræn
tækni sem endranær.
Sjötugasta og fyrsta kvikmyndahá-
tíðin í Cannes hefst 8. maí og hefur
nú verið tilkynnt um nokkrar þeirra
kvikmynda sem frumsýndar verða á
hátíðinni að þessu sinni en hún er ein
sú virtasta í heiminum. Af þeim
kvikmyndum sem keppa munu um
aðalverðlaun hátíðarinnar hafa verið
kynntar nýjasta mynd Jean-Luc
Godards, Le livre d’images, kvik-
mynd Lee Chang-dong, Burning og
kvikmynd Spike Lee, BlackKk-
Klansman. Þá frumsýnir Jafar
Panahi Three Faces, David Robert
Mitchell Under the Silver Lake og
Pawel Pawlikowski Cold War.
Vefurinn The Film Stage segir að
orðrómur sé uppi um nokkrar kvik-
myndir eftir heimskunna leikstjóra
sem hafi ekki komist í aðalkeppn-
isflokkinn, keppnina um Gull-
pálmann og að þeirra á meðal sé ný
kvikmynd Brian De Palma, Domino,
kvikmynd Olivier Assayas Non Fict-
ion, The House That Jack Built eftir
Lars von Trier, Peterloo eftir Mike
Leigh, Loro eftir Paolo Sorrentino
og Radegund eftir Terrence Malick.
Sigurstranglegur? Spike Lee frumsýnir kvikmyndina BlackKkKlansman á
kvikmyndahátíðinni í Cannes í næsta mánuði.
Godard og Spike Lee
í aðalkeppni Cannes
Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
Skútan
Sjá verð og verðdæmi
á heimasíðu okkar
www.veislulist.is
Fagnaðir
Næst þegar þið þurfið pinnamat, smurt brauð eða tertur
fyrir útskriftina eða annan mannfagnað, hafðu þá
samband og fáðu tilboð í sal okkar og veitingarnar þínar.
PINNAMATUR
Veislur eru
okkar list!
Bjóðum uppá fjölda tegundapinnamats og tapasrétta
Pinna- og tapasréttir
eru afgreiddir á
einnota fötum,
klárt fyrir veisluborðið.
ICQC 2018-20