Morgunblaðið - 18.04.2018, Qupperneq 1
Morgunblaðið/Eggert
Sjúkrahús Fleiri sækja í aðgerðir erlendis.
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Sjúkratryggingum Íslands (SÍ) hefur borist 31
umsókn á þessu ári frá sjúklingum sem velja
að fara í liðskiptaaðgerðir erlendis vegna langs
biðtíma eftir aðgerð á Íslandi. 24 þeirra hafa
verið samþykktar en sjö bíða afgreiðslu. Allt
árið í fyrra voru samþykktar umsóknir 48 tals-
ins. SÍ er heimilt að greiða fyrir læknismeðferð
erlendis ef nauðsynleg meðferð er ekki í boði
innan þriggja mánaða hér á landi.
Á Klíníkinni hafa verið gerðar 95 liðskipta-
aðgerðir á rúmu ári og vill Hjálmar Þorsteins-
son, framkvæmdastjóri Klíníkurinnar, meina
að þær aðgerðir og aðgerðirnar erlendis eigi
m.a. þátt í því að fækkað hafi á biðlistum í lið-
skiptaaðgerðir hjá Landspítalanum. Því sé ekki
biðlistaátakinu einu að þakka árangurinn. Þá
bendir Hjálmar á að á sama tíma og að bið-
listinn hafi styst eftir fyrrnefndum aðgerðum
þá hafi bið eftir viðtali við bæklunarskurð-
lækna Landspítalans til ákvörðunar um aðgerð
lengst síðastliðið ár og að nú sé hún um sex til
átta mánuðir. Þann tíma telji stjórnvöld hins
vegar ekki með til biðtímans þótt sjúklingurinn
þjáist af augljósum ástæðum jafn mikið í bið
sinni eftir viðtali við lækni og biðinni eftir að-
gerð.
Aðgerðir Klíníkurinnar eru ekki greiddar af
SÍ og segir Hjálmar það mismunun gagnvart
sjúklingum.
Bið eftir viðtali hefur lengst
Forstjóri Klíníkurinnar segir fleiri ástæður en átak stjórnvalda fyrir styttri bið eftir aðgerð
MSnýst um fjármuni ríkisins og jöfn … »6
M I Ð V I K U D A G U R 1 8. A P R Í L 2 0 1 8
Stofnað 1913 90. tölublað 106. árgangur
STREYMISVEITUR
BLÁSA NÝJU LÍFI Í
GERÐ LEIKINS EFNIS DÓMSDAGSMÁLMUR
NÝTT KÓRVERK
EFTIR STEINGRÍM
FRUMFLUTT
HEIMILDARMYND OG TÓNLEIKAR 33 KÓR NESKIRKJU 30HEIMABÍÓ 12
Nemendur í listdansskólum innan Félags ís-
lenskra listdansara fóru á kostum í Hörpu í gær
við opnun Barnamenningarhátíðar. Hátíðin
stendur fram á sunnudag og frítt er á alla við-
burði. Fjölbreytt dagskrá fyrir börn, unglinga
og fjölskyldur þeirra verður víða um höfuðborg-
ina, í grunnskólum, leikskólum, frístundamið-
stöðvum og listaskólum, í Ráðhúsi Reykjavíkur
og Hörpu. Ævintýrahöll verður sett upp í Iðnó.
Í loftköstum á setningu barnamenningarhátíðar
Morgunblaðið/Valli
Þátttaka í peningaspilum jókst
umtalsvert í kjölfar efnahagshruns-
ins 2008. Þetta kemur fram í niður-
stöðum tveggja rannsókna sem
Daníel Þór Ólafsson, prófessor við
sálfræðideild Háskóla Íslands, og
samstarfsmenn hans, hafa gert á
spilahegðun Íslendinga. Daníel segir
að þátttaka hafi sérstaklega aukist í
spilum á borð við lottó, bingó,
flokkahappdrætti og skafmiðahapp-
drætti. Hins vegar hafi lítil breyting
orðið á þátttöku fólks í íþróttaveð-
málum. Þá hafi notkun á spilaköss-
um dregist verulega saman. »4
Efnahagshrunið ýtti
undir peningaspil
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Sindri Þór Stefánsson, sem strauk
úr fangelsinu á Sogni í gær og flúði
land til Svíþjóðar, fór að öllum lík-
indum í gegnum
Keflavíkurflug-
völl án þess að
hafa verið spurð-
ur um skilríki.
Flugmiðinn sem
Sindri flaug með
var á öðru nafni
en hans eigin en
lögreglan á Suð-
urnesjum telur
ekkert benda til
þess að hann hafi haft fölsuð skilríki
eða annars manns vegabréf undir
höndum.
„Þegar menn eru á ferðinni er það
undir flugfélaginu komið þegar flog-
ið er milli ríkja innan Schengen
hvaða skilríkja það krefst. Við vitum
að hann flaug á annars manns nafni,
sem þýðir að öllum líkindum að hann
hafi ekki verið beðinn um skilríki,“
segir Ólafur Helgi Kjartansson, lög-
reglustjóri á Suðurnesjum.
Guðjón Arngrímsson, upplýsinga-
fulltrúi Icelandair, félagsins sem
Sindri flaug með til Svíþjóðar, segir
að flugfélagið hafi engar upplýsingar
um ferðir mannsins en almennt sé
ekki gerð krafa um vegabréf í flugi
milli ríkja sem eru aðilar að Schen-
gen. »2
Flugmiði
nóg til að
flýja land
Sindri Þór
Stefánsson
Strokufangi aldrei
spurður um skilríki